Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
19
Utvarp og sjónvarp um hátíðarnar Sjá einnig dagskrá á bls. 31
Úr leikritinu Komdu aftur. Seba mín, sem valið var besta leikritið
árið 1950 í Bretlandi. Á myndinni eru þau Laurence Olivier og Joanne
Woodward í hlutverkum sínum sem Doc og Lola.
Sjónvarp föstudatfinn langa:
Komdu aftur, Seba mín
Á dagskrá sjónvarps á föstu-
daginn langa klukkan 17 er
sjónvarpsleikritið Komdu aftur,
Seba mín, sem Sir Laurence
Olivier bjó til flutnings. Leikritið
er ekki alveg nýtt af nálinni, né
heldur er það alveg ókunnugt
íslenskum sjónvarpsáhorfendum:
Leikritið var áður flutt hér í
sjónvarpi 19. febrúar í fyrra!
Leikritið fjallar annars um líf
miðaldra hjóna, þar sem maður-
inn er drykkfelldur, en reynir þó
að rífa sig upp. Konan sakar hins
vegar sinna yngri ára, og við sögu
kemur ung stúlka sem býr á
heimili þeirra.
Þýðandi er Rannveig Tryggva-
dóttir.
bessar sérkennilegu flatneíjur eru meðal þeirra fuglategunda sem nú
eiga griðastað á tjörn indverska aðalsmannsins. sem ætlaði að skjóta
þar fugla allan ársins hring.
Framkvæmdir skotglaðs Indverja:
Nú griðastaður sjald-
gæfra fuglategunda
Laugardagskvöld fyrir páska
er á dagskrá fræðslumyndin
Andatjörnin, þar sem sagt er frá
sérstæðri og merkilegri vin fjöl-
margra fuglategunda á Indlandi.
Tjörnin sem hér um ræðir er í
héraðinu Bharatpur á Indlandi, og
var hún gerð á síðustu öld. Fyrir
því verki stóð aðalsmaður nokkur,
sem hugðist þarna geta skotið
endur allan ársins hring, og svalað
þannig drápslöngun sinni og veiði-
mannseðli hvenær sem honum
dytti í hug á öndum þeim er létu
lokkast af fagurri tjörninni.
Nú er hlutverk tjarnarinnar
hins vegar annað, og um leið
hlutverk og staða hinna gömlu
aðalsmanna í indversku þjóðlífi.
Tjörnin hefur sum sé verið friðuð,
og er nú athvarf og griðastaður
fjölmargra sjaldgæfra fuglateg-
unda sem ekki eiga alltof víða
höfði sínu að halla um þessar
mundir.
Sjónvarp ÍPstudaidnn lanjía:
Macbeth
eftir
Shakespeare
Hið heimskunna og sigilda verk
Williams Shakespears, Macbeth,
er meðal efnis á dagskrá sjón-
varps á föstudaginn langa. Þetta
sígilda leikhúsverk, sem meðal
annars hefur verið fært upp hér í
Þjóðleikhúsinu, er þarna flutt af
The Royal Shakespears Company,-
sem bjuggu það í sjónvarpsbún-
ing.
Judi Dench i hlutverki lafði
Macbeth.
Hátíðadagskrá sjónvarpsins:
Börnin gleymast ekki alveg
Börnin og aðrir sjónvarps-
áhorfendur sem ungir eru í
anda gleymast ekki alveg nú
um páskahátíðina, þó mörgum
kunni að finnast dagskrá rikis-
fjölmiðlanna fremur þunglama-
lcg.
Klukkan 18 á páskadag er til
dæmis Stundin okkar á dagskrá,
og að sjálfsögðu er það hún
Bryndís Schram sem sér um
hana. í þættinum mun að þessu
sinni kenna margvíslegra grasa,
spurt verður um páskana, lesið
verður páskaguðspjallið, dansað
verður og sungið, Brandara-
bankinn verður á sínum stað og
margt fleira.
Þeir unglingar og þau börn
sem ekki verða úti að leika sér
eða á skíðum rétt fyrir kvöldmat
á páskadag ættu því að opna
fyrir sjónvarpið klukkan sex.
■ ■
Bryndis Schram, umsjónarmaður Stundarinnar okkar.
Laugardagskvikmynd sjónvarpsins:
Þáttaskil í lífi hinnar fertugu Victoriu
Þáttaskil nefnist bandarisk
sjónvarpskvikmynd frá því árið
1973, sem verður á dagskrá
sjónvarpsins klukkan 22.35 laug-
ardagskvöldið 5. apríl næstkom-
andi, kvöldið fyrir páskadag.
Aðalsögupersónan er fertug gift
kona, Victoria, sem verið hefur
mjög ánægð með lífið, hefur góða
vinnu og er ánægð í.hjónabandi
sínu. En þá skyndilega gerist það,
að hún verður barnshafandi í
fyrsta sinn.
Myndin fjallar um viðbrögð
hennar og eiginmanns hennar við
þessum óvæntu tíðindum, þar sem
skiptast á gleðiviðbrögð vegna
vitneskjunnar um væntanlegt
barn og áhyggjur vegna fyrir-
sjáanlegra breytinga á lífsstíl.
Martin Balsam og Cloris Leachman i hlutverkum Victoriu og eiginmanns hennar í sjónvarpskvikmyndinni
Þáttaskil.
Að kvöldi annars í páskum:
Oli Þórðar á
vetrarkvöldi
Óli II. Þórðarson er með þátt
sinn, Á vetrarkvöldi. á dagskrá
sjónvarps annan í páskum, nán-
ar til tekið klukkan 20.45. Óli
sagði í spjalli við Morgunhlaðið
fyrir páska, að í þættinum
kenndi margra grasa að venju.
í fyrsta lagi yrði rætt við
Sigurð Demetz Fransson, og
syngur hann nokkur lög við
undirleik Ólafs Vignis Alberts-
sonar. Óli sagði Sigurð vera
bráðhressan, þótt hann væri nú
orðinn 67 ára gamall, en hann er
nú nýfluttur suður yfir heiðar
eftir að hafa verið búsettur á
Akureyri um árabil.
Þá koma tvær hljómsveitir í
heimsókn í þáttinn, Tívolí, sem
teikur létta og skemmtilega al-
þýðutónlist, og Stormsveitin,
sem einkum fæst við að leika
jassrokktónlist.
Þá verður rætt við Pálma
Gíslason, formann Ungmennafé-
lags íslands um starf og tilgang
félagsins, en innan vébanda þess
eru nú um 23 þúsund félagar.
Enn má nefna að Örn Árason
kemur í þáttinn og leikur nokkur
klassisk verk á gítar, og einnig
verða í þættinum nokkur smærri
atriði sem óli sagði best að
kæmu áhorfendum á óvart þegar
að útsendingu kæmi.
óli H. Þórðarson.