Morgunblaðið - 08.06.1980, Page 1
Sunnudagur
8. júní
Bls. 33-64
Þegar bók James
Jones „From here til
Eternity" kom út í
Bandaríkjunum árið
1951 varð hún jafn-
skjótt metsölubók og
hefur fram til þessa
selzt í rösklega sjö
milljónum eintaka.
Hún fékk margs kon-
ar viðurkenningar og
tveimur árum síðar
var gerð kvikmynd
eftir sögunni, sem
hlaut ein átta Oscars-
verðlaun, þar á meðal
sem bezta mynd
ársins.
Sagan þótti djörf
í meira lagi og auk
þess lýsa á sérstaklega
athyglisverðan hátt
því andrúmslofti
sem ríkti í banda-
rískri herstöð í heim-
styrjöldinni síðari,
tilgangsleysi dag-
anna og ömurleika
þeim, sem mennirnir
og konurnar bjuggu
við og máttu sæta.
Eins og komið hefur
fram gerist sagan
nokkru fyrir hina ör-
lagaríku árás Jap-
ana á Pearl Harbour
og lyktar reyndar
nokkru eftir árásina.
Sagan sjálf var
upp á rúmlega átta
hundruð blaðsíður.
Það sagði sig sj álft
að við gerð kvik-
myndarinnar 1953
varð því að sleppa
mörgu úr. En ekki
aðeins vegna þess
að kvikmyndin upp á
tvo tíma setti ákveðn-
ar skorður, heldur og
vegna þess að ýmis
atriði þóttu það við-
kvæm að Bandaríkja-
her lagði blátt bann
við að þau yrðu sett'
á filmu. Og hið tvö-
falda siðgæði eða
brenglaða siðsemi
sem ríkti í Banda-
ríkjunum á þessum
árum gerði það líka að
verkum að viðhafa
varð fyllstu gát.
Baðstrandarsena
þeirra Deborah Kerr
og Burt Lancaster,
sem sjónvarps-
myndin endaði á í
fyrsta þættinum, þótti
til að mynda eitthvað
það djarfasta sem
nokkurn tíma hafði
verið borið á borð og
var þó öllu ástríðu-
minni heldur en
senan milli þeirra
Natalie Wood og mót-
leikara hennar Will-
iam Devane.
Aðalleikendur í kvikmyndinni
auk Deborah og Burt voru Mont-
gomery Clift, Frank Sinatra og
Donna Reed. Þó svo að margt væri
fellt burt úr myndinni ávann hún
sér engu að síður sess sem ein
merkasta kvikmynd og hefur
síðan orðið ein af klassiskum
bandarískum myndum.
Það var Colombía fyrirtækið
sem gerði myndina og sama fyrir-
tæki framleiddi síðan sjónvarps-
myndaflokkinn og stýrði honum
hinn margverðlaunaði leikstjóri
Buzz Kulik.
Helztu persónur, sem koma við
sögu voru kynntar í fyrsta þættin-
um. Þau Natalie Wood og William
Devane í hlutverkum Karen
Holmes og Milt Warden, sem
hefja upp ástarsamband í ein-
hverskonar æði og bræði, en það
snýst upp í þungbæran kærleika.
Karen er ólánsöm, lítt elskuð
eiginkona Holmes. Hún telur sig
finna manninn sem hún er að leita
að, þar sem Warden er. Hún hefur
fyrr staðið í ýmsum ástarsam-
böndum og fer af henni nokkuð
misjafnt orðspor.
Stefe Railsbach leikur hlutverk
hins unga Robert Lee Prewitt
ungs manns frá Kentucky, sem
hefur átt ömurlega bernsku og
hefur í hernum fundið sinn stað,
jafnvel þótt sú meðferð sem hann
sæti þar fari langt út fyrir nokkur
mannsæmandi mörk. Prewitt er í
fyrsta þættinum færður í „G“
deildina, sem er að nafninu til
undir stjórn Holmes. Hann hefur
orðið fyrir því óláni í hnefaleikum
að mótherji hans missti sjónina.
Og eins og fram kom í fyrsta þætti
ákveður hann að boxa ekki fram-
ar. Aftur á móti leggur Holmes
hart að honum að ganga í hnefa-
leikalið deildarinnar og þegar
Prewitt neitar, fyrirskipar Holm-
hafði verið sleppt frægri pynd-
ingarsenu, sem kemur fyrir aðal-
lega í þriðja þættinum. Andstaða
frá yfirmönnum bandaríkjahers á
sínum tíma hafði ráðið þessu. Nú
var annað viðhorf og í ljós kom að
menn töldu þessar senur nauðsyn-
legar ef farið væri sannanlega
með efnið og ekki velt sér meira
upp úr svínaríinu en nauðsynlegt
væri.
En það var fleira sem kom til.
Finna þurfti stað, sem væri við
hæfi. Herbúðirnar á Honolulu
komu ekki lengur til greina.
