Morgunblaðið - 08.06.1980, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
41
Frá lögreglunni:
Vitni vantar
að ákeyrslum
SLYSARANNSÓKNADEILD
lögreglunnar i Reykjavík hefur
beðið Morgunblaðið að auglýsa
eftir vitnum að eftirtöldum
ákeyrslum i borginni.Þeir, sem
geta veitt upplýsinar um málin,
eru beðnir að snúa sér til deildar-
innar i sima 10200.
Miðvikudaginn 28. maí s.l. var
tilkynnt að ekið hefði verið á
bifreiðina R—3144, sem er Mitsu-
bitshi Colt, blá að lit. Mun hafa
átt sér stað frá morgni þess 22. 5.
s.l. fram að kvöldi þess 27. 5. s.l. á
Óðinstorgi. Skemmd á bifr. er á
afturhöggvara vinstra megin.
Miðvikudaginn 28. 5. s.l. var ekið
á bifreiðina G—14065, sem er
Mazda fólksbifreið 616 ljósgræn
að lit á bifreiðastæðinu við Lág-
Sigurjón kos-
inn forseti borg-
arstjórnar
BORGARSTJÓRN kaus á fundi
sínum á fimmtudagskvöldið í ýmis
ráð og nefndir á vegum borgarinn-
ar. Forseti borgarstjórnar var
kosinn Sigurjón Pétursson, 1.
varaforseti Björgvin Guðmunds-
son og 2. varaforseti Kristján
Benediktsson. Þegar kosið var um
1. varaforseta gerðist það að
endurtaka þurfti kosninguna þar
sem Björgvin Guðmundsson fékk
ekki nægan stuðning í fyrstu
tilraun. Þá var kosið í borgarráð
og hlutu þessir kosningu sem
aðalmenn: Sigurjón Pétursson,
Björgvin Guðmundsson, Kristján
Benediktsson, Birgir ísl. Gunn-
arsson og Albert Guðmundsson.
Varamenn voru kosnir þau Adda
Bára Sigfúsdóttir, Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, Guðrún Helgadóttir,
Davíð Oddsson og Magnús L.
Sveinsson.
Happdrætti
Gusts
DREGIÐ hefur verið í happdrætti
Hestamannafélagsins Gusts í
Kópavogi og kom hestur á miða
nr. 1386, 21 dags sólarlandaferð á
nr. 2274, 7 daga sólarlandaferð á
nr. 176, beizli á nr. 1805 og 2482.
Númer þessi eru hér birt án
ábyrgðar.
Tefla í Kaup-
mannahöfn
TVEIR ungir skákmenn, Lárus
Jóhannesson og Páll Þórhallsson
munu innan skamms taka þátt í
sterku skákmóti í Kaupmanna-
höfn. Piltarnir, sem báðir eru 15
ára gamlir hafa unnið mikið
sjálfboðaliðastarf fyrir Skáksam-
band íslands við útgáfu mótsblaða
og er sambandið að verðlauna þá
með því að senda þá á mótið.
AKilASIM. \
SIMINN EH:
múla nr. 9. Skemmd er á hægri
framhurð og er grænn litur í
skemmdinni. Átti sér stað frá kl.
15,45 til 19,25.
Fimmtudaginn 29. 5. s.l. var
ekið á bifreiðina Y—7595, sem er
Austin Allegro, grænsanseraður á
húsagötu við Réttarholtsveg nr.
69—79. Hægra framaurbretti er
skemmt. Átti sér stað frá kl. 20.45
til 23.00.
Föstudaginn 30. 5. s.l. var ekið á
bifreiðina R—56883, sem er Fíat
fólksbifreið rauð að lit, þar sem
bifreiðin var á stæði Iðnaðarbank-
ans við Lækjargötu. Átti sér stað
frá kl. 09.00 til 12.00. Vinstra
framaurbretti er skemmt, í 60—80
cm. hæð frá jörðu.
Sunnudaginn 1. 6. s.l. var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifreið-
ina R—65746, sem er Plymouth,
fólksbifreið hvít með ljósbrúnan
topp, þar sem bifreiðin var austan
við hús Ásbjarnar Ólafssonar í
Borgartúni. Átti sér stað til kl.
02.50 um nóttina. Hægri afturhurð
er skemmd á bifreiðinni.
Ágúst Geirsson
endurkjörinn
formaður fé-
lags simamanna
AÐALFUNDUR Félags íslenzkra
símamanna var haldinn 22. mai sl.
í frétt frá félaginu segir, að
formaður, Ágúst Geirsson hafi
flutt skýrslu framkvæmdastjórn-
ar fyrir árið 1979. „Kom í ljós að
veigamestu þættir í félagsstarf-
inu, auk launa og kjaramála voru,
endurskoðun reglugerðar um
starfsmannaráð Póst og síma-
málastofnunarinnar, erlent sam-
starf, fræðslustarfsemi, rekstur
sumarbúða og ýmis réttindamál
félagsmanna.
Gjaldkeri, Hermann Guð-
mundsson skýrði reikninga og er
fjárhagur félagsins góður, félags-
menn eru um 1230.
Á fundi Félagsráðs F.Í.S. sem
haidinn var 29. maí sl. var kosin
ný framkvæmdastjórn til næstu
tveggja ára.
Stjórnin er þannig skipuð:
Ágúst Geirsson, formaður, Þor-
steinn Óskarsson, varaformaður,
Jóhann L. Sigurðsson, ritari,
Bjarni ólafsson, gjaldkeri, Ragn-
hildur Guðmundsdóttir, með-
stjórnandi, Alexander Guð-
mundsson, 1. varamaður og Sigur-
björg Haraldsdóttir, 2. vara-
maður.“
m FISHER
toppurinn í dag
yðar er valið
T\
o o o o o o o
o o o o
\ I
I I
O::
O
o o
o
:-0
©
o
-o
o
o:
o o; o
D Q Q C
o o o
n o
o
n 0 é
Plötuspilari MT-6225 kr. 215.500.- Plötuspilari MT-6360
Timer , TR-3000 kr. 69.500,- Timer TR-3000
Tónsviðsjafnari EQ-3000 kr. 134.500,- Tónsviðsjafnari EQ-3000
Tuner FM-2121 kr. 169.500.- Tuner FM-2331
Magnari CA-2030 kr. 196Í00- Formagnari CC-3000
Kassettutæki CR-4120 kr. 214.500.- Kraftmagnari BA-6000
Samtals Kassettutæki CR-4170 Samtals
Jll
kr. 69.500.-
kr. 134.500.-
kr. 264.000.-
kr. 157.000.-
kr. 372.500,-
kr. 430.000,-
kr. 1.;
BORGARTÚNI 18
REYKJAVÍK SÍMI 27099
SJONVARPSBUÐIN
Þetta eru adeins tvö dæmi.
Að sjálfsögðu eru möguleikarnir
miklu fleiri frá FISHER ~