Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 22

Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1980 SIGURPÁLL A. Isfjörð opnaði í gær málverkasýningu í Ásmundarsai við Freyjugötu. Þetta er 4. einkasýning Sigurpáls og sýnir hann að þessu sinni 60 myndir, 19 oliumyndir, 36 vatnslitamyndir og 5 kritarmyndir. Sýningin verður opin til 7. april frá klukkan 14—22 alla dagana. Gæzlan kærir tugi netabáta: Nefndakjör: Stjórn Atvinnuleys- istryggingasjóðs ENDURSKOÐUNARMENN rík- isreikninga vóru kjörnir í sam- einuðu þingi i gær: Halldór Blöndal, Baidur ðskarsson og Jón Snæbjörnsson. Þá var kjörið í stjórn Atvinnu- leysistryggingasjóðs: Pétur Sig- urðsson (til vara Axel Jónsson), Davíð Ólafsson (til vara Hákon Hákonarson), Eðvarð Sigurðsson (til vara Benedikt Davíðsson) og Jón Ingimarsson (til vara Ragnar Bergmann). Misbrestur á merking- um veiðarf æra í sjó Hayek flytur fyrirlestur sinn i hátiðarsal Háskólans i gær Þyrla landheigisgæzlunnar hefur farið um Suður- og Vesturland á undanförnum dögum til þess að Stefna ríkisstjórnar: Lakari hlutur þeirra er kynda með olíu - þrátt fyrir II milljarða nýjan ársskatt Á UNDANFÖRNUM árum hafa niðurgreiðslur vöruverðs verið tvíþættar á útgjaldahlið fjár- laga: niðurgreiðslur á búvöru- verði og niðurgreiðslur á olíu til húshitunar, sagði Þorvaidur Garðar Kristjánsson á Alþingi í fyrrinótt. Svo var og í fjáriaga- frumvarpi Tómasar Árnasonar og fjárlagafrumvarpi Sighvat- ar Björgvinssonar fyrir árið 1980, samtals 25,3 milljarðar króna í hinu fyrra en 23.2 milljarðar í því síðara. í fjár- iagafrumvarpi Ragnars Arn- alds eru niðurgreiðslur 24.4 miiljarðar króna en eingöngu til niðurgreiðslu á búvöru, ekk- ert til niðurgreiðslu oiíuverðs. Það er skoðun okkar sjálfstæð- ismanna að þessari heildartölu, sem mun hámark þess sem hægt er að verja í niðurgreíðslur í ár, eigi að skipta milli niður- greiðslu á búvöru og niður- greiðsiu á olíu, svo sem verið hefur í fyrri fjárlögum, og gengur tiliaga okkar út á það að verja 5 milljörðum króna til jöfnunar húshitunarkostnaði, án þess að auka á heildarút- gjöld ríkissjóðs eða grípa tii söluskattshækkunar eða ann- arrar aukinnar skattbyrði á almenning í landinu. — segir Þorvald- ur Garðar Krist- jánsson Frumvarp um verð- jöfnun í efri de'ild Þorvaldur Garðar Kristjáns- son (S) sagði þessa tillögu í samræmi við frumvarp fjögurra þingmanna úr jafn mörgum flokkum í efri deild um niður- greiðslu á olíu til húshitunar. Samkvæmt því frumvarpi skal greiða niður olíu þann veg að hún verði aldrei hærri en sem svarar 2.5-földu meðalverði verðs hjá hitaveitum í landinu. Það er skoðun mín, eftir að hafa kannað mál þetta mjög vel, að til þess nægi 5 milljarða króna tilfærsla frá áðurgreindum út- gjaldalið fjárlaga. Tillaga stjórnarinnar þýðir óbreytt niðurgreiðsla í greinargerð með fjárlaga- frumvarpi kemur fram, sagði ÞGKr. að það þurfi 3.6 milijarða króna til að standa undir óbreyttum niðurgreiðslum á olíu frá 1979. Ég staðhæfi að meira þarf til. Nærri mun láta að þeir 4 milljarðar króna, sem stjórnar- liðið vill verja til olíuniður- greiðslu (og afla í leiðinni tekna með nýjum skatti sem nemur 11 milljörðum á 12 mánuðum), geri ekki meira en halda óbreyttum kostnaðarhlut fólks á „olíusvæð- um“ — en léttir byrðar þess í engu! Þetta reyndist þá öll rausnin hjá núverandi ríkis- stjórn, eftir allt talið um að bæta hag þessa fólks: risavaxnar skattálögur til að halda óbreytt- um niðurgreiðslum og tæplega það. í raun versnar staða olíukyndingar En böggull fylgir skammrifi ríkisstjórnar. Frá þessum 4 milljörðum, sem ríkisstjórnin ætlar að rausnast til að greiða olíu niður með, verður að draga um 1300 m.kr., sem nærri lætur að olíukyndingarfólk verður að greiða í söluskatt til að njóta sömu niðurgreiðslu og áður. Og þá er ekki meðtaldar um 80Ó m.kr., sem þetta fólk þarf að greiða í aðflutningsgjöldum til ríkissjóðs líka af þeirri olíu sem það notar á árinu. I raun er verið Þorvaldur Garðar Kristjáns- son. að gera hlut þessa fólks lakari en hann var, ef alls er gætt, m.a. eyðsluhluta ríkisstjórnar í hin- um auknu söluskattsálögum — umfram það er verja á til niðurgreiðslunnar. Ég spyr, sagði ÞGKr., er hægt að komast lengra í óheilindum? Getur svívirða ríkisstjórnar og iítilsvirðing á eigin stjórnarsátt- mála orðið meiri? Þetta mál