Morgunblaðið - 11.03.1980, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
Óbreytt framlög
Ragnars til NATO
Fjárlagaírumvarp það,
sem Ragnar Arnalds lagði
fram á Alþingi í gær, er
fyrsta frumvarp fjármálaráð;
herra Alþýðubandalagsins. í
frumvarpinu er gert ráð fyrir
rúmlega 77 milljóna króna
framlagi til Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, og 4ra
milljón króna framlagi til
þingmannasamtaka NATO.
Upphæðir þessar, samtals
rúmlega 81 milljón króna, eru
hinar sömu og Tómas Árna-
son, fyrrum fjármálaráðherra
vinstri stjórnarinnar lagði til í
frumvarpi sínu, sem lagt var
fyrir Alþingi í októbermánuði
og Sighvatur Björgvinsson
fyrrum fjármálaráðherra
lagði til í fjárlagafrumvarpi
minnihlutastjórnar Alþýðu-
flokksins frá því í desember-
mánuði síðastliðnum.
Sovézku skák-
meistararnir
tefla fjöltefli
MIÐVIKUDAGINN 12. marz
kl. 20.00 munu sovézku skák-
meistararnir Sosonko og
Vasjukov tefla fjöltefli á veg-
um Æskulýðsráðs Reykja-
víkur. Teflt verður í félags-
miðstöðvum ráðsins,
Bústöðum og Fellahelli, og
hefst fjölteflið kl. 20.00 á
báðum stöðum.
Teflt verður við fulltrúa úr
Sjómaðurinn
sem drukknaði
SJÓMAÐURINN sem drukknaði
sl. föstudag er hann féll útbyrðis
af Gjafari VE hét Sævar Jensson.
Hann náðist um borð aftur, en
lífgunartilraunir báru ekki árang-
ur. Sævar var 31 árs, ókvæntur og
barnlaus.
4NNLENTV
tómstundahópum i skák úr
unglingastigsskólum Reykja-
víkur og aðra þá sem áhuga
hafa á að mæta meisturunum
við taflborðið. Þátttakendur
eru beðnir að hafa með töfl og
taflborð.
Stórmeistarinn E. Vasjukov og
alþjóðlegi meistarinn V. Kupreit-
schik. sovésku þátttakendurnir á
níunda Reykjavíkurskákmótinu,
verða gestir í MÍR-salnum, Lauga-
vegi 178, n.k. þriðjudagskvöld, 11.
mars, kl. 20.30. Þar mun Vasjukov
rabba um sitthvað það sem nú ber
hæst í skákheiminum, segja frá
þátttöku sinni á alþjóðamótum og
kynnum af frægum skákmeistur-
um, m.a. heimsmeistaranum Ana-
toly Karpov, en Vasjukov var
aðstoðarmaður Karpovs, þegar
hann tefldi við Kortsnoj um
heimsmeistaratitilinn á Filipseyj-
um um árið. Mun Vasjukov vafa-
laust víkja að því umtalaða einvígi
í rabbi sinu og segja frá samstarfi
sínu og heimsmeistarans.
Ef tími vinnst til og áhugi
reynist vera fyrir hendi mun
Kupreitschik tefla fjöltefli við þá
sem vilja og hafa með sér mann-
töfl.
Aðgangur að MÍR-salnum er
öllum heimill meðan húsrúm leyf-
ir.
Drangey vígð
í Reykjavík
SKAGFIRÐINGAR í Reykjavík
vigðu nýtt félagsheimili s.I.
laugardag og voru á þriðja
hundrað manns viðstaddir
vígsluathöfnina, þar af þó
nokkrir heiman úr héraði. Fé-
lagsheimilið er að Siðumúla 35
og er um 200 fermetrar að
stærð, hið vistlegasta i alla
staði.
