Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 39 ffélk í fréttum Molotov kom til Reykjavíkur + FYRIR nokkru birtist hér í dálkum þessum mynd af hinum aldurhnigna fyrrum utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna Mikhai- lovich Molotov, í tilefni af því að hann varð níræður í byrjun marzmánaðar síðastl. Þess var getið, að hann myndi hafa komið til Islands á heimsstyrjaldarár- unum. — Því var ekki slegið föstu. En nú hefur blaðið fengið þetta staðfest. — Fyrst hafði samband við Mbl. maður sem ekki vill láta nafns síns getið. — Hann kvaðst hafa séð Molotov niðri i Pósthússtræti. Þar hefði hann verið einn nema hvað tveir frekar en þrír amerískir her- menn voru í fylgd með honum, bersýnilega það sem nú eru almennt kallaðir öryggisverðir. — Þessi maður kvaðst hafa tekið eftir göngulagi Molotovs sem sér hefði virzt þunglamalegt sem þar færi bjarndýr. Sá maður sem gjörkunnugast- ur er heimsstyrjaldarsögu íslands, Þór Whitehead lektor í sögu, staðfesti það sem maður- inn hafði sagt og hann bætti við: Þetta var í maímánuði 1942, nánar tiltekið 27. maí. — Kom Molotov þá í rússneskri flugvél, sem lenti á Reykjavíkurflugvelli um hádegisbilið þann dag. Yfir- maður Bandaríkjahers hér á landi, Bonesteel hershöfðingi, hafði tekið á móti Molotov utan- ríkisráðherra er flugvélin lenti á Reykjavíkurflugvelli. — Hafði ráðherrann síðan setið hádegis- verðarboð hershöfðingjans í mötuneyti yfirmanna hersins sem var í herbúðum Camp Pers- ing sem voru inn við Rafstöðina við Elliðaár. Var hann að koma frá Bretlandi, en þangað hafði hann verið sendur til fundar við Winston Churchill forsætisráð- herra. — Mér er ekki kunnugt um að hann hafi þá átt nein samskipti við íslenzka embætt- ismenn, sagði Þór. — Hann mun hafa verið hér um nætursakir og notið gistivináttu Bandaríkja- hers. — Hann hafði síðan haldið för sinni áfram héðan vestur um haf til Bandaríkjanna til fundar við ráðamenn í Washington. — Það var eftir fundinn með Chur- chill, sem hann á að hafa látið þau orð falla um Molotov að hann væri „stateman“-þjóðskör- ungur. En hvað var Molotov að gera niðri á Hótel Borg, úr því hann skrapp ekki inn á Gylltasalinn og fékk sér kaffisopa? Sennilega stendur það í sam- bandi við það, að þá bjó þar sendiherra Bandaríkjanna hér, Lincon MacVeagh að nafni. Mun Molotov hafa farið á Borgina til fundar við sendiherrann. Þar bjuggu einnig nokkrir yfirmenn í bandaríska varnarliðinu. Þá sagði Þór, að Molotov hefði rætt viðdvöl sína á íslandi er vestur kom og á honum að hafa þótt heldur lítið til koma um þá gistiaðstöðu sem herinn hefði boðið utanríkisráðherra vopna- bræðranna í austri. Yfirmenn hersins hér á ís- landi töldu að þessar kvartanir Molotovs hefðu leitt til þess að hermálaráðuneytið í Washing- ton veitti fé til byggingar flug- vallarhótelsins á Keflavíkur- flugvelli, sem nefnt var Hotel De Gink. Hún átti afmæli + Ingrid drottning í Danmörku varð sjötug 28. marz síðastl. — Á myndinni má sjá hana heilsa fyrstu gestunum, sem komu til Amalienborgar-hallar, út um gluggann á svefnherberginu sínu, að morgni afmælisdagsins. — Mik- ið var um dýrðir í Kaupmannahöfn í tilefni af afmæli drottningarinn- ar. Hylltu borgarbúar hana er hún ók um fánum skreytt stræti borg- arinnar. — Henni barst mesti sægur af árnaðaróskum og góðum gjöfum og þar á meðal peninga- gjafir sem skiptu milljónum, til hennar sjálfrar og sjóða sem hún og Friðrik IX konungur stofnuðu. Drottningin átti ekki von á fyrr- nefndri mþrgunheimsókn. Klukk- an 8.30 hbfðu hornablásarar og slagverksmenn úr hinni konung- legu hljómsveit, „Det Kongelige Kapel", tekið sér stöðu undir svefnherbergisglugga drottningar, sem er á annarri hæð í höllinni og tók hljómsveitin að leika af feikna krafti, lúðrasveitarlög. Kom af- mælisbarnið að vörmu spori út að glugganum, opnaði hann og veifaði hljómsveitarmönnunum, sem síðan var boðið að ganga í bæinn. Seinna um daginn hélt drottningin ræðu í Ráðhúsinu, en um kvöldið hélt Margrét drottning móður sinni afmælishóf í Fredensborgarhöll. 31. leikvika — leikir 29. marz 1980 Vinningsröð: 102 — 2XX — 111 — 121 1. vinningur: 10 réttir — kr. 2.105.500.- 9040 (Reykjavík) 2. vinningur: 9 réttir — kr. 10.000.- 11 2820 5133 7204 9764 11452 40429 345 2945 5407 7233+ 10086 11750 41312 843 3047 5464+ 7342 10329+ 11779 41414 871 3051 5789 8100+ 10506+ 11949+ 41601(3/9) 891 3057 6138(2/9) 10599+ 41633(2/9) 1237+ 3284+ 6274 8503 10654+ 30255(2/9) 41638(3/9) 1333 3682 6276 8578+ 10657 30269(2/9) 41708 1800 4107 6321 9022 10684 30493(2/9) 41910 2097 4193 6378 9115 10799 31383(2/9) 57722 2396 4573+ 6653 9265+ 10911 32564 2569+ 4628 6676 9449 10927 32710+ 2694 4701 6741 9669 11395 32889(2/9) Kærufrestur er til 21. apríl kl. 12 á hádegi. Kaerur skulu vera skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboðsmönnum og á aöalskrifstofunni. Vinningsupphæð- ir geta lækkað, ef kærur veröa teknar til greina. Handhafar nafnlausra seöla (+) veröa aö framvísa stofni eöa senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. Getraunir — íþróttamiðstöðinni — Reykjavík Fyrir þvottahús fjölbýlishúsa VANDLÁTIR VEUA WESTING HO USE Weslirtghouse þvottavélin og þurrkar- inn eru byggð til að standa hlið við hlið, undir borðplötu eða hvort ofan á öðru við enda borðs í eldhúsi eða þvottahúsi, þar sem gott skipulag nýtir rýmið til hinsýtrasta. Traustbvggðar vélar með 30 ára reynslu hér á landi. Þiö getiö veriö örugg sé vélin Westinghouse KOMIÐ — HRINGIÐ — SKRIFIÐ! við veitum allar nánari upplýsingar. Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykjavik Simi 38900 r — — — — — — — — n ! EMCO — EMCO — EMCO Járnrennibekkirnir og járnfræsarar í úrvali ^funnai Sfyzeiiööon h.f. Siiðurlondsbraut 16 - Reykjavik - Sími 35200

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.