Morgunblaðið - 08.06.1980, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
55
Fyrstu matartæknarnir
FYRSTU matartæknarnir,
sem útskrifaðir eru hér á
landi voru brautskráðir ný-
vcrið af „Hússtjórnar- og mat-
vælasviði“ Fjölbrautaskólans
í Breiðholti. Nemendurnir
voru tveir og er þetta nám
nýjung i islenska fræðslukerf-
inu, en á sér hliðstæður á
hinum Norðurlöndunum.
Fram að þessu hefur töluvert
borið á skorti á sérmenntuðu
fólki til að sinna þeim störf-
um, sem matartæknum er
einkum ætlað að sinna.
Nám matartækna er tveggja
ára nám í Fjölbrautaskólanum
auk 34 vikna starfsþjálfunar í
mötuneytum sjúkrastofnana og
víðar, sem lýkur með hæfnis-
könnun, sem metin er af matar-
fræðingum. Markmið námsins
auk almennra bóknámsgreina,
er að veita nemendum þekkingu
og þjálfun í matreiðslu og
öðrum þeim þáttum, er tengjast
næringar og hollustuháttum,
neytendafræði, vinnuskipulagi,
stjórnun o.fl., þannig að mat-
artæknar geti veitt forstöðu
mötuneytum skóla, barnaheim-
ila og líkra stofnana.
Þess má geta að nám í
hússtjórnargreinum á fram-
haldsskólastigi og viðurkennd
starfsþjálfun fæst metin til
styttingar á námsbrautinni.
Matartæknar eiga kost á fram-
haldsnámi við Hússtjórnar-
kennaraskóla íslands og hafi
viðkomandi stúdentspróf er
einnig möguleiki á framhalds-
námi við Kennaraháskóla ís-
lands eða Háskóla íslands.
Matartæknarnir tveir, sem
voru útskrifaðir að þessu sinni
heita Ásdís Guðmundsdóttir, til
hægri á m.vndinni, og Auður
Björk Ásmundsdóttir. Auður
vinnur nú sem aðstoðarmat-
ráðskona Dvalarheimilis Sjálfs-
bjargar og Ásdís er aðstoðar-
matráðskona við sumarafleys-
ingar í eldhúsi Vífilstaðaspít-
ala, en hun hyggur á fram-
haldsnám næsta haust.
Gestir frá Bahamaeyjum
skoðuðu Morgunblaðið
tsland og Bahamaeyjar hafa á
síðustu árum tengst saman með
sérsta'ðum hætti. Er þar um að
ræða flugfélagið Air Bahama,
sem er I eigu Flugleiða hf. en
félagið heldur uppi flugi milli
Bahamaeyia og Luxemborgar.
íbúafjöldi Isiands og Bahamaeyja
er áþekkur en íbúar Bahamaeyja
eru þó heldur fleiri eða um 250
þúsund, en íslendingar eru nú
rúmlega 226 þúsund. Alls eru
Bahamaeyjar taldar um 700 en af
þeim eru aðeins 16 byggðar.
í síðustu viku komu hingað til
lands þrír fulltrúar frá Bahama-
eyjum til viðræðna við forstjóra
Flugleiða hf. um núverandi stöðu
og framtíð ferðamála á Bahama-
eyjum en stærstur hluti tekna
íbúa Bahamaeyja eru tekjur af
ferðamönnum. Forráðamenn
Flugleiða hf. hafa verið hlynntir
því að íbúar Bahama eignuðust
hlut í Air Bahama en að sögn
Sveins Sæmundssonar, blaða-
fulltrúa Flugleiða hf. verður ekki
af því alveg á næstunni.
Þremenningarnir, sem hingað
komu í síðustu viku höfðu hér
aðeins viðdvöl í tæpa tvo daga en í
hópi þeirra var Mark Bethel,
ritstjóri dagblaðsins Nassan
Guardian, og óskaði hann eftir að
fá að skoða aðsetur stærsta dag-
blaðs Islendinga. Meðfylgjandi
mynd var tekin í tæknideild Morg-
unblaðsins, þegar eyjarskeggjarn-
ir þrír skoðuðu blaðið en þeir eru
talið frá vinstri: Mark Bethel,
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi
Flugleiða hf., Basil 0. Brien,
ráðuneytisstjóri í ferðamála-
ráðuneytinu og Basil Sands, for-
stjóri.
Myndin af
Hannesi
+ Gylfi Þ. Gíslason, fyrrum ráð-
herra, sagði okkur eftirfarandi
sögu um þetta málverk af Hann-
esi Hafstein á sýningunni á
Kjarvalsstöðum. Hann kom einu
sinni, endur fyrir löngu, á
skrifstofu póst og símamála-
stjóra og varð starsýnt á mál-
verk af okkar fyrsta ráðherra,
Hannesi Hafstein, sem þar hékk
á vegg. Fannst það besta mynd
af Hannesi, sem hann hafði séð
og mikið listaverk. Hann spurði
hver hefði málað myndina, en
það vissi enginn þar á bæ, enda
myndin ómerkt. Gylfi talaði um
þetta frábæra málverk við konu
sína, Guðrúnu Vilmundardóttur,
og hún sagði: „Við skulum bara
komast að því.“ Síðan hringdi
Guðrún til Ragnheiðar, dóttur
Hannesar Hafstein, sem mundi
vel eftir því, þegar Kristín Jóns-
dóttir var að mála myndina af
Hannesi, sem var gefin póst og
símamálastjórninni í tilefni af
afmæli stofnunarinnar. En
myndin er máluð 1942.
