Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980 29 ungt fólk um tvítugt og eldri borgara í þessum flutninga- tengslum, sem sýnir það að Reykjavík hefur byggt blokkir og öldrunarþjónustu fyrir grannsveitarfélögin á undan- förnum árum. Hér erum við komin að atriði sem stjórnvöld Reykjavíkur geta haft áhrif á, t.d. með nægu framboði af byggingarlóðum fyrir þær húsagerðir sem mest eftirspurn er eftir og ekki síður með þrýstingi á stjórnvöld til breytingar á húsnæðislánakerf- inu, þannig að betri nýting náist á eldra húsnæði í borg- inni. í mannfjöldaspánum fyrir Reykjavík er miðað við það að stjórnvöld finni leiðir til að stemma stigu við brottflutningi úr borginni, þannig að dragi úr flutningatapinu í áföngum. Aldurspíramídinn fyrir Reykjavík 1978, mynd 3, (lífstré Reykjavíkur) sýnir í raun framangreinda þætti í hnot- skurn. Lækkandi fæðingartíðni undanfarinna ára má lesa úr minnkandi árgöngum barna og unglinga. Brottflutningur fjöl- skyldna á besta aldri, frá Reykjavík til grannsveitarfé- laga, hefur markað mitti á aldurspíramídann. Hlutfalls- legur fjöldið miðaldra og eldri borgara er þegar orðinn mikill í Reykjavík. Hlutfall ógiftra og áður giftra er orðið mjög hátt í Reykjavík, eða um 40% allra 20 ára og eldri. íbúðaþörf á höfuðborgar- svæðinu næstu 10 árin er um 660 íbúðir árlega samkvæmt nýrri spá frá Framkvæmda- stofnun ríkisins. Eðlilegt hlut- fall Reykjavíkur af þeirri tölu er því líklega um 400 íbúðir næstu árin. Auk þess þarf Reykjavíkurborg að gera nokk- uð átak í byggingu íbúða á félagslegum grundvelli að mínu mati, því of margir borgarbúar búa í lélegu leiguhúsnæði. Það er greinilegt á aldurs- skiptingunni í borginni að stöð- ugt minni árgangar ungs fólks muni koma inn á húsnæðis- markaðinn á næstu árum, og er því fyrir hendi viss hætta á offramboði af húsnæði er til lengri tíma er litið, ef ekki dregur smám samaii úr ný- byggingum. í borgum erlendis t.d. Stokkhólmi hefur það gerst að nýleg blokkarhverfi í út- hverfum standa hálftóm. Á móti þessu kemur það, að hlut- fall einhleypinga er að aukast og sækir það fólk í auknum mæli í eigið húsnæði. Ég tel mjög hæpið að setja samasem merki milli fjölda lóðaumsókna og nýbyggingar- þarfar í borginni, því ekki hafa allir umsækjendur fjárhagslegt bolmagn til húsbygginga og margir eru að safna sér punkt- um eftir nýja punktakerfinu o.s.frv. Ein athyglisverðasta niðurstaðan úr nýafstaðinni lóðaúthlutun er sú, að margfalt fleiri sóttu um lóðir á þeim nýbyggingasvæðum er liggja meir miðsvæðis í borginni þ.e. Rauðagerði og Eiðsgranda, en í Hóla- og Seljahverfi, og má að vissu leyti líta á þetta sem stuðningsyfirlýsingu borgarbúa við hugmyndir um þéttingu byggðar, og eins gagnvart því, að gæta meira aðhalds í út- þenslu borgarinnar. Það sem hér er verið að benda á er það, að framundan virðast vera stöðnunartímar miðað við það mikla þenslu- skeið í félagslegu- og efna- hagslegu tilliti er staðið hefur í nær þrjátíu ár hér á landi. Um leið og hægir á útþenslunni gefst nú kærkomið tækifæri til þess að söðla um í bygginga- málum og færa áherzluna frá magni til gæða. Reykjavík, 27. marz 1980. Reykingar eða heilbrigði ÞITT ER VALIÐ Blaðinu heíur borizt eftirfar- andi frá heilbrigðisyfirvöldum í tilefni af alþjóðlega heilbrigðis- deginum 7. april. Alþjóðlegi heilbrigðisdagur- inn er haldinn sjöunda dag aprílmánaðar ár hvert til að leggja áherslu á markmið í stofnskrá Alþjóða heilbrigðis- stofnunarinnar, sem tók gildi fyrir 32 árum. Valin eru kjörorð dagsins hverju sinni og nú eru þau: Reykingar eða heilbrigði — þitt er valið. Sýnir þetta ljóslega hve mikla áherslu stofnunin leggur á al- þjóðlega vakningu til aukinnar baráttu gegn því mikla böli sem hlýst af reykingum. Af tilefni alþjóðlega heilbrigð- isdagsins sendi stofnunin frá sér flokk