Morgunblaðið - 11.03.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
2 millj. sviknar út úr
Iðnaðarbankanum
34 ára gamall maður í gæzluvarðhaldi
Á LAUGARDAG var 34 ára
gamall maður úrskurðaður í
gæzluvarðhald í Reykjavík
grunaður um að hafa svikið 1950
þúsund krónur út úr Iðnaðar-
bankanum.
Leikur grunur á því, að maður-
inn hafi í síðustu viku falsað
fjögur ávísanaeyðublöð, sem stolið
hafði verið frá fyrirtæki í borg-
inni, og selt þau í Iðnaðarbankan-
um og á þann hátt tekizt að ná
1950 þúsund krónum eins og fyrr
segir.
Rannsóknarlögregla ríkisins
annast rannsókn málsins. Maður-
inn var úrskurðaður í gæzluvarð-
hald til 19. marz.
Kókaínmálið:
Franklin Steiner
sleppt úr fangelsi
Ok á tvo staura
UNGUR piltur slasaðist talsvert
í andliti þegar bifreið, sem hann
var farþegi í, ók á tvo ljósa-
staura á Reykjavíkurvegi um
tíuleytið á sunnudagskvöld.
Tveir piltar voru saman í
bílnum og óku þeir allgreitt.
Ökumaðurinn missti
bílnum og skall hann
staur og braut hann
rann áfram stjórnlaust 50 metra
og skall síðan á næsta staur.
stjórn á
á ljósa-
Bíllinn
Bifreiðin er stórskemmd. Grun-
ur leikur á því að ökumaðurinn,
sem er ungur piltur hafi verið
ölvaður.
Myndin er af slysstað á
Reykjavíkurveginum og má
greinilega sjá hve illa bifreiðin
er farin.
Ljósm. Júlíus.
ÍSLENDINGURINN Franklin
Steiner, sem handtekinn var 2.
marz í fyrra í Kaupmannahöfn í
sambandi við kókaínmálið marg-
fræga, var nýlega látinn laus úr
fangelsi. Dvelur hann nú í
Svíþjóð, samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem Mbl. hefur aflað sér.
Franklin Steiner var dæmdur í
þriggja ára fangelsi í borgarrétti
Kaupmannahafnar fyrir þátt sinn
í málinu. Hann áfrýjaði dómnum
til Eystri-Landsréttar, sem mild-
aði refsinguna og dæmdi F'ranklin
í 1 '/2 árs fangelsi. Fangelsisárið í
Danmörku er 7 mánuðir þar sem
gæzluvarðhaldsvist Franklins
kemur til frádráttar hefur hann
afplánað dóminn og var honum
nýlega sleppt.
Hafa nú allir íslendingarnir,
sem dóma hlutu fyrir þátt sinn í
kókaínmálinu, afplánað dóma sem
þeir hlutu nema Sigurður Sigurðs-
son, en hann strauk sem kunnugt
er úr Vestre-fangelsinu í Kaup-
mannahöfn í fyrrasumar og hefur
ekki náðst síðan. Talið er að hann
dvelji um þessar mundir í Mexikó.
Deilt um eftirmann Pálma í fjárveitinganefnd:_
„Spurning um réttlæti eða
óréttlæti í starfi Alþingis“
Segir Ólafur G. Einarsson formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins
Banaslys á Hvolsvelli
BANASLYS varð á Hvolsvelli sl.
laugardag um kl. fi þegar Gunn-
ar Aðalsteinsson varð fyrir bif-
reið á Hlíðarvegi.
Slysið gerðist með þeim hætti
að bifreiðinni var ekið vestur
Hlíðarveg og gekk Gunnar í sömu
átt á graseyju við veginn. Mun
hann hafa sveigt skyndilega út á
götuna með fyrrgreindum afleið-
ingum. Gunnar var 47 ára gamall,
ókvæntur og barnlaus.
FYRIR síðustu helgi tilkynnti
Gunnar Thoroddsen forsætisráð-
herra Eiði Guðnasyni formanni
fjárveitinganefndar Alþingis að
Pálmi Jónsson landbúnaðarráð-
herra myndi hætta störfum í fjár-
veitinganefnd og Eggert Ilaukdal
myndi taka sæti hans. Eiður Guðna-
son hafði þá samband við Ólaf G.
Einarsson formann þingflokks
Sjálfstæðisflokksins og kynnti hon-
um orðsendingu forsætisráðherra,
en Ólafur svaraði því til að það
væri þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins að tilnefna þennan mann og
kvað hann þingflokk Sjálfstæðis-
Ráðuneyti Alþýðubandalagsins:
Með langmesta
útsedaldaaukningu
Aukning heil'larútgjalda
fjárlagafrumvarpsins miðað
við fjárlög 1979 er 65,3%.
