Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 47

Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980 47 —- Búið að draga í töfluröð í 2. deild: Stefnir í óvenju harða keppni • Skautasvæðið á Leirutjörn. þar sem setningarathöfn vetraríþrótta- hátíðarinnar á Akurcyri fer fram i kvöld. Þar mun einnijf vera keppt í skautahlaupi meðan á hátíðinni stendur. Naumur sigur KR ÞAÐ voru ekki burðugir taktarnir, sem leikmenn KR og Fram sýndu í gærkveldi er liðin áttust við í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. KR-ingar, sem þó misstu tvo menn af leikvelli vegna meiösla, reyndust þó sterkari ó endasprettinum og sigruðu í leiknum með fjögurra stiga mun 59—54, eftir að staöan hafði verið 33—30 í leikhlói, Fram í vil. Grindavík áfram GRINDAVÍK vann Ármann 107:97 í bikarkeppni KKÍ í gærkvöldi og mætir næst KR. Leikið var í Njarðvík og voru Ármenningar án Danny Shous, sem farinn mun af landi brott. Framarar, sem þurftu fyrstu 5 mínútur leiksins til að skora sín fyrstu stig, voru skárri aðilinn í fyrri hálf- leiknum, en í þeim síðari reyndist Jón Sigurðsson ofjarl þeirra og nú er orðið ansi slæmt útlitið í herbúöum Fram, en þó e.t.v. ekki öll von úti enn. Símon Ólafsson var yfirburða- maöur í liði Fram, en aðrir áttu rólegan dag. Stig KR: Jón Sig. 21, Geir Þorst. 14, Birgir Guðbj. og Árni Guð- mundss. 9, Þröstur og Ágúst 4, Gunnar J. og Garðar 2 stig. Stig Fram: Símon 28, Darrel Shouse 9, Þorvaldur G. 11, Guðm. H. 4, Björn Jónss. 3 og Björn Magnúss. og Hilmar 2 stig hvor. - Sfte. DREGIÐ var í töfluröð fyrir 2. deildar liðin í knattspyrnu fyrir komandi íslandsmót i knatt- sjpyrnu. Kom þetta þannig út, að Armann varð númer eitt, 2. Völsungur, 3. Þór, 4. Þróttur Nk., 5. Haukar, 6. Fylkir, 7. ÍBÍ, 8. KA, 9. Austri og 10. Selfoss. Samkvæmt reglum um niðurröð- un leikja á bls. 25. i mótabók KSÍ, leika þvi eftirtalin lið saman í fyrstu umferð íslandsmótsins i 2. deild: Ármann — Selfoss Völsungur — Austri Þór Ak — KA Þróttur Nk — ÍBÍ Haukar — Fylkir I annarri umferð leika síðan: Selfoss — Fylkir Ármann — Völsungur Austri — Þór KA — Þróttur ÍBÍ — Haukar í fljótu bragði mætti ætla, að baráttan í 2. deild verði geysilega hörð og tvísýn og ekki víst að eitt eða tvö yfirburðalið skeri sig úr eins og áður hefur gerst. Öll liðin í 2. deild utan KA hafa þegar gengið frá ráðningu þjálf- ara. KA er enn að leita fyrir sér í Vestur-Þýskalandi, en til umræðu hefur komið að þeir Þormóður Einarsson og Sigbjörn Gunnars- son sjái saman um þjálfun liðsins gangi dæmið ekki upp í Þýska- landi. Víkingurinn Bogdan Kow- alzik verður með lið Ármanns og hitt liðið sem kom upp úr 3. deild, Völsungur, verður undir stjórn Gísla Haraldssonar. Árni Njálsson verður þjálfari Þórs, Sigurbergur Sigsteinsson þjálfari Þróttar og Þorsteinn Friðþjófsson þjálfari Hauka. Fylkir hefur ráðið Gylfa Þ. Gísla- son og ÍBÍ hefur ráðið Kjartan Sigtryggsson. Landsliðsmaðurinn ungi í handknattleik, Sigurður Gunnarsson, mun sjá um þjálfun Austra á Eskifirði og Jón B. Stefánsson verður með lið Selfoss á sínum snærum. Manchester Utd vann Ymis félagaskipti síðustu dagana MANCHESTER Utd. komst upp að hlið Liverpool í 1. deild í Englandi mað 2:0 sigri yfir Bolton f gær- kvöldi. Bæði liðin hafa 40 stig en Liverpool hefur leikið einum leik minna. Úrslit í 1. deild: Aston Villa — Manchester City 2.2 Manchester Utd. — Bolton 2:0 Tottenham — Coventry 4:3 Norwich — Middlesbroug 0:0 