Schofield herstöðin sem var notuð
í kvikmyndinni kom heldur ekki
til álita. Þar er starfsemi í fullum
gangi og miklar endurbætur hafa
verið gerðar. Kulik fann loks
yfirgefna herstöð í San Pedro í
Kaliforníu, Fort McArthur. Hún
hafði verið reist um svipað leyti og
Schofield og minnti umhverfi og
húsakostur um margt á það sem
var á þessum tíma. Fékkst leyfi
hersins til að vinna þarna samfellt
í 22 daga.
Klæðaburðurinn var annað sem
þurfti að taka með í reikninginn.
Lagt var kapp á við undirbúning
að allt væri sem líkast því og var á
þessum tíma sem sagan gerist á.
Við athuganir kom til dæmis það í
ljós að efni sem er notað í
hermannabúninga nú er öðruvísi
og kemur þar af leiðandi öðruvísi
út á mynd en það sem var 1941. Á
stríðstímum voru hermannaflíkur
aðallega úr bómullarkhaki en nú
eru þær úr polyester. Það tók
ærinn tíma að hafa upp á gömlum
birgðum, sem mætti nota á helstu
karlleikarana.
Grady nokkurri Hunt var falið
að sjá um klæði Natalie Wood og
Kim Basinger. Á árunum upp úr
1940 var reyon mikið notað í
kvenfatnað, en það er nú löngu
es að hann skuli beittur sérstakri
meðferð til að brjóta vilja hans á
bak aftur. Warden dáist að sumu
leyti að hugprýði unga mannsins,
en hann treystist ekki til að hlífa
honum, meðal annars vegna þess
að sjálfur hefur hann um nóg að
hugsa í ástarsambandinu við eig-
inkonu Holmes.
Meðal annarra leikenda eru Roy
Thinnes, Joe Pantoliano, Kim Bas-
inger, Peter Boyle, David Spile-
berg, Will Samson og Andy Griff-
ith. Þeir Harold Gast og Don
McGuire fengu það verk að gera
handrit að sjónvarpsflokknum og
eru þeir trúir efni bókarinnar, svo
að myndin dregur upp allt sem
hún vildi sagt hafa: ástríðurnar
sem blossa, hatrið og grimmdina
og það almenna angur, sem hrjáir
það fólk sem kemur við sögu í
myndaflokknum.
Lorene — ung bandarísk stúlka
sem kemur til Hawaii til að gerast
gleðikona verður mikill örlaga-
valdur í lífi Prewitts. Hún hefur
ákveðið að snúa sér að þessu starfi
til að safna sér fé og koma undir
sig fótunum, svo að hún geti síðar
lifað eðlilegu lífi. Milli hennar og
Prewitt verður heilmikil hrifning
en hún virðist þó ekki elska hann
nægilega mikið til að það breyti
framtíðaráformum hennar að
sinni. Angelo Maggio er og fyrir-
ferðarmikill í myndinni, félagi
Prewitts og sá eini sem reynir að
hjálpa honum, þegar hann er hart
leikinn og fær sjálfur að gjalda
fyrir það á afdrifaríkan hátt.
Þegar farið var að vinna að gerð
sjónvarpsmyndaflokknum komust
aðstandendur hennar, að mörg
praktisk ljón voru á veginum. Þeir
vildu gera sannverðuga mynd, þeir
vildu ná fram hinn rafmögnuðu
stemningu sem hvílir yfir sögunni.
Þeir vildu líka bæta inn í nýjum
þáttum, sem tengdu myndina
nútímanum, þótt ekki væri þar
verið að víkja frá neinu sem
meginmáli skipti.
Margar senur voru nú teknar
inn sem sleppt var í kvikmynd-
inni, meðal annars áhrifamikið
samtal milli þeirra Karenar og
Wardens þegar hún skýrir frá því
að maður hennar hafi á sínum
tíma smitað hana af kynsjúkdómi
og það hafi kostað að gera varð á
henni móðurlífsaðgerð og upp frá
því hafi henni naumast fundizt
hún vera kona lengur. Einnig var
sleppt í kvikmyndinni, þegar
Prewitt og Maggio fara á fjörurn-
ar við kynvillinga til að ná í
peniriga, svo að Prewitt geti farið
á fund Lorene. Framleiðandi sjón-
varpsmyndaflokksins taldi rétt að
taka þetta með til að draga upp
mynd af því hversu lítillækka
mátti unga og óharðnaða menn og
þeirra þrenginga sem þeir urðu
síðan að þola. í kvikmyndinni
búið að syngja sitt síðasta. Svo að
á endanum voru flíkur Natalie og
Kim gerðar úr silki, og þótt það
væri dýrara, kom það ekki ósvipað
út og reyon í mynd.
Síðan var að safna saman bún-
aði, allt frá hárburstum, upp í
riffla, vörubíla, legghlífar og her-
mannahatta. Gaumgæfilega var
hugað að því að rétt tónlist væri í
myndinni. Walter Scharf var
fenginn til að vinna upp úr
i SJÁ NÆSTU SÍÐU