Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
í .til -
Islands
ferma skipin
sem hér
segir:
AMERIKA
PORTSMOUTH
Brúarfoss 11. apríl
Selfoss 6. maí
Bakkafoss 8. maí
Brúarfoss 20. maí
KANADA
HALIFAX
Brúarfoss 14. apríl
Selfoss 12. maí
BRETLAND/
MEGINLAND
ANTWERPEN
Mánafoss 8. apríl
Reykjafoss 11 apríl
Skógafoss 15. apríl
Reykjafoss 24. apríl
Vessel 30. apríl
Bifröst 5. maí
Skógafoss 6. maí
ROTTERDAM
Reykjafoss 10. apríl
Skógafoss 14. apríl
Reykjafoss 23. apríl
Vessel 29. apríl
Skógafoss 5. maí
FELIXSTOWE
Mánafoss 7. apríl
Dettifoss 14. apríl
Mánafoss 21. apríl
Dettifoss 28. apríl
Mánafoss 5. maí
Dettifoss 12. maí
Mánafoss 19. maí
Hamborg
Mánafoss 10. apríl
Dettifoss 17. apríl
Mánafoss 24. apríl
Dettifoss 30. apríl
Mánafoss 8. maí
Dettifoss 15. maí
Mánafoss 22. máí
WESTON POINT
Kljáfoss 9. apríl
Kljáfoss 23. apríl
Kljáfoss 7. maí
Kljáfoss 21. maí
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
KRISTIANSAND
Álafoss 8. apríl
Úöafoss 22. apríl
Tungufoss 6. maí
MOSS
Álafoss 11. apríl
Tungufoss 18. apríl
Úöafoss 25. apríl
Urriöafoss 2. maí
BERGEN
Tungufoss 14. apríl
Urriöafoss 29. apríl
ÞRÁNDHEIMUR
Stuölafoss 11. apríl
HELSINGBORG
Háifoss 7. apríl
Lagarfoss 14. apríl
Háifoss 21. apríl
GAUTABORG
Álafoss 10. apríl
Tungufoss 17. apríl
Úöafoss 24. apríl
Urriöafoss 30. apríl
KAUPMANNAHÖFN
Háifoss 9. apríl
Lagarfoss 16. apríi
Háifoss 23. apríl
TURKU
VALKOM
írafoss 14. apríl
Múlafoss 22. apríl
HELSINKI |
Múlafoss 28.marz
írafoss 11. apríl
Múlafoss 21. apríl
RIGA
írafoss 15. apríl
Múlafoss 24. apríl
GDYNIA
írafoss 16. apríl
Múlafoss 25. apríl
sími 27100
á mánudögumtil
AKUREYRAR
ÍSAFJARÐAR
á mióvikudögum til
VESTMANNAEYJA
EIMSKIP
Utvarp að morgni páskadags:
Ljósaskipti Guð-
mundar Jónssonar
Þorsteinn Gunnarsson. Erlingur Gislason. Þorstelun 0. Stephensen.
Leikrit eftir Per Lagerkvist í kvöld:
Lofið mönnunum að lifa!
Á páskadagsmorgun
klukkan 10.25 er Guðmund-
ur Jónsson með þátt sinn
Ljósaskipti í útvarpi. Guð-
mundur hefur nú verið með
þessa ágætu þætti sína í
hálft annað ár, en í þeim
hefur hann kynnt sígilda
tónlist af ýmsu tagi, venju-
lega tónlist sem fyrir ein-
hverjar sakir þykir sérstæð.
Guðmundur Jónsson píanóleik-
ari.
Guðmundur sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í vik-
unni, að í þessum þætt
myndi kenna margvíslegra
grasa. Byrjað yrði á að leika
úr Gloria eftir Vivaldi, þar
sem kammersveit leikur und-
ir stjórn Ingólfs Guð-
brandssonar og Pólýfónkór-
inn syngur undir hans stjórn
þannig.
Þá mun Guðmundur
Jónsson syngja eitt lag, Agn-
us Dei, áseamt Karlakór
Reykjavíkur.
Að því loknu kvaðst Guð-
mundur ræða nokkuð um
fjölskyldu sem mjög hefur
komið við sögu íslensks tón-
listarlífs, en þar er átt við
ísólf Pálsson og afkomendur
hans, synina Pál og Sigurð
og Þuríði dóttur Páls. Leikin
verða nokkur verk Páls, í
flutningi hans og þeirra Sig-
urðar og Þuríðar, og einnig
verða leikin verk eftir ísólf.
