Morgunblaðið - 03.04.1980, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1980
Auður Elísabet Guðmundsdóttir og Laddi í hlutverkum sinum í
Veiðiferðinni.
íkus\UTbæ\arb\ó*.
Veiöiferöin
AUSTURBÆJARBÍÓ sýnir Veiði-
ferðina. mynd þeirra Andrésar
Indriðasonar og Gisla Gestssonar.
Veiðiferðin er ein af þremur
leiknum íslenzkum kvikmyndum
sem gerðar voru fyrir kvikmynda-
hús á sl. ári og er breiðtjaldsmynd í
litum og í fullri sýningarlengd.
Veiðiferðin er kvikmynd fyrir börn
og fullorðna, en hún er framleidd af
Andrési Indriðasyni og Gísla
Gestssyni, en Andrés hefur jafn-
framt skrifað handrit og annazt
leikstjórn, en Gísli annaðist kvik-
myndun. Magnús Kjartansson
samdi tónlist sérstaklega fyrir
myndina. 16 leikarar eru í stórum
hlutverkum í myndinni, en alls
koma fram í henni milli 40 og 50
manns. Meðal leikara má nefna
Sigriði Þorvaldsdóttur, Sigur*
Karlsson, Sigurð Skúlason, Pétu
Einarsson, Árna Ibsen, Guðrúnu I
Stephensen, Klemenz Jónsson. Þ
fara Halli og Laddi með hlutverk
myndinni og einnig fara þrjú bör
með stór hlutverk, Guðmundu
Klemenzson, Kristín Björgvinsdótt
ir og Yrsa Björt Löve.
Veiðiferðin var kvikmynduð
Þingvöllum í júlí sl. Myndin gerist
öll á einum degi og lýsir fólki sem
kemur til Þingalla. Efnisþráðurinn
tvinnast saman af ólíku fólki og
atvikum tengdum því.
Kostnaður við gerð myndarinnar
er áætlaður um 40 milijónir króna.
Clark Gable og Vivien Leigh i hlutverkum sínum í mvndinni Á
hverfanda hveli.
Gam\a b'\ó:
Á hverfanda hveli
GAMLA BlÓ sýnir um páskana
hina heimsfrægu og sigildu mynd Á
hverfanda hveli, sem leikstýrt er af
Victor Fleming. Aðalhlutverk leika
Ciark Gabie, Vivien Leigh, Olavia
de Haviland og Leslie Howard.
Sagan gerist á árunum 1861—1873
í Georgia-ríki í Norður-Ameríku.
Scarlett O’Hara ann Asthley,
æskuvini sínum, og henni kemur það
á óvart er hann gengur að eiga
Melanie, frænku sína. I trúlofunar-
veizlu Ashleys og Melanie, sér Scarl-
ett í fyrsta sinn æfintýramanninn
Rhett Butler, og er hann heyrnar-
vottur að því er Scarlett tjáir Ashley
ást sína. Scarlett giftist Charles,
bróður Melanie, og er það ætlun
hennar að hryggja Ashley með
þessu. En Indía, systir Ashley, elsk-
ar Charles.
Styrjöldin milli Norður- og Suður-
ríkjanna (Þrælastríðið) hefst. Ash-
ley og Charles taka báðir þátt í
henni. Tveimur mánuðum síðar er
Scarlett orðin ekkja. Scarlett og
Melanie fara til borgarinnar Atlanta
og dvelja þar hjá „Pittypat", frænku
Melanie.
Scarlett tekur þátt í bazar
og dansleik sem haldinn er í góð-
gerðarskyni, og hittir þá Rhett
Butler öðru sinni. Rhett hefir eigi
tekið þátt í styrjöldinni, eins og
aðrir ungir menn, heldur hefið hann
haldið uppi siglingum til Suður-
ríkjanna, þrátt fyrir hafnbann Norð-
urríkjanna. Hefir hann hagnast
mjög á þessu. Rhett heimsækir
Scarlett ávallt þegar hann kemur til
borgarinnar.
BoT^arbíó’,
„Who has
seen
the wind“
BORGARBÍÓ í Kópavogi frum-
sýnir nú kanadíska kvikmynd,
„Who has seen the wind?“, sem
Alan Winton King lcikstýrir.
Myndin gerist í Kanada á
krepputímum og segir þar af litlum
dreng sem á í miklum vandræðum
vegna drykkjuskapar föður síns.
Þegar faðir hans er neyddur til
þess að gangast undir læknismeð-
ferð er drengurinn sendur til
frænda síns úti í sveit, þar sem
hann eignast góða vini. Myndin er
sögð fyrir alla fjölskylduna.
Faðirinn drykkjusjúki í Who has
seen the wind?
V-augarásbtó:
Meira
Graffiti
LAUGARÁSBÍÓ sýnir um pásk-
ana myndina Meira Graffiti, sem
framleidd er í beinu framhaldi
myndarinnar American Graffiti,
sem Laugarásbíó sýndi fyrir
nokkru við mikla aðsókn.
Það er B.W.L. Norton sem
leikstýrir myndinni, sem gerist á
árunum 1964—1968. Söguþráður-
inn er léttur, blanda af kapp-
akstri, ástarflækjum og Víet-
namstríði.
Það sem eflaust vekur mesta
athygli varðandi myndina er það,
að einn leikara er engin önnur en
íslenzka sýningarstúlkan Anna
Björnsdóttir. Anna leikur íslenzk-
an skiptinema sem á erfitt með að
tjá sig á ensku og hefur Anna
hlotið ágæta dóma fyrir fram-
mistöðu sína. í myndinni er mikið
um tónlist.
Úr myndinni Meira Graffiti, sem
Laugarásbió sýnir um paskana.
Ami Striker, Carol Burnett og Paul Dooly í hlutverkum sinum í
Brúðkaupsvcizlunni.
Hv\a b\ó:
Brúðkaupsveizlan
NÝJA BÍÓ sýnir um páskana
myndina Brúðkaupsveizlan, sem
Robert Altman leikstýrir og fram-
leiðir. í helztu hlutverkum eru
Amy Striker, Mia Farrow, Carol
Burnett og Paul Dooly. Sögu-
þráður myndarinnar er eftirfar-
andi:
Það er mikið um að vera hjá
Brenner- og Corellifjölskyldunum
— þær eru nefnilega að sameinast,
ef svo má segja, í hjónabandi. Dínó
Corelli er að giftast Muffin Brenner,
og það er kirkjubrúðkaup, þar sem
Martin biskup, sem er löngu kominn
á eftirlaun, gefur unga fólkið saman
og kann varla rítúalið lengur.
Fjöldi manns vinnur við undir-
búning veglegrar veislu á heimili
Corelli-hjónanna, meðan brúðhjón-
in eru gefin saman í kirkjunni, og
margir fylgjast með framvindunni
en þó enginn af eins miklum áhuga
og amma brúðgumans, Nettie gamla
Sloan. Hún hefur verið rúmliggj-
andi um tíma, en það er ógerningur
að halda henni í rúminu þennan
dag, og loks fer svo, að eftirvænting-
in og áreynslan verða henni ofraun.
Hún gefur upp andann um það bil
sem veislugestirnir eru að streyma
að.
Atriði úr Vitahringnum, sem Regnboginn sýnir um páskana.
Regnbogmn:
Vítahringurinn
REGNBOGINN heldur áfram
sýningum sýnum á óskarsverð-
launamyndinni Hjartarbananum
með þeim Robert De Nero, Christ-
opher Walken, John Savage,
John Cazale og Meryl Streep,
Flóttanum frá Aþenu með Roger
Moore, Telly Savalas, David Niv-
en og Claudia Cardinale og Svona
eiga eiginmenn að vera með þeim
Anthony Franciosa og Carol Bak-
er.
Síðan mun Regnboginn sýna
nýja mynd, Vítahringurinn, með
þeim Miu Farrow og Keir Dullea í
aðalhlutverkum, en söguþráður-
inn í henni er eftirfarandi:
Júlía Lofting þjáist af miklu
samviskubiti vegna dauða ungrar
dóttur sinnar, Kate, því hún telur
sig að nokkru eiga sök á dauða
telpunnar. Hún hafði orðið fyrir
slysi, og Júlía reynt að rifja upp
kunnáttu sína sem hjúkrunar-
kona, en gengið það illa, meðan
Magnús maður hennar, hafði
reynt að ná í sjúkrabíl. Þegar það
tókst, var það of seint, Kate hafði
dáið á leið í sjúkrahús.
Bæ\atb\ó:
Systir Sara og asnarn-
ir — Árásin á Agaton
Bæjarbíó í Hafnarfirði sýnir um páskana myndirnar Systir Sara og
asnarnir á skírdag og Árásin á Agaton á annan dag páska.