Morgunblaðið - 08.06.1980, Side 2
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
upprunalegu stefi kvikmyndarinn-
ar og framleiðendur ákváðu einnig
að nota lagstúfa sem voru vinsælir
á þessum tíma, í nýrri útsetningu
þó.
Þjálfun leikaranna til að hegða
sér eins og atvinnuhermenn var
lögð í hendur sérfraeðinga. Hvorki
Devane, Railsback né Pantoliano
höfðu neina slíka þjálfun að baki.
Devane fór til Fort Ort að æfa sig
og Railsback og Pantoliano vörðu
hverjum morgni í þrjár vikur með
leiðbeinendum sínum og lærðu
hreyfingar.
Fyrverandi hnefaleikamaður
Denver Mattson var fenginn til
aðstoðar Railsback í hnefaleika-
senunum tveimur. í sjónvarps-
myndinni notaði Railsback ekki
staðgengil, eins og Montgomery
Clift hafði gert í myndinni. Önnur
senan var tekin í 40 stiga hita í
leikfimihúsi For McArthur. Hún
er nokkrar mínútur í sýningu, en
taka hennar stóð í tólf klukku-
stundir nánast þindarlaust.
Það tók tvo daga að mynda
árásina sjálfa. íbúar í grenndinni
böfðu verið látnir vita af væntan-
legu lágflugi véla á þessum slóðum
og leyfi varð að fá hjá bandarísku
flugumferöarstofnuninni, og sett-
ar takmarkanir á hversu lengi
vélarnar mættu íðka þetta lágflug
hvorn daginn. Atvinnuflugmenn
voru vitanlega fengnir til að
stjórna vélunum. Kvikmyndin fór
meðal annars fram úr þyrlum,
kvikmyndatökumennirnir voru
bundnir vel og tryggilega í opnar
þyrludyr og þaðan beindu þeir
vélum sínum. Alls konar tækni-
brellur voru síðan hafðar til í
sambandi við sprengjukast o.fl.
Nokkur atriði myndarinnar
voru loks kvikmynduð á Hawaii.
Ástæðan var meðal annars sú að
Railsback lenti í bílslysi og varð
að sauma í andlit honum og ekki
hægt að hafa hann með í neinum
atriðum fyrr en hann væri gróinn
sára sinna. Var flokkurinn með
skömmum fyrirvara fluttur til
Hawaii til að taka m.a. hina frægu
baðstrandarsenu. Kulik gerði
þessa senu langtum djarfari en í
kvikmyndinni eins og áður er sagt,
t.d. sviptir Warden sundbolnum af
Karenu, en í atriðinu í kvikmynd-
inni var Lancaster langtum sið-
prúðari í viðmóti sínu við Deborah
Kerr.
Þá fóru sex dagar á Hawaii í að
taka myndir í elzta hluta bæjar-
ins, þar sem gleðihúsin voru á
Warden og Karen í fyrstu ástarsenunni, sem aö vísu gekk ekki atburöalaust fyrir sig, þar sem litlu munaði aö ungur sonur
hennar kæmi aö þeim viö atlotin.
sínum tíma. Einnig var þar mynd-
uð lokasena myndaflokksins, þeg-
ar skip sígur frá landi með
nokkrar sögupersóna innanborðs.
Upphaflega hafði Jones látið við-
komandi aðila fara með lúxusskipi
frá ákveðnu skipafélagi, en það
hefur lagt af ferðir til Hawaii.
Flotinn lagði til tvo gamla tund-
urspilla úr heimsstyrjöldinni
síðari. Svo sígur skipið frá landi
og við sjáum þessar sögupersónur
standa við borðstokkinn og vitum
ekki hvað verður síðan. Skammt
frá — um hálfa mílu frá þeim stað
sem siglt var — var raunveruleiki
þessara daga — minnismerkið um
USSS Arizona sem var sökkt
þarna. Þar blaktir fáni dag sem
nótt til minningar um þennan
ægilega dag fyrir næstum fjörutíu
árum.
(h.k. tók saman)
Warden á tali viö Fatso
Judson, sem mjög kemur
viö sögu í þættinum í kvöld
vegna pyndinga hans og
ofsókna á hendur Prewitt.
Sumarstarf fyrir börn
og unglinga á Akureyri
ÆSKULÝÐSRÁÐ Akureyrar
hefur gefið út bækling til
kynningar á sumarstarfi
fyrir börn og unglinga 1980.
