Morgunblaðið - 09.05.1980, Page 5

Morgunblaðið - 09.05.1980, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 1980 5 Kastljós í sjónvarpi í kvöld: Hernám Breta 1940 rifjað upp Kastljós er á dagskrá sjónvarps í kvöld, og er Omar Ragnarsson frétta- maður umsjónarmaður þáttarins að þessu sinni. Þátturinn að þessu sinni verður helgaður því, að nú eru fjörutíu ár liðin síðan Bretar hernámu ísland í síðari heimsstyrjöldinni. í Kastljósi verður brugðið upp svipmyndum, bæði gömlum og nýjum, af nokkrum stöðum sem her- inn settist á, og rætt verður við fólk sem þarna kom við sögu. Hernámið á sínum tíma hafði mikil áhrif á gang mála hér á landi, og má segja að með því hafi íslend- ingum snögglega verið kippt inn í hina miklu veraldar- viðburði sem landið hafði að mestu sloppið við frá því það byggðist. Stríðið átti mikinn þátt í að breyta hugsana- gangi þjóðarinnar, og stund- um hefur verið sagt að koma hersins hafi kippt íslending- um inn í tuttugustu öldina á augabragði, en að öðrum kosti hefði slíkt tekið mun lengri tíma, ef til vill hefði það komið þjóðinni betur að fá lengri aðlögunartíma, ef til vill verr. Ljósm.: Sv. Hjaltested. Herdeild breskra hermanna á göngu upp Suðurgötu i Reykjavik á tímum hernámsins. Adorjan — Eftir sigur Aorjans í sjöttu einvigisskákinni jókst spennan í einviginu til muna. Hubner lét mörg þung orð falla um tafl- mennsku sina í þeirri skák, en hann lofaði bót og betrun. í sjöundu skákinni ætlaði hann að reyna að tefla vel — en varlega, því að hann hafði þó enn vinningsforskot. En það fór nú á annan veg, Sjöunda einvigisskákin. Hvitt: Robert Hiibner Svart: Andras Adorjan. Sikileyjar vörn. I. e4 - c5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5. í fyrsta sinn í einvíginu endurtekur Hiibner sama af- brigðið. 3.... g6, 4. 0-0 — Bg7; 5. Hel - Rf6, 6. c3 — 0-0 I fimmtu skákinni lék Adorjan 6. ... a6, en það er síðri leikur. 7. h3 — e5! Þessi góði leikur er vel þekktur. Hvítur græðir lítið á að leika 8. Bxc6 — dxc6, 9. Rxe5 — vegna 9. ... He8, 10. f4 — Rxe4, II. Hxe4 - f6, 8. Ra3 - d6, 9. Bxc6 Hvítur reynir að mynda veilur í peðastöðu svarts, en það mistekst. 9. ... bxc6, 10. d3 — a5! Mjög góð hugmynd, eins og í ljós kemur síðar. Adorjan og aðstoðarmenn hans hafa vafa- laust athugað þennan leik, áður en þessi skák hófst. 11. Be3 — a4, 12. Dc2 - He8,13. Hadl - Be6,14. Dbl — Db8. Hugmynd- in að baki 10. ... a5 hefur nú komið í ljós. Svartur þrýstir óþægilega á a- og b-peð hvíts. Staðan er þó í jafnvægi, en nú tekur Húbner slæma ákvörðun. 15. d4? — exd4, 16. cxd4 — d5, 17. e5 - Rd7, 18. dxc5 - Bf5, 19. Dcl — Rxe5 Svörtum hefur tekist að hrifsa til sín frum- kvæðið. Hvítur hefur veikleika á b2 og aðgerðarlítinn riddara á a3. 20. Rxe5 — Hxe5 Sterkara var 20. ... Bxe5. 21. Rc2 — Bxc2, 22. Dxc2 - Db4, 23. Hfl — He4 Mögulegt var einnig 23. ... Hh5 með hugmyndinni 24.... d4. Hiibner V Staða Hubners er erfið, en alls ekki vonlaus. 24. b3 Eini leikur- inn. 24. ... axb3, 25. axb3 — Dc3, 26. Dbl - h5, 27. Hd3 - Db2. Miklu sterkara var 27. ... Db4 og svartur hótar 28. ... d4 og vinna c-peðið. 28. Dxb2 — Bxb2, 29. Hbl - Be5, 30. Kfl. Ekki 30. b4? vegna Hxb4. Ha3, 31. Bd2 - f6, 32. f3 - Hd4, 33. Ke2. Hvítur bætir stöðu sína með hverjum leik 33. ... Kf7, 34. g4 — hxg4. Þessi leikur hjálpar hvítum. Betra var að láta h5-peðið óhreyft. 35. hxg4 — Ke6, 36. Hxd4 — Bxd4, 37. b4. Hvítur er nú kominn yfir erfiðasta hjallann. 37. ... Bc3, 38. Bcl — Ha4. Mögulegt var einnig 38. ... Hal, 39. Hxal — Bxal og svartur hefur aðeins betra tafl, en hvítur ætti að halda sínum hlut. 39. b5 — cxb5 Betra var 39. ... Hb4. 40. Hxb5 SKák eftir Guðmund Sigurjónsson — Hc4. Hér sömdu keppendur um jafntefli, enda hefur Hubner loks tekist að jafna taflið — reyndar með dyggri aðstoð and- stæðingsins. Eftir þessa skák var staðan í einvíginu þessi: Hubner 4 vinningar. Adorjan 3 vinningar. Lokakaffi Heimaeyjarkvenna verður á Sögu á sunnudaginn KVENFÉLAGIÐ Heimaey í Reykjavík býður að vanda til lokakaffis á lokadaginn 11. maí n.k. í Súlnasal Hótels Sögu. Kaffiveitingar hefjast kl. 2 og standa til kl. 5. Eldri Vestmannaeyingum er boðið sérstaklega, en mörg undan- farin ár hefur verið margt um manninn á lokakaffi Heymaeyj arkvenna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.