Morgunblaðið - 03.04.1980, Síða 15

Morgunblaðið - 03.04.1980, Síða 15
HVAÐ ER AÐ GERAST I BÆNUM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 15 Vatnslita- og olíumynd- ir og skúlptúrverk GRÍMUR Marinó Steindórsson opnar í dag málverkasýningu í F.Í.M-salnum, Laugarnesvegi 112. Á sýningunni eru 43 verk, 33 vatnslitamyndir og olíuverk og 10 járn- og skúlptúrverk. Grímur stundaði nám hjá Kjartani Guðjónssyni og Ásmundi Sveinssyni, og hefur notið tilsagn- ar hjá Pétri Friðrik og Veturliða. Þá hefur hann tvívegis farið námsferðir til Bandaríkjanna. Síðasta sýning Gríms var á Laugavegi 21 árið 1971. Sýning hans í F.Í.M.-salnum verður opin til 13. apríl n.k. SYNINGAR Bílasýning Kvartmíluklúbbsins SVO SEM venja hefur verið undanfarin ár verður Kvartmílu- klúbburinn með bílasýningu nú um pæaskana. Sýningarstaður verður að þessu sinni Sýninga- hoilin á Bildshöfða og þar verða til sýnis allir helstu og kraft- mestu kvartmílubílar landsins. Auk þeirra verða sýndir sérinn- réttaðir sendibílar, torfærujepp- ar, rallíbílar, rallíkrossbílar, virðulegir gamlir bílar, mótor- hjól og gljáfægð, plussklædd tryllitæki. Megintilgangur með sýningunni er sá að sýna á einum stað allar tegundir keppnisbifreiða auk ann- arra bíla sem sérstakir eru fyrir aldur, útlit eða hversu mikið er búið að breyta þeim. Að vanda mun áhorfendum gef- ast kostur á að velja fallegasta bílinn á sýningunni, verklegasta kvartmílubílinn, athyglisverðasta bílinn og verklegasta mótorhjólið. VKI REYRI KVIKMYNDIR Níu mánuðir eftir Mészáros FJALAKÖTTURINN sýnir á laugardaginn kl. 12 og 16 i Regnboganum kvikmyndina „Kilence Hónap“ (Níu mánuðir) eftir Márta Mészáros. Mynd þessi fjallar um unga einstæða móður að nafni Júlí, sem vinnur í verksmiðju. Þar er einnig starfandi verkfræðingur, sem fell- ir ástahug til Júlí, en hún vill lítið með hann hafa. Loks lætur hún undan þegar hann býður henni út eitt kvöldið. Þau eru ólíkir per- sónuleikar með andstæð viðhorf og óskir. Verkfræðinginn dreymir um húsið sitt, sem hann er að byggja og er að leita eftir félaga til að deila því með. Júlí er aftur á Atriði úr kvikmynd Mészáros. móti að leita eftir öryggi handa barni sínu. TÓNLEIKAR Divertimento eftir Béla Bartók HLJÓMSVEIT Tónlistarskólans í Reykjavík heldur tónleika í Bústaðakirkju á skírdag kl. 5 siðdegis. Stjórnandi er Mark Reedman. Á efnisskránni verða strengjaverk eftir Sibelius og Peter Warlock, einnig Branderborgarkonsert nr. 6 eftir J.S. Bach og Divertimento fyrir strengjasveit eftir Béla Bart- ók sem er meðal þekktustu verka hans og er nú flutt í fyrsta sinn á tónleikum hér á landi. LEIKLIST Sýningar d skírdag og annan í LEIKHÚSIN í Reykjavík verða opin á skírdag og á annan i páskum en engar sýningar verða þar á milli. Hjá Leikfélagi Reykjavíkur verður Ofvitinn sýndur á skírdag kl. 20.30 og einnig á annan í páskum. í Þjóðleikhúsinu verða Óvitar á fjölunum kl. 15 á skírdag en Sumargestir kl. 20. Á annan í páskum verður Stundarfriður sýndur í Þjóðleikhúsinu kl. 20. Miðnætursýning verður hjá L.R. í Austurbæjarbíói á laugardaginn kl. 23.30. Þar verður sýndur gam- anleikurinn „Klerkar í klípu.“ Frá sýningu Þjóðleikhússins á Óvitum eftir Guðrúnu Helgadótt- ur. L.A. sýnir Herbergi 213 LEIKFÉLAG Akureyrar sýnir „Herbergi 213“ eftir Jökul Jakobsson í dag, skírdag, kl. 20.30. Næsta sýning verður annan páskadag á sama tíma. Frá sýningu L.A. á Herbergi 213. YESTMANNAEYJAR Óskar Waagfjörð sýnir í Akoges ÓSKAR Waagfjörð Jónsson opn- aði málverkasýningu í Akoges í Vestmannaeyjum sl. miðvikudag. Sýningin stendur til 7. apríl n.k. og verður opið daglega kl. 14— 22. Óskar sýnir þar 35 olíumyndir, flestar unnar á sl. þremur árum og nær öll viðfangsefnin eru úr Eyjum. Óskar Waagfjörð við eitt verka sinna Ljásm.SÍKunccir. SÝNINGAR Keramik og skrautmunir GUÐRÚN Kristín Magnúsdóttir opnar sýningu á keramikmunum og ýmiss konar skrautmunum fyrir veggi og glugga í Hús- gagnaverslun Kristjáns Sig- geirssonar við Smiðjustíg í Reykjavík. 3. apríl, skírdag, verð- ur sýningin opin kl. 14 — 19, laugardaginn 5. april kl. 9—17 og annan páskadag kl. 14 — 19 Eftir páska verður sýningin opin alla virka daga frá kl. 9—18, laugardaga kl. 9—17 og sunnu- daga kl. 14—19. Sýningin stendur til 20. apríl. Guðrún Kristín hefur lokið prófi frá Myndlista- og handíða- skóla íslands og tekið þátt í samsýningum á vegum Listiðnað- ar auk þess sem hún hefur unnið við gerð myndasagna fyrir sjón- varp. Guðrún Kristin Magnúsdóttir. c ■) SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.