Heildarútgjöld hækka sam-
kvæmt frumvarpinu í 334,5
milljarða króna, en í þeim
útgjaldapakka er heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytið lang-
stærst eða með 115,3 millj-
arða króna samkvæmt frum-
varpinu.
Auking útgjalda eftir ráðuneyt-
um er samt æði misjöfn. Minnsta
útgjaldaaukningin er í forsætis-
ráðuneytinu eða aðeins 13.3%.
Mest er útgjaldaaukningin hins
vegar í fjármálaráðneytinu eða
hvorki meira né minna en 214,2%.
Utgjaldaaukning þessa sama
ráðuneytis í frumvarpi Tómasar
Árnasonar miðað við fjárlög 1979
var hins vegar 155,9%. Þar var
forsætisráðuneytið einnig lægst
með 10,6% útgjaldaaukningu mið-
að við fjárlög.
Næstmesta útgjaldaaukingin er
í fjárlaga- og hagssýslustofnun,
þar sem hún er miðað við fjárlög
’79 131,4%, en var í frumvarpi
Tómasar 125,1%. Hér skal síðan
getið útgjaldaaukningar þeirra
ráðuneyta, sem enn hefur ekki
verið getið; æðsta stjórn ríkisins
48,3% aukning, menntamálaráðu-
neyti 54,1%, utanríkisráðuneyti
64 %, landbúnaðarráðuneyti
51,7%, sjávarútvegsráðuneyti
25,7%, dóms- og kirkjumálaráðu-
neyti 41,4%, félagsmálaráðuneyti
34,1%, samgönguráðneyti 59,4%,
iðnaðarráðuneyti 93,7%, við-
skiptaráðuneyti 23,8%, Hagstofa
íslands 45,5%
un 57,4%.
og ríkisendurskoð-
Athygli vekur við þessa upp-
talningu á aukningu útgjalda eftir
ráðuneytum, að þau ráðuneyti,
sem hafa verulega aukningu um-
fram ríkjandi verðbólgu, sem var
á árinu 1979 um 55%, eru heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytið
(ráðherra: Svavar Gestsson), fjár-
málaráðuneyti (ráðherra: Ragnar
Arnalds), iðnaðarráðuneytið (ráð-
herra: Hjörleifur Guttormsson),
fjárlaga- og hagsýslustofnun (ráð-
herra: Ragnar Arnalds) og utan-
ríkisráðuneytið (ráðherra: Ólafur
Jóhannesson).
flokksins ekki fallast á Eggert
Haukdal sem fulltrúa þingflokks-
ins i þessu efni. Ilringdi Eiður þá í
forsætisráðherra eftir að hafa ráð-
fært sig við skrifstofustjóra Alþing-
is og tilkynnti honum að hann gæti
ekki tekið þcssa tiinefningu giida.
Morgunblaðið hafði í gærkvöldi
samhand við Ólaf G. Einarsson og
innti frétta af gangi málsins eftir
tilkynningu formanns fjárveitinga-
nefndar.
„Gunnar talaði við mig á föstu-
dag,“ sagði Ólafur, „og fékk staðfest-
ingu á umræddri skoðun þingflokks-
ins. Sagði Gunnar að þá yrði kosið í
málinu og hafði ég ekki athugasemd-
ir við það þar sem ég taldi að
þingflokkurinn réði ekki við ákvörð-
un stjórnarinnar. Við nánari um-
ræður í þingflokknum og viðræður
við.formann flokksins töldum við að
málið yrði að ræða í þingflokknum í
dag og var samþykkt að taka það út
af dagskrá. Ég komst einnig að því í
dag á fundum með formönnum
þingflokka Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks, stjórnarflokk-
anna, að þeir hefðu ekki viljað
afgreiða málið í dag, heldur vildu
þeir frestun á málinu.
Málið var síðan rætt í þingflokki
Sjálfstæðisflokksins í dag og kom
þar fram að það hafði verið ákvörð-
un ráðherranna þriggja úr hópi
sjálfstæðismanna að Eggert skyldi
taka sæti Pálma í fjárveitinganefnd
og gat þingflokkurinn ekki fallist á
það. Gunnar bað þá um að málið yrði
ekki afgreitt, heldur reynt að komast
að samkomulagi á fundi á morgun,
þriðjudag, og verður sá fundur
haldinn.
Við getum ekki fallist á það. að
þótt annar ráðherranna dragi sig til
baka að aðrar reglur gildi um
eftirmann hans en gilt hafa um
áratugaskeið, þar sem það hefur
viðgengist ef svona staða kemur upp
að forseti tilkynni ákvörðun viðkom-
andi þingflokks um eftirmann.