Gordon McQueen og Steve Copp- ell skoruðu mörk Manchester. Glenn Hoddle skoraði þrjú af mörkum Tottenham en Mark Falco skoraði fjóröa markið á síðustu sekúndunni. Tom English og Paul Dyson skoruðu mörk Coventry. Aston Villa tók forystu gegn MC meö marki Gary Shaw en Mike Robinson og Paul Power náðu for- ystunni fyrir MC. En Donarchie skor- aöi svo sjálfsmark stuttu fyrir leikslok og jafnaði metin. ÞORGEIR Þorgeirsson, Þróttar- inn marksækni, og Pétur ísleifs- son úr Austra hafa gengið til liðs við 3. deildar lið Hugins á Seyðis- firði. Þjálfari Hugins er Sigurð- ur Þorsteinsson úr Stjörnunni, en meðal leikmanna liðsins eru Adolf Guðmundsson, harðjaxl úr Víkingi, og Guðjón Harðarson, fyrrum leikmaður með Val og KA. Þá hefur Láurs Jónsson tekið að sér þjálfun Súlunnar á Stöðvar- firði. Lárus var áður hjá Aftureld- ingu, Víkingi og Haukum. Ein- herji á Vopnafirði er enn þjálfara- laus, en félagið hefur átt viðræður við Einar Friðþjófsson, sem þjálf- aði Völsunga á síðasta keppnis- tímabili og kom liðinu upp í 2. deild. Knattspyrna „Spjaldanotkun á sér enga stoð í körfuknattleiksreglunum" UNDANFARNA daga hefur orðið nokkur umræða um reglur aganefndar KKI einkum hvað varðar kærumál vegna notkunar á gulum spjöldum við dómgæslu í kappleikjum vetrarins. Af þessu tilefni langar mig að benda á nokkur atriði sem málið varða. Reglur aganefndar KKÍ kveða rnjög skýrt á um það hvernig kæra skal mál til nefndarinnar. I 7. grein segir. „Kæra skal vera rituð á bakhlið frumrits leikskýrslu ...“ og síðar: „Ennfremur skal félagi hins kærða tilkynnt um kæruna á bakhlið leikskýrslu félagsins Með þessum ákvæðum ætti öllum að vera full ljóst hvernig framkvæma skal kæru til nefndarinnar. í 3. grein reglnanna segir: „Aganeínd fjallar einungis um þau agabrot. sem kærð eru til ncfndarinnar sbr 6 gr. 1. lið“. I 6. grein 1. lið segir m.a.: „Öllum starfsmönnum leiks er heimilt að kæra, en dómari skal koma kærunni til aganefndar KKÍ.' sig seka um „minniháttar óprúð- mannlega framkomu" eins og það er nefnt, með því að veita áminn- ingu fyrir fyrsta brot, en ítrekuð brot varða leikbanni í einn leik. Körfuknattleiksdómarar okkar hafa á undanförnum árum reynt að samræma aðgerðir sínar vegna brota sem heyra undir reglur aganefndar. M.a. hefur notkun gulra og rauðra spjalda verið liður í þeirri viðleitni. Gul spjöld hafa verið notuð sem tilkynning um áminningu og rauð tákna brott- rekstur af ieikvelli. Þessi spjalda- notkun á sér hins vegar enga stoð í körfuknattleiksreglum né heldur í reglum aganefndar KKÍ. í hvor- ugum reglunum er minnst einu orði á spjöld, rauð eða gul, til notkunar í þessum tilgangi. Þann- ig hefur dómurum láðst að tengja 8ínar spjaldareglur við gildandi reglugerðir um meðferð á aga- brotum. í þeim tilfellum sem leik- mönnum hafa verið sýnd spjöld í leikjum að undanförnu hafa dóm- arar skrifað athugasemd þar að lútandi aftan á frumrit leik- skýrslu. Framkvæmdastjóri KKÍ hefur síðan fylgst með því hvernig staða leikmanna er í spjaldamál- um og tilkynnt aganefnd þegar sami leikmaður hefur fengið þrjú gul spjöld, eða eitt rautt. í því máli sem mestum úlfaþyt hefur valdið þar sem Valsmennirnir Tim Dwyer og Ríkharður Hrafnkels- son áttu hlut að máli hafði ákvæðum 7. greinar aganefndar- reglna um tilkynningu til félags viðkomandi leikmanna ekki verið fullnægt í neinu hinna sex tilfella sem um var að ræða. Samkvæmt reglum aganefndar á að refsa