Morgunblaðið - 08.06.1980, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
37
ókomnar plötur
frá útlöndum
Eins og fram hefur komið áður
hefur biðin eftir nýrri Rolling
Stones plötu enn lengst og alls
endis óvíst hvenær „Emotional
Rescue" kemur út en hún er ekki
lengur á áætlunum hjá EMI.
Bruce Springsteen er jafn
skemmtilegur, hans plata hefur
verið væntanleg jafnlengi, en hann
á víst orðið upptekið efni á einar
fimm breiðskífur, en ekkert tilbúið.
Hvað um það, vinsælasta erlenda
hljómsveitin á íslandi um langt
skeið hefur verið Queen, en plata
frá þeim er aftur á móti væntanleg.
Mun hún heita „Game“ en á henni
verða síðustu tvær litlu plöturnar
þeirra, „Crazy Little Thing Called
Love“ og „Save Me“ auk nýju litlu
plötunnar „Play The Game“. Roxy
Music er líka með nýja sem er
komin út „Flesh And Blood" en á
henni er nýja vinsæla lagið þeirra
„Over You“.
Carlos Santana hefur undanfarið
verið að taka upp „digital" upp-
tekna plöötu. Þessi plata verður
ekki með Santana hljómsveitinni
sem slíkri þó Graham Lear, Arm-
ando Peraza, Raul Rekow, og David
Margen verði á plötunni. En auk
þeirra leika Herbie Hancock, Ron
Carter, Tony Williams, Harvey
Mason og Russell Tubbs, allt
þekktir jazzistar, með á plötunni og
Herbie eitt af aðalhlutverkunum.
Hljómleikaplötur eru orðinn
fastur liður. Meðal þeirra sem
væntanlegir eru með hljómleika-
plötu má nefna Kinks, en plata
þeirra hefur reyndar tafist vegna
gerðar „video" myndar sem á að
koma á markaðinn um leið. Sup-
ertramp Live hefur verið væntan-
leg um nokkurt skeið og þess má
geta að Pink Floyd hafa verið í
stúdíó að fínpússa hljómleikaupp-
tökur.
Mike Oldfield er að koma með
nýtt meistaraverk „Airborn" og
Peter Gabriel með sína þriðju
plötu sem heitir eins og hinar tvær
fyrri „Peter Gabriel".
Þess má einnig geta að platan
hans Jackson Browne er nú tilbúin
en ár og dagar eru síðan hann gaf
út stúdíóplötu.
„McCartney 11“ er nú komin í
fyrsta sætið í Bretlandi og ætti að
koma hingað í vikunni ef hún er
ekki þegar komin þegar þetta
birtist.
Búist er við nýrri Bob Dylan
plötu um mánaðamótin júní-júlí en
hann er þegar búinn að taka hana
upp með sama liði og aðstoðaði
hann á „Slow Train Coming" í
fyrra.
Alice Cooper er heldur ekki með
öllu dauður því hann er kominn á
lista með „Flush For Fashion",
nýja breiðskífu. Og að lokum þá
vantar enn „The Official Bootleg"
plötu Blues Band, sem er öldunga-
hljómsveit, skipuð Paul Jones og
Tom McGuinness úr gömlu Man-
fred Mann, auk Hughie Flint, Dave
Fletcher og Dave Kelly, en þeim
hefur vegnað vel undanfarin ár í
spilamennsku í London, og verða
meðal þeirra sem koma fram á
Knebworth 21. júní næstkomandi.
— HIA
Stuðmenn — Egill og Sigurður í stúdíóinu.
Stuðmannaplöturnar
tvær endurútgefnar
í lok þessa mánaðar
eða byrjun næsta mánað-
ar er endurútgáfa Stuð-
mannaplatnanna,
„Sumar á Sýrlandi“ og
„Tívolí“ væntanleg.
Munu þær verða gefnar út
saman í albúmi í þetta
sinn og er verið að
hanna nýtt albúm.
Þess má geta að
síðsumars er búist við því
að upptökur á enn einni
íslensku kvikmyndinni
hefjist, en hún'á einmitt
að heita „Tívolí“ og
munu lög Stuðmanna
verða notuð í þeirri mynd
bæði gömul og ný, en
Stuðmenn komu einmitt
saman í vetur og tóku
prufur af nokkrum laga-
hugmyndum sem eiga
eflaust eftir að birtast.
í Stuðmönnum í þess-
um nýju lögum verða
Jakob Magnússon, Egill
ólafsson, Valgeir Guð-
jónsson, Sigurður Bjóla,
Tómas Tómasson, Þórður
Árnason og Ásgeir Ósk-
arsson.
Útgefandi endurút-
gáfunnar er Steinar hf.,
en þeir eru einnig að
endurútgefa 4 „bílaspól-
ur“ með 20 vinsælustu
lögum útgáfunnar og
tengdra útgáfa, á hverri.
- HIA.
Málning og málningarvörur
Veggstrigi
Veggdúkur
Veggfóöur
Fúavarnarefni
Bondex, Solignum, Pinotex, Architectural.
Afsláttur
Kaupir þú fyrir: Kaupir þú umfram
30—50 Þús. jaq/ veitumvið IU /0 50 bús. jpq< veitum við 10/0
atslátt. afslátt.
Sannkallað LITAVERS kjörverð
Ertu að byggja, viltu breyta, þarftu að bæta?
Líttu viö í Litaveri,
því þaö hefur óvallt
borgað sig.
Grensésvegi, Hreyfilshúsinu. Simi 82444.