Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 48

Morgunblaðið - 03.04.1980, Page 48
"•v Sími á ritstjórn "10100 ogskrifstofu: IU IUU Jttorjjxtnblfiínfc -j FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1980 Gott veður nyrðra um páskana... GERT er ráð fyrir að norðanáttin sé búin í bili, sagði Knútur Knudsen veðurfræðingur í gær er Mbl. grennslaðist fyrir um páska- veðrið. — Við tekur suðaustanátt með vætu á Suður- og Vesturlandi, en fyrir norðan ætti að hlýna og verða gott veður, sagði Knútur. „Molotov- kokteil“ hent að sovézka sendiráðinu EINS konar „Molotov-kokteil" var hent upp að dyrum sov- éska sendiherrabústaðarins við Túngötu síðdegis í gær. Varð af talsvert öflug spreng- ing og munu útidyrnar hafa sviðnað. Atburður þessi varð klukkan 16.50. Flösku fullri af olíu var hent upp að dyrunúm og kveikt í. Talið er að unglingar hafi verið þarna að verki. Þeir höfðu ekki náðst í gærkvöldi. Myndin var tekin þegar starfsmaður sendiráðsins var að hreinsa tröppurnar í gær- kvöldi. Það var I nógu að snúast hjá fólki i gær. Margir lögðu land undir fót og aðrir þurftu ýmsum hnöppum að hneppa til undirbúnings páskahelginni. Flugleiðir fluttu í gær á þriðja þúsund manns frá Reykjavík og margar ferðir voru farnar í viðbót við venjulega áætlun. Annar dagur páska verður þó væntanlega enn meiri annadagur hjá flugfélögunum. (Ljósm. Mbi. RAX.) Þorskaflinn um 40 þús. tonnum meiri en í fyrra ENDANLEGAR tölur um þorskafla fyrstu þrjá mán- uði ársins liggja ekki fyrir, en ætla má að hann hafi verið um síðustu mán- aðamót nálægt 160 þúsund lestum. Á sama tíma í fyrra var þorskaflinn hins vegar liðlega 120 þúsund lestir. Þessi mikli afli mun væntanlega hafa áhrif á það hversu löng báta- vertíðin verður og sömu- leiðis fjölga „skrapdög- um“ togaranna í maí og júní. Samkvæmt upplýsing- um Mbl. er þorskafli bát- anna frá áramótum rúm- Söluskattshækkun og olíugjaldi frest- að fram yfir páska HVORKI söluskattshækkun né olíugjald fiskiskipa var afgreitt frá Alþingi fyrir páskahlé í gær, rikisstjornin lagði mikla áherzlu á það að málin yrðu afgreidd og hafði uppi þann möguleika að næturfundur yrði í nótt og fundur á laugardag, ef með þyrfti, en stjórnarandstaðan taldi slík vinnubrögð óverjandi. Um kvöldmatarleytið í gær- kvöldi var svo sætzt á að fresta umræðum um málið fram yfir páska og hét stjórnarandstaðan því að standa ekki í vegi fyrir því að málin yrðu afgreidd fyrir lok næstu viku. Handtekn- ir í Ósló með hass NÝLEGA voru tveir íslend- ingar handteknir í Ósló. Fundust í fórum þeirra 800 grömm af hassi, sem þeir munu hafa ætlað að selja. Eru mennirnir enn í haldi lögreglunnar. Annar mannanna heitir Franklin Steiner. Hann var handtekinn í Kaupmanna- höfn í marz í fyrra vegna kókaínmálsins. Hlaut hann þriggja ára fangelsi í undir- rétti en IV2 árs fangelsi í yfirrétti en var sleppt í lok janúar sl. Franklin hefur einnig verið tekinn fyrir fíkniefnasölu á íslandi og í Svíþjóð. lega 85 þúsund lestir en togaraflotans um 73 þús- und lestir. Endanlegar töl- ur um afla í marzmánuði lágu ekki fyrir í gær- kvöldi. Miðað hafði verið við í reglu- gerð um takmarkanir á veiðum til verndunar þorskstofninum að bátaflotinn færi ekki upp fyrir 75 þúsund tonn til loka marz. Ef afli færi fram úr því yrði vertíðin stytt sem svaraði einum degi fyrir hver 1500 tonn og þá miðað við að vertíð lyki 11. maí. Þær tölur, sem nú liggja fyrir, þýða að vertíð bátaflotans lýkur 4. maí ef annað verður ekki ákveðið. Ekki var reiknað með að til neinna aðgerða yrði gripið fyrr en í apríllok. Gagnvart togurunum voru ákvæðin þau, að ef þeir væru komnir með yfir 65 þúsund tonn í apríllok þá þyrftu þeir að taka á sig einn dag á aðrar veiðar en þorskveiðar í mai og júní fyrir hver 700 tonn fram yfir 65 þúsund tonn. Frystihúsin á ísafirði: Segja upp starfs- liði — 400 manns FRYSTIHÚSIN Norðurtangi og íshúsfélag ísfirðinga hafa sagt upp öllu starfsfólki sínu í fisk- vinnslu frá og með 12. þessa mánaðar, alls um 400 manns. Að sögn Jóns Páls Halldórsson- ar hjá Norðurtanga, er gripið til Flugvélabensín á þrotum FLUGVÉLABENSÍN er nú á þrotum í Reykjavík og svip- að ástand mun vera á flest- um stöðum úti á landi. Því er útlit fyrir að aðeins örfáar af smærri flugvélunum, sem nota þetta endsneyti, verði á flugi yfir páskana. A flugvellinum í Reykjavík fékk Morgunblaðið þær upp- lýsingar í gær, að reynt yrði að geyma „einhverja dropa af síðustu lögginni" fyrir sjúkraflug og brýnustu nauð- synjar en þessi lögg endist ekki marga daga. Samkvæmt upplýsingum Mbl. verður flugvélabensín ekki lestað fyrr en 10. og 11. apríl ytra og verður því varla komið í sölu hérlendis fyrr en 20. apríl. þessa vegna verkfalls sjómanna á Isafirði. Til loka næstu viku er reiknað með að nægur fiskur verði til vinnslu. Sagði Jón Páll, að eftir síðasta viðræðufund deiluaðila, væru menn mjög svartsýnir. Sáttafundur; sem haldinn var í fyrradag á Isafirði milli Sjó- mannafélags ísfirðinga og Útvegs- mannafélags Vestfjarða varð árangurslaus með öllu. Fundurinn hófst klukkan 13 og stóð fram á miðjan morgun eða til klukkan 04 í fyrrinótt. Samkvæmt upplýsingum Péturs Sigurðssonar, forseta Alþýðu- sambands Vestfjarða miðaði ekk- ert á fundinum og hefur nýr sáttafundur ekki verið boðaður. Sáttasemjari er Guðmundur Vign- ir Jósepsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.