Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980 Arnór lítið verió með YNGSTI atvinnumaður íslands í knattspyrnu erlendis er Arnór Guðjohnsen sem er aðeins 18 ára gamall. Arnór Ieikur með bel(?- íska liðinu Lokeren eins og öllum er kunnust. Lið Arnórs er nú í fjórða sæti í 1. deildar keppninni. hefur hiotið 37 stig en efsta liðið er FC Brugge með 43 stig. Mbl. sló á þráðinn til Arnórs í gærdag og innti hann frétta af honum. — Nú ég hef lítið sem ekkert verið með í síðustu tveimur leikj- um, rétt fengið að koma inn á í lok leikjanna og er mjög óánægður með það hlutskipti mitt. Eg er í mjög góðri æfingu og hef átt al! góða spretti í þeim leikjum sem ég hef fengið að taka þátt í, sagði Arnór. — Ég satt að segja skil ekki alveg hvers vegna ég fæ ekki að spreyta mig í leikjunum. Það hefur verið mikið um meiðsli hjá fastamönnum í liðinu og satt best að segja þá er ég síst lakari en þeir. Keppnistímabilinu hér lýkur 11. maí og þá fer Lokeren í keppnis- ferð, en ég reikna með því að koma heim til íslands. Ég verð þar í a.m.k. fimm vikna fríi í sumar. Vonandi fær maður tækifæri á að spreyta sig með landsliði í sumar: Nú svo eru framundan leikir með landsliðinu 21 árs og yngri. Að- spurður um hvaða lið myndi sigra í Belgíu í ár sagði Arnór að líklega yrði það Brugge, en sér fyndist Standard vera með besta liðið. - þr. Arnór sækir að markverði i einum deildarleik i vetur. Shoot segir Dortmund greiða 70 milljónir — og Bretar vita ekki heldur hvað Atli heitir ENSKIR íþróttafjölmiðlar eiga það sameiginlegt með þýskum og dönskum, að vita ekki hvað Atli Eðvaldsson heitir réttu nafni. Alls staðar þar sem eitthvað hefur verið fjallað um áhuga Borussia Dortmund á Valsmann- inum sterka, hefur hann verið kallaður Attila. Hlýtur þetta að vera hvimleitt og enginn vafi að Atli leiðir Þjóðverja í allan sann- leik um nafn sitt fyrr eða síðar. Úrklippan sem hér fylgir, er úr enska vikuritinu Shoot, en þar er greint frá því að Dortmund sé "oi'owirl, Mghyern Munich who have sifr-r- íiWh Séandinavians for vervW*l' "ortWdare after 22-year-<*tf < ^ id intemational Amiá ave aúréedatránsTerfeeobj að eltast við Atla. Segir blaðið að Dortmund hafi fallist á að greiða fyrir hann 70.000 sterlingspund, en það eru um 70 milljónir íslenskra króna. Aðrar tölur haía verið nefndar í öðrum blöð- um, lægri tölur. • íslenska landsliðið i badminton sem keppir á Evrópumótinu. Liðið skipar: fremstu röð f.v. Kristin Magnúsdóttir, Sif Friðleifsdóttir og Kristín Berglind. Aftari röð f.v. Walter Lentz, Sigfús Ægir Árnason fyrirliði, Jóhann Kjartansson, Sigurður Kolbeinsson, Broddi Kristjánsson og Garðar Alfonsson þjálfari. Landslió íslands í badminton heldur utan á Evrópumót FÖSTUDAGINN 11. apríl heldur landslið íslands í badminton til Hollands, til þátttöku í Evrópu- meistaramóti í badminton. Mótið fer fram í Groningen dagana 13.—20. apríl. 24. þjóðir taka þátt í Evrópu- meistaramótinu og eru fyrst leiknir landsleikir, 13. —16. apríl. Er keppt í 5 riðlum og eru íslendingar í 5. riðli ásamt ítöl- um, Portúgölum, Svisslendingum og Pólverjum. Hver landsleikur er 5 leikir; einliðal: karla og kvenna, tvíliðal: karla og kvenna og tvenndarleikur. Það land sem er efst í 5. riðli leikur svo aukaleik við það land sem er neðst í 4. riðli, um sæti landanna á næsta Evrópumeistaramóti. ísland Ieikur því 4 landsleiki og ætti að hafa möguleika á að vinna t.d. Ítalíu, Portúgal og jafnvel Sviss, en þessi lönd hafa verið svipuð að