leikmönnum sem gera Til þess að til kasta aganefndar komi að veita áminningu eða dæma leikbann þarf auðvitaö að kæra hvert einstakt brot til nefnd- arinnar, og kæran þarf að vera gerð í samræmi við giidandi regl- ur. Fyrsta brot sem kært er varðar þá áminningu en næsta kæra veldur leikbannsdómi. Að athuguðu máli er vesl hægt að fallast á þau viðhorf sem fram koma í Morgunblaðinu í gær hjá einum okkar ágætu dómara að . . þarna væri um einhvern misskilning að ræða. Greinilegt væri að reglurnar væru götóttar fyrst svona gæti komið fyrir. Og jafnvel að þarna væri um mikla mistúlkun að ræða,“ því dómara- stéttin hefur misskilið reglur aga- nefndar, sett sér götóttar starfs- reglur og mistúlkað þýðingu spj aldanotkunarinnar. Hvað viðvikur ummælum íor- manns KKÍ á þá iund að starfs- reglur aganefndar vœru stórgall- aðar væri mjög æskilegt fyrir körfuknattleiksmenn að fá á þvi nánari skýringar á opinberum vettvangi. Að lokum; til þess að taka af öll tvímæli og forðast frekari reki- stefnu vegna þessara mála ætti dómurum að vera í lófa lagið að meðhöndla kærumál í samræmi við reglur aganefndar þvi ekki verður séð annað en úrskurður nefndarinnar s.l. mánudagskvöld þar sem máli Dwyers og Ríkharðs var vísað frá og öll gul spjöld vetrarins dæmd ómerk hafi verið í fullu samræmi viðgildandi reglur. Einar Matthiasson formaður unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Vals. B-liðið stóð í Valsmönnum VALSMENN unnu B-lið KR i bikarleik i körfuknattleik eins og við var að búast, en gömlu refirnir hjá KR komu þó skemmtilega á óvart. Lokatölurnar urðu 95—83 fyrir Val, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 51-43 fyrir Val. Segja má að leikur þessi hafi verið „Afslappaður“, menn kapþkostuðu að hafa gaman af því sem þeir voru að gera og fyrir vikið var hér um mikla skemmtun að ræða, þar sem titturinn (KR-b) sýndi tilþrif gegn tröllinu (VAL). Ríkharður Hrafnkels- son var stigahæstur Vals- manna með 33 stig, en Einar Bollason skoraði mest fyrir KR, eða 24 stig. Áður höfðu Njarðvíkingar lagt ÍR að velli suður í Njarðvík og komist þannig í 4-liða úrslitin. Dregið verður í 4-liðaúrslitin í dag. Badminton REYKJAVÍKURMÓTIÐ í Badminton fer fram laugar- daginn 8. mars n.k. i Laug- ardalshöllinni. Keppt verður i Mfl. og A. fl. Þátttökutil- kynningar þuría að hafa borist fyrir 3. mars. Þær má tilkynna i sima 33270 Reyn- ir Þorsteinsson og hjá Hrólfi Jónssyni i sima 72528. Keppt í boccia ÍÞRÓTTAFÉLAG fatlaðra í Reykjavík efnir til innanfé- lagsmóts i boccia í íþrótta- húsi Hagaskólans, laugar- daginn 8. mars. Þátttaka tilkynnist til Jóhannesar P Sveinssonar Hátúni 12 eða Júliusar Arnarsonar og Markúsar Einarssonar fyrir 3. mars. Skíðatrimm SKÍÐARÁÐ ísaf jarðar verður með skiðatrimm um helgina n.k. Keppt verður i göngu 3,5 km og svigi. Allir sem ijúka keppni fá viðurkenningu. Van Gool til Coventry ENSKA 1. deildar liðið Cov- entry City hefur fest kaup á Roger Van Gool, belgíska landsliðsútherjanum, sem kemst ekki lengur í lið hjá FC Köln í Vestur-Þýskalandi vegna nærveru þeirra Oku dera og Woodcock, en þýsk lið mega aðeins tefla fram tveimur útlendingum í einu og Van Gool hefur verið látinn víkja. Coventry greiddi Köln 250.000 sterl ingspund fyrir garpinn. Þriöjudeildar liö í knattspyrnu á Vesturlandi óskar eftir tilboöum í auglýsingar á búninga félagsins. Upplýsingar í síma 93-1964.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.