varðar milli 20 og 25% af íslenzku þjóðinni, sem býr við meira félagslegt órétti en flestir aðrir. kanna merkingar á veiðarfærum netabáta, en nú eiga öll net að vera í iandi. Um var að ræða athugun á merkingu dreka og bólfæra, en samkvæmt lögum á númer báts að vera á þessum hlutum, en tvö ár eru liðin síðan þessi atriði voru lög- bundin. Einn Patreksfjarðarbátur var með ólöglegan búnað að þessu leyti, 13 á Snæfellsneshöfnum, 9 frá Þorláks- höfn, 18 í Eyjum og mikill misbrest- ur mun vera á þessu á Reykjanes- höfnum og í Reykjavík. Einnig var könnuð möskvastærð og var ekki um nein vandkvæði að ræða í þeim efnum. Árangurslaus sáttafundur með farmönnum SÁTTAFUNDUR var í gær hald- inn í kjaradeilu aðildarfélaga Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands og viðsemjenda Íeirra, Vinnuveitendasambands slands, Vinnmálasambands sam- vinnufélaganna og samninga- nefndar ríkisins. Fundurinn varð árangurslaus og hefur ekki nýr fundur verið boðaður. Fundurinn var haldinn í húsa- kynnum sáttasemjara ríkisins í Borgartúni 22. Á fundinum var rætt um kröfur aðildarfélaga FFSI og þær skýrðar fyrir við- semjendum, sem höfnuðu þeim öllum, þar sem þær fælu í sér hækkanir á kaupgreiðslum. Töldu vinnuveitendur að framlengja bæri óbreytta kjarasamningana til tveggja ára, þó með endurskoð- unarákvæði um næstu áramót, verði þá svigrúm til breytinga. Samkvæmt upplýsingum Ing- ólfs Falssonar, forseta Farmanna- og fiskimannasambands íslands, hefur ekki verið tekin ákvörðun um það, hvert framhald verður á þessari kjaradeilu frá hendi Far- mannasambandsins. Friedrich A. Hayek: „Einstaklingsfrels- inu er enn hætt“ „ÞAÐ kom mér algjörlega á óvart, hvað hók mín vakti mikla athygii, þegar hún kom fyrst út,“ sagði dr. Friedrich A. Hayek á biaðamannafundi, sem haldinn var í tilefni þess, að Almenna bókafélagið og Félag fráls- hyggjumanna hafa gefið út hið kunna rit hans, Leiðina til ánauð- ar (The Road to Serfdom), á íslenzku. „Mér fannst þó mikill munur á viðtökunum í þeim tveimur iöndum, þar sem hún seldist mest, Bretlandi og Banda- ríkjunum. Hún varð tilefni til alvarlegra rökræðna í Bretlandi og sósíalistar þar viðurkenndu þá hættu, sem væri fyrir einstakl- ingsfrelsið af allsherjarþjóð- nýtingu. En í Bandaríkjunum var hún notuð sem vopn í viður- eign tveggja hópa, annars vegar sósíalista. sem helltu yfir mig fúkyrðum, hins vegar kapítal- ista, sem héldu, að þeir gætu notað hana í eiginhagsmuna- skyni, og ég hef suma þeirra grunaða um að hafa aldrei lesið hana.“ Hayek var spurður, hvort hann teldi þróunina síðustu áratugina staðfesta spádóma sína, en í Leið- inni til ánauðar varar hann við of miklum ríkisafskiptum, skipu- lagningu og áætlunarbúskap og telur það vísasta veginn til glötun- ar einstaklingsfrelsisins. Hann svaraði: „Sennilega hefur bókin átt einhvern þátt í því, að sá „heiti“ sósíalismi, sem ég beindi rökum mínum gegn, er varla lengur til umræðu í alvöru. Menn krefjast ekki lengur hreins mið- stjórnarkerfis eða allsherjar- skipulagningar atvinnulífsins eins og í Ráðstjórnarríkjunum. En eftir er „volgur“ sósíalismi, sem felst í því, að starfsemi markaðar- ins er trufluð, þannig að markaðs- öflin geta ekki unnið eðlilega. Þetta leiðir til þess, að þeir sósíalistar, sem ætla alls ekki að fara til hreins miðstjórnarkerfis, berast þangað, ef svo má segja. Þannig verður þróunin að vísu hægari, en stefnir þó í sömu áttina. Einstaklingsfrelsinu er enn hætt.“ Hayek sagði, að hann væri alls ekki á móti því, að sinnt væri ýmsum félagslegum umbótamál- um, en ekki mætti trufla starf- semi markaðarins til þess, ef halda ætti einstaklingsfrelsinu og skila góðum afrakstri. Til dæmis væri rétt að tryggja öllum þeim, sem gætu ekki tryggt sér það sjálfir, lágmarksafkomu, en sú trygging ætti að vera fyrir utan markaðinn. Hann lýsti einnig á blaðamannafundinum söguskoðun sinni, sem er í sem fæstum orðum sú, að einstaklingsfrelsið hafi get- ið af sér þær miklu framfarir í tækni og iðnaði, sem skilaði nútí- mamanninum þeirri velsæld, sem hann nýtur miðað við fyrri kyn- slóðir. Hayek flutti síðan kl. 17 fyrir- lestur á vegum Viðskiptadeildar Háskóla íslands og nefndi hann „Principles of Monetary Policy" og verður síðar sagt frá efni hans í Mbl. og birt viðtal við Hayek.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.