styrkleika og við. Landsliðið skipa: Kristín Magn- úsdóttir TBR, Kristín Berglind Kristjánsd. TBR, Sif Friðleifsdótt- ir KR, Broddi Kristjánsson TBR, Jóhann Kjartansson TBR, Sigfús Ægir Árnason TBR fyrirliði, Sig- urður Kolbeinsson TBR. Liðsstjóri og þjálfari er Garðar Alfonsson. Fararstjóri er Walter Lentz. Fimmtudaginn 17. apríl hefst svo einstaklingskeppni í öllum greinum. Þar eru mættir til leiks allir sterkustu badmintonspilarar Evrópu. Það verður erfitt hjá Islendingum og ekki hægt að búast við að þeir nái langt, en ef þeir eru heppnir með uppröðun mótsins gætu þeir unnið nokkra leiki. Úrslitin verða svo leikin sunnudaginn 20/4. Mótið fer fram í Martinihal. Sum lið keyptu köttinn í sekknum ENGLENDINGAR opnuðu deildarkeppni sína i knattspyrnu fyrir erlendum leikmönnum á síðasta ári og mörg félög voru fljót að tryggja sér útlending eða útlendinga. Tottenham reið á vaðið og vakti gríðarlega athygli er liðið festi kaup á argentínsku heimsmeisturunum Osvaldo Ardiles og Richardo Villa. Tottenham gerði góð kaup og það er fyrst og fremst vegna þess að aðrir leikmenn félagsins standa sig ekki. að Tottenham hefur þrátt fyrir meistara sína ekki komist beinlinis í fremstu röð. Með Argentínumennina í liði sínu, er liðið þó þrátt fyrir allt eitt skemmtilegasta liðið á að horfa í 1, deildinni ensku. Enn betur gekk hjá Ipswich, sem keypti Hollendingana Arnold Miihren og Franz Thijsen frá Tvente. Það eru fyrst og fremst Hollendingarnir tveir sem hafa gert Ipswich að því stórliði sem það hefur verið í vetur. Liðið byrjaði tímabilið illa og var í neðsta sætinu í lok október. En nú hefur liðið leikið 20 leiki í röð án taps, er komið í þriðja sætið og gæti hæglega hreppt annað sætið ef Manchester Utd varar sig ekki. önnur lið hafa ekki verið eins heppin, t.d. Bristol City, sem keypti í upphafi keppnistímabilsins þá Geert Mejer frá Ajax og Perti Jantunen frá finnsku félagi. En Mejer er farinn heim og Jantunen var lítill bógur og lítið verið með. Hér fer á eftir listi yfir þá erlendu leikmenn sem ensku félögin hafa keypt til sín. Koma hér fyrir ýmis nöfn sem lítið hefur borið á, enda ekki allir slegið í gegn. Enn þá a.m.k. pund Ricardo Villa Racing Buenos Aires — Tottenham375.000 Osvaldo Ardiles Huracan — Tottenham 325.000 Claudio Marangoni San Lorenzo — Sunderland 325.000 Nikolai Jovanovich Rauðu Stjörnunni — Man. Utd. 300.000 Franz Thijssen Tvente — Ipswich 200.000 Radjovka AmramovicFC Rijeka — Notts County 200.000 Avi Cohen Maccabi — Liverpool 200.000 Alex Sabella River Plate — Sheffield Utd 160.000 Arnold Miihren Tvente — Ipswich 140.000 Dragosl. Stepanovich Wormatia — Manch. City 125.000 Kazimierze Deyna Legia Varsjá — Manch. City 100.000 Lenny De Goye Sparta Rotterd. — Sheffield Utd. 100.000 Bosko Jancovich Zeljenzicar — Middlesbr. 100.000 Geert Mejer Ajax — Bristol City 95.000 Petar Borota Partizan Belgrað — Chelsea 70.000 Loek Ursem AZ’67 Alkmaar — Stoke 60.000 Ivan Golac Partizan Belgrað — Southampton 50.000 Pedro Verde Hercul. Alicante — Sheffield Utd. 50.000 Viggo Jakobsen Kastrup — Charlton 40.000 John Östergaard Ikast — Charlton 40.000 Tadeusz Nowak Legia Varsjá — Bolton 30.000 Pertti Jantunen Eskilstuna — Bristol City 30.000 Auk þessa má geta þess, að Southampton festi nýlega kaup á Ivan Katalinic, sem er júgóslavneskur landsliðsmaður. Katalinic lék fyrsta leik sinn fyrir Southampton um páskahelgina og stóð sig með afbrigðum vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.