Morgunblaðið - 11.03.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
23
• Algeng sjón í leik Vals og Atletico Madrid, leikmenn afvelta eftir árekstra og átök. Hér er það Þorbjörn
Guðmundsson sem hefur stangað vörnina hjá Spánverjunum og tveir liggja, auk hans. Þeir Steindór og
Stefán Halldórsson virðast varia hafa áhuga á þvi sem um er að vera.
Ljósm. Emilia.
Stærsta stundin á ferli
allra leikmannanna
ÞAÐ VAR þröng á þingi i
búningsklefum Vals eftir leikinn
við Atletico. Hamingjuóskum
rigndi yfir leikmenn og ófáir
kysstu þá í bak og fyrir. Stórsig-
ur Vals gladdi svo sannarlega
hjörtu allra stuðningsmanna liðs-
ins. Það var þvi ekki hlaupið að
því að komast að leikmönnunum
til þess að fá álit þeirra á
leiknum en það tókst eftir góða
stund, og fara umsagnir þeirra
hér á eftir:
Stefán Gunnarsson, fyrirliði
Vals: — Þegar staðan í leiknum
var 17—14 var ég mjög hræddur
um að dómararnir dæmdu á okkur
töf. Ég hugsaði um það eitt að
sækja á markið og þegar ég fann,
að það var ekki ströng gæsla á
mér lyfti ég mér upp og skaut eins
fast og ég gat. Til allra guðslukku
heppnaðist skotið og staðan varð
18—14. Hefði það misheppnast þá
gæti ég allt eins setið hér niður-
brotinn maður. Það er svo skammt
á milli. Þessi leikur er besti leikur
Vals um langt skeið. Allar æfingar
okkar í vikunni miðuðust að því að
auka snerpu og kraft leikmanna
og þær báru árangur. Þessi sigur
er sá stærsti á mínum ferli og ég
hef staðið í þessu í 12 ár. Ég á ekki
til orð yfir áhorfendur, þeir gerast
ekki betri og kann ég þeim mínar
bestu þakkir.
Þorbjörn Guðmundsson: —
Þetta var besti leikur Vals fyrr og
síðar að mínum dómi. Ég var að
niðurlotum kominn af þreytu í
leiknum því að átökin voru ógur-
leg.
Steindór Gunnarsson: — Það
var von mín, að við sigruðum í
þessum leik, en ég vissi að það yrði
erfitt. Við náðum að sýna allar
okkar bestu hliðar. Vorum vel
innstilltir. Þá munaði ekki lítið
um stórleik Óla Ben. og Þorbjörns
Jenssonar.
Bjarni Guðmundsson: — Það er
unaðsleg tilfinning að vera kom-
inn í úrslitin. Ég átti von á sigri í
leiknum, en ekki svona stórum.
Ahorfendur voru stórkostlegir.
Þetta er stærsta stund mí.n í
handknattleiknum.
Þorbjörn Jensson: — Ég er í
sjöunda himni, þetta ver stórkost-
legt. Ég fann mig óvenjuvel í
þessum leik. Við höfum æft vel að
undanförnu og það skilaði sér. Ég
átti ekki von á þriggja marka sigri
í leiknum.
Jón Karlsson: — Ég er búinn að
vera í handknattleik í 16 ár með
meistaraflokki og þetta er mín
stærsta stund á ferlinum. Það er
hreint ótrúlegt að við skyldum ná
þessum glæsilega árangri. Stuðn-
ingsmenn okkar í höllinni áttu
sinn stóra þátt í sigrinum og nutu
hans í ríkum mæli í lokin.
Gunnsteinn Skúlason, liðs-
stjóri Vals: — Ég átti von á að
okkur tækist að sigra ef við
byrjuðum vel og kæmumst hjá
þeim slæmu leikköflum sem hafa
einkennt leiki okkar að undan-
förnu. Við höfum æft vel alla
vikuna, lékum til dæmis tvo æf-
ingaleiki á miðvikudagskvöld án
nokkurar hvíldar. Þetta var sam-
eiginlegur sigur áhorfenda og liðs-
ins. Við þökkum áhorfendum
ómetanlega aðstoð.
þr.
• Stefán Gunnarsson í kröppum dansi sem svo oít í leiknum. Hann hafði ekki annað upp úr krafsinu en
fríkast að þessu sinni. Frikast var engu að siður bctra en ekki neitt, því tvivegis í síðari hálfleik var dæmd
leiktöf á Valsmenn. Einmitt undir slíkum kringumstæðum sýnir Stefán fyrirliði sínar bestu hliðar, einmitt
þegar á ríður að halda knettinum sem lengst, gefa bara á Stebba ...
Ljósm. Emilia.