Leikja- og íþróttanámskeið
Æskulýðsráðs Akureyrar
hefjast 12. júní n.k. Nám-
skeiðin verða sem fyrr kynn-
ing á leikjum og ýmsum
íþróttagreinum. Ráðgert er
að hafa dansnámskeið í
Dynheimum fyrir alla flokka
á sumrinu. Einnig verður efnt
til kvöldvökuhalds, kvik-
myndasýninga og ferðalaga.
Náið samstarf verður haft við
skólagarða bæjarins um ferð-
ir og samkomuhald. Nám-
skeiðin standa yfir til 1. ágúst
og verða aðalstöðvarnar við
barnaskóla bæjarins. Skrán-
ing fer fram 12. júní við
Lundaskóla kl. 9, við Barna-
skóla Akureyrar kl. 10.30, við
Glerárskóla kl. 13 og við
Oddeyrarskóla kl. 14.30.
Námsgjald er 7.000 krónur.
Leikvellir
I sumar verða starfræktir
10 gæsluvellir, 3 allt árið. Þá
verða 3 starfsleikvellir opnir
þar sem börn geta smíðað hús
og fleira. í sumar verða þessir
vellir opnir alla virka daga kl.
9—12 og 14—17.12 boltavellir
og 25 almennir leikvellir
verða opnir í sumar. Umsjón-
armaður leikvalla bæjarins
er Jón B. Arason.
Reiðskóli Léttis
og Æskulýðsráðs
Akureyrar
Starfsemi Reiðskólans í
sumar verður þannig að nám-
skeiðin ná yfir lengri tímabil
en áður og verða þátttakend-
ur þá færri í einu. Fyrsta
námskeiðið hefst 19. júní,
annað 3. júlí en þriðja og
síðasta námskeiðið hefst 17.
júlí. Skráning og greiðsla
þátttökugjalds verður
fimmtudaginn 12. júní.
Dynheimar og fé-
lagsmiðstöð Lund-
arskóla
Dynheimar verða opnir í
allt sumar. Diskótek verða
flestar helgar og opið hús í
miðri viku.
Þá eru Dynheimar opnir
fyrir félög og félagasamtök
undir fundi og innanfélags-
skemmtanir. Forstöðumaður
Dynheima er Haraldur Han-
sen.
Félagsmiðstöðin í Lund-
arskóla verður ekki opin í
sumar sem funda- og
skemmtanaaðstaða fyrir
klúbba og félög.
Vinnuskóli Akur-
eyrar og skóla-
garðarnir
Vinnuskólinn hóf starfsemi
sína s.l. mánaðamót og verður
starfræktur til ágústloka. Að-
gang fá unglingar á aldrinum
13-15 ára.
Skólagarðarnir verða starf-
ræktir á tveimur stöðum í
bænum, í Glerárhverfi og
gömlu gróðrarstöðinni. Börn
á aldrinum 10—12 ára fá
aðgang að görðunum. Vinnan
felst í ræktun á algengum
grænmetistegundum og er
á Akureyri
s-'fns nm
uppskera barnanna laun fyrir
starfið.
Sumarbúðir
Þrjár sumarbúðir verða
starfræktar í nánd við Akur-
eyri, sumarbúðir Æ.S.K. við
Vestmannavatn, sumarbúðir
K.F.U.M. og K. við Hólavatn
og sumarbúðir Sjónarhæðar-
safnaðarins við Ástjörn. Inn-
ritun í búðirnar við Vest-
mannsvatn fer fram á skrif-
stofu Æskulýðsstarfs þjóð-
kirkjunnar og í búðirnar við
Hólavatn í kristniboðshúsinu
Zion. Fullbókað er á Ástjörn í
sumar.
Sundnámskeið,
golf og siglingar
Sundnámskeið hófust í
Sundlaug Akureyrar 27. maí
s.l. og er ætlað börnum 6 ára
og eldri.
Námskeiðin í golfi fara
fram að Jaðri þrisvar í
sumar, 23. maí—2. júní, 20.
júní—30. júní og 8. ágúst—18.
ágúst. Kennari verður Þor-
valdur Ásgeirsson. Innritun
fer fram í Sport- og hljóð-
færaversluninni.
Siglinganámskeið á vegum
Nökkva, félags skemmtibáta-
eigenda, hefst í byrun júní við
bátaskýlið á Höfnersbryggju.
Kennd verður meðferð og
sigling á seglbátum, einfaldar
siglingareglur, varúð og við-
brögð við óhöppum á sjó og
umhirða búnaðar.
íþróttir
Þá er í bæklingnum þess
getið að íþróttabandalag
Akureyrar fer með hóp á
Íþróttahátíð ÍSÍ í Reykjavík
26.-29. júní n.k. Að lokum er
getið æfinga íþróttafélaganna
í bænum, K.A., Þórs og Sund-
félagsins Óðins.