Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
11
Sjötugur 2. páskadag:
Björn Stefánsson
fyrrum erindreki
Fyrir tæpum tvö þúsund árum
bauð seglasaumarinn frá Tarsus
kristnum bræðrum sínum að vera
ávallt glöðum. — Fáa þekki ég
sem fylgt hafa því boði jafnkost-
gæfilega og Björn, vinur minn,
Stefánsson, fyrrum kaupfélags-
stjóri og erindreki. — Lífsviðhorf
hans er grundvallað á þeirri af-
stöðu að einkahagsmunir skuli
jafnan þoka fyrir því sem stuðlar
að heill sem flestra. Framagirni er
honum fjarlægari en austrið
vestri. Auður og völd hafa aldrei
verið honum keppikefli heldur það
eitt að vinna öðrum slíkt gagn sem
frekast var unnt. — Þess vegna
hafa krumla iifsleiða og hrammur
firringar og streitu ekki megnað
að merkja sér hann og draga í dilk
sýndarfólks og tískuhana. Þess
vegna hefur hann ekki þurft að
leita gervigleði með tilstyrk
vímuefna. Gleðin yfir lífinu, fögn-
uðurinn yfir því að mega taka þátt
í að fegra og bæta líf bræðra sinna
og systra — hér á jörð eru honum
eðlislægar kenndir, hluti af hon-
um sjálfum, ef til vill stærsti
hlutinn.
Björn Stefánsson er Austfirð-
ingur, fæddur á Fáskrúðsfirði og
nú búsettur á Stöðvarfirði. Ungur
sat hann við fótskör Jónasar
Jónssonar frá Hriflu, nam af
honum margvísleg fræði, eignað-
ist góða vini. Að því búnu hvarf
hann til starfa í átthögum sínum;
var svo í áratugi kaupfélagsstjóri,
fyrst skamma hríð á Akranesi, þá
á Stöðvarfirði, Siglufirði og Egils-
stöðum.
Þó að ég efi ekki að margt hefði
látið Birni betur en kaupsýsla og
rekstur stórra fyrirtækja fórust
honum störf þau vel úr hendi enda
var honum trúað fyrir æ viðameiri
verkum með ári hverju á vegum
Samvinnuhreyfingarinnar.
Árið 1967 vendir Björn sínu
kvæði í kross, hættir kaupfélags-
stjórn en þó ekki með öllu starfi í
þágu samvinnumanna, því að enn
er hann endurskoðandi Sambands
íslenzkra samvinnufélaga. Hann
ræðst það ár til Áfengisvarnaráðs
sem erindreki. — Því starfi gegnir
hann í rúman áratug af stakri
árvekni og lifandi áhuga sem
aldrei spyr um laun heldur ein-
ungis um ávöxt verkanna. — Á
erindrekaárum sínum fór Björn
víða. Kom sér þá vel sú mann-
þekking sem hann hafði öðlast í
umsvifamiklum kaupfélagsstjóra-
störfum.
Han gerþekkti íslenskt mannlíf
til sjávar og sveita, var mótaður af
harðri lífsbaráttu alþýðufólks á
fyrra helmingi aldar okkar og
bundinn órjúfandi böndum hinu
besta í fari þess fólks sem hann
átti erindi við. — Því urðu störf
hans hjá Áfengisvarnaráði heilla-
drjúg og mun þeirra lengi sjá
staði.
Þegar Björn stendur á sjötugu
hefur hann enn brotið brýr að
baki sér, snúið úr hægu sæti við
kjötkatlana hér syðra, haldið heim
á ný, — austur —, sest að á
Stöðvarfirði og stundar nú smá-
búskap, sjósókn og íhlaupavinnu í
nánum tengslum við uppruna sinn
og eðli. Svo ungur er hann enn, svo
óspilltur af göldrum þeirra gervi-
mennsku sem heldur inntak ham-
ingjunnar fólgið í steinsteypuhöll-
um og bílífi, svo ófjötraður þeim
vanahugmyndum sem reyra
marga í viðjar, snúnar í áróðurs-
bælum gróðamanna neysluþjóð-
félagsins.
Björn Stefánsson er vel kvænt-
ur. Hygg ég að gæfu sína mesta
telji hann að hafa eignast Þor-
björgu Einarsdóttur, stórbrotna
gerðarkonu, hreinskilna og heil-
steypta, mótað'a úr þeim góð-
málmi sem dignar ekki í hrævar-
eldum hverfullar tísku. Börn
þeirra fimm eru sönnun þess að
eplin falla sjaldnast langt frá
eikinni.
Við hjónin eigum Birni Stef-
ánssyni fjölmargt gott að gjalda.
Hann hefur reynst okkur sannur
vinur og það hefur orðið okkur
ávinningur að kynnast jafn-
skrumlausum manni, finna að enn
slær „hjartað sanna og góða“ í
íslenskum brjóstum.
Við þykjumst vita að eðlislæg
gleðin fylgi honum til lokadægurs
og biðjum honum og fjölskyldu
hans allra heilla.
ólafur Haukur Árnason
í þessum merka áfanga vinar
míns, Björns Stefánssonar, renna
margar myndir fyrir hugskots-
sjónir. Okkar kynni hófust fyrir
austan. Ég man hann þar sem
kaupfélagsstjóra og hugsjóna-
mann. Ég var lítið hrifinn af
ýmsum framkvæmdum samvinnu-
hreyfingarinnar í þágu sérstakra
stjórnmálaafla og fannst þar oft
langt gengið. En þó var það svo að
þar voru hreinar undantekningar.
