Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 18
1 g MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 Útvarp og sjónvarp um hátíðarnar f&M’^ “x- • 'J \ /Ts/A/V* ‘ B Fríkirkjan í Reykjavík ris upp úr hrimþoku af Tjörninni. Guðsorð í útvarpi og sjónvarpi helgidagana Páskarnirerumestatrúar- hátíðkristinnamannaumallan heim,ogþvíerekkióeðlilegtað guðsorðheyristiútvarpiogsjó- _ nvarpi þessa hátíðisdaga. Á páskadag klukkan 16.00 verður páskamessa í sjónvarpssal. f>ar mun séra Kristján Róbertsson, fríkirkjuprestur í Reykjavík, prédika og þjóna fyrir altari. Fríkirkj ukórinnsy ngur,enorg- anisti og söngstjóri er Sigurður ísólfsson. íútvarpiverðasvomorgunand- aktirherraSigurbjörnsEinars- sonarbispupsklukkanáttaárdeg- isáskírdag,föstudaginnlangaog páskadagana. Þá verður messu útvarpað frá Safnaðarheimili Grensássóknar klukkan 11 á skrídagsmorgun, ogá sama tíma á föstudaginn langa frá Svalbarðskirkju við Eyjafjörð. Guðsþjónustum verður svo einnig útvarpað páskadag og anna í páskum. Lovísa og vinur hennar og barnsfaðir, Charles Tyrrell, sem nú kemur aftur til sogunnar í þættinum á páskadagskvöld. í Hprtoiíastræti að kvoldi páskadass: Tyrrel, barnsfaðir Lovísu kemur til sögunnar á ný Þættirnir úr Hertogastræti verða á sínum stað i dagskrá sjónvarps þótt páskahelgin gangi nú í garð. því níundi þáttur er á dagskránni klukkan 21.10 á páskadagskvöld. í þessum þætti bregður til margvíslegra tíðinda eins og venjulega, og nú kemur sá gamli vinur Lovísu, Charles Tyrrell, aft- ur til sögunnar. Eitthvað er hann farinn að bjástra við listiðkun, og við þá sögu hans kemur gamall aðalsmaður sem býr á hóteli Lovísu. En ekki meira um það að sinni, eftirvæntingarfullir að- dáendur þáttanna um Lovísu verða að bíða þar til um kvöldið til að sjá hvernig fer. Erindi Intíimars Erlends föstudatíinn lanjía: Af píslargöngunm og öðrum Klukkan 13.30 á föstudag- inn langa er á dagskrá út- varpsins erindi sem Ingimar Erlendur Sigurðsson rithöf- undur flytur, og nefnir Pislargangan og aðrar göngur. í erindi þessu kvaðst Ingi- mar Erlendur ætla að fjalla um píslargönguna, og fráhvarf nútímamanna frá henni og boðskap hennar, þegar einu göngur sem menn legðu upp í væru heislubótargöngur og mótmælagöngur. göngum Ingimar Erlendur Sigurðsson rit- höfundur Á páskadagskvöld klukkan 22 er á dagskrá sænsk mynd, sem nefnist Kristín og kvæðið um Gústaf. Myndin bregður upp þáttum úr lífi þessarar sérstæðu drottningar Svíaríkis, sem uppi var á árunum 1626 til 1689, en hún var dóttir hins mikla herkonungs Gústafs Adolfs. Faðir hennar, Gústaf Adolf konungur, féll í orrustu við Lútzen á Þýskalandi árið 1632, þegar Kristín var aðeins sex ára að aldri. Þar sem hún átti ekki bræður, varð hún drottning við fall föður hennar, þó vitanlega hafi aðrir farið með völdin í umboði hennar fyrst í stað. Er hún varð myndug árið 1644, átján ára gömul, tók hún hins vegar við ríkinu og stjórnaði því sem drottning. Óskar Ingimarsson, sem þýddi myndina, sagði hana vera mjög sérstæða fyrir margra hluta sakir. Bæði væri saga drottn- ingar mjög sérstæð, og svo væri myndatakan einnig frábær. Myndin er byggð upp á því að sýnd eru leikin atriði úr lífi Kristínar, og einnig eru sýnd málverk frá þeim tímum