Sagt eftir leikinn
„Þeir fá leyfi fyrir
næstu utanferð,"
sögðu eiginkonurnar
Formaður HSÍ, Július Haf-
stein: — Þetta er í einu orði sagt
stórkostlegt. Ég á ekki nægilega
sterk orð til að lýsa ánægju minni
með þennan góða árangur Vals í
keppninni. Þetta sýnir okkur enn
einu sinni hvar íslenskur hand-
knattleikur stendur í dag. Þetta er
ekki einvörðungu sigur fyrir Val,
heldur líka stórsigur fyrir íslensk-
an handknattleik, íþróttafólk og
æsku landsins. Ég vona að for-
ráðamenn landsins hugleiði það
nú einu sinni í alvöru hvers virði
íþróttahreyfingin er þegar svona
árangur næst. Valsmenn eiga at-
hygli þjóðarinnar skilið og allt
þarf að gera sem hægt er til þess
að framhaldið takist sem best.
Formaður Vals, Bergur Guðna-
son: — Tveir síðustu heimaleikir
Vals í Evrópukeppninni eru
tvímælalaust þeir erfiðustu sem
ég hef horft á um dagana. Ég var
viss um það eftir leikinn á Spáni,
að Valur kæmist áfram. Mér
fannst spænska liðið ekki nægi-
lega yfirvegað í leik sínum.
Þetta er örugglega stærsta
stund í sögu nokkurs íþróttafélags
á íslandi. Það væri vissulega
ánægjulegt að leika úrslitaleikinn
heima og heiman, en það verður
sennilega ekki hægt vegha fjár-
hagsörðugleika.
Valsliðið barðist af ósérhlífni í
kvöld, það rann blóð, sviti og tár,
en það þarf til að ná svona langt.
Ég hef oft verið stoltur yfir því að
vera Valsmaður en aldrei eins og
núna. Ég vona að allur almenning-
ur átti sig á því hversu mikið
afrek þetta er.
Sænsku dómararnir Krister
Broman og Axel Wester: — Þetta
var ekki mjög erfiður leikur að
dæma, þar sem leikmenn báru
fulla virðingu fyrir dómurunum.
Leikurinn var jafn og erfitt að
gera upp á milli liðanna hvað getu
snertir. Stemmningin í Höllinni
var hreint ótrúleg. Það sem gerði
útslagið í leiknum var hin góða
byrjun Vals. Við höfum dæmt
saman í 12 ár og erum alltaf
taugaóstyrkir fyrir svona leiki, en
við látum áhorfendur aldrei hafa
áhrif á dómgæsluna.
Eiginkonur leikmanna Vals
voru að sjálfsögðu í sjöunda himni
er blaðamaðurinn spjallaði lítil-
lega við þær eftir leikinn. Þær
sögðu að álagið og spennan hefði
verið voðaleg. Það er þess virði að
hafa mennina i þessu þegar svona
vel gengur. Og þær fullyrtu, að
þeir fengju leyfi í næstu utanferð.
Þær höfðu komið saman fyrir
leikinn til að skapa sér stemmn-
ingu, og að sjálfsögðu mættu þær
allar í hófið eftir leikinn til að
fagna sigrinum.
-þr.
Var í hreingerningum
og vildi ekki mæta
á fund meö liöinu
ÓLAFUR Benediktsson mark-
vörður Vals í handknattleik bætti
við rós i hnappagatið á sunnu-
dagskvöldið er hann átti stórleik
í markinu og varði hvað eftir
annað skot frá Spánverjunum
eftir að þeir höfðu komist í gott
færi. Ólafur ljómaði af ánægju
þegar hann var tekinn tali inni i
búningsklefa eftir leikinn, þar
sem hann var að reyna að slaka á.
— Þetta var æðisgengið,
þvílíkur spennuleikur, sagði Ólaf-
ur og hélt áfram: — Mér gengur
oftast best þegar góð stemmning
er í höllinni. Ég vil nota tækifærið
og senda fólkinu þakkir fyrir
hversu stórkostlegt það var allan
leikinn.
— Mér tókst að leiða hugann
frá leiknum allan sunnudaginn, ég
vildi ekki fara út með liðinu að
borða og alls ekki fara á fund fyrir
leikinn. Allt liðið fór upp í Grill á
Sögu og snæddi þar. Ég var hins
vegar heima og tók mig til og
hreinsaði alla íbúðina hátt og lágt.
Þurrkaði af, ryksugaði og fleira,
og mátti ekkert vera að því að
hugsa um leikinn. Mér tókst að
minnka spennuna en það er skil-
yrði fyrir því að mér gangi vel í
leikjum. Ég get nefnilega verið
ótrúlega taugaóstyrkur.
Ég og Brynjar Kvaran höfum
verið í séræfingum hjá Jóhanni
Inga fyrir þennan leik og það
hjálpaði mikið, á hann þakkir
skilið fyrir það. Það er þess virði
að standa í þessu þegar svona vel
gengur, sagði Óli að lokum.
þr.