Við teljum að þarna sé verið að
fara fram á of mikið og ef skipta á
þingflokki upp í svona vængi þá geta
3—4 menn úr hópi þingflokks ekki
átt rétt á jafn mörgum mönnum í
fjárveitinganefnd og 17—18 manna
hópur.
Ef þingflokkar ætla að fara að
taka afstöðu með minnihluta í þing-
flokki sjálfstæðismanna er verið að
taka upp ný vinnubrögð sem geta
haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar
fyrir samskipti og samvinnu í þing-
inu yfirleitt. Þetta mál er spurning
um réttlæti eða óréttlæti í starfi
Alþingis og þetta er óréttlæti eins og
átti að afgreiða það með símhring-
ingum.“
Höfundur
Vísisviðtals
í frásögn Morgunblaðsins af við-
tali Vísis sl. laugardag við Geir
Hallgrímsson féll niður nafn höf-
undar viðtalsins en það er Jónína
Mikaelsdóttir, blaðamaður við
Vísi.
„Trúnaðarstarf fyrir ríkisstjórn,
sem ég er í andstöðu við“
Ólafur G. Einarsson segir sig úr gjaldskrárnefnd
ÓLAFUR G. Einarsson formað-
ur þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins hefur með bréfi til
viðskiptaráðherra sagt af sér
störfum í gjaldskrárnefnd, sem
hann var skipaður í af ríkis-
stjórninn þ 19. f.m.
Ólafur sagði í samtali við
Mbl. í gær að hann hefði
ákveðið að segja af sér í fyrsta
lagi vegna þess, að hann liti á
þetta starf sem trúnaðarstarf
fyrir ríkisstjórn, sem hann væri
i andstöðu við, og í öðru lagi sæi
hann forskrif í sáttmála ríkis-
stjórnarinnar, hvernig farið
skuli með breytingar á verð-
lagningu vöru og þjónustu.
„Stjórnarsáttmálinn segir,“
sagði Ólafur, „að verðbreyt-
ingar megi aðeins hækka að
vissri prósentu á vissum
ákveðnum tímamörkum. Þetta
er aðferð, sem Sjálfstaíðisflokk-
urinn er í andstöðu við og ég
get alls ekki fellt mig við.“
Bréf ólafs til viðskiptaráð-
herra birtist orðrétt hér á eftir:
„Viðskiptaráðherra Tómas
Árnason, Arnarhvoli, Reykjavík.
Vegna bréfs yðar, hæstv. ráð-
herra, dags. 22. f.m. þar sem þér
tilkynnið mér, að ég hafi verið
skipaður í svonefnda gjaldskrár-
nefnd, samkvæmt ákvörðun rík-
isstjórnarinnar 19. f.m., vil ég
taka fram eftirfarandi:
Forsætisráðherra hafði farið
fram á það við mig, að ég tæki
sæti í þessari nefnd og ég talið
það koma til greina. Við nánari
athugun þótti mér þó hæpið að
verða við þeirri beiðni, þar sem
mér sýndist um trúnaðarstarf að
ræða fyrir ríkisstjórn, sem ég
væri í andstöðu við. Greindi ég
forsætisráðherra frá þessari
skoðun minni og bað hann at-
huga málið nánar, ef um slíkt
trúnaðarstarf væri að ræða. Frá
þessu samtali sagði ég yður
síðar, þegar mál þetta barst í tal
okkar í milli.
Af skipunarbréfinu sýnist mér
þið ráðherrarnir líta málið öðr-
um augum en ég. Það breytir þó
ekki minni skoðun, að hér sé í
raun um starf að ræða, sem ég
get ekki tekið að mér.
í öðru lagi vísa ég til þess, sem
segir efnislega í skipunarbréf-
inu, að breytingar á verðlagn-
ingu vöru og þjónustu opinberra
aðila verði að vera í samræmi
við ákvæði stjórnarsáttmála.
Kafli stjórnarsáttmálans um
verðlagsmál er þannig, að mér
sýnist gjaldskrárnefnd ekki hafa
neina þýðingu. Þar er í raun
kveðið á um hverjar verðbreyt-
ingar megi að hámarki eiga sér
stað á tilteknum tímabilum. Mat
gjaldskrárnefndar á hækkunar-
beiðnum er því gangslaust, ef
ólafur G. Einarsson.
það mat fellur utan þess ramma,
sem nefndur stjórnarsáttmáli
ákveður.
Með vísun til framanritaðs
tilkynni ég hér með, að ég treysti
mér ekki til að taka sæti í
gjaldskrárnefnd.
Virðingarfyllst,
Ólafur G. Einarsson“