Kynningarlag þáttanna er
eftir Ingibjörgu Þorbergs, og
nefnist það einnig Ljósa-
skipti. Þar leika þeir Einar
Jóhannesson á klarinett og
Guðmundur á píanó.
í kvöld, fimmtudaginn 3. apríl
(skírdag), kl. 20.05 verður flutt í
útvarpi leikritið „Lofið mönnunum
að lifa“ (Lat manniskan leva) eftir
Pár Lagerkvist. Þýðing er eftir
Tómas Guðmundsson, Jón Þórar-
insson samdi tónlistina og Páll P.
Pálsson stjórnar flutningi hennar,
en leikstjóri er Helgi Skúlason. I
helstu hlutverkum eru Sigurður
Sigurjónsson, Þórhallur Sigurðsson,
Þorsteinn Gunnarsson, Erlingur
Gíslason og Þorsteinn Ö. Stephens-
en. Tæknimenn: Runólfur Þorláks-
son og Ástvaldur Kristinsson.
Flutningur leiksins tekur um fimm
stundarfjórðunga.
Þetta leikrit er skrifað skömmu
eftir ógnir síðustu heimsstyrjaldar.
Það er eins konar vitnaleiðsla þar
sem fram koma persónur frá ýnis-
um öldum og úr ólíku umhverfi.
Flest hefur þetta fólk verið líflátið
fyrir einhverjar sakir, og nú þegar
það horfir til baka, finnst því
stórlega hafa verið brotið á sér.
Aðeins tveir, Jesús og Júdas, sak-
fella engan. Þetta er í rauninni
ákæra gegn blindni og skammsýni
mannkynsins, en þó kemur fram
slík trú á sigur lífsins, að maður
fyllist bjartsýni þrátt fyrir allt.
Pár Fabian Lagerkvist fæddist í
Váxsjö í Smálöndum árið 1891. í
æsku var hann mikill aðdáandi
Darwinskenningarinnar, stundaði
um tíma nám í bókmenntum og
listasögu við Uppsala-háskóla og
fékkst við blaðamennsku. Árið 1916
kom út fyrsta ljóðasafn hans í anda
expressíónismans og nefndist
„Ótti“. Hann dró sig í hlé frá
skarkala heimsins um 1930 og
settist að á eyjunni Lidingö. I
táknrænum leikritum sínum hefur
Lagerkvist teflt hugsjónastefnu
mannsins fram gegn ofstæki og
valdbeitingu allra tíma. Hann hafði
mikil áhrif á sænskar bókmenntir
og hlaut Nóbelsverðlaun 1951.
ðtvarp Reykjavík
FIM41TUDKGUR
3. apríl
Skírdagur
MORGUNINN__________________
8.00 Morgunandakt. Herra Sig-
urbjörn Einarsson biskup
fiytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir. Útdr. úr forystugr. dag-
blaðanna. Dagskráin.
8.35 Morguntónleikar:
„Árstíðirnar“, óratóría eftir
Joseph Haydn; — fyrri hiuti.
Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Jón Þorsteinsson, Halldór Vil-
helmsson og Passíukórinn á
Akureyri syngja með kamm-
ersveit. Stjórnandi: Roar
Kvam. (Hljóðritað á tónlistar-
dögum 1979). Framhald sam-
dægurs kl. 17.00.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Píanókonsert nr. 9 í Es-
dúr (K271) eftir Wolfgang
Amadeus Mozart. Vladimir
Ashkenazy og Sinfóníuhljóm-
sveit Lundúna leika; Istvan
Kertez stj.
11.00 Messa í safnaðarheimili
Grensássóknar. Prestur: Séra
Halldór Gröndal. Organleik-
ari: Jón G. Þórarinsson.
12.10 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
SÍODEGID
13.20 Ferðaminningar frá
ísrael. Séra Pétur Sigur-
geirsson fiytur erindi.
13.40 Tónleikasyrpa. Léttklass-
isk tónlist, og lög leikin á
ýmis hljóðfæri.
15.30 „Kínverski“ Gordon og
ævintýri hans. Dagskrá um
brezkan hershöfðingja i Kína
og Súdan á árunum 1860—84.
Ingi Karl Jóhannesson tók
saman. Lesari með honum:
Baldvin Halldórsson.
16.00 Fréttir. Tónleikar. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Tónlistartími barnanna.
Stjórnandi: Egill Friðleifsson.
16.40 Útvarpssaga barnanna:
„Glaumbæingar á ferð og
flugi“ eftir Guðjón Sveinsson.
Sigurður Sigurjónsson les (5).
17.00 Miðaftanstónleikar:
„Árstíðirnar“, óratóría eftir
Joseph Haydn; síðari hluti.
ólöf Kolbrún Harðardóttir,
Jón Þorsteinsson, Halldór Vil-
helmsson og Passíukórinn á
4. april
föstudagurinn langi
17. 00 Kömdu aftur, Sheba
min.
Leikrit eftir William
Inge. búið til sjónvarps-
flutnings af Sir Laurence
Olivier.
Leikstjóri Silvio Narizz-
ano.
Aðalhlutverk Laurence
Oiivier, Joanne Wood-
ward, Carrie Fisher. Pat-
ience Collier og Nicholas
Campbell.
Leikritið er um miðaldra
hjón. Maðurinn er drykk-
felldur, en reynir þó að
bæta ráð sitt. Konan er
hirðulaus og værukær og
saknar æsku sinnar. Einn-
ig kemur við sögu ung
stúlka, sem leigir hjá
hjónunum.
Akureyri syngja með kamm-
ersveit. Stjórnandi: Roar
Kvam.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Stefán
Karlsson flytur þáttinn.
KVÖLDID
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.05 Leikrit: „Lofið mönnun-
18.30 Hlé.
20.00 Fréttir, veður og
dagskrárkynning.
20.20 Réttað í máli Jesú frá
Nazaret.
Fjórði og síðasti þáttur.
Þýðandi dr. Björn Björns-
son.
21.10 Macbeth.
Leikrit Shakespeares í
flutningi The Royal
Shakespeare Company,
fært í sjónvarpsbúning.
Leikstjóri Philip Casson.
Stjórn upptöku Trevor
Nunn.
Aðalhiutverk Ian McKell-
en og Judi Dench. Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdótt-
ir.
23.40 Dagskrárlok.
um að lifa“ eftir Pár Lager-
kvist. Þýðandi: Tómas Guð-
mundsson. Tónlist eftir Jón
Þórarinsson.
Leikstjóri: Helgi Skúlason.
Persónur og Ieikendur: Rik-
ard/Sigurður Sigurjónsson,
Joe/Þórhallur Sigurðsson,
Jesús/Þorsteinn Gunnarsson,
Sókrates/Þorsteinn Ö. Steph-
ensen, Júdas Ískaríot/
Erlingur Gíslason, Galdra-
norn/Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir, Giordano Bruno/Valur
Gíslason, Kristinn píslar-
vottur/Gunnar Eyjólfsson,
Greifafrú de la Roche-Mont-
faucon/Helga Bachmann,
Anauðugur bóndi/Valdemar
Helgason. Aðrir leikendur:
Edda Björgvinsdóttir, Emil
Guðmundsson, Klemenz Jóns-
son og Tinna Gunnlaugsdótt-
ir.
21.20 Frá tónleikum í Norræna
húsinu 14. marz í fyrra. Ib og
Wilhelm Lanzky-Ottó leika
saman á horn og pianó:
a. Konsertrondó í Es-dúr
(K371) eftir Mozart.
b. Sónata op. 47 (1947) eftir
Niels Viggo Bentzon.
c. „Hunter's Moon“ eftir Gil-
bert Winter.
21.45 „Postuli þjáningarinn-
ar“. Dagskrá um Jean-Jac-
ques Rousseau frá Menning-
ar- og fræðslustofnun Samein-
uðu þjóðanna. Þýðandi og
umsjónarmaður: Gunnar Stef-
ánsson. Lesarar ásamt hon-
um: Hjalti Rögnvaldsson, Ösk-
ar Ingimarsson og Þorbjörn
Sigurðsson.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Reykjavíkurpistill. Egg-
ert Jónsson borgarhagfræð-
ingur talar um sameiginleg
áhugamál.
23.00 Kvöldstund með Sveini
Einarssyni.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR Þýðandi Rannveig
Tryggvadóttir.
Áður á dagskrá 19. febr-
úar 1979.