Morgunblaðið - 08.06.1980, Page 16
4 8 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
VER#LD
HARÐSTJORAR
Þesrar Macias Nguema, ein-
hver grimmasti harðstjóri,
sem sögur fara af, var dæmd-
ur til dauða á síðast ári,
varaði hann landa sína við og
strengdi pess heit að snúa
aftur til þeirra — sem draug-
ur.
Með þessari hótun olli Mac-
ias þvílíkri skelfingu meðal
fyrrum þegna sinna í Mið-
baugs-Gíneu, að fæstir þeirra
voga sér að nefna hann á
nafn, en nota þess í stað ýmis
dulnefni eins og t.d. „hinn“
eða að þeir segja bara „forð-
um“ þegar átt er við stjórn-
artíð Maciasar. Hinn illi andi
Maciasar, sem ásamt Idi Am-
in og Bokassa skipaði harð-
stjóraþrenninguna sem
steypt var aí stóli á síðasta
ári, setur enn svip sinn á flest
í Miðbaugs-Gineu og þrátt
fyrir tilraunir nýju stjórn-
valdanna er landið í rúst að
heita má og hungur og sjúk-
dómar hrjá fólkið.
Þegar Miðbaugs-Gínea
komst undan yfirráðum Spán-
verja og varð frjálst og full-
valda ríki árið 1968 voru
lífskjör þar hvað best í allri
Afríku. Macias, sem almennt
var álitinn alvarlega geð-
bilaður, rak úr landi 40.000
Nígeríumenn, sem sáu um
kakóræktunina, og kippti á
þann hátt fótunum undan
helsta útflutningsatvinnuvegi
þjóðarinnar. Macias snerist
því næst gegn þeim, sem
einhverja menntun höfðu hlot-
ið, og myrti þá hvar sem til
þeirra náðist. Að því búnu tók
hann til við að uppræta Bubi-
ættbálkinnn, sem hann taldi
sér stafa hætta af, og hætti
ekki fyrr en hann hafði drepið
alls 150.000 manns. Macias
hafði sérstakt yndi af kvala-
fullum pyndingum og opinber-
ar aftökur voru á meðal helstu
stjórnarathafna hans.
Nguema: Rússunum mikið
áfall þegar honum var rutt úr
vegi.
Jafnvel í
gröfinni
vekur
hann enn-
þá ugg
í ágúst síðastliðnum var
Maciasi steypt af stóli og það
var frændi hans og varna-
málaráðherra í stjórn hans
sem það gerði, Teodoro
Nguema að nafni. Eftir stjórn-
arbyltinguna hafa íbúar Mið-
baugs-Gíneu gert sér far um
að má minninguna um harð-
stjórann burt úr huga sér og
er hvergi á hann minnst nema
í glugga upplýsingamálaráðu-
neytisins en þar er stór teikn-
ing af Maciasi í líki óargadýrs.
Á teikningunni er hann með
fangelsislykla og fyrir framan
hann er mannætupottur og
standa upp úr honum tvö
mannshöfuð.
Eins og fyrr segir má hvar-
vetna sjá afleiðingarnar af
stjórnartíð Maciasar. Glæsi-
legar spánskar byggingar frá
nýlendutímanum eru að hruni
komnar og rafmagnslaust er í
Malabo, höfuðborg landsins.
Bifreiðar eru fáar eftir í Mið-
baugs-Gíneu og það fólk, sem
enn býr í höfuðborginni, lifir
þar í eymd og volæði. Börnin
eru lifandi vitni um hungrið
og harðréttið, útblásnir magar
og tjásulegt hár. Á einu hefur
þó orðið breyting — fólkið er
frjálst, pyntingum hefur verið
hætt, pólitískum föngum
sleppt og skólar hafa tekið
aftur til starfa.
