Morgunblaðið - 18.05.1980, Side 15

Morgunblaðið - 18.05.1980, Side 15
Sendiráðstakan í London MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1980 63 MUHAMMAD Hashir Faruqi, breskur Pakistani, er ritstjóri Impact International, en það er stjórnmálatímarit múham- eðstrúarmanna, sem gefið er út i London. Þegar árásarmenn- irnir réðust inn í íranska sendi- ráðið, var hann að bíða eftir því að taka viðtal við viðskipta- fulltrúann, dr. Gholam-Ali Af- rouz. Þeim var báðum haldið í gíslingu í sex daga. Hér lýsir hann síðustu augnablikum um- sátursins og skyndiáhlaupi SAS-sveitarinnar á sendiráðið. Ofbeldisseggimir guggnuðu þegar á hólmiim var komið Skömmu eftir klukkan sjö á mánudagskvöld, þegar ég var að fara með bænirnar mínar, heyrði ég lögregluna tala við hryðju- verkamennina um flutning þeirra út í flugvélina og langferðabílinn og hve stóran bíl þeir þyrftu. Foringinn sagði, að hann þyrfti líklega að rúma 28 manns- síðan leiðrétti hann sjálfan sig og sagði: „Nei, nei, 36.“ Hann áttaði sig á því, að hann mátti ekki gefa upp töluna nákvæmlega. Við vissum ekki, hvað var að gerast fyrir utan, nema hvað við heyrðum undarleg hljóð eins og í flugvélum í lágflugi. Eg skil nú, að þetta hefur verið gert til að fela hávaðann við undirbúning SAS- manna. Þessu næst bað lögreglan um að láta foringja hryðjuverkamann- anna fá ferðatalstöðina aftur. Honum var sagt, að allt væri til reiðu, og að hann skyldi fara til viðskiptafulltrúans og að hann skyldi fara til viðskiptafulltrúans og spyrja hann, hvort hann vildi koma með. Tímasetningin á þessu var mjög snjöll, því að þetta þýddi, að hann skildi Sim Harris og Lock lögregluþjón eftir án gæslu. Hann var kominn hálfa leið upp stigann- var ekki hjá okkur og ekki hjá þeim- þegar allt fór í gang. Þetta bjargaði ekki aðeins lífi Englend- inganna, Sim og Trevor, heldur líka okkar. Hefði hann komist í herbergi hjá okkur, hefðum við orðið að standa andspænis einum hryðjuverkamanni til viðbótar. Allir gíslarnir voru enn á efri hæðinni. Karlmennirnir voru í telex-herberginu og kvenfólkið í litla herberginu. Einn hryðju- verkamaður var við dyrnar og þrír fyrir utan. Eg varð var við eitt- hvað þrusk og leit í átt að hryðjuverkamanninum, sem sat við dyrnar. Hann hóf þegar í stað skothríð í átt að miðju herberginu, þar sem írönsku gíslarnir höfðu hnappast saman. Einn íranskur gísl lést og tveir særðust. Að því búnu, heyrðust hvellir og það mátti heyra hróp hryðju- verkamanna. Áður en 20 sekúndur voru liðnar, tóku þeir að missa móðinn og hrópuðu „Tasleem, Tasleem" (uppgjöf, uppgjöf). Framglugginn á herberginu hafði verið sprengdur og við vor- um á gólfinu. Eftir að þeir fóru að kalla „Tasleem, Tasleem", áttaði ég mig á, að hvað snerti þessa menn, vorum við hólpnir. Næsta skref yrði koma áhlaups- sveitarinnar. Nú voru þrír hryðjuverkamenn og 17 gíslar í hergberginu. Þegar hér var komið, var ég staðinn upp og sumir íranirnir líka. Við sáum áhlaupsmennina koma inn um dyrnar með grímur sínar og fólk sagði: „Við erum gíslar, við erum gíslar," og „ég er Breti, ég er Breti." Þá tók einn áhlaupsmanna ofan grímuna og spurði, hverjir væru hryðjuverkamenn. Þá voru hryðjuverkamennirnir búnir að hnipra sig saman út í horni innan um írönsku gíslana og reyndu að leita skjóls bak við skrifborð og skápa. Ég held að einhver hafi bent í átt til þeirra, og þá hófu SAS- menn að skjóta á þá. Ég er ekki viss um, hvort hryðjuverkamenn- irnir héldu um vopn sín, er hér var komið, en það gátu áhlaupsmenn að sjálfsögðu ekki vitað. Þeir vissu ekki, hvort hryðjuverkamennirnir væru enn vopnaðir eða ekki. Einn þeirra sat á gólfinu og þegar íranirnir bentu á hann, bað hermaðurinn hann um að standa upp og síðan var hann skotinn. Þetta var stríð. Þeir dráöu tvo hryðjuverkamenn og sá þriðji fór niður í garðinn ásamt gíslunum. Mannræningjarnir, er hertóku sendiráðið, höfðu skotið þrjá gísla, einn þeirra til bana, þegar víkingasveitin gerði áhlaup. En innan 10 sekúndna eða svo höfðu þeir misst kjarkinn og gáfust upp. Hefðu þeir verið einarðir menn, hefðu þeir getað drepið okkur öll. Þeir þyrmdu okkur ekki af neinum siðferðisástæðum, heldur af þeirri einföldu ástæðu, að þeir voru yfirbugaðir og rugíaðir. Það var ekki af viljaskorti, heldur skorti á baráttuþreki. Slökkviliðsmenn beina slöngum sínum að brennandi sendiráðsbyggingunni. Takið eftir að þeir verða aö skýla sér bakviö vegg. Tveir óeinkennisklœddir breskir lögreglumenn hlaupa burt meö lík eins gíslanna, sem hryöjuverkamennirnir drápu til þess aö „undir- strika kröfur sínar“ og vörpuöu síðan fram af svölum sendiráösbygg- ingarinnar. Sjá nœstu opnu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.