Morgunblaðið - 11.03.1980, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1980
Zia ætlar að tryggja Pakistan
„fnllkomið öryggi64 með hlutleysi
Islamabad, 10. marz. AP.
ZIA UL-HAQ forseti Pakistans
lýsti því yfir í dag, að hann
hygðist fylgja hlutleysisstefnu til
að tryggja Pakistan „fullkomið
öryggi“ i kjölfar hernaðaríhlut-
unar Sovétríkjanna í nágranna-
rikinu Afganistan, eins og hann
komst að orði. „Við höfum rætt
við Sovétstjórnina. Við viljum
fylgja hlutleysisstefnu og í ljósi
þess mun stjórn Pakistans haga
viðræðum sínum við Bandaríkja-
stjórn.“ -
Skömmu eftir innrás Sovét-
manna í Afganistan í desember sl.
fór Zia fram á hernaðar- og
efnahagsaðstoð frá Bandaríkjun-
um svo Pakistan væri betur búið
til að standast hugsanlega árás
Sovétríkjanna frá Afganistan.
Carter forseti hét Pakistönum 400
milljóna dala framlagi á tveimur
árum, en stjórn Zia hafnaði því
tilboði formlega í síðustu viku með
þeim ummælum að um svo lítið fé
væri að ræða, að ekki borgaði sig
fyrir Pakistan að baka sér
óvinsældir í Moskvu með því að
taka við slíku smáræði.
Afganskir uppreisnarmenn segj-
ast hafa náð á sitt vald miklum
hluta aðalþjóðvegarins milli Kabúl
og Torkham, en Torkham er við
víglínuna við Khyber-skarð. Segja
uppreisnarmenn að hart sé barizt
á þessum slóðum og varpi sovézkar
orrustuþotur stöðugt sprengjum í
Konar-héraði við landamæri Pak-
istans. Fregnir eru af miklu mann-
falli í liði uppreisnarmanna í
Konar í síðustu viku, en auknar
sprengjuárásir sovét-afganska
stjórnarhersins þykja benda til
þess að vorsóknin gegn uppreisn-
armönnum, sem búizt hefur verið
við að undanförnu, sé hafin.
Molotov
níræður
Moskvu. 10. marz. AP.
VYACHSLAV Molotov varð níra,ð-
ur í gær, en hann virðist nú vera
flcstum gleymdur og ekkert er
minnst á hann opinberlega fyrir
utan stutta klausu í sovézku al-
fræðiorðabókinni.
Hann býr einhvers staðar ná-
lægt Moskvu skammt frá Kreml
þar sem hann hélt eitt sinn um
valdataumana. Þcgar hann stóð á
hátindi ferils sins í valdatið Jósefs
Stalíns voru borgir og verksmiðj-
ur skírðar eftir honum og nafn
hans var tekið að láni til að skira
heimatilbúnar sprengjur. „Molo-
tov-kokkteila“.
En Molotov hefur vegnað betur
en ýmsum félögum hans. Nöfn
Malenkovs og Kaganovichs hafa
verið afmáð og lítið er vitað um
afdrif þeirra. Molotov sást hins
vegar á gangi í dýragarðinum í
Moskvu í nóvember. Hann studdist
við staf, en virtist heilsuhraustur
og vel á sig kominn.
Áður hafði Molotov sézt í Lenín-
bókasafninu þar sem hann var að
grúska í gömlum skjölum. Fréttir
herma að hann hafi samið ævi-
minningar sínar en þær hafa ekki
verið birtar.
Gamli maðurinn missti konu sína
1970 og er opinberlega titlaður
ellilífeyrisþegi. Hann mun dveljast
á víxl í íbúð í Moskvu og sumar-
kofa, dacha, nálægt höfuðborginni
þar sem hann mun vera nú.
Stórtap hjá
Rolls Royce
London. 10. marz. AP.
ROLLS Royce hefur tapað um
100 milljónum punda á undan-
förnu ári á bandarískum samn-
ingum sem voru gerðir án þess að
tekið væri tillit til hækkunar
pundsins að sögn brezkra blaða í
dag.
Leyland-bifreiðaverksmiðj-
urnar hafa orðið fyrir álíka
miklu tapi. aðallega vegna verk-
falla og minnkandi sölu. Opinber-
ar tölur um hag fyrirtækjanna
verða birtar síðar í mánuðinum.
Connally hættur ef tir ósig-
ur í Suður-Karólinu
lijarnadnttur. fréttaritara .jMHHHSfc?^7jHH|MHft Hfe,JjjjiHjÍIHSHflP*' *|HHHHH^jjj|jfl^jHU^
Mnri'unhlaöí'in'' t \\ ashineton. . aM
„Kosningabarátta mín hefst i Suður-Karólínu,“ sagði John Connally nokkrum dögum áður en
repúblikanar í ríkinu gengu að kjörborðinu. Nú er komið á daginn að kosningaharáttu hans lauk í
Suður-Karólínu, en áður en yfir lauk hafði Connally eytt 10 milljónum dala í því skyni að hljóta hina
langþráðu útnefningu Repúblikanaflokksins.