er hún var uppi. Kristín tók sem fyrr segir við valdataumunum árið 1644. Hún var þó aðeins við völd í tíu ár, en þá sagði hún af sér, og kaus að Kristín drottning sem ung stúlka, en hún varð drottning við fall föður síns, aðeins sex ára að aldri. Sjónvarp aö kvöldi páskadatís: Um hina sérstæðu drottningu Svía, Kristínu, dóttur Gústafs Adolfs flytjast suður til Ítalíu. Ollu því bæði menningarleg og trúarleg málefni, en Kristínu fannst allt of þröngt um sig í ríkLSvía, þar sem menn voru þröngsýnir og kreddufullir. Mun frjálslyndari menn fann hún hins vegar sunn- ar í álfunni eftir að þrjátíu ára stríðinu lauk, þótt þar væru menn kaþólskrar trúar en ekki mótmælendur eins og í Svíþjóð. Á Ítalíu var Kristín um tíma töluvert valdamikil, og einkum gerði hún vel við listamenn af ýmsu tagi, svo sem tónlistamenn og myndlistarmenn. Miklum sögum hefur einnig farið af ástalífi hennar, en hún giftist aldrei. Ekki er þó farið út í þá sálma í myndinni, að sögn Ósk- ars. Nær einsdæmi er í veraldar- sögunni, að þjóðhöfðingi segi af sér vegna þess að honum finnist hann vera að kafna af menning- arleysi og trúarafturhaldi, og raunar er það nær einsdæmi að þjóðhöfðingjar segi af sér yfir- leitt ótilneyddir, hvað þá ef hafðir eru í huga þeir tímar er Kristín drottning var uppi á. Mannkynssagan er full af frásögnum af borgarastyrjöld- um og deilum um yfirráð ríkja og landsvæða. Fjallað er um þá miklu atburði sem orðið hafa þegar konungar hafa neitað að segja af sér, og þegar aðrir hafa krafið þá um ríki þeirra, með góðu og illu. í þeim sæg frásagna er saga Kristínar Svíadrottn- ingar einstök. Myndin er þess virði að horfa á, þó ekki væri nema fyrir það eitt, en auk þess er hér á ferðinni ágæt skemmt- an. Þorsteinn ö. Stephensen. Valgerður Dan. Helga Bachmann. Valur Gislason. Helgi Skúlason. Leikrit eftir Þóri Guðhergsson: Páskamorgunn A páskadag, þann 7. apríl kl. 13.20 verður flutt í útvarpi leik- ritið „Páskamorgunn“ eftir Þóri S. Guðbergsson. Leikstjóri er Þorsteinn 0. Stephensen. Meðal leikenda eru Valgerður Dan, Helga Bachmann, Valur Gislason og Helgi Skúlason. Flutningur leiksins tekur um hálfa klukku- stund. Hann var áður á dagskrá i útvarpi á páskadag 1969. Leikritið er byggt á frásögn guðspjallanna um upprisu Jesú. Þar segir frá litlu stúlkunni Elísa- betu, sem er blind, Salóme móður hennar og Stefanusi gamla lang- afa telpunnar, sem einnig býr þar í húsinu. Hann trúir á hið gamla lögmál Gyðinga og finnst margt í kenningum „smiðsins frá Nasar- et“ vafasamt og allt að því hættu- legt. En svo gerist atburðurinn, sem verður jafnvel til að opna augu þeirra vantrúuðu. Þórir S. Guðbergsson er fæddur í Reykjavík árið 1938. Hann lauk stúdentsprófi 1958 og siundaði síðan nám í guðfræði við Háskóla íslands. Framhaldsnám í Osló 1963—64 og í Stafangri 1973—76. Starfsmaður íslenskra kristni- boðsfélaga um skeið, en hefur lengstum stundað kennslu. Frá 1964 hefur Þórir skrifað margar barna- og unglingasögur og nokk- ur leikrit. „Sigur páskanna", „Endur fyrir löngu“ og „Heilbrigð sál í hraustum líkama" hafa verið flutt í útvarpinu, auk „Páska- morguns", og Leikfélag Reykja- víkur sýndi „Kubb og Stubb" 1966.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.