Björn Stefánsson leit alltaf á
manninn. Væri hann heiðarlegur
og drengur góður, var það honum
nóg til hjálpar og viðskipta. Eftir
þessu var tekið fyrir austan og
vinir hans voru margir andstæð-
ingar hans hvað skoðanir snerti.
Réttlæti hefir veriðjafnan hátt
skrifað á skjöld Björns. Það hef ég
reynt um dagana og margir aðrir.
Snemma tileinkaði hann sér
kristna Íífstrú og bindindishug-
sjónina. Þau öfl hafa vakað með
honum alla ævi og gefið honum
meira en nokkur veraldargæðj.
Því kemur hann bjartur og heiður
úr göngu sinni og getur glatt sig
við að hafa komið mörgu góðu til
vegar. Og víst er að ekki hefir
Björn lagt eyðingaröflunum lið.
Til þess er lífsgrunnur hans of
traustur.
Lengi vel lágu leiðir okkar
sjaldan saman. Við störfuðum
hver í sínum landshluta.
Svo hætti Björn kaupfélags-
stjórastörfum og þá var hann ekki
í vafa um hvað hann ætti að taka
sér fyrir hendur. Honum eins og
fleiri hugsandi mönnum blöskraði
það böl sem áfengi og eiturnautnir
valda og því kom ekki til mála
annað en kröftunum væri varið til
viðnáms og atlögu gegn því. Hann
réðst í þjónustu Áfengisvarnaráðs
og þar mættumst við aftur. Á
hverju ári kom hann og hélt með
okkur fundi og marga góða stund
áttum við saman á heimili mínu
og jafnan var hlakkað til endur-
funda. Slíkir menn eru óborgan-
legir í hverju þjóðfélagi. Það er
bæði gott og gleðilegt fyrir Björn
að líta nú til baka og sjá hvað
áunnist hefir, þrátt fyrir þau öfl
sem jafnan verða til að auka á
vandann.
Ég samfagna vini mínum um
leið og við hjónin þökkum öll hin
góðu kynni og vinsemd liðinna
ára. Um leið óska ég honum og
hans ágætu fjölskyldu alls hins
besta og vænti þess að við enn um
skeið fáum að hittast, deila geði og
örva hvor annan til átaka.
Árni Helgason
Stofnað Félag
kartöflubænda
við Eyjafjörð
Stofnað hefur verið Félag kart-
öflubænda við Eyjafjörð, en til-
gangur félagsins er að vinna
alhliða að vexti og viðgangi
kartöfluræktar á félagssvæðinu,
sem er svæði Búnaðarsambands
Eyjafjarðar.
Samkvæmt lögum félagsins er
samþykkt voru á stofnfundi geta
þeir orðið félagsmenn sem rækta
kartöflur til sölu og eru ábúendur
á lögbýli eða heimilisfastir þar.
Hyggst félagið beita sér fyrir
stofnun Landssambands kartöflu-
bænda og fleiri brýnum hags-
munamálum. í frétt frá félaginu
segir m.a. að núverandi ástans í
framleiðslumálum landbúnaðar-
ins geri það mjög brýnt að vel sé
hugað að þeim búgreinum er geti
vaxið og dafnað .Þrjátíu bændur
gerðust félagar á stofnfundinum
og er gert ráð fyrir að þeim eigi
eftir að fjölga nokkuð, en fram-
haldsstofnfundur er fyrirhugaður
síðar í vor. Formaður var kjörinn
Sveinberg Laxdal Túnsbergi.
ASÍMINN ER:
22410
Jú#r0unbtnbib
POLDNEZ
Verð aðeins kr. 4.850.000.-
Til leigubílstjóra verö kr. 3.450.00.-
Til öryrkja verö kr. 3.500.000.-
þessi bíll sem landsmenn
eru nú farnir aö sjá á
götum borgar og bæja
9 ' 1 ........ 1 1 «
PDLDNEZ
er vægast sagt á ótrúlega góðu verði —
miðað við svona góðan og fallegn bíl, með
öllum þessum aukahlutum:
★ 5 dyra ★ 4ra gíra alsamhœfur ★ Fallega taubólstruö sæti
★ Teppalagöur ★ Rafmagnsrúöusprautur og þurrkur
framan og aftan ★ Snúningshraöamælir ★ Kiukka ★
Oiíuþrýsti-, bensín- og vatnshitamælar ★ Aðvörunarljós
fyrir handbremsur og innsog o.fl. ★ Diskabremsur á öllum
hjólum ★ Tvöfalt bremsukerfi ★ Bremsujafnari ★ 1500 cc.
vél 83 ha sa ★ Rafmagnskælilúffa ★ Yfirfallskútur ★
Tveggja hraöa miöstöö og gott loftræstikerfi ★ Halogen-
þokuljós ★ Bakljós ★ Höfuöpúóar ★ Rúllu-öryggisbelti ★
PDLDNEZ
hefur góða aksturseiginleika, léttur í
stýri og liggur vel á slæmum vegum.
Sýningarbíll á staðnum vinsamiega
— komiö, skoöiö og geriö góö kaup. staöfestiö pantanir
FÍAT EINKAUMBOÐ Á fSLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf
SlÐUMÚLA 35. SÍMI 85855.