RONALD Reagan vann íor-
kosningar Repúblikanaflokks-
ins í Suður-Karólínu um helg-
ina með 54% atkvæða. John
Connally, sem hafði lagt mikla
áherzlu á að sigra þessar for-
kosningar varð annar í röðinni
með 30% atkvæða, og lýsti því
yfir á sunnudag að hann væri
hættur þátttöku í kosningabar-
áttunni. Það yrði hvorki
flokknum né þjóðinni að gagni
að hann héldi áfram að sækjast
eftir útnefningu repúblikana.
Þriðji varð George Bush með
15% atkvæða. Kvaðst hann
sætta sig við slik úrslit þar sem
hann hefði varið litlu fé og
litlum tíma í kosningabarátt-
una í Suður-Karólínu. Dómur
manna er þó sá að hann verði að
hljóta mikið fylgi í Flórída,
Alahama og Georgíu á þriðju-
dag, eigi hann að geta haldið
baráttu sinni áfram.
Ronald Reagan er spáð sigri í
Suðurríkjunum. Flórída mun
kjósa 51 fulltrúa á landsþing
Repúblikanaflokksins og Georg-
ía 36, en í báðum ríkjunum gildir
sú regla hjá repúblikönum, að
sá, sem vinnur kosningarnar
hlýtur alla fulltrúa ríkisins á
landsþingi. Alabama kýs 27 full-
trúa, en þeir skiptast hlutfalls-
lega milli frambjóðendanna.
Fyrir helgi var George Bush
farinn að síga á Reagan í
Flórída, en hætt er við að
úrslitin í Suður-Karólínu dragi
aftur úr fylgi hans. John Ander-
son, sem varð í öðru sæti í
forkosningunum í Vermont og
Massachusettes í síðustu viku,
hefur lítið lagt á sig í Suður-
ríkjunum. Hann leggur áherzlu
á að standa sig vel í heimaríki
sínu, Illinois, næsta þriðjudag og
síðan í Wisconsin 1. apríl. Bar-
áttan í Suðurríkjunum stendur
milli Reagans og Bush, þar sem
Howard Baker og John Connally
hafa dregið sig til baka.
Gerald Ford, fyrrum forseti,
er nefndur oftar nú en áður.
Hann hefur látið í ljós áhuga á
framboði, en vill vita með nokk-
urri vissu hvaða stuðning hann
hefur innan flokksins áður en
hann leggur út í kosningabar-
áttu.
Um helgina lagði Henry Kiss-
inger fyrrum utanríkisráðherra
hart að honum að gefa kost á sér
og má búast við því að Ford láti
til leiðast ef Bush gengur illa í
Suðurríkjunum.
Demókratar ganga líka til
forkosninga á þriðjudag. Kosið
verður um alls 208 fulltrúa í
Flórida, Georgíu og Alabama, og
er Carter forseta alls staðar
spáð sigri. Hefur Rosalynn for-
setafrú skorað á íbúa Georgíu,
en þaðan er Carter, að sjá til
þess að Edward Kennedy hljóti
ekki einn einasta fulltrúa þaðan.
Kennedy sagði í sjónvarps-
þættinum „Face the Nation" á
sunnudag að hann vonaðist til að
standa sig vel í Flórída, en hann
legði þó meiri áherzlu á forkosn-
ingarnar í Illinois, en þaðan fara
179 fulltrúar á flokksþing, og í
New York, sem sendir 282. Þegar
gengið var á hann með spurning-
um um hvort hann yrði ekki að
sigra í þessum ríkjum, svaraði
hann því til hlæjandi, að hann
þyrfti að standsf sig vel, en ekki
fékkst hann til að segja að sigur
væri nauðsynlegur.
Sami sjónvarpsþáttur hófst
með því að allir þrír spyrjend-
urnir inntu Kennedy eftir því
hvernig hann ætlaði að ráða við
mesta vanda kosningabarátt-
unnar, sem er lítið álit kjósenda
á honum sjálfum. Það heldur
þeim frá því að kjósa hann, þótt
þeir séu honum sammála mál-
efnalega. Kennedy reyndi að
snúa sig út úr spurningunni, en
svaraði því að lokum, að í
Massachusettes, þar sem kjós-
endur þekktu hann bezt, hefði
hann unnið kosningarnar með
miklum yfirburðum. Hann sagð-
ist hafa viðurkennt fyrir þjóð-
inni mistök, sem honum hefðu
orðið á í fortíðinni, og hann
treysti því að dómur hennar
reyndist á endanum réttlátur og
fólk sæi að það hlyti að kjósa
hann vildi það að efnahagsvandi
þjóðarinnar yrði leystur.
Botha vill fund
allra kynþátta
IlófðahorK. 10. marz. AP.
P.W.BOTHA forsætisráðherra sagði í fyrsta skipti um helgina að
svartir menn, hvítir og brúnir ættu að koma saman til ráðstefnu til að
taka ákvarðanir í málum sem snertu Suður-Afríku.
bessi yfirlýsing virðist vera afleiðing kosningasigurs skæruliðafor-
ingjans Roberts Mugabes í Rhódesíu I síðasta mánuði.
Allir kynþættir verða að standa saman til að verja Suður-Afríku
gegn áhlaupi marxisma, sagði forsætisráðherrann.
1978 — Hryðjuverkamenn taka
tvo langferðabíla á leið til Tel
Aviv (32 ísraelsmenn, níu
hryðjuverkamenn drepnir).
1974 — Fjögurra mánaða neyð-
arástandi aflétt í Bretlandi.
1971 — Kongressflokkur Indiru
Gandhi sigrar í kosningum á
Indlandi.
1974 — Suður-Afríka segir sig
úr Alþjóða vinnumálastofnun-
inni (ILO).
1942 — MacArthur fer frá
Corregidor, Filippseyjum, áleiðis
til Ástraliu.
1938 — Þjóðverjar sækja inn í
Austurríki.
1935 — Uppreisn undir forystu
Venizelosar bæld niður í Grikk-
landi.
1920 — Feisal verður konungur í
Sýrlandi.
1917 — Bretar taka Bagdad.
1915 — Hafnbann Breta á
Þýzkaland tekur gildi.
1861 — Stjórnarskrá Suður-
ríkjanna samþykkt í Montgom-
ery, Alabama.
1860 — Sameining við Sardiníu
samþykkt í þjóðaratkvæði í
Toscana, Emilia, Parma, Mod-
ena og Romagna á Ítalíu.
1810 — Napoleon Bonaparte
kvænist Marie Louise af Aústur-
ríki.
1801 — Páll I Rússakeisari
myrtur.
1794 — Sjóher Bandaríkjanna
stofnaður.
1702 — „Daily Courant, fyrsta
dagblaðið í London, hefur göngu
sína.
Afmæli — Torqato Tasso,
ítalskt skáld (1544-1595) -
Christian Ditlev Reventlow
greifi, danskur stjórnmálaleið-
togi (1748-1827) - Sir Harold
Wilson, brezkur stjórnmálaleið-
togi (1916 —) — Friðrik IX
Danakonungur (1899—1972).
Andlát — 1820 Sir Alexander
Mackenzie, landkönnuður —
1936 Beatty jarl, sjóliðsforingi
— 1955 Sir Alexander Fleming,
vísindamaður — 1957 Richard
Byrd, landkönnuður.
Innlent — 1961 Gengið formlega
frá samkomulagi við Breta í
landhelgismálinu — 1860 f. Val-
týr Guðmundsson — 1869 d.
Jóhannes sýsl. Guðmundsson —
1871 d. ísólfur Pálsson — 1890
Menntunarfélag verzlunar-
manna stofnað — 1904 Fálki
kemur í stað fisks í skjaldar-
merki íslands — 1941 Þýzkur
kafbátur gerir árás á línuveiðar-
ann „Fróða" — 1948 Flóð í
Ölfusá — 1964 Undanþágur
Breta innan 12 mílna renna út —
1969 Lögregluvörður við fjóra
næturklúbba í Reykjavík.
Orð dagsins — Umræður: að-
ferð til að sannfæra aðra um að
þeir hafi á röngu að standa —
Ambrose Bierce, bandarískur
rithöfundur (1842-1914?)
Hann sagði á fundi starfsmanna
flokks þjóðernissinna í Höfðafylki
að fólk sem lokaði augunum fyrir
aðstæðunum umhverfis Suður-
Afríku neitaði að lifa með sann-
leikanum.
Botha hefur hvað eftir annað
varað landa sína við því að þeir
verði að laga sig að aðstæðum eða
horfast í augu við innanlands
uppreisn. Hann sagði að hvítir
Suður-Afríkumenn yrðu að horf-
ast í augu við nýjan veruleika og
að þeir væru staddir á krossgöt-
um.
Forsætisráðherrann sagði að
nauðsynlegt væri að horfa gagn-
rýnum augum á vandamálin sem
Suður-Afríka stæði andspænis og
endurskoða forgangsröð vanda-
málanna.
Með tiilögu sinni um ráðstefnu
allra flokka hefur Botha orðið við
kröfu helztu dagblaða landsins
sem hafa spáð því síðan úrslitin í
rhódesísku kosningunum urðu
kunn að skærustríð muni brjótast
út í Suður-Afríku nema því aðeins
að ríkisstjórnin ræði við leiðtoga
blökkumanna.