Morgunblaðið - 08.06.1980, Side 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
LHMmö® fM
GUDLAUGS ral
Aöalskrifstofa Brautarholti 2,
(áöur húsgagnaverzlun Reykjavíkur).
Símar: 39830, 39831, 22900.
Utankjörstaöaþjónusta
símar: 29962 og 29963.
--------------
Veitið okkur
stuðning •
ÚTFLUTNINGUR EFTIR
AFURE3AFLOKKUM
1881 1974
S/erömaeti,%
Hmt« TðHrædíiandbók «74
©JPB
Hvalveiöar skipta íslenzku þjóöina sára litlu
máli efnahagslega. Ennþá gefst tækifæri til aö
leggja þær niöur af sjálfsdáöum og halda
viröingu út á viö.
Viljum viö bíöa þar til okkur verður þröngvaö
til þess aö hætta?
SKULD
félag áhugamanna um hvalavernd,
Mávahlíö 30, Reykjavík. Sími 12829.
Kassettur
beztu kaup landsins
1 spóla 5 apólur
60 mínútur kr. 900 kr. 4000
90 mínútur kr. 1100 kr. 5000
Heildsölu
birgöir
jnri n H
VERSLIO I
SÉRVERSLUN
MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SiMI 29800 ^
Úr Reykjavíkurhðín. Yzt til hæjfri á myndinni er 22 feta fluiífisk-hátur. sem segir nánar frá í
greininni... vinsæiir rallbátar.
íslensku flugfisk-bát-
arnir vinsælir rallbátar
Suður í Vogum á Vatnsleysu-
strönd er plastbátaframleiðsla.
Þar eru framl. tvær gerðir af
fjölskyldubátum, 18 feta og 22
feta. Má segja að mjög svipað
lag sé á báðum stærðum og
nefnast þeir Flugfiskar. Bátarn-
ir eru sérstaklega eftirtektar-
verðir fyrir sjóhæfni sem stafar
fyrst og fremst af botnlaginu
sem að mínu mati er sérstaklega
vel hannað, en það eru Englend-
ingar, sem eiga heiðurinn af
þeirri hönnun. Ég sagði í fyrir-
sögn þessarar greinar að Flug-
fisk-bátarnir væru vinsælir
rall-bátar. Helstu ástæðurnar
fyrir jæim vinsældum eru hversu
sterkbyggðir þeir eru og geta
náð miklum hraða, burðarþol
mikið miðað við stærð, sem
kemur sér vel í rall-keppni á
löngum leiðum, svo sem um-
hverfis landið, þar sem jafn
langt er milli hafna og raun ber
vitni, sbr. leggurinn Vestmanna-
eyjar — Höfn í Hornafirði og
Siglufjörður — ísafjörður, sem
þýðir að mikinn eldsneytisforða
verður hver bátur að geta borið
til að ná milli hafna. Að auki búa
þessir bátar yfir sérlega mikilli
sjóhæfni miðað við stærð sína. í
fyrsta ralli umhverfis ísland
1978 kepptu 5 bátar, þar af tveir
22 feta Flugfisk-bátar, en þeir
náðu 1. og 2. sæti í þeirri keppni.
Svo 1979 kepptu tveir bátar, þar
af annar 22 feta Flugfisk bátur,
sem sigraði í þeirri keppni. Nú
1980 er ákveðið sjórall umhverf-
is landið, sem hefjast á laugar
daginn 5. júlí n.k. Lýkur eru á
mikilli þátttöku, gert er ráð fyrir
að 5-7 Flugfisk-bátar taki þátt í
þeim leik. Framieiðandi þessara
báta er Runólfur Guðjónsson. Ég
lagði fyrir hann nokkrar spurn-
ingar og þar á meðal hvar og
hvenær hann hefði fyrst leitt
hugann að þessari bátafram-
leiðslu. „Upphafið að henni var
að árið 1976 var ég staddur í
Batar
Umsjón HAFSTEINN
SVEINSSON
Southington á Englandi, kom
þar auga á 18 feta plastbát, sem
mér leist vel á og keypti hann á
staðnum, tengdi hann aftan í bíl
minn og dró hann norður allt
England og Skotland, alla leið
norður til Skrafster, sem er
norðarlega á Skotlandi, þar tók
ég bátinn um borð í Smyril, sem
sigldi með hann heim til íslands.
Eftir að hafa reynslusiglt bátn-
um hér heima og komist að raun
um sjóhæfni hans og kosti,
ákvað ég að far aftur út til
Englands í Broadfield verk-
smiðjurnar, sem framleiða þessa
báta. Gerði ég þar samning um
kaup á mótum af þessum 18 og
22 feta bátum. Ég vann svo um
mánaðartíma í þessari sömu
verksmiðju, til þess að kynna
mér plastbátaframleiðslu. Að
því loknu hóf ég svo bátafram-
leiðslu hér heima. Sendi Broad-
field verksmiðjan mér tækni-
fræðing sem starfaði hjá mér
um tíma á meðan fyrstu bátarn-
ir voru framleiddir. Ég hóf
framleiðslu mína á 18 feta bátn-
um, en strax næsta ár hófst
framleiðsla á þeim 22 feta, sem
ég tel vera mjög heppilega stærð
á fjölskylduþáti, þar sem hún
sameinar margakosti, svo sem
vel viðráðanlegur af og á vagn,
þó það stór að vel fer um
fjölskylduna í honum, svefnpláss
fyrir 2-4, vélastærð geta menn
ráðið, hvort sem er bensín- eða
díesel vél. í bátnum er handlaug,
eldavel og W.C. aðstaða. Þessa
báta er hægt að fá á mism.
framleiðslustigi. Aðeins er hægt
að taka við pöntunum í haust,
þar sem framleiðslukvóti fyrir
þetta sumar er fullur. Ekki er
lögð áhersla á fjöldaframleiðslu,
enda allir bátar Flugfisks hand-
lagðir í framleiðslu. Erlendis eru
það talin meðmæli með hverjum
báti, sem handlagður er, sem
tryggja á jafna þykkt. Flugfisk-
ur hefur nú framleitt nokkra
tugi báta af þessum gerðum, sem
nefnast Flugfiskur 1800 og Flug-
fiskur 2200.
Þetta er 18 feta Flugfisk-bátur með sitt ailsérkennilega en vei mótaða botniag, þvi fylgir sjóhæfni,
mýkt í sjó og styrkur. Ljósm. H.s.