Framkvæmdir hafa verið unn-
ar að öllu leyti í sjálfboðastarfi
af félögum og velunnurum, sagði
Gestur Pálsson formaður Skag-
firðingafélagsins í vígsluræðu
sinni um leið og hann þakkaði
öllum sem lagt höfðu hönd á
plóginn. Bað hann síðan einn
heiðursfélaga Skagfirðingafé-
lagsins, frú Stefönnu Guð-
mundsdóttur, að gefa heimilinu
nafn. Heitir það Drangey. Fé-
lagsheimilið er sameign Skag-
firðingafélagsins í Reykjavík,
kvennadeildar og Skagfirsku
söngsveitarinnar.
Við vígslu Drangeyjar, félags-
heimilis Skagfirðinga sunnan
heiða. Að sjálfsögðu var lagið
tekið á vigsluhátiðinni og
Íiarna má sjá i miðjunni Stefán
slandi syngja Skin við sólu
Skagafjörður, en hægra megin
við hann er Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir söngstjóri Skag-
firsku söngsveitarinnar.
Vinstra megin við Stefán
íslandi eru frá hægri Ólafur
Sveinsson, Gestur Pálsson,
Marius Sölvason og Jón Ing-
ólfsson.
Árnessýsla:
Riða fundin í f é
í fyrsta sinn
RIÐA hefur nú fundist í fé
í fyrsta skipti í Árnessýslu
og er þar um að ræða tvær
kindur, sín á hvorum bæn-
um. Er talið að lokinni
rannsókn á Keldum að
riðan hafi verið á svæðinu
í annarri kindinni í um
það bil tvö ár. Önnur
kindin sem var með riðu
var frá bænum Úthlíð í
Biskupstungum, en hin
var frá bænum Miðdal í
Laugardal.
ennþá til hvaða aðgerða verður
gripið. Talið er að veikin hafi
borizt frá Reykjavíkursvæðinu
en kindur þaðan hafa farið á
flæking og komið fram með fé í
Árnessýslu. Mikill samgangur
er hjá fé á Árnessýslusvæðinu.
Mikil rannsókn hefur nú farið Hins vegar má geta þess að
fram á öllu fé í vesturhluta Reykjavíkur-afbrigðið af riðu
Biskupstungna, en óráðið er hefur verið talið vægt.
Aðstoðarfiskimála-
ráðherra Sovétríkj-
anna gestur MIR
í MARSMÁNUÐI eru liðin 30 ár
frá stofnun félagsins MÍR, Menn-
ingartengsla íslands og Ráð-
stjórnarrikjanna
I tilefni afmælisins eru væntan-
legir hingað til lands tveir gestir
frá Sovétríkjunum þeir Nikolaj P.
Kúdrjavtsév, aðstoðarfiskimála-
ráðherra Sovétríkjanna og for-
maður Félagsins Sovétríkin-
ísland, og Arnold K. Meri, fyrr-
verandi aðstoðarkennslumálaráð-
herra eistneska sovétlýðveldisins
INNLENT
og núverandi formaður Vináttufé-
lagsins í Eistlandi. Koma þeir til
landsins 13. mars og dveljast hér á
landi í vikutíma, ræða við félags-
stjórn MÍR um samstarfsáætlun
næstu missera og sitja afmælis-
samkomu félagsins, auk þess sem
þeir heimsækja nokkrar stofnanir
og fyrirtæki í Reykjavík og víðar,
segir í frétt frá MÍR.
Afmælissamkoma MÍR verður
haldin í Þjóðleikhúskjallaranum
sunnudaginn 16. mars kl. 3 síðdeg-
is. Þar flytja ávörp m.a. Kúdrjav-
tsév ráðherra og Mikhaíl Strelt-
sov, ambassador Sovétríkjanna á
íslandi. Elín Sigurvinsdóttir óp-
erusöngkona syngur einsöng við
píanóundirleik Agnesar Löve og
Geir Kristjánsson rithöfundur les
upp úr ljóðaþýðingum sínum af
rússnesku. Kaffiveitingar verða á
boðstólum og efnt verður til happ-
drættis.