Morgunblaðið - 08.06.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
59
í stuttu máli
GAMLA BÍÓ:
Var Patton myrtur? (Brass Target)
Nýleg, minniháttar stórmynd, þar sem frjáls-
lega er farið með ástæðurnar fyrir nokkuð sviplegu
fráfalli stríðsgarpsins Patton hershöfðingja. Nokkuð
rútínulegt efni og uppbygging, en fagmannleg
vinnubrögð og línkinn leikur, (einkum í aukahlut-
verkum), gera myndina vel ásjálega.
COUNTRY TÓNLIST
OG KVIKMYNDIR
HONEUSUCLE ROSE,
sem fjallar um country/
western stjörnu, (Willie
Nelson), er getur ekki gert
upp hug sinn um hvora
hann kýs; ungu söngkon-
una, (Amy Irving), eða hina
tryggu eiginkonu, (Dyan
Cannon), var upphaflega
byggð á hugmyndinni á bak
við INTERMEZZO, mynd
með John Garfield. En í
þessari útgáfu snúast átök
myndarinnar ekki um yfir-
ráð yfir barni heldur um
borgardrauma og sveita-
sælu. í hinum nýja búningi,
er viðfangsefni myndarinn-
ar enn hið sama — van-
traust, ótryggð.
Líkt og „dreifbýlismynd-
ir“ komu til sögunnar á
undan „dreifbýlistónlist-
armyndum", þá urðu
country-söngvarar kvik-
myndastjörnur, áður en
þessar nýju c/w — myndir
sáu dagsins ljós. Kris Krist-
offerson gekk kannske hvað
best, með myndir eins og A
STAR IS BORN, ALICE
DOESNT LIVE HERE
ANYMORE og CONVOY, í
farangrinum. Dolly Parton
gerði fjögurra mynda sam-
ning við Columbia, en er að
leika, þessa dagana í mynd-
inni FROM NINE TO FIVE
hjá 20th Century Fox, á
móti Jane Fonda. Meining-
in er að hún fái svo
draumahlutverk á móti
Burt Reynolds, í kvik-
myndagerð hins geysivin-
sæla Broadway-söngleiks
THE BEST LITTLE
WHOREHOUSE IN
TEXAS.
Willie Nelson virðist ætla
að verða fyrsta country
stórstjarnan sem nær fót-
festu á myndum af
country/western-tónlistar-
toga. Willie er margslung-
inn listamaður. Sá sem
fyrstur lagði að honum að
leika í kvikmynd var Robert
Redford, en þeir eru ná-
grannar í Klettafjöllum
Colorado ríkis. „Hann er
orsökin fyrir því að ég fór
að leika í myndum," segir
Willie, „ég á það Bob að
þakka."
Sidney Pollack segir að
Willie „hefur til að bera
einstæða hæfileika sem
leikari og sviðsmaður.
Hann er einstakur í
hreinskilni sinni, hvort sem
er á sviði eða á tjaldi. Þá
höfðar hann til allra mann-
gerða í áhorfendahópnum.
Kvikmyndirnar virðast
einnig hafa vakið upp það
besta í tónlistarstíl Willies,
og endurlífgað sköpunar-
gáfuna. Hann hefur samið
alla tónlistina fyrir THE
REDHEADED STRANG-
ER. Handritið liggur þegar
fyrir, en myndarinnar er
ekki vænst fyrr en 1982.
Kvikmyndir og tónlist virð-
ast því leggjast á eitt með
að efla listamanninn Willie
Nelson.
„Þegar ég samdi lögin, sá
ég kvikmyndina fyrir mér,“
segir Willie, þegar hann
talar um næturaksturinn
frá Colorado til Texas, en
hann samdi meginhlutann
af lögum og textum á
„STRANGER". Platan var
fyrsta „concept“-albúm
country-tónlistarinnar, sem
þýðir að það var um ákveðið
þema andblæ og hliðarsýn í
áframhaldandi framsögn
efnisins. Platan segir sög-
una af prédikara, sem drep-
ur sína ótryggu ástkonu, og
heldur siðan til fjalla, „rid-
ing and hiding his pain“.
Hreinræktaðir Coun-
try-unnendur óttast að
Hollywood komi til með að
breyta c/w tónlistinni í
afskræmi af sjálfu sér, og
það eru blikur á lofti sem
benda til þess að svo kunni
að verða. Forráðamenn
Paramount ákváðu að tök-
