Morgunblaðið - 23.04.1980, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 1980
MORöJh/-
KAFFINÚ
S2-
Þú færð aldrei aftur að sjá
hrollvekju í sjónvarpinu!
+1/r /■' 'ZZ/////y//ss/'„. *
Er ekki hægt að finna aðra leið til þess að flýta fyrir að
skipsfélagar okkar hér á kútternum komist á eftirlaun?
Þetta er gert í orkusparnaðar-
skyni. Maður þarf ekki að eyða
orkunni í að sækja sér drykkjar-
föng!
Morgunblaðið má
vel una nafngiftinni
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Ekki dugir að sofa á verðinum
í vörninni. Og í dag láta lesendur
siíkt ekki koma fyrir. Fá sér sæti
í vestur og stýra vörn gegn
fjórum spöðum.
Norður
S DG106
H. Á
T. DG106
L. ÁK42
Vestur
S. Á2
H. DG964
T. ÁK94
L. G7
Vestur gaf, allir á hættu og
sagnirnar voru þessar:
Vestur Norður Austur Suður
1 II DobJ 2II 2 S
3II i Spaðar allir Pass
Eðlilegt er að taka fyrsta slag-
inn á tígulkóng. Frá blindum fer
sexið, austur lætur tvistinn og
sagnhafi þristinn. Nú taka lesend-
ur við og ákveða framhaldið.
Ekki virðist feitan gölt að flá í
þetta sinn. Á trompásinn fæst
slagur, annar ætti að fást á
tígulinn. En hvar er sá fjórði? Ef
austur á spaðakónginn þarf varla
að leita lengi. Laufslagur er líka
hugsanlegur en tíglarnir í blind-
um eru hættulegir. Ef suður á
bara sex spil í láglitunum og ekki
laufdrottninguna verða tíglarnir
honum mikilvægir.
En einmitt þá getum við gert
gagnslausa. Við tökum annan slag
á tígulinn og spiium þriðja tíglin-
um.
Norður
S. DG106
H. Á
T. DG106
L. ÁK42
(C> PIB
C0PI»H*CIII
COSPER 8291
Þetta er orkusparnaður
þennan hátt!
— að hita baðvatnið á
Það er sagt að eitt ríki í Afríku
hafi eyðilagt landbúnaðinn á
kostnað iðnaðarins og nú vofir
yfir matarskortur og þykir ekki
gott. Þetta er nákvæmlega það
sama og Stalín gerði, en hann
hlaut lof fyrir. 30 milljón bænda
urðu hungurmorða, svo lét hann
taka af lífi eina milljón úr hernum
og alla gömlu félagana utan einn.
Hann fór svo hyggilega að þessu,
lét loka landinu fyrir öllum nema
þeim sem hann treysti. Trúboð-
arnir sem alls staðar fundust voru
látnir bjóða skáldum, lærðum,
trúuðum og þeim sem auðvelt var
að blekkja. Þeim voru haldnar
dýrðlegar veizlur og síðan áttu
þeir að greiða veizlukostnaðinn
með því að vitna um dýrðina.
Þetta gekk alveg eftir nótum.
Skáldin sveittust við lofið og hinir
létu ekki sitt eftir liggja, t.d. kom
út bók hérlendis eftir Heimi
Áskelsson, sem heitir „I landi
hamingjunnar" og átti að vera
sönn lýsing á kjörum fólksins á
verstu dögum Stalíns. Trúboðarn-
ir komu síðan heim með fullar
hendur fjár til að útbreiða fagnað-
arerindið.
Vonandi skammast sín ein-
hverjir núna fyrir að hafa blekkt
þjóð sína þannig og svívirt þetta
vesalings fólk, sem þannig var
níðst á. Þeir sem efuðust voru
úthrópaðir og allt sem þeir sögðu
var Rússagrýla, Finnagaldur og
hér var þetta kallað Morgun-
blaðslygi og má Morgunblaðið vel
una nafngiftinni.
Þótt naumt væri skammtaður
atvinnuleysisstyrkurinn á fyrri
árum Framsóknar enda bætir
Framsóknarflokkurinn aldrei kjör
fólksins, hvorki þá né nú, var
atvinnuleysisstyrkurinn samt
betri hér en daglaun hjá Stalín.
Þetta hefðu verkamennirnir átt að
vita, þegar þeir á þessum árum
voru að gleypa í sig lýsingarnar á
fíneríinu hjá Stalín. Kjörum
fólksins á dögum Stalíns er best
lýst, þegar Ungverjalands-Hjalti
var að lýsa högum Ungverja fyrir
byltinguna: „Bændurnir voru
neyddir til að sætta sig við verðið
sem stjórnin setur, 1% af þjóðinni
er í fangabúðum, lífskjörin fara
síversnandi og enginn má um
frjálst höfuð strjúka."
Tveir þættir hafa lengi verið í
hlutlausa útvarpinu okkar, Dagur-
inn og vegurinn og að vera dag-
Vcstur
S. Á2
H. DG964
T. ÁK94
L. G7
Austur
S. 96
H.108752
T. 852
L. D95
Suður
S. K10874
H. K3
T. 73
L. 10863
Þá eru þrjú af sex spilum suðurs
í láglitunum farin. Og um leið og
sagnhafi spilar trompi, tökum við
á ásinn, spilum fjórða tíglinum
sem austur trompar og suður
betur, en seinna mun austur fá
fjórða slag varnarinnar á lauf-
drottninguna.
Borað í Urriðavatn
E^iisstóóum. 21. april.
NU ERU að hef jast að nýju
boranir eftir heitu vatni í
Urriðavatni fyrir hitaveitu
Egilsstaðahrepps og Fella.
í þessari atrennu verður
borað niður á 1000 metra
dýpi og vona menn að það
dugi til að fá það vatn, sem
á vantar til að hita þau hús,
sem eru með vatnshitakerfi
en eftir er að tengja hita-
veitunni.
Borinn Glaumur var feng-
inn til verksins úr Eyjafirði
og gekk ekki þrautalaust að
fá leyfi til þess vegna
þungatakmarkana á vegum,
en á endanum gengust
hrepparnir í ábyrgð fyrir
hugsanlegum skemmdum á
vegum af völdum flutn-
inganna. Þeir gengu þó eins
og bezt verður á kosið fyrir
hreppana og vegakerfið.
Fréttaritarl.
Borun í Urriðavatni undirbúin. Yzt á lengri tanganum er hola 4, sem virkjuð var í fyrra, og yzt á þeim
styttri á Glaumur að bora holu númer 5. Ljtem. Mbl. Jóhann.