Morgunblaðið - 03.04.1980, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980
37
Hinn 4. apríl, föstudaginn
langa, verður minningarathöfn í
Bíldudalskirkju um Pétur V. Jó-
hannsson skipstjóra og Hjálmar
Einarsson, sem fórust með m/b
Vísi í ofsaveðrinu, sem gekk yfir
Vestfirði 25.2. 1980. Hjálmar H.
Einarsson var fæddur 3.11. 1943 í
Vestmannaeyjum, sonur hjónanna
Guðmundu Kristjánsdóttur og
Einars Jónssonar sjómanns. For-
eldrar hans slitu samvistum, þeg-
ar Hjálmar var tæpra þriggja ára
og fluttist móðir hans þá til
Akureyrar, en Hjálmar varð eftir
í Eyjum hjá föður sínum. Faðirinn
varð vitaskuld að vinna og var
Hjálmari því komið fyrir hjá
vinum og vandamönnum á meðan.
Þegar Hjálmar var á níunda ári
fór hann til sumardvalar að
Presthúsum í Mýrdal til hjónanna
Ingveldar Tómasdóttur og Guð-
jóns Guðmundssonar, en um
haustið vildi hann ekki fara. í
Ingveldi fann hann móðurina sem
hann hafði svo sárt saknað. Hjá
þeim hjónum dvaldist hann svo
fram að fermingu og ætíð síðan
stóð heimili þeirra honum opið.
Hjálmar dvaldist síðan nokkur
ár í Vestmannaeyjum hjá föður
sínum og Lilju seinni konu hans.
Skólaganga Hjálmars varð ekki
löng, hann varð fljótt að hefja
lífsbaráttuna. Hjálmar var dulur
maður en að sama skapi blíður og
nærgætinn þeim er áttu hann.
Hann var sífellt að koma manni á
óvart með hina margvíslegu eig-
inleika er blunduðu í honum og
hann var einn af þeim mönnum
sem stöðugt óx eftir því sem
maður kynntist honum betur.
Hjálmar giftist Margréti Ein-
arsdóttur frá Kaldrananesi í Mýr-
dal 3. sept. 1966. Hjónaband þeirra
var með afbrigðum ástríkt og
ánægjulegt var að sjá hversu
samhent þau voru í öllu.
Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu
þau í Vík í Mýrdal og að
Kaldrananesi í Mýrdal. Haustið
1971 komu þau fyrst vestur til
Bíldudals, að tilstuðlan okkar
hjónanna. Þau kunnu strax svo vel
við sig, að um jólin fóru þau til
Víkur að sækja búslóðina. Fyrir
tveimur árum fluttust þau svo í
nýtt einbýlishús, sem þau komu
sér upp af mikilli elju. Heimilið
var Hjálmari allt og kannski
miklu meira virði en almennt er,
þar sem hann hafði kynnst því
sem drengur að vera á hrakningi.
Hjálmar tók miklu ástfóstri við
Bíldudal og vildi framgang hans
sem mestan. Hann var meðal
annars varamaður í hreppsnefnd,
söng í kirkjukórnum og starfaði
mikið í Lions-klúbbnum. Þess
vegna er missir slíkra manna í
blóma lífsins mikið áfall fyrir
byggðarlagið.
Þau hjónin eignuðust marga
vini á Bíldudal, en á engan er
hallað þó að við segjum að hjónin
Sigríður Ágústsdóttur og Gunnar
Þórðarson hafi reynst þeim ein-
stakir vir.ir eða öllu heldur sem
umhyggjusamir foreldrar.
Margrét og Hjálmar eignuðust
fjögur börn. Þau eru Ingveldur
Lilja, fædd 10.5.66; Sverrir Hall-
dór, f.6.9.69; Petrína Guðrún,
f.28.5.78; Klara Berglind, f.4.9.79.
Margrét á af fyrra hjónabandi
soninn Einar Steinsson f. 3.4.63.
Við biðjum þann sem öllu ræður
að styrkja eiginkonu og börnin
ungu í þeirra miklu sorg.
Endurminningar um góðan
dreng og vissan um lífið eftir
dauðann munu lina sárustu þján-
ingarnar.
TrysKorður. trúnað festum,
til ódugnaðar hvertfi brá.
ei var tál auðnu hresstum.
eður lausmælgi fundin hjá,
einlæKur út af hjarta,
ásthuKull vinum þú,
siðgæðisblómann bjarta,
bar vist, en ekki dró,
þroskaði dygðum þanninn,
þægur sitt unaa lif,
framleiddi fjors um ranninn,
fast við þá söku ég blíf.
(Or Þorlákskveri.)
Við sendum fjölskyldu Péturs V.
Jóhannssonar skipstjóra og fjöl-
skyldum sjómannanna allra, sem
fórust við ísafjarðardjúp þennan
sorgardag, okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Sigrún og Kári.
Harmfregn um lát Hjalla bróð-
ur kom mjög á óvart, því ég vissi
ekki annað en hann væri að vinna
í landi. Minningarnar hrannast
upp, góðar minningar frá okkar
samveru. Ég var stundum hjá
Hjalla bróður á sumrin, er ég var
yngri, og fannst mér alltaf
skemmtilegt að dveljast hjá hon-
um og konu hans. Ég hitti Hjalla
síðast í fyrra er ég var að vinna á
næsta firði við hann. Árafjöldinn
og fjarlægðin milli okkar hafa
sjálfsagt verið ástæðurnar fyrir
hve raunverulega lítið við kynnt-
umst, en minningin um hann mun
lifa í huga mér, allt til hinsta
dags. Ég kveð hann í hinsta sinn
með þessum versum.
Margs er að minnast.
margt er að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tið.
MarKS er að minnast.
margs er að sakna.
Guð þerri trega-tárin stríð.
Far þú i friði.
friður Guðs þig blessi.
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði.
Guð þér nú fylgi.
hans dýrðar-hnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Ég sendi magkonu minni og
börnum hennar mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Sigurvin Einarsson.
Útför t BJÖRNS STEINSSONAR
fer fram frá Innri-Njarövíkurkirkju, laugardaginn 5. apríl kl. 14.00.
Kristjén Björnsson, Nanna Westerlund, og börn.
Eiginmaöur minn
PÁLL KARLSSON,
Bjargi,
veröur jarösunginn, laugardaginn 5. apríl og hefst athöfnin kl.
13.30 í Melstaðarkirkju.
Þeim sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Guöný Friðriksdóttir.
t
Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu
VALGERÐARJÓHANNSDÓTTUR,
fró Auðkúlu,
sem andaöist 29. marz s.l., veröur gerö frá Dómkirkjunni,
þriöjudaginn 8. apríl, kl. 10.30.
Guörún Sigríöur Björnsdóttir,
Jón Reynir Magnússon,
Magnús Reynir Jónsson,
Birna Geröur Jónsdóttir,
Sigrún Dóra Jónsdóttir,
Ólöf Birna Björnsdóttir,
Jón Ólafsson,
Valgeröur Jónsdóttir,
Sigþrúöur Inga Jónsdóttir,
Ólafur Helgi Jónsson.
Eiginmaöur minn
SIGURJON SIGURÐSSON,
Bólstaöarhlíö 40,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 8. apríl kl.
13.30.
Maria Pétursdóttir.
t
Þökkum vináttu og hlýhug viö andlát og jaröarför
AÐALBJARGAR (Dúfu) INGÓLFSDÓTTUR,
Hringbraut 33, Hafnarfiröi,
Fyrir hönd aöstandenda,
Ragnar Björnsson.
t
Einlægar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og
útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, afa og bróöur
PÁLS B. EINARSSONAR,
forstjóra,
Gyöa Siguröardóttir,
Gunnlaugur Pólsson, Margrjet S. Pétsdóttir,
Inga I. Guömundsdóttir, Magnús Gústafsson.
barnabörn og systkini.
t
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
GUÐBJARGAR GUÐJÓNSDÓTTUR
Þórarinn J. Björnsson,
Guöjón Þórarinsson, Hrafnhildur Guöjónsdóttir,
Aöalbergur Þórarinsson, Ólafía Einarsdóttir,
Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Ágúst Húbertsson,
Þóra Antonsdóttir,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlát og útför konu
minnar
HERDÍSAR HERMÓÐSDÓTTUR,
Eskifiröi.
Hlööver Jónsson.
t
Jaröarför fööur okkar, tengdafööur og afa
GRÍMS GÍSLASONAR
Heiöarvegi 52,
fer fram frá Landakirkju Vestmannaeyjum, laugardaginn 5. apríl kl.
2 e.h.
Magnús Grfmsson,
Anton Grímsson,
Anna Grímsdóttir,
Gísli Grímsson,
Guöni Grímsson,
Aöalbjörg Þorkelsdóttir,
Svava Jónsdóttir,
Guöjón Magnússon,
Bjarney Erlendsdóttir,
Ester Valdimarsdóttir.
og barnabörn.
t
Faöir okkar, tengdafaöir og afi,
KARL SVEINSSON,
fré Seyöisfiröi.
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 8. apríl kl. 3
e.h.
Halldór Karlsson, Fanney Sigurjónsdóttir,
Stefanfa Karlsdóttir, Stefén Kérason,
Guórún Karlsdóttir,
Anna Karlsdóttir,
og barnabörn.
t
Útför móöur okkar, tengdamóður og ömmu,
SIGURBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR,
Hofsvallagötu 21.
er lést í Landspítalanum 30. mars, fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 10. apríl kl. 15.00. Blóm afbeöin, en þeim sem vildu
minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélagiö.
Ólafur Hlynur Steingrímsson, Jakobína Jóhannesdóttir,
Gunnar Sigurjón Steingrímsson, Ingibjörg Sigtryggsdóttir,
Ástríöur Björk Steingrímsdóttir, Haukur Halldórsson,
Guómundur Steingrímsson, Ingibjörg Rósa Þórðardóttir,
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum viö þeim sem vottuðu okkur samúö viö
andlát og útför
RAGNARS FELIXSSONAR,
Vesturgötu 109, Akranesi.
Elísabet Karlsdóttir,
Hulda Ragnarsdóttir, Magnús Kristjénsson,
Siguröur Ragnarsson,
Magni Ragnarsson,
Vignir Ragnarsson,
Magnhildur Jónsdóttir, Jóhanna Þorsteinsdóttir.
t
Systir okkar og fóstursystir,
KRISTRÚN JÓNSDÓTTIR
handavinnukennari,
lést 20. mars s.l.
Kveöjuathöfn hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hlnnar látnu.
Starfsfólki á Elll- og hjúkrunarheimilinu Grund eru færöar
sérstakar þakkir fyrir þá góöu umönnun er það veitti henni og
þeim þakkaö, er heimsóttu hana og sýndu henni vináttu í
langvarandi veikindum.
Þorbjörg Jónadóttir, Kristín Jónsdóttir,
Jón Guðmann Jónsson, Karl Jónsson,
Kristrún Skúladóttir.
t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug vlð andlát og útför
fööur okkar, tengdafööur og afa,
KRISTINS M. ÞORKELSSONAR,
Krummahólum 4,
Þóra S. Kristinsdóttir, Jón Guönason,
Margrét S. Kristinsdóttir, Ingólfur Jökulsson,
Þorkell E. Kristinsson, Svava Ólafsdóttir,
Anna S. Kristinsdóttir,
Hulda S. Kristinsdóttir, Snæbjörn Kristjénsson,
Hallgrímur S. Kristinsson, Elísabet Daníelsdóttir,
Sigurlína K. Elfasdóttir, Jón H. Eltonsson,
Daníel Kristinsson, Dýrey Sigurðardóttir,
og barnabörn.