greina, sem fjalla allar um reykingavandamálið. Það sem fer hér á eftir er að mestu unnið upp úr nokkrum þeirra. Drepsótt úr vestri Áður fyrr byrjuðu svartidauði og kólerufaraldrar í Austurlönd- um fjær og bárust smám saman til hins vestræna heims. Þessir faraldrar stráfelldu milljónir manna á leið sinni. Fáfræði um orsök þeirra kom í veg fyrir að gripið væri til áhrifaríkra að- gerða. Nú ógnar nýr faraldur heimin- um. Hann á upptök sín hjá vestrænum ríkjum og getur ver- ið jafnskæður og áðurnefndar drepsóttir. Afleiðingar hans eru ekki eins augljósar og hann breiðist dult út. Samt er orsök þessarar farsóttar þekkt og út- breiðsla hennar er dyggilega studd af þeim sem hafa fjárfest í sígarettuframleiðslunni. Það hæfir vel að árið 1980 verði tímamótaár sem heimur- inn helgar reykingavandamál- inu. Þótt „smitunin“ hafi breiðst út og nái nú til allra hluta heims er ennþá unnt að stöðva hana og minnka fjölda þeirra barna, sem taka upp ósiðinn og eiga á hættu að deyja eða verða örkumla af hans völdum. I Bretlandi er sígarettureykur lang alvarlegasta umhverfis- mengunin og reykingar ein meg- inorsök hárrar dánartíðni úr lungnakrabbameini, kransæða- sjúkdómum og langvinnri berkjubólgu. Einn af hverjum þremur sem taka upp á þessum ósið deyr fyrir aldur fram vegna reykinga. Aukning sígarettureykinga í hinum vestræna heimi varð þrjátíu árum áður en menn áttuðu sig á því að þær eru skaðlegar heilsunni. I þróun- arríkjunum er aukningin rétt að hefjast. Ef stjórnum þessara ríkja tekst ekki að hafa hemil á vágestinum, munu þær þurfa að gera áætlun um hvernig bregð- ast skuli við þeim faraldri sjúk- dóma sem örugglega koma í kjölfarið. Fáir bera skynbragð á tölur um tíðni sjúkdóma af völdum reykinga í ýmsum löndum eða heiminum öllum. Hins vegar skiljum við vel þegar talað er um einstaklinga sem í hlut eiga. Þau einstök dæmi, sem fara hér á eftir, eru af sjúklingum á sjúkrahúsi í London en þau gætu hafa gerst hvar sem er. í Bretlandi verður lungna- krabbi 36.000 manns að aldurtila árlega. Um helmingur þessa fólks er á vinnualdri. í 90% tilfella er orsökin sígarettureyk- ingar. 34 ára gamall vörubílsjóri hafði reykt 40 sígarettur á dag í mörg ár. Þegar hann hóstaði upp blóði kom í ljós að hann hafði óskurðtækt lungnakrabbamein og dó hann þremur mánuðum seinna. Ekkja hans varð það þunglynd að hún varð að fara á geðsjúkrahús. Börnin fimm, sem voru á aldrinum frá 5 til 12 ára, varð að skilja að og koma þeim fyrir hjá fósturforeldrum. Þýðir þá nokkuð að hætta að reykja? Vissulega. Fyrrverandi reykingamenn, sem hafa ekki reykt í 10 ár, hafa þá litlu meiri líkur á að fá lungnakrabbamein en þeir sem aldrei hafa reykt. Um 150.000 manns deyja ár- lega í Bretlandi vegna krans- æðastíflu. Margt þessa fólks er á starfsaldri og álitið er að í fjórðungi tilfellanna megi rekja orsökina til reykinga. Undir fimmtugu hafa stórreykinga- menn um 10 sinnum meiri líkur á að deyja úr hjartaáfalli en þeir sem reykja ekki. Þeir sem hætta að reykja eftir hjartaáfall minnka um helming líkur sínar á að fá annað kast. 47 ára gift kona fékk sáran brjóstverk, er hún var á ferða- lagi í mars 1978. Tveim mánuð- um seinna, þegar hún var komin heim aftur, fékk hún bráða kransæðastíflu en virtist ætla að ná sér vel aftur. Hún reykti 15 sígarettur á dag, var ráðlagt að hætta en gerði það ekki. Fáein- um vikum seinna dó hún skyndi- lega á heimili sínu. Langvinn berkjubólga og lungnaþan eru næstum alltaf af völdum sígarettureykinga en oft hefur stórborgarmengun gert illt verra. Eina lækningin er að hætta að reykja meðan sjúkdóm- urinn er á byrjunarstigi. 63 ára gamall efnafræðingur var öryrki vegna langvinnrar berkjubólgu á háu stigi. Smám saman jókst hjá honum mæði við minnstu áreynslu svo sem að- borða eða ganga nokkur skref. Lífi var haldið í honum með að gefa honum súrefni 18 tíma á sólarhring. Eftir 3 ár fekk hann lungnabólgu og dó. Hann hafði reykt sígarettur frá unglings- aldri. Börn og reykingar Hin skaðlegu áhrif reykinga má sjá fyrir fæðingu. Reykingar vanfærrar konu geta örvað sam- drátt legsins og leitt til þess að fæðing fari of snemma af stað. Fyrirburinn er venjulega léttari en fullburða barn og hefur minna viðnám gegn sýkingum. Áhrif óbeinna reykinga á börnin eru ekki þekkt sem skyldi. Börn foreldra seVn reykja fá á fyrsta aldursári tvisvar sinnum oftar berkju- og lungna- bólgu en börn þeirra sem reykja ekki. Barn, sem verður fyrir þessum sjúkdómum á fyrsta aldursári, hefur auknar líkur á að fá sjúkdóm í öndunarfærum seinna. Hugsanlega leggst hér á eitt, reykurinn og hósti og upp- gangur reykingafólksins. Fátt er ósmekklegra en að sjá skyni borið fólk svæla yfir hvítvoðungi. Nú er reynt að upgötva leyndar misþyrmingar á börnum. I Svíþjóð hafa nýlega verið samþykkt lög, sem banna að lagðar séu hendur á börn. Er hægt að hugsa sér að einhvern tímann komi lög sem kveði á um að saknæmt sé að reykja yfir börnum? Mikilvægt er að börn fari ekki að fikta við að reykja — það breytist oft fyrr en varir í daglegar reykingar. Athuganir sýna að búast má við að 80% barna, sem reykja að staðaldri, haldi vana sínum þegar þau vaxa úr grasi. Því yngri sem menn fara að reykja að staðaldri þeim mun yngri er líklegt að þeir deyi. Börn sem reykja eru veilli í lungum, standa sig verr í íþrótt- um og lenda fremur á villigötum en þau sem reykja ekki. Fræðsla um skaðsemi reyk- inga er mikilvæg og þarf að byrja þegar í barnaskóla en áhrif foreldra, eldri systkina og félaga ráða oft úrslitum um það hvort barnið fer að reykja. Fordæmi kennara sem reykir ekki er áhrifamikið. Þrátt fyrir að yfirvöld verji víða miklu fé í herferðir gegn reykingum þá er slíkt aðeins örlítið brot af því fjármagni sem tóbaksfyrirtækin verja til aug- lýsinga. Tóbaksauglýsendur höfða oft til unglinganna með myndum af fallegu, hraustlegu fólki við iðkun íþrótta eða í eftirsóknarverðu umhverfi. Með sérstöku tilliti til þess hve reyk- ingar ungra stúlkna hafa mikið aukist er brýnt að kollvarpa ímynd hins kynþokkafulla, að- laðandi reykingamanns sem auglýsingunum er ætlað að skapa og draga fram í dagsljósið reykingamanninn andfúla og kossana sem eru eins og ösku- bakki á bragðið. Hiö eina eölileg*a Heilbrigðismálaráðherra Bretlands lét eftirfarandi orð falla nýlega: „Vandamál læknis- fræðinnar verða oft ekki leyst á rannsóknarstofum sjúkrahúsa okkar heldur í þinginu. Lítum á sjúkdómana sem helst granda okkur í dag. Náttúran veldur þeim ekki, heldur lífshegðan okkar. Gegn þessum sjúkdómum hefur læknisfræðin þegar best lætur dýrar og árangurslitlar lækningar eða þegar verst tekst til alls enga lækningu. Besti mótleikurinn gegn þessum sjúk- dómUm er ekki að lækna heldur koma í veg fyrir þá.“ Takmarkið er að breyta fé- lagslegu andrúmslofti þannig að litið verði á reykingar sem ósið en það að reykja ekki sem hið eina eðlilega. Lokaorð þessarar greinar eru tekin úr ávarpi dr. Mahler, fram- kvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar: „í heilsugæslu er lögð áhersla á að hver einstaklingur taki aukna ábyrgð á heilsu sinni og fjölskyldu sinnar með því að móta sjálfur umhverfi sitt og lífsvenjur á heilbrigðan hátt. Herferð gegn reykingum, og sér í lagi gagn útbreiðslu þeirra með- al barna og unglinga, yrði gott dæmi um það hvernig fólk getur bætt heilsu sína sjálft með stuðningi og leiðsögn yfirvalda. Á alþjóðlega heilbrigðisdeginum gefst þjóðum heims tækifæri ti þess að miðla hver annarri af reynslu sinni og hefja víðtæka baráttu gegn reykingum." Alþjóðlegi heilbrigðisdagurinn 1980 í£_ Alþjóða hcilbrigóisstofnunin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.