11 ára og veiddi
11 punda bleikju
+ Fyrir nokkru veiddist stór
bleikja í Skorradalsvatni, fyrir
landi Fitja. Bleikjan var 11 pund
að þyngd, en veiðimaðurinn heitir
Árni Þór Árnason og er 11 ára
gamall. Að sögn kunnugra er þetta
stærsta bleikjan, sem veiðst hefur
á þessum stað í vatninu í ár, en
Fitjar eru sem kunnugt er við
eystri enda vatnsins. Árni var úti á
vatninu á báti ásamt föður sínum,
Árna Ragnarssyni, þegar stórfisk-
urinn tók. Viðureignin tók um
hálftíma en ekkert lát var á
veiðimanninum að henni lokinni.
Þessi bleikja er stærsti fiskurinn,
sem Árni hefur veitt, en hann
hefur áður dregið nokkrar bleikjur
úr vatninu. Það má segja að það
hafi margur veiðimaðurinn byrjað
verr og má mikið vera ef hann er
ekki sýktur af „dellunni" það sem
eftir er ævinnar.
Aldrei fundarfall
í 40 ár hjá fyrrver-
andi sóknarprestum
I RÚM 40 ár hafa félagar í Félagi
fyrrverandi sóknarpresta komið
saman til fundar mánaðarlega.
Félagið var stofnað 14. október
1939 af 12 öldnum fyrrverandi
prestum í Reykjavík og hefur
aldrei á starfsferli félagsins orðið
fundarfall hjá því, ef svo má að
orði komast. enda hafa prestarnir
fyrrverandi sjólfsagt verið þess
minnugir. að það hefur ekki þótt
gott til frásagnar. ef messufall
hefur orðið.
Einn af hvatamönnum að stofn-
un félagsins var sr. Þórður Ólafs-
son frá Söndum í Dýrafirði en hann
var einnig fyrsti formaður félags-
ins. Af öðrum prestum, sem lengi
og farsællega hafa ráðið ríkjum í
félaginu eru þeir sr. Jón Guðnason,
sr. Jón Skagan og sr. Gunnar
Árnason, en núverandi formaður er
sr. Gísli Brynjólfsson. í lögum
félagsins segir að tilgangur þess sé,
„að endurnýja viðkynningu, rifja
upp minningar frá skóla- og starfs-
árum og ræða sameiginleg áhuga-
mál, einkum þau, sem kirkjuna
varða á hverjum tíma“.
Fundir félagsins hafa í mörg
undanfarin ár verið haldnir á
Elliheimilinu Grund í sambandi við
messugerð félagsmanna í heimil-
iskirkjunni. Hefur Gísli Sigur-
biörnsson, forstjóri Grundar, jafn-
an reynst félaginu hin mesta
styrktarstoð með rausnarlegum
veitingum, heimboðum og höfðing-
legum gjöfum. Síðast en ekki síst
hefur hann veitt félögum F.F.S.
tækifæri til að tjá sig bæði í ræðu
og riti, svo sem með guðsþjónustum
á Grund og útgáfu bókarinnar,
Andinn flýgur víða, sem út kom
1972, og hefur að geyma frásagnir
og hugvekjur eftir 16 félaga F.F.S.
Meðfylgjandi mynd var tekin á
marsfundi Félags fyrrvandi sókn-
arpresta í vetur og í aftari röðinni,
talið frá vinstri eru: Sr. Gunnar
Árnason, sr. Garðar Svavarsson,
sr. Sigurjón Guðjónsson, sr. Marinó
Kristinsson, sr. Óskar J. Þosláks-
son og sr. Sigurður S. Haukdal. í
fremri röð eru sr. Erlendur Þórðar-
son, sr. Þorsteinn Jóhannesson, sr.
Þorgrímur V. Sigurðsson, (ritari
félagsins), sr. Gísli Brynjólfsson,
(formaður), sr. Jón Kr. ísfeld
(gjaldkeri), sr. Jón Skagan. Á
myndina vantar: Sr. Árelíus Níels-
son, sr. Benjamín Kristjánson, sr.
Björn Björnsson, sr. Gunnar Bene-
diktsson, sr. Helga Tryggvason, sr.
Jón Þorvarðsson, sr. Magnús Guð-
mundsson, sr. Sigurð Kristjánsson,
sr. Þorstein Björnsson, sr. Þorstein
B. Gíslason. Ljósmyndina tók Jó-
hanna Björnsdóttir.
Kristín málaði ekki nema ör-
fáar mannamyndir. Á sýning-
unni eru auk myndarinnar af
Hannesi Hafstein, mynd af Páli
Einarssyni, fyrrv. borgarstjóra, í
Menntaskólanum á Akureyri er
mynd af Stefáni Stefánssyni
skólameistara og vitað er um
mynd eftir hana af Valtý Guð-
mundssyni, ritstjóra.