Morgunblaðið - 11.04.1980, Side 16

Morgunblaðið - 11.04.1980, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980 Frá sýninKunni í Norræna húsinu, en þar er Iökö áherzla á KÓða lýsingu við málverkin. Lengst til hægri er verk Picassos, þá verk Matisse ok lenjfst til vinstri mynd eftir Leger. Ljósm. Ól.K. M. æna húsinu. í myndinni verður rakin saga safnsins, byggingar- saga þess og byggingarlag, og m.a. sýnt frá opnun þess en þá var Noregskonungur meðal gesta. Frank Ponzi ritar formálsorð að sýningunni í sýningarskránni, þar sem er að finna litmyndir af nokkrum verkanna á sýningunni. Þar segir m.a. að það sé ómetan- legt fyrir listunnendur á Islandi að fá tækifæri á þessari einstæðu sýningu, til þess að skoða meðal annars verk nútíma meistara, þeirra forfeðra, er skópu sum veigamestu verk tuttugustu ald- arinnar. Þar segir einnig: „Á sýningunni er úrval 40 verka, sem bæði gefa dálitla hugmynd um gæði heildar- safnsins og það svið, sem þar er spannað og jafnframt glögga og fjölbreytta mynd af ýmsum merk- um stefnum, sem sett hafa svip sinn á listir um meira en hálfrar aldar skeið. Margir þeirra lista- manna, sem eiga verk á þessari sýningu, hafa verið tengdir þekkt- um hreyfingum og listastefnum, svo sem Nabis, fauvisma, kú- bisma, Dada, Bauhaus, súrreal- isma, Cobra, Éccole de Paris og tachisma. Þessar stefnur höfðu ekki aðeins sterk áhrif hver á aðra, heldur einnig á síðari kyn- slóðir listamanna. Þær voru oft uppsprettur hugmynda, sem margir sóttu kraft í, ekki síst íslenskir listamenn, fyrir og eftir síðari heimsstyrjöld. Nú fá list- unnendur á Islandi einnig tæki- færi til að skoða og njóta frum- mynda ýmissa þessara þekktu listamanna, sem áður hafa aðeins sést hér í eftirprentunum.“ Ennfremur segir Frank Ponzi í sýningarskránni: „Án góðra list- sýninga rofna öll gagnkvæm tengsl milli listamannsins og al- mennings. Ef list á að þroskast og dafna, er það mjög mikilvægt fyrir listamanninn og e.t.v. brýnna fyrir hann en starfsstyrk- ir og marklaus hrósyrði, að al- menningur sýni ekki eins mikinn áhuga, heldur umfram allt kunni að gera greinarmun á gæðum lista. Vonandi þjónar þessi sýning þeim tilgangi." Sýningin í Norræna húsinu verður opnuð kl. 17 á sunnudag- inn, og stendur yfir í hálfan mánuð, eða fram til 27. apríl. Verður hún opin daglega frá kl. 14-22. Eins og skýrt var frá í Morg- unblaðinu í vikunni verður opn- uð í Norræna húsinu á sunnudag sýning á málverkum eftir marga kunnustu málara heimsins. Það er Lista- og menningarsjóður Kópavogs sem stendur fyrir sýn- ingunni, en frumkvæði að sýn- ingunni og forgöngu að því að fá hana hingað til lands hefur haft Frank Ponzi listfræðingur. Alls verða á sýningunni 40 málverk eftir 35 meistara. Eru þau fengin að láni úr Sonia Henie-Niels Onstad-safninu í Ósló, og eru vel flest málverkanna í hópi beztu listaverka þessa víðkunna safns, að sögn Frank Ponzi. Ponzi sagði í spjalli við Mbl. í gær að sýningin væri einstakur viðburður í íslenzku menning- arlífi, og óvenjuleg fyrir þær sakir að verkin koma hingað beint af safninu og fara rakleitt þangað aftur. Hér væri því ekki um að ræða „viðkomu" erlendra lista- verka á leið í aðrar áttir, eins og venjan væri. Á sýningunni verða m.a. verk eftir meistarana Pablo Picasso, Edvard Munch, Henri Matisse, Joan Miro, Juan Gris, Pierre Þetta málverk er nefnt þvi nafni „Stormasamur persónu- leiki“, en hún er eftir spænska málarann Joan Miró. Bonnard, Max Ernst, Paul Klee, Jacques Villon og Jean Dubuffet. Elzta myndin nefnist „Tréð við ána“, en hana málaði Bonnard árið 1912. Er myndin fyrsta myndin á hægri hönd þegar kom- ið er í sal Norræna hússins. Listaverkin eru tryggð fyrir millj- arða íslenzkra króna, en þau sótti Ponzi sjálfur til Noregs, og bauð hann lista- og menningarsjóði Kópavogs að standa fyrir sýning- unni til þess að afla fjár í byggingarsjóð fyrir listasafn í Kópavogi. Frank Ponzi sagði að Sonja Henie-Niels Onstad-safnið í Ósló væri einstakt í sinni röð. Þar væri að finna mörg merkustu listaverk heims, og þar færi fram mikil starfsemi á sviði hinna ýmsu listgreina. Safnið væri kennt við listskautadrottninguna frægu, Sonju Henie, og eiginmann henn- ar, norska skipakónginn Niels Onstad. Sagði Frank að sýnd yrði í sjónvarpi annað kvöld, laugar- dagskvöld, 45 mínútna löng lit- mynd um safnið. Kæmu þau Sonja Henie og Niels Onstad fram í myndinni auk nokkurra frægra listamanna, en verk eftir suma. þeirra væru á sýningunni í Norr- Ein mynd er á sýning- unni eftir hinn kunna norska málara Edvard Munch. Munch málaði myndina 1923, sextug- ur að aldri, en hún nefist „Kornuppskeran“. Listviðburður í Norræna húsinu: Verk eftir suma mestu málara þessarar aldar Mynd Picassos, „Sitjandi kona“. Picasso lauk við myndina 17. nóvember 1941, en þá sátu Þjóðverjar um París. Ljósm. Mbl. Ól.K. M. „Sítrónur“, mynd Henri Matisse. Ljósm. Mbl. ól.K. M. Elzta myndin atsýningunni, „Tréð við ána“, eftir Pierre Bonnard. Myndin er máluð 1912.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.