Morgunblaðið - 08.06.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
51
Sterkt og tvísýnt
hel garskákmót
ÖFLUGASTA skákmót, sem
haldið hefur verið hér á landi,
með innlendri þátttöku einKöngu
lýkur í dag í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja í Keflavík. Meðal
þátttakenda eru tveir stórmeist-
arar, þrír alþjóðlegir meistarar,
og ísiandsmeistarinn auk fleiri
nafnkunnra skákmeistara. Hörð
barátta er því um verðlaunasætin
þrjú, en fyrstu verðlaun eru
300.000 krónur, önnur verðlaun
200.000 og þriðju 100.000. Eftir
fyrstu tvær umferðirnar voru tíu
skákmenn efstir og jafnir, þeir
Friðrik ólafsson, Guðmundur
Sigurjónsson, Helgi ólafsson,
Jón L. Árnason, Margeir Péturs-
son, Jóhann Hjartarson, Ásgeir
Þ. Árnason, Sævar Bjarnason,
Hilmar Karlsson og Kári Sól-
mundarson, allir með tvo vinn-
inga.
Einn og hálfan vinning hefur
Guðmundur Ágústsson hlotið og
einn vinning hafa þeir Benóný
Benediktsson, Stefán Þormar,
Tómas Marteinsson, sem er efstur
heimamanna, og Halldór Einars-
son, sem kom alla leið frá Bolung-
arvík ásamt tveimur öðrum til
þess að taka þátt í mótinu.
Lokauppgjörið verður því án efa
mjög spennandi, en síðustu tvær
umferðirnar verða tefldar í dag,
sunnudag, sú fyrri kl. níu f.h. og
hin síðari kl. tvö e.h.
Tímaritið Skák, sem gengst
fyrir mótinu, hefur í hyggju að
halda fleiri slík helgarmót í
sumar, hið næsta væntanlega á
Bifröst í Borgarfirði. Hvert mót
gefur síðan þátttakendunum
ákveðna punkta eftir árangri
þeirra og sá sem verður efstur
eftir sumarið fær sérstök verð-
laun, eina milljón króna, þannig
að á mótinu í Keflavík er einnig
verið að bítast um dýrmæta
punkta auk hinna fyrrgreindu
verðlauna. Tíu efstu menn á
hverju móti fá punkta fyrir
frammistöðu sína.
Mótsstjóri er Jóhann Þórir
Jónsson, ritstjóri tímaritsins
Skákar, en verðlaunin veita bæj-
arfélögin á Suðurnesjum. í fyrstu
umferðinni átti sér stað mjög
umdeilt atvik í skák þeirra Jóns L.
Árnasonar og Tómasar Marteins-
sonar þannig að til kasta móts-
stjórans kom. Jón átti 13 mínútur
eftir og hafði biskup og riddara
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
U M.YSIM, \
SIMIW KK:
22480
Skák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
gegn berum kóngi Tómasar, sem
hafði aðeins u.þ.b. fjórar mínútur.
Þvingað mát er til í stöðunni, en
Jóni fórst taflið svo óhönduglega
þannig, að í þann mund er honum
hafði tekist að flækja kóng Tóm-
asar í mátnet, féll hann á tima, en
tókst þó að máta í sama leik. Ljóst
var að kiukkan hafði fallið aðeins
á undan og deilt var um hvort ætti
að gilda, fallið eða mátið.
Slík atvik eru auðvitað sára-
sjaldgæf í kappskák og ekkert í
skáklögunum til að styðjast við.
Úrskurður Jóhanns Þóris var hins
vegar skýr, mátið gilti og byggði
hann þann úrskurð sinn á því að
skákklukkan væri aðeins hjálpar-
tæki, sem enga þýðingu hefði ef
úrslit fengjust á borðinu sjálfu.
Tímamörkin á mótinu eru all-
sérstæð. Fyrst eru tefldir 30 leikir
á einni og hálfri klukkustund, en
síðan þarf að ljúka skákinni á
hálftima, þannig að það er ljóst að
úrslit margra skáka koma til með
að ráðast í hatrömmu tímahraki.
Þegar þetta er ritað höfðu engin
óvænt úrslit orðið, en í fyrstu
umferð velgdi einn af yngstu
keppendunum, Júlíus Sigurjóns-
son, Jóhanni Hjartarsyni heldur
betur undir uggum:
Svart: Jóhann Hjartarson.
Hvítt: Júlíus Sigurjónsson.
12. Bxe5! - dxe5, 13. Rxe5
Ddfi, 14. Rxf7! - Kxf7, 15. He6
- Db8, 16. dfi - Bxdfi, 17. Df3!
(Leikur, sem margur reyndur
meistarinn hefði mátt vera hreýk-
inn af). — Kf8,18. Hxf6+ — gxf6,
19. Dxí6+ - Ke8, 20. Dxh8+
(Nákvæmari var milliskákin 20.
Bb5+ — Rc6, og nú 21. Dxh8+ —
Kd7, 22. Dxh6 með mjög góðum
vinningsmöguleikum). 21. Dh7+ —
Kc6, 22. De4+ - Kb6, 23. a4 -
De8, 24. a5+ - Kc7, 25. Dh7+ -
De7,26. Dxh6 - De5,27. Dh7+ -
De7, 28. Df5? (Hvítur hafði eytt
mestöllum tíma sínum á fórnina í
12. leik og var nú kominn í
geigvænlegt tímahrak. Hann hafði
enn haft betra endatafl eftir 28.
Dxe7+ - Bxe7, 29. c3). - Hf8, 29.
Dg4? - De5,30. Hdl - Dh2+, 31.
Kfl - He8, 32. Be6 - Rxc2, 33.
Dg6 — Rd4 og hvítur gafst upp.
Þetta sígilda fléttustef kom upp
í annari umferð:
Svart: Pálmar Breiðfjörð.
Hvítt: Margeir Pétursson.
19. Rf5! og svartur gafst upp.
Hann er mát eftir 19. — Rxh6, 20.
Rxh6.
Maralunga
Maralunga sófasettiö víðfræga eftir Vico Magistretti og sófasett í úrvali.
Kynniö ykkur greiösluskilmála okkar.
Borgartuni 29 Simi 20640