Morgunblaðið - 08.06.1980, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
53
í austur-þýskum blöð-
um eru fréttir af auknum
hernaðarumsvifum á
Persaflóa eins og í blöð-
um annars staðar. en þær
koma neðst á fimmtu
síðu. í Afganistanmálinu
hafa blöðin haldið sig við
sovésku línuna, í málefn-
um írans eru þau var-
færnisleg, næstum skeyt-
ingarlaus.
Gíslarnir eru ekki
gíslar, heldur „starfs-
menn í haldi“. Hótanir
Carters eru ofstopi
heimsvaldasinna, and-
spyrnumenn og jafnvel
keisarinn sleppa með litl-
ar skammir.
Þannig er mál með vexti að
heppnin var með Austur-þýska
alþýðulýðveldinu hvað viðkemur
íran. í Austur-Berlín stóð heim-
sókn keisarans fyrir dyrum þeg-
ar fyrstu stúdentauppþotin hóf-
ust í Teheran. í Neues Deutsch-
land hafði þegar birst viðtal þar
sem keisarinn var sífellt ávarp-
aður „yðar keisaralega hátign".
Sæma átti keisarann heiðurs-
doktorsnafnbót við Humboldt
háskólann. Hann frestaði heim-
sókninni á elleftu stundu.
Víða heyrist útvarp frá Vest-
ur-Þýskalandi og vestur-þýskt
sjónvarp nær til % hluta lands-
ins þar sem \ hlutar fólksins
búa, á kvöldin er mest horft á
það.
En fréttirnar eru um deilur í
fjarlægum heimshornum. Það
hefur alltaf verið að koma upp
hættuástand í heiminum. Þriðja
heimsstyrjöldin er ekki yfirvof-
andi, það verður engum sprengj-
um varpað.
THE OBSERVER
Peter Freund
Allar þær frétt-
ir — sem f alla
að f lokkslínunni
Peter Freiind er dul-
neíni þekkts austur-
þýsks rithöíundar. Nafni
hans er haldið leyndu af
stjórnmálaástædum.
SÉÐ inn i Austur-þýska alþýðulýðveldið yfir Berlinarmúrinn
illræmda. Þar héldu ráðamenn fyrir skemmstu upp á 30 ára afmæli
rikisins og notuðu tækifærið til að láta „dást að sér i blöðum — og
hrósuðu sjálfum sér um leið“.
Þannig mundu 80% fólks
svara ef blaðamenn frá Vestur-
löndum gerðu skoðanakönnun,
því Austur-Þjóðverjar hafa
nærtækari áhyggjuefni, það hef-
ur dregið mjög úr framboði á
vörum og þjónustu á undanförn-
um sex mánuðum.
Haldið var upp á 30 ára
afmæli Austur-þýska alþýðulýð-
veldisins fyrir skömmu. Leiðtog-
ar flokks og ríkisstjórnar létu
dást að sér í blöðum (og hrósuðu
sjálfum sér um leið). Næstum
um leið rauk verðlag upp. Það
var ekki húsaleiga, brauð og
aðrar lífsnauðsynjar sem hækk-
uðu, enn er hægt að fá hræódýrt
húsnæði, heldur voru það vörur
eins og sængurfatnaður og hand-
klæði. Hækkunin var þreföld.
Hvar sem þessi varningur er á
boðstólum myndast biðraðir.
Hillurnar tæmast á hálftímav 1
blöðunum er skrifað um verð-
hækkun á baðmull á heimsmark-
aði, rússnesk baðmull er þar
orðalaust innifalin. En ekki er
minnst á verðhækkanir á þess-
um vörum í verslunum.
Kjöt. Enn geta Austur-Þjóð-
verjar ekki farið í kjötverslun og
sagt við sjálfa sig: „í dag ætla ég
að fá tungu eða kótilettur eða
lambalæri". Menn verða að taka
það sem býðst. Það er alltaf
eitthvað til, en það hefur dregið
mikið úr úrvalinu, Feitt kjöt af
gömlum rollum, súpukjöt af
nauti, ókræsilegir hænsnakjöts-
bitar, bacon er selt undir borðið.
Ef fólk langar í almennilegan
kjötbita þarf að eyða klukku-
tíma í að hafa upp á honum.
Margt af því þesta sem fram-
leitt er í landinu er selt til
Vesturlanda fyrir harðan gjald-
eyri, þessi skrýtla er sögð í
Austur-Þýskalandi: Svínum er
ekki lengur slátrað, þau eru
sprengd í loft upp. Kjötið lendir
á Vesturlöndum, beinin í Pól-
landi en skíturinn verður eftir
hjá okkur.
Þeir sem eiga bíla, og þeir eru
þó nokkrir, eru á sífelldum
hlaupum eftir varahlutum. Bílar
eru ónothæfir vikum saman af
því að það vantar rafgeymi,
dekk, eða kannski hljóðkút, oft
er um hreina smámuni að ræða.
Bíleigendur komast þó a.m.k.
út úr bænum. Aður komust þeir
fátækari með áætlunarvögnum á
ferðamannastaði, eða til að
skoða kastala og söfn. Nú hefur
verið dregið úr áætlunarferðum.
Svona ófélagslegur eldsneytis-
sparnaður kemur harðast niður
á gamla fólkinu og ungu barna-
fólki. Hinir sterkari og snjallari
eru betur settir.
Fyrir skömmu var áætlunar-
flugi innanlands hætt, landið er
>kki nógu stórt til að það þættl
verjandi. En jafnframt var hætt
ferðum með áætlunarbílum úr
þorpum á leiksýningar í borgum,
það var vafasamur sparnaður á
menningarsviðinu.
Gullverð sjöfaldaðist í einni
svipan, silfurverð ellefufaldað-
ist. Hver áhrifin verða í tann-
lækningum vitum við enn ekki.
Ekki hefur verið minnst á þetta í
blöðunum. En á forsíðunum gat
að líta áhrifamiklar hvatningar
um að auka framleiðsluna, og
leggja á sig meiri ólaunaða
yfirvinnu.
Þar sem fólk hittist er ekki
talað um hættuna á þriðju
heimsstyrjöldinni, heldur um
vöruskort og verðlag. „Mig vant-
ar bor.“ „Áttu handlaug?" „Dótt-
ir mín er trúlofuð pípulagn-
ingamanni, hann gæti...“ „Áttu
sement?" „Áttu kók?“ „Ég þekki
mann sem er með leðurjakka
(eða vantar jakka, breytir þeim
eða skiptir á þeim ...)“
Þannig er talað. Nei, kjarn-
orkustríð er ekki yfirvofandi.
Aðstoð við Nicar-
agua samþykkt
Washinjíton, 6. júní. AP.
FULLTRÚADEILDIN banda-
ríska samþykkti í gær, fimmtu-
dag, að veita Nicaragua 53,7
millj. dollara í aðstoð og er það
hluti af 5,2 milljarða dollara
aðstoð við erlend ríki.
Aðstoðin við Nicaragua hefur
valdið nokkrum deilum í Banda-
ríkjunum og hefur sumum þing-
mönnum þótt Sandinistahreyfing-
in í Nicaragua draga fullmikið
dám af Kastró og kommúnistum.
Það sem einkum er talið hafa
valdið sinnaskiptunum á þingi er
skipun Arturo Cruz í herforingja-
stjórnina í Nicaragua, en hann er
maður hófsamur og talaði máli
Nicaragua við þingmenn úr full-
trúadeildinni og öldungadeildinni
fyrr í þessari viku.
Ekkja Amendola
látin
Róm. fi. júní. AP.
í DAG lést í Róm Germaine
Amendola, ekkja Giorgio Amend-
ola, íyrrv. formanns ítalska
kommúnistaflokksins, aðeins sól-
arhring eftir að maður hennar
féll frá.
Germaine var stödd í Villa
Gina-sjúkrahúsinu þegar dauða
hennar bar að en lík manns
hennar lá þar á líkbörunum.
Sandro Pertini, Ítalíuforseti,
hraðaði sér strax á vettvang til að
votta aðstandendum hinnar látnu
virðingu sína.
Meir Kahane
í fangelsi
Jerúsalcm, 6. júní. AP.
MEIR Kahane, stofnandi Varn-
arráðs Gyðinga og leiðtogi hinn-
ar öfgafullu Kack-hreyfingar í
ísrael. var í dag fluttur aftur í
fangelsi eftir að gæsluvarðhalds-
úrskurður yfir honum hafði verið
staðfestur.
Kahane sagði fréttamönnum, að
hann vonaðist til að Gyðingar
hefðu staðið fyrir sprengjutilræð-
unum sl. mánudag, þegar arab-
ískir borgarstjórar í Nablus og
Ramallah slösuðust alvarlega.
matar-og kafíistell
CORDA. nýtt matar- og kaffistell.
Hönnuðurinn HERTHA BENGTSON er
sænsk og tekst henni hér mjög vel að sam-
eina léttleika og dæmigert skandinavískt
útlit. Nýjungar. svo sem lengri börð á diskum
og skálum, falla vel að heildarsvip og auka á
notagildi.
CORDA er eldfast og hentar vel til notkunar
í örbylgjuofnum.
CORDA er fagurt og notadrjúgt matar- og
kaffistell. HERTA BENGTSON hefur einnig
hannað dúka. diskamottur. servíettur 09
serviettuhringi í stil við CORDA.
Gullfalleg Rosenthal vara. —
matarstell í drapplitu. rauðu
eða gulu.
SCANDIC stellið sameinar
gæðaframleiðslu. fallega
hönnun og frábæran stíl.
SCANDIC stelliö er kjörið fyrit
þá sem kunna að meta fagra
hluti og notadrjúga.
SCANDIC er dæmigerð vara
frá Rosenthal.
ARCTA ER AÐDAUNARVERT
ARCTA matar- og kaffistellið
vekur óskipta athygli og aðdáun
hvar sem það sést; — fyrir fal-
legar línur, fráþæra hönnun og
skemmtilega áferð.
ARCTA fæst aðeins hjá okkur.
Nýja línan í matar- og kaffistellum
frá Thomas er Holiday. Holidayer
sérlega létt og meðfærilegt
og þess vegna á allan hátt
notadrjúgt við hvers kyns heimilishald
Leikandi létt og hrífandi þannig
er Holiday alveg eins og sumar-
fríið á að vera
Svo við minnumst á veðrið. — nei
verðið þá er það sérlega hag-
stætt Komið og skoðið Holiday.
studio-line
A. EINARSSON & FUNK
Langavegi 85
SÍMI18400