Morgunblaðið - 09.05.1980, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
104. tbl. 67. árg.
FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
/ UPPHAFILÍKFYLGDAR
Simamynd — AP
Kista Títós, fyrrum Júgóslavíuforseta, borin niður tröppur þinghússins í Belgrad í upphafi hátíðlegrar, opinberrar
athafnar, er forsetanum var fylgt til hinztu hvílu.
Ólafur Jóhannesson um
Jan Mayen-viðræðurnar:
59
Afstaða
Norðmanna harönar
Frá Árna Johnsen blaðamanni Mbl. 1 Ósló í jrær.
„AFSTAÐA Norðmanna hefur harðnað varðandi fisk-
veiðiréttindin á Jan Mayen-svæðinu,“ sagði ólafur
Jóhannesson utanríkisráðherra í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi. „Málinu hefur því ekkert miðað
áfram, en Norðmenn hafa verið meira til viðtals um
landgrunnsmálið. Ég býst við því, að úr því fái skorist í
fyrramálið, hvort líkur séu á því, að hægt verði að ná
samkomulagi. Norðmenn bera fyrir sig Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, en það er að mínu mati nýtt atriði í
málflutningi þeirra. hað er því um kyrrstöðu að ræða í
samningunum, en við getum ekki beðið lengur en til
morguns til þess að fá svar af eða á. Við höfum ekki
komið fram með neinar nýjar kröfur, en sumar nokkuð
meira útfærðar en í síðustu samningaviðræðum í
Reykjavík. Ég tel það aðeins viðbárur hjá þeim, ef þeir
ætla að bera fyrir sig samþykkt Alþýðubandalagsins
sem ástæðu fyrir því hvað treglega gengur.“
Útför
Títós
^ Helgrad, 8. maí. AP.
ÚTFÖR Títós, fyrrum Júgó-
slavíuforseta, fór virðulega
fram að viðstöddum sumum
æðstu mönnum 115 ríkja og
hundruðum þúsunda Júgó-
slava. Líkfylgdin var fjög-
urra kílómetra löng og með-
fram götunum, sem kistu
hins látna forseta var ekið
um á leiðinni frá þinghúsinu
að grafhýsinu í hæðunum
uppi af Belgrad, var óslitin
röð syrgjenda. Meðan átta
hershöfðingjar létu eikarkist-
una síga niður í gröfina var
skotið af fallbyssum um allt
landið og sírenur þeyttar.
Jovanka, ekkja Títós, er verið
hafði í ónáð í þrjú ár, gekk næst
líkbörunum og með henni tveir
synir Títós af fyrra hjónabandi.
Einnig var einn af nánustu sam-
starfsmönnum Títós úr seinni
heimsstyrjöldinni, er verið hafði í
ónáð í tæpan áratug, kvaddur til
að standa í heiðursverði við kistu
Títós í þinghúsinu í upphafi útfar-
arinnar.
Margir þjóðarleiðtogar og aðrir
æðstu menn voru viðstaddir útför-
ina, og áttu margir þeirra saman
fundi fyrir og eftir útförina.
Stevan Doronjski leiðtogi
flokksnefndarinnar, er tekur við
völdum af Tító, sagði í dag, að
leitast yrði í einu og öllu við að
sveigja ekki af þeirri línu sem Tító
markaði í þjóðmálum.
Míkið
afhroð
Rússa
Nýju Dohlí. 8. maí. AP.
SOVÉZKU herirnir fyrir
vestan Kabúl. höfuðborg
Afganistans, hafa beðið mik-
ið afhroð i síðustu viðureign-
um við þjóðfrelsisöfl, sam-
kvæmt áreiðanlegum heim-
ildum, sem ekki vildu láta
nafns sins getið.
Sjónarvottar voru að því er
Rússar fluttu mörg lík fall-
inna hermanna á mörgum
þyrlum til flugvallarins í
Kabúl á mánudag. Komu
þyrlurnar úr vesturátt.
Fregnirnar hafa ekki fengist
staðfestar af opinberri hálfu,
en opinberir fjölmiðlar
skýrðu frá því í dag að um
umfangsmiklar æfingar hefði
verið að ræða.
Ennfremur hermdu sömu
heimildir, að afganski herinn
hefði að undanförnu tekið
hús á fólki að næturþeli í leit
að ungum mönnum í herinn,
og jafnframt hafi farið fram
athugun á því hvort viðkom-
andi væru í einhverjum
tengslum við sveitir þjóð-
frelsisafla.
Fiskveiðinefndin var á fundum
lengst af dagsins í gær. Meðal
annars var rætt um, að íslend-
ingar ákveði heildarafla á loðnu
og aflaskiptingu milli íslendinga
og Norðmanna, og rétt íslendinga
til veiða annarra fisktegunda á
Jan Mayen-svæðinu. í fyrri við-
ræðum hafa Norðmenn látið í það
skína, að þeir væru reiðubúnir til
að samþykkja ákvörðunarvald
íslendinga vegna þess yfirgnæf-
andi mikilvægis sem loðnuveið-
arnar hafa fyrir íslenzku þjóðina.
Nú virðast Norðmenn hins vegar
hafa tekið skref aftur á bak í
þessu efni og telja mikil tormerki
á að samþykkja þetta, m.a. af því
að þar verði um að ræða bindandi
ákvörðun fyrir svæði, sem falla
muni undir norska lögsögu.
A fundi í gærmorgun var rætt
um botnmálið og skiptingu hafs-
botnsins utan 200 mílna lögsögu
Islands. Frydenlund sagði m.a., að
Norðmenn vonuðust til þess, að
hægt yrði að ná samkomulagi
áður en útfærsla landhelginnar
við Jan Mayen ætti sér stað, en
benti á, að fyrirhuguð útfærsla við
Austur-Grænland, setti samn-
ingaviðræðunum mjög ströng
tímamörk.
Á þessum fundi gerði Ólafur
Jóhannesson ítarlega grein fyrir
grundvallarviðhorfum Islendi nga,
en hann kvað Islendinga kjósa, að
reynt yrði fyrst og fremst að fá
heildarlausn, bæði varðandi fisk-
veiðimál og skiptingu landgrunns-
ins utan íslenzku lögsögunnar.
Sjá bls. 16: „Lausnin
byggist á sanngirni“.
Islenzka samninganefndin i Jan Mayen-málinu á fundi i Ósló i gær.
Ljósm.: Árni Johnsen/Símamynd