Stjórnarbyltingin í Mið-
baugs-Gíneu var Rússunum
mikið áfall. Þeir studdu Maci-
as sem þakkaði fyrir sig með
því að leyfa þeim að veiða
hömlulaust innan fiskveiði-
lögsögunnar. Það leyfi hefur
nú verið afturkallað og rússn^
esku togararnir eru farnir. í
gluggum rússneska sendiráðs-
ins eru enn myndir og munir í
tilefni af 110 ára afmæli
Leníns en starfsfólkið er hins
vegar flest á bak og burt.
Miðbaugs-Gínea á sem hæg-
ast að geta orðið sjálfri sér
næg um matvæli og orku og
talið er líklegt, að þar megi
finna olíu í jörðu. Ef rétt er á
málum haldið ættu íbúar
landsins að geta búið við betri
lífskjör en aðrir Afríkubúar.
— IAN MATHER.
NYJUNGAR
Nú geta menn skraf-
að við skjáinn ...
Japanlr hafa nú loksins ráðið gátuna um tölvuna talandi en á
mikilli vörusýningu i London nú nýverið sýndu þeir tölvusjónvarp
sem gat haldið uppi ófullkomnum samræðum við gestina og var laust
við að hljóma eins og það væri fullt af kvefi, eins og tölvunum hefur
hætt til.
Þegar Toshiba-fyrirtækið kom fyrst fram með tölvuna talandi á
rafeindatækjasýningu í Japan á síðasta ári, hreykti það sér af því að
röddin væri „þýð og kvenleg", en ekki voru allir á sama máli um það á
sýningunni í London. Að vísu er röddin „mannleg" og jafnvel „kvenleg",
en flestum þótti sem hún væri fremur „þóttafull" en „þýð.“ Hér er e.t.v.
því um að kenna hve enskan er ólík móðurmáli sjónvarpstðlvunnar,
japönskunni, en á þvi máli gat hún sagt „gerið svo vel að endurtaka
skipunina" þegar hún komst í bobba, en á ensku ráð hún aðeins við
„endurtakið."
Eins og fyrr segir er orðaforði sjónvarpstölvunnar ákaflega lítill og
raunar ræður hún aðeins við um 30 einfaldar skipanir eins og t.d.
„slökktu á tækinu,“ „rás þrjú, ef þú vilt vera svo væn“ og „hækkaðu
hljóðið." Annar mikill galli á gjöf Njarðar er sá, að tölvuna þarf að
stilla sérstaklega fyrir ákveðna rödd svo að önnur hljóð eða hávaði leiði
hana ekki afvega og af þeim sökum hefur hún ekki enn verið sett á
markað. Hvað sem því líður boðar þessi uppfinning breytta tíma: þann
dag þegar einkaritarinn og vélritunarstúlkan verða með öllu óþörf og
tölvan skráir samviskusamlega allt það sem herra hennar segir við
hana.
Toshiba-fyrirtækið, eins og önnur fyrirtæki í sömu grein, leggur
mikla áherslu á að fullkomna þessu uppfinningu. Taismenn fyrirtækis-
ins segja, að gerð hafi verið tölva, sem skráð getur allt, sem við hana er
sagt, en um nákvæmni hennar og áreiðanleik vilja þeir ekkert segja.
—PETER LARGE
Einkaréttur til
auðsöffnunar
„Sumir eru séðari en aðrir" var svar
frú Imeldu Marcos, er hún var spurð
um vini og ættingja, sem hafa
auðgast í skjóli heriagastjórnar
eiginmanns hennar á Filipsseyjum.
Svar hennar, sem í hugum marg-
ra hérlendis hefur gert hana að
ímynd hins óhefta kapítalisma, hef-
ur verið notað sem titill á heimild-
skjali, er gengur nú manna í
millum í hinni leynilegu andspyrnu-
reyfingu, en þar eru upp talin
útbreidd klókindi þeirra, sem njóta
velvildar forsetahjónanna.
Upphaflegar rannsóknir annaðist
fyrirtæki, sem var umhugað um að
forðast „viðkvæm svið“ efna-
hagslífsins, þar sem áhrifamiklir
aðilar gætu orðið fyrir aðkasti.
Lesning þessa plaggs hljómar
ýmist eins og „Hver er hvað“ í
fjármálalífi Filippseyja, gestalisti í
forsetaveislunum, eða ættartala
Marcos og Roumaldez fjölskyldn-
anna, en hið síðarnefnda var áður
ættarnafn Imeldu.
Herminio Disini, sem er giftur
frænku forsetafrúarinnar, læknir
hennar og golffélagi forsetans, lítur
út fyrir að vera sá séðasti hinna
séðu.
Hann er endurskoðandi og stýrir
Herdís stjórnunar- og fjárfest-
ingarfélaginu, en það á meirihluta í
37 fyrirtækjum, sem spanna allt frá
olíuefnaiðnaði og líftryggingum til
umboðsstarfsemi fyrir nokkur
veigamikil erlend fyrirtæki.
Mesta lán hans var árið 1975,
þegar Marcos gaf út forsetatilskip-
un nr. 750, en með henni var lagður
100 prósent tollur á hráefni til
breskra og bandarískra tóbaks-
framleiðenda.
Hinn innlendi samkeppnisaðili
þeirra, Filtersígarettufélag Filipps-
eyja, sem er í eigu Disinis og hafði
byrjað sem smáskrifstofa með ein-
um ritara og sendisveini, hélt áfram
að greiða hinn venjulega 10 prósent
toll. Á einni nóttu náði Disini allt að
því einokunaraðstöðu í filteriðnað-
inum — og ágóða, sem er áætlaðun
ein milljón dollara á mánuði eða
hálfur milljarður ísl. króna.
Eitt dótturfyrirtæki Herdis-
samsteypunnar er umboðsaðili fyrir
Westinghouse-félagið, sem náði
samningum um að reisa tvo 600
megawatta kjarnaofna á Filippseyj-
um í samkeppni við General Electr-
ic.
Tilboð General Electric hljóðaði
upp á 175 milljarða ísl. króna fyrir
að reisa hvorn kjarnaofn. Verðið hjá
Westinghouse var 550 milljarðar
fyrir einn 620 megawatta ofn.
Sagt er, að umboðslaun og þóknun
Disinis fyrir „aðstoð við að ná
samningnum og þjónustu við að
koma honum í framkvæmd" hafi
numið sautján og hálfri milljón ísl.
króna. Annað dótturfyrirtæki Her-
dis var skráð sem aðalundirverktaki
framkvæmdanna. Enn annað sá um
tryggingarnar.
Varnarmálaráðherrann, Juan
Ponco-Enrile, hefur verið í hópi
nánustu samstarfsmanna Marcos
síðan í hinni vel heppnuðu kosn-
ingaherferð hans árið 1965. Hann
heldur embættinu, enda þótt hann
hafi tapað sæti sínu í öldungadeild-
inni í síðustu kosningum, sem
haldnar voru, áður en herlögum var
lýst yfir árið 1972.
Með því að beita hernum til að
ryðja úr vegi „ólöglegum" tréiðnað-
arfyrirtækjum, hefur Enrile nú
eignast sjö fyrirtæki í þessum
iðnaði.
ítök hans í kókoshnetuiðnaðinum
fyrir tilstilli Kókoshnetustjórnar
Filippseyja, sem lýtur stjórn vinar
hans, Felix Duenas höfuðsmanns,
eru öllu vafasamari.
Fram til þessa hefur engum tekist
að komast að því, hvað varð um 100
milljarða króna, sem teknar voru af
bændum á ári hverju í formi skatta
og lagðar í banka.
Dr. Pacifico Marcos, yngri bróðir
forsetans, er formaður Sjúkrasam-
lagsráðsins, sem fær skyldubundið
framlag frá öllum launþegum. Hann
á hlut í 23 fyrirtækjum í náma-
Marcos: ekki amalegt að eiga
hann fyrir ættingja.
rekstri, útgáfustarfsemi og hótel-
rekstri.
Móðir forsetans, Josefa, stendur í
skipaútgerð, timburviðskiptum og
matvælaframleiðslu. Pio Marcos