Morgunblaðið - 09.05.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.05.1980, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MAÍ1980 Jóhannes Nordal: Álbræðsla og' ein- hvers konar járnblendi líklegustu stóriðjukostir ,MÉR vitanlega hafa engar viðræður eða sérstakar athug- anir farið fram upp á síðkastið varðandi frekari stóriðju- framkvæmdir hér á landi, þann- ig að það sem ég segi er byggt á almennum upplýsingum um þróunina. En þær greinar, sem líklegastar virðast, eru ál- bræðsla og einhvers konar járn- blendi, til dæmis stækkun Grundartangaverksmiðjunnar, sem mér skilst reyndar að sé þegar til íhugunar hjá járn- blendifélaginu, eða framleiðsla á hreinum kísilmálmi,“ sagði Jóhannes Nordal Seðlabanka- stjóri og fyrrum formaður við- ræðunefndar um orkufrekan iðnað, er Mbl. spurði hann í gær, hverjir væru að hans dómi nærtækustu kostirnir í stóriðju- málum. Jóhannes sagði ljóst að frekari uppbygging á orkufrekum iðnaði yrði að haldast í hendur við nýjar virkjanir og því væri til dæmis spurning, hvort nota mætti eitthvað af orku Hraun- eyjafossvirkjunar til orkufreks iðnaðar eftir því, hversu fljótt næsta virkjun kæmi á eftir. „Staðan í orkumálunum er sú, að það er gert ráð fyrir miklu starfi á þessu ári í rannsóknum," sagði Jóhannes. „En virkjunarrann- sóknir hér á landi hafa ekki gengið nógu ört. Við hefðum þurft að hafa á hendinni til ákvarðanatöku tvo til þrjá val- kosti, en það vantar talsvert upp á það ennþá." Sigurjón Guðmundsson Lést af völd- um áverka Maðurinn sem slasaðist er hann féll af hestbaki undir Eyjafjöllum á sunnudaginn lést á sjúkrahúsi í Reykjavík í fyrradag. Hann hét Sigurjón Guðmunds- son, til heimilis að Steinum undir Austur-Eyjafjöllum. Hann var á sjötugsaldri, fæddur 27. jan. 1919, ókvæntur og barnlaus. ASI-menn kynna sér láglauna- bætur í Noregi Ósló, 8. maí. frá blaóamanni MorKunblaósins, Arna Johnsen. UNDANFARNA daga hafa fjórir fulUrúar frá Alþýðu- samhandi íslands dvalið hér í Ósló til að kynna sér nýgerða samninga norska Alþýðusam- bandsins varðandi láglauna- fólk. Þessir fulltrúar eru Snorri Jónsson varaforseti ASÍ, Ásmundur Stefánsson framkvæmdastjóri ASÍ, Óskar Hallgrímsson og Karl Steinar Guðnason alþingismaður. Þeir hafa kynnt sér það hvernig Norðmenn hafa leyst kjaramálin á nýstárlegan hátt varðandi laun hinna lægst laun- uðu. Myndaður hefur verið sjóð- ur til að endurgreiða fyrirtækj- um hluta af láglaunauppbótum sem samningurinn gerir ráð fyrir. Útreikningur og viðmiðun er meðaltímakaup í dagvinnu án óhreinindaálags og ákveð- inna annarra kaupauka, en að meðtöldum bónus og hliðstæð- um greiðslum. Kaup viðkom- andi hópa er borið saman við meðalkaup í iðnaði og launin síðan ákveðin þannig, að frávik frá meðaltalinu verði ekki meiri en 15%. Láglaunabæturnar eiga síðan að jafna launin, og þær eiga að greiðast af fyrirtækjum að hálfu og sameiginlegum sjóði sem á að greiða hinn helming- inn. Launafólk greiðir síðan af tímakaupi í þennan sameigin- lega sjóð. Þessi mál hefur íslenska sendinefndin verið að kynna sér, tilhögun þessa sjóðs og fleiri mál. Karlakór tek- inn til starfa í Bolungarvík Bolungarvík, 8. mai. UNDANFARNAR vikur hafa songáhugamenn hér í Bolung- arvík æft upp karlakór undir stjórn séra Gunnars Björnsson- ar sóknarprests. Kórinn, sem er skipaður um 30 félögum söng hér í Félagsheimilinu í fyrsta sinn í kaffisamsæti Verkalýðs- félagsins þann fyrsta maí, og síðustu helgi söng kórinn svo á Flateyri. Kórinn gengur undir nafninu Karlakórinn Ægir, og er það nafn dregið af karlakór sem stófnaður var hér á ofanverðum fjórða áratugnum og starfaði hér í um það bil tuttugu ár. Þótti við hæfi að gefa þessum nýja kór nafn þess gamla í veganesti, og vænta Bolvíkingar sér mikils af starfsemi kórsins í framtíðinni. — Gunnar 1 gær voru I fyrsta skipti reyndir á Fáksvellinum startbásar, sem áformað er að nota á hestamannamótum hér á landi. Er það trú hestamanna, að notkun básanna muni verða til stórra bóta. Ljósm. Mbi. Krístján. Matthías Á. Mathiesen og f jórir þingmenn aðrir: Flytja lagafrumvarp um „tollkrít“ á Alþingi ALÞINGISMENNIRNIR Matthías Á. Mathiesen, Friðrik Sophusson, Árni Gunnarsson, Albert Guð- mundsson og Sverrir Hermannsson hafa lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um „tollkrít“, það er um breytingar á lögum um tollheimtu og tolleftirlit. Samkvæmt frum- varpinu verður nú heimilt að veita greiðslufrest á aðflutningsgjöldum, til þeirra fyrirtækja er stunda innflutningsverslun sem aðalat- vinnuveg. Einnig er gert ráð fyrir að veita megi slíkan frest til iðnfyrirtækja vegna innflutnings á vélabúnaði, tækjum og hráefni. Skilyrði fyrir greiðslufresti af þessu tagi er, að umsækjandi setji tryggingu fyrir aðflutningsgjöld- um. í lagafrumvarpinu er einnig gert ráð fyrir að afturkalla megi veittan gjaldfrest hvenær sem er. Skal afturköllun þá vera rökstudd. Verði vanefndir á skilyrðum greiðslu- frests, er tollstjóra heimilt að synja um áframhaldandi úttekt gegn greiðslufresti um lengri eða skemmri tíma. Upphaf þessa máls er það, að árið Niðurskurður á beiðni Hitaveitunnar Óeðlilegt að koma fyrirtækinu í klípu með þessum hætti — segir Sigurjón Pétursson „Þetta er náttúrulega alltof lítil hækkun miðaó við þær fram- kvæmdaþarfir sem Hitaveitan hefur kynnt og nauðsynlegt er að ráðast í,“ sagði Sigurjón Péturs- son forseti borgarstjórnar Reykjavíkur í samtali við blaða- mann Morgunhlaðsins í gær- kvöldi er hann var spurður álits á þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinn- ar að leyfa Hitaveitu Reykjavíkur aðeins 10% gjaldskrárhækkun. Hitaveitan hafði sem kunnugt er óskað 58% hækkunar. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um það ennþá hvernig við þessu verður brugðist," sagði Sigurjón ennfremur, „en það er alveg ljóst að verulega verður að draga úr borunarframkvæmdum. Óneitanlega finnst mér þetta mjög óeðlilegt. Á sama tíma og rætt er um hve lágt verð Hitaveitu Reykjavíkur er miðað við aðra staði á landinu, þá er þessu verði haldið niðri umfram það sem eðlilegt er. Manni finnst það óneit- anlega skjóta nokkuð skökku við.“ Sigurjón kvaðst ekkert geta um það sagt hvort til þess kæmi að skortur yrði á heitu vatni í Reykjavík næsta vetur af þessum sökum, en hættan á því ykist að sjálfsögðu stöðugt eftir því sem dregið væri úr borunum, en veður- far næsta vetur réði nokkru um hvort þessi hætta yrði þá yfirvof- andi. „En það hlýtur að vera algjörlega óeðlilegt að koma fyrir- tækinu í klípu á þennan hátt með tilliti til þess hve lágt verðið er,“ sagði Sigurjón. „Og óneitanlega hlýtur það að draga úr áhuga Hitaveitunnar á að dreifa vatni til annarra aðila ef hætta er á því að staðið verði frammi fyrir vatns- skorti.“ Sigurjón kvað borgaryfirvöld ekki hafa fengið að sjá þær forsendur sem gjaldskrárnefnd hefði lagt til grundvallar ákvörðun sinni, en stjórn veitustofnana myndi væntanlega fara fram á að sjá þær niðurstöður. Hætta á að höfuðborg- arsvæðið verði að hluta olíuhitunarsvæði - segir Birgir ísl. Gunnarsson „ÞESSAR ákvarðanir vekja furðu og geta haft mjög alvarlegar afleiðingar,“ sagði Birgir ísleifur Gunnarsson borgarfulltrúi og al- þingismaður í gær, er Morgun- blaðið innti hann álits á niður- skurði á hækkunarbeiðnum Hita- veitu Reykjavíkur og Landsvirkj- unar. „Ákvörðunin um Hitaveitu Reykjavíkur dregur stórlega úr framkvæmdagetu fyrirtækisins," sagði Birgir ennfremur, „og hætta er á því að hluti höfuðborgarsvæð- isins verði olíuhitunarsvæði að nýju. Þegar hefur verið dregið úr borunum eftir auknu vatni, og hætta er á að ekki verði hægt að leggja í ný hverfi. Hvað Landsvirkjun varðar, þá er þess að geta, að framkvæmdir við Hrauneyjafossvirkjun eru í fullum gangi og þar hafa allir verksamn- ingar verið gerðir. Ef dregið verður úr verkhraða er hætta á orkuskorti haustið 1981, en þá verður virkjun- in að vera fullbúin. Með þessari ákvörðun neyðist Landsvirkjun annaðhvort til að fara út í enn frekari lántökur eða að draga úr virkjunarhraða. Þessi ákvörðun er því í andstöðu við áður boðaða stefnu ríkisstjórnarinnar, bæði í lánsfjármálum og orkumálum. Þessar ákvarðanir eru enn eitt dæmið um ráðleysi ríkisstjórnar- innar. Öllum vanda er ýtt á undan sér og ekki virðist tekið á neinu máli af festu. Maður stendur í rauninni agndofa andspænis slíku ráðleysi,“ sagði Birgir ísleifur að lokum. 1977 skipaði Matthías Á. Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra nefnd manna til að endurskoða reglur um tollheimtu og tolleftirlit. í álitsgerð sem nefndin skilaði síðan í ágúst 1978 leggur hún einróma til við fjármálaráðherra að upp verði tekin hér á landi greiðslufrestur á aðflutn- ingsgjöldum, svonefnd tollkrít. For- maður nefndarinnar var Ásgeir Pét- ursson sýslumaður. í greinargerð með lagafrumvarp- inu nú segja flutningsmenn, að þeir hafi ákveðið að flytja frumvarp þetta, þar sem stjórnvöld hafi enn ekki flutt frumvarp á grundvelli hins ítarlega nefndarálits, en ljóst sé að tollalöggjöfin í heiid þarfnist breytinga og endurbóta í samræmi við nútímahætti í viðskiptalífi og opinberri stjórnsýslu. Þá segir enn fremur í greinargerð- inni, að hér sé um að ræða mikið hagsmunamál fyrir alla landsmenn, og sé brýnt að Alþingi taki afstöðu til Iagabreytinga sem kveða á um almennan greiðslufrest á aðflutn- ingsgjöidum. Þannig verði stuðlað að sparnaði, hagræði og lægra vöru- verði, neytendum, flutningsaðilum, svo og hinu opinbera til hagsbóta. Matthías sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi, að eftir að sýnt var að stjórnvöld hugðu ekki á aðgerðir í málinu hefði tollanefnd Félags ísl. stórkaupmanna og Versl- unarráð íslands lýst áhuga sínum á að málið yrði nú tekið upp á þingi, og væri það flutt í samræmi við þær óskir. „Þá er einnig ljóst að gera verður aðrar viðamiklar breytingar á tollalögunum í framhaldi af því sem hér um ræðir," sagði Matthías, „og er nú unnið að gerð tveggja frumvarpa sem lögð verða fyrir þingið innan skamms um þau efni. Flutningsmaður þeirra frumvarpa verður Friðrik Sophusson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.