Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 03.04.1980, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÓSTUDAGS strengbrúðu, og — skyndilega er ég farin að hugsa, — í fyrsta skipti síðan ég var flutt hingað eins og húsbrak fyrir um hálfum mánuði. Já, mér var rúllað í sjúkrarúm- inu í símann í gærkveldi. Ég fékk svo skyndilega löngun til að heyra í vinkonu minni, sem oft er sárlasin og á ekki heimangengt. Já, hún var ósköp glöð að heyra í mér, en talið barst fljótt að framtíðinni, hafði ég ekki áhyggjur af framtíðinni? Nei, merkilegt nokk, ég hafði sáralitlar áhyggjur af framtíðinni. Ég hafði þessa veikindadaga orðið að barni í annað sinn, fundið mig algjör- lega óhulta í hendi Drottins, látið hverjum degi nægja sína þján- ingu, þakkað Drottni hátt og í hljóði fyrir hans undursamlegu náð, þakkað honum fyrir hina ótrúlegu fórnarlund, sem hans fólk í líki Florence Nightingale hefur auðsýnt mér. Nú finn ég að værðin byrjar að streyma yfir mig á ný. Hví skyldi ég kvíða komandi degi? Hef ég ekki svo margoft fundið návist Hans, sem — „fyrir- gefur allt, skilur allt, umber allt. Já, jafnvel þótt ég fari um dimm- an dal óttast ég ekkert illt, því þú ert hjá mér, ó Guð, sproti þinn og stafur huggar mig.“ Kona á sjúkrahúsi. Hárgreiðslustofan Desirée (Femina) Laugavegi 19, 2. hæð. • Að ganga með húfur annarra Strætisvagnafarþegi hringdi. „Mig langar að skamma svolítið strætisvagnafarþega, eða þann hluta þeirra sem hér eiga í hlut. Ég var svo óheppin í vetur að tapa svörtum skinnhönzkum í strætisvagni og þrátt fyrir ítrek- aðar fyrirspurnir hefur mér ekki tekist að hafa upp á þeim, þeir hurfu. Nú um daginn ferðaðist ég með leið 4, inn Kleppsveg og fór út á Kleppsvegi. Um leið og ég hafði yfirgefið vagninn uppgötvaði ég, að forláta skinnhúfu mína hafði ég gleymt að taka meðferðis. Auðvitað er þetta klaufaskapur af mér, en ég hringi strax inn á Kirkjusand og spurðist fyrir, en ekkert hafði frést af húfunni og hefur ekki síðan. Ég skil ekki hvernig fólk getur verið svo ómerkilegt að taka þannig eigur annarra. Hver heið- virð manneskja ætti að hafa afhent bílstjóranum húfuna, því einhver hefur auðvitað tekið hana. Ég á einnig bágt með að ímynda mér, hvernig fólk getur haft sam- vizku til að ganga með húfu annarra á höfði sér, sem einnig er illa fengin. SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á Skákþingi íslands 1980 kom þessi staða upp í landsliðsflokki í skák þeirra Jóhannesar Gísla Jónssonar, sem hafði hvítt og átti leik, og Ásgeirs Þórs Árnasonar 37. Dh6+! og svartur gafst upp, því að hann verður mátaður í næsta leik með 38. Hh8. HÖGNI HREKKVÍSI " V&JSZUM a/'oQU ‘MÆúOM yúyjaeM/Di HJKKIW OKKAZ.[n • Tískuklippingar • Tískupermanet • Lagningar • Glansskol • Næringarkúrar o.fl. AtH. Opiö um fermingarnar, tímapantanir í síma 12274. Opiö alla virka daga 9—6. Laugardaga 9—2. Þakka öllum nær og fjær sem hafa heiöraö mig á sextugsafmæli mínu. Sigfríöur Georgsdóttir, Bústaöavegi 105. Þakkir Innilegar þakkir færi ég öllum þeim sem mundu mig 25. mars s.l. Sérstakar kveðjur til lækna, hjúkrunarkvenna og starfsfólks Sjúkrahúss Akran- ness. Meö blessunaróskum . .... Þorbjorg Sigvaldadottir, frá Seljalandi, Dölum. • • Oll hreinlætistæki í baöherbergið 4 arma Byggingavörur hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.