Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980 Sýning Gríms Marínós Stein- gxímssonar í FÍM-salnum við Laugarnes- veg stendur þessa stundina sýn- ing á málverkum og skúlptúr eftir Grím Marinó Steingríms- son. Hann hefur um langt árabil verið að eiga við myndlist ásamt ýmsu öðru eins og til dæmis brauðstriti af ólíku tkgi: Leigubíistjóri hefur hann verið og vitavörður, en hann mun einnig vera útlærður járnsmiður og jafnvel hafa sérgrein í því fagi. Það eru mörg ár síðan leiðir okkar lágu saman vestur í Ameríku, er við vorum þar í sömu erindagerðum. Þá var hann í fylgd með vini sínum Pétri Friðrik, og við þrír slógum í púkk og skoðuðum nokkur söfn þar í landi í sameiningu. Það voru ánægjuleg kynni og þá þegar fór það ekki framhjá mér, að Grímur hafi meir en lítinn áhuga á myndlist og það ekki af verra taginu. Þessi sýning Gríms, er nú stendur í FÍM-salnum er fyrsta sýning, er ég sé eftir hann. Þarna sýnir Grímur 33 vatns- lita- og olíumálverk ásamt 10 skúlptúrverkum, aðallega unn- um í járn. í heild er þetta nokkuð misjöfn sýning, en sumar af olíumyndum hans munu það besta, er hann dregur fram að sinni. Skúlptúrinn er mjög þokkalegur, en hann hefur ekki sérlega mikla spennu. Formið er vel unnið og samsvar- ar sér ágætlega, en fyrir minn smekk er það ef til vill of fellt og fágað, til að verulegur áhugi skapist. Hitt er svo annað mál, að Grímur þarf ekki að bregða litum fyrir þessi verk, þau eru vel unnin og frambærileg. Eins og áður segir,eru sum af olíumálverkunum á þessari sýn- ingu það besta, er þarna er að finna. Þegar Grímur notfærir sér liti á þann hátt, að viss heild og draumkennd tilfinning skap- ar andrúmsloft, er maður þekkir frá fjölium og ströndum þessa lands, er hann í essinu sínu. Réttast væri að segja um þessi verk, að þau væru einlæg og skrumlaus. Það er mikið hól, en því miður á þetta ekki við nema um nokkurn hluta þeirra verka, er nú hanga í FIM-salnum. Ekki ætla ég að fara út í þá sálma að sinni að tíunda þessi verk hvert fyrir sig. Ég ber virðingu fyrir þeim mikla áhuga og þeirri vinnu, er Grímur legg- ur í myndgerð sína. Hann virðist hvergi trana sér fram, en fer hægt með löndum. Hann hefur ýmislegt gott fram að færa, en samt sem áður verður ekki lokað augum fyri því, að það virðist vanta herslumuninn í mörgum þeim verkúm, er hann hefur valið til þessarar sýningar. Það er mér engin ráðgáta, hvort hér sé gott listamannsefni á ferð.Það liggur í augum uppi. Það sem einnig liggur ljóst fyrir er, að Grímur ætti það skilið að hafa meiri tíma til að helga sig myndgerð sinni. Ég þakka skemmtilegt innlit og vonast til að Grímur Marínó eigi eftir að sýna fleiri verk sín. Valtýr Pétursson. Erlendar bækur Doktor Fischer of Geneva or The Bomb Party — nýj- asta bók Grahams Greene HAFI nú lesandi kannski fyrir ekki ýkja löngu lesið bók Grahams Greene „The Hum- an Factor“ að ótöldum mörg- um fyrri bókum hans, er áreiðanlegt að nýjasta verk hans „Doctor Fischer of Gen- eva or The Bomb Party“ hellist yfir mann rétt eins og köld gusa — og langt frá hressandi. Þessi bók er gerólík öllu sem ég hef lesið eftir Greene, það liggur við borð maður haldi um hríö að hér hafi orðið einhver hausa- víxl á hlutunum. Það örlar naumast á þeim sterku ein- kennum, sem hafa gengið eins og rauður þráður í gegn- um allar bækur hans frá The Brigthon Rock til The Human Factor. Jones nokkur segir söguna: hann hatar mann meira en orö fá lýst. Sá er Doctor Fischer og síöan er reynt óbermilega að útskýra fyrir lesanda aö það sé full ástæöa til. Doktor- inn er faðir Önnu Luise, sem Jones kynnist í bókinni, verö- ur ástfanginn af og þau gift- ast. Anna Louisa vill foröast öll samskiþti við fööur sinn. Hann er svo ólýsanleg skepna. Hann er einhver ógeöslegasti karakter sem uppi hefur veriö frá því sögur hófust. Aðallega vegna þess, skilst manni, aö hann er óheyrilega ríkur og í krafti auðs síns sveigir hann fólk undir vilja sinn og lætur þaö beygja sig í duftið. Hann hefur um sig hirö hálfgerðra sálar- aumingja. Þaö eru körturnar. Körturnar eru stöðugt í boö- um hjá doktornum og hann gefur þeim gjafir í hvert sinn, sem þær fá þó ekki í hendurn- ar fyrr en doktorinn hefur skemmt sér viö aö láta þær lúta svo lágt aö í fasi þeirra er enginn sómi til, heldur græög- in og undirgefnin ein. Jones fær þennan fööur á sálina, þrátt fyrir viövaranir Önnu Ouise, sem rifjar upp fyrir honum framkomu dokt- orsins gagnvart móöur henn- ar; hún var auðvitaö í stíl við anna. Jones trúir þessu ekki alveg. Hann fer í boö til Kápumynd af nýjustu bók Grahams Greane Graham Greene DOCTOR FISCHEROF GENEVA OR THEBOMB PARTY doktorsinx með körtunum og verður reynslunni ríkari. Samt er eitthvað sem dregur hann til hans og þegar Anna Louise deyr af slysförum hefur Jones samband viö tengdafööurinn. Bókin endar á sprengjupartí- inu, þar sem körturnar og Jones eiga aö glíma viö viöur- styggilega og lífshættulega þraut, en geta fengiö slatta af milljónum í sinn hlut fyrir vikiö. Lýsingin á sprengjupartíinu er í samræmi viö annan hrylling. Og það eina sem er jákvætt er aö þessi vondi doktor fyrir- kemur sér í lokin. í örstuttum kafla í bókarlok lýsir Jones því lífi sem hann hefur lifað síðan. Þar er eins og eitthvað af viðbjóönum hafi hreinsast út úr sál höf- undarins og stíll hans fer aö minna ögn á Graham Green. Mér er hulin ráögáta hvernig þaö ber til aö höfundur eins og Greene skuli skrifa jafn ómerkilega, myrka, beizka bók sem er uppfull af órök- studdu mannhatri. Hann virö- ist skrifa hana í þeim tilgangi einum aö ná sér niöri á einhverju ferlegu kvikindi. Sú árás missir marks vegna þess aö enginn getur skýringar- laust veriö jafn alvondur og Doktor Fischer er. Þaö er ekki sýnd minnsta viðleitni til aö skilja þennan mann né út- skýra hvaö hleypti af staö allri þessari vonzku. Aö manneskj- an sé bara vond og ekkert meira meö þaö, er ósköp billeg kenning og ekki sæm- andi höfundi eins og Graham Greene. Jóhanna Kristjónsdóttir. „Philip Jenkins lék þriðju píanósónötu Szymanowskis op. 36 inn á hljómplötu í Wigmore Hall í ágúst sl. Þetta tónverk er eitt hið erfiðasta viðfangs af öllum píanóverkum og hefur aldrei verið leikið inn á hljómplötu á Vesturlöndum áður. Flutningur Jenkins er í einu orði frábær. Og á eftir þessum mikilvæga flutningi kemur hófsamleg túlkun Jenkins á Valses nobles et sentimentales eftir Ravel, þar sem hann leggur áherslu á klassíska eðlisþætti verks- ins. Síðasta verkið á plötunni Philip Jenkins f ær lof samlega dóma í Bretlandi í JANÚARHEFTI hljómp- lötutímaritsins Records and Recordings birtist gagnrýni um nýútgefna hljómplötu Philip Jenkins, Gaudeamus KRS 37. Gagnrýnandinn, Richard Stoker — þekkt tónskáld og ristjori tímarits um nútimatónlist — fer lofsamlcgum orðum um píanóleik Jenkins og velur plötuna sem hljómplötu jan- úarmánaðar í Bretlandi. Telur Stoker að með leik sínum hafi Philip Jenkins skipað sér á bekk með allra- fremstu píanóleikurum Breta, eins og fram kemur í þýðingu á gagnrýninni. Seg- ir þar m.a.: er þriðja sónata Prokofievs, sem mér finnst fegurst verka hans. Hreinasta unun er að hlusta á þennan meistara- lega flutning Jenkins. Þessi plata skipar honum á bekk með okkar allrafremstu píanóleikurum, svo sem John Ogden, Wilde og Milne.“ Philip Jenkins var um ára- bil píanókennari við Tónlist- arskólann á Akureyri, en starfar nú sem prófessor í píanóleik við Royal Academy of Music í London. í vetrar- leyfi frá störfum þar hefur hann kennt píanóleik við Tónlistarskólann á Akureyri. ASÍ - VSÍ: Næsti fundur annan föstudag „ÞAÐ gerðist afskaplega lítið og ekkert sem ég get metið til samkomu- lagsáttar," sagði Guðlaugur Þor- valdsson sáttasemjari ríkisins, er Mbl. ræddi við hann eftir fund hans með samninganefndum ASÍ og VSÍ á miðvikudaginn. Guðlaugur sagði, að rætt hefði verið fyrst við aðila sinn í hvoru lagi og svo fulltrúa beggja sameiginlega. „Það verður aftur fund- ur á föstudaginn í næstu viku og þá mætir stóra samninganefnd Alþýðu- sambandsins, sem telur 43 menn, en á fundinum í dag voru þeir 13,“ sagði sáttasemjari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.