Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
3
Kirkjukvöld Bræðra-
félags Dómkirkjunnar
BRÆÐRAFÉLAG Dóm-
kirkjunnar heldur sitt ár-
lega kirkjukvöld í dag,
skírdag, kl. 20.30.
Marteinn Hunger Frið-
riksson mun leika á orgel,
séra Þórir Stephensen
dómkirkjuprestur flytur
ávarp. Kristinn Hallsson
óperusöngvari mun syngja
með undirleik Marteins
Hunger Friðrikssonar dóm-
organista. Þá flytur Esra S.
Pétursson læknir ræðu er
hann nefnir Friðsæld. Loks
flytur séra Hjalti Guð-
mundsson dómkirkjuprest-
ur hugvekju og bæn.
100 þúsund manns
hafa séð Veiðiferð-
ina og Land og syni
UM ÞAÐ bil 35 þúsund manns hafa
nú séð kvikmyndina veiðiferðina
sem að undanförnu hefur verið
sýnd í Reykjavík og víða út um
landið. Sýning myndarinnar hófst
fyrir þremur vikum í Rcykjavík og
Akureyri og standa nú yfir sýn-
ingar í Kefiavík auk Reykjavikur.
Á næstunni verður Veiðiferðin
sýnd á Selfossi, Sauðárkróki og
Húsavík. Veiðiferðin verður páska-
mynd Austurbæjarbíós í ár og er
sýnd á öllum sýningum, 3, 5, 7 og 9
Yfir 70 þúsund manns hafa nú séð
Land og syni, en um þessar mundir
er hún sýnd á Akranesi, í Vest-
mannaeyjum og verður á Höfn um
páskana. Á næstunni verður myndin
sýnd á Austur- og Norðausturlandi
og síðar á Snæfellsnesi. Verið er nú
að þýða texta við myndina á fær-
eysku og er Land og synir fyrsta
myndin sem sýnd verður í Færeyjum
með færeyskum texta.
Hayek á málþingi
frjálshyggjumanna
3. MÁLÞING Félags frjálshyggju-
manna verður haldið n.k. laugar-
dag 5. apríl kl. 14.00 í hliðarsal
Hótel Sögu. Málshefjandi verður
Friedrich A. Hayek, nóbelsverð-
launahafi í hagfræði og einn kunn-
asti stjórnmálahugsuður tuttug-
ustu aldarinnar. Nefnir hann fyrir-
lestur sinn „The Muddle of the
Middle" eða Miðju-moðið, og verður
hann fluttur á ensku. Að loknum
kaffiveitingum verða frjálsar um-
ræður.
Aðgangur að málþinginu kostar 10
þús. kr. fyrir utanfélagsmenn og 6
þús. fyrir félagsmenn, en uppselt er
á þingið. Að sögn Skafta Harðarson-
ar, stjórnarmanns í Félagi frjáls-
hyggjumanna, hefur mikill áhugi
verið á málþinginu og bók Hayeks,
Leiðinni til ánauðar, sem félag
frjálshyggjumanna gaf út í sam-
vinnu við almenna bókafélagið í
tilefni komu Hayeks. Félagið hefur
áður haldið tvö málþing. Var þar dr.
David Friedman hagfræðingur, höf-
undur bókarinnar The Machinery of
Freedom“ og sonur Miltons Fried-
mans, málshef jandi á öðru og Ólaf-
ur Björnsson prófessor á hinu.
Jafnan
fyrirliggjandi
í miklu úrvali
RAFMAGNS
1437 H
Heimilisborvél
Mótor: 320 wött
Patróna: 10 mm
Stiglaus hraðabreytir í rofa: 0-2600 sn./mín.
Höggborun: 0-36000 högg/mín.
HANDVERKFÆRI
1417 H.
Heimilisborvél
Mótor: 420 wött
Patróna: 13mm
Stiglaus hraðabreytir I fora og tvær fastar
hraðastillingar: 0-900 eða 0-2600 sn./mín.
Við SKIL heimilisborvélar fæst gott úrval hagnýtra fylgihluta,
svo sem hjólsög, stingsög, smergel, pússikubbur og
limgerðisklippur. Alla þessa fylgihluti má tengja
við borvélina með einkar auðveldum hætti, svonefndri
SNAP/LOCK aðferð, sem er einkaleyfisvernduð
uppfinning SKIL verksmiðjanna. Auk ofan-
greindra fylgihluta eru á boðstólum
hjólsagarborð, láréttirog lóðréttir
borstandar, skrúfstykki, borar,
vlrburstar, skrúfjárn og
ýmislegt fleira sem eykur
stórlega á notagildi SKIL
heimilisborvéla. Eigum
einnig fyrirliggjandi
margar fleiri gerðir
og stærðir af SKIL
raf magnshandverkfærum.
ÞEIR, SEM VILJA VÖNDUÐ VERKFÆRI, VELJA SKIL
Einkaumboö á isiandi fyrir Skil rafmagnshandverkfæri.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SIMI 84670
Komið og skoðið, hringið eða
skrifið eftir nánari
upplýsingum. Athugið hvort
SKIL heimilisborvél og
fylgihlutir eru ekki
hagnýt gjöf til heimilis ykkar
eða vina ykkar.
AÐRIR UTSÖLUSTAÐIR.
REYKJAVIK:
SÍS Byggingavörudeild,
Suðurlandsbraut 32.
Verslunin Brynja, Laugavegi 29.
HAFNARFJÖRÐUR:
Rafbúðin, Álfaskeiði 31..
KEFLAVIK:
Stapafell h/f.
ÞINGEYRI:
Kaupfelag Dyrfirðinga
ÍSAFJÖRÐUR:
Straumur h/f.
HÓLMAVÍK:
Kaupfélag Steingrimsfjarðar.
BLÖNDUÓS:
Xaupfélag Húnvetninga
SIGLUFJORÐUR:
Rafbær h/f.
AKUREYRI:
Verslunin Raforka
Handverk, Strandgötu 23.
HÚSAVIK:
Kaupfélag Þingeyinga
VOPNAFJÖRÐUR:
Kaupfelag Vopnfirðinga
EGILSTAÐIR:
Verslunin Skogar
SEYÐISFJÖRÐUR:
Stalbuðin
NESKAUPSSTAÐUR:
Eirikur Ásmundsson
HÖFN:
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
VÍK:
Kaupfélag Skaftfellinga
Allar upplýsingar um Útsýnarferðir 1980
1 *—AIc.ÍOÍ^ í[cVAhÓ'• x t'tj r II k* £ 1 I*
eru 1 Utsynarblaoinu sem fylgdi
Morgunblaðinu ígær.
Lesið blaðið vandlega því þar er að finna
svör við getraun þeirri sem er
í sama blaði.
Feröaskrifstofan
Austurstræti 17,
símar 26611 og 21100
UTSYN
10 ÓKEYPIS
Útsýnarferðir í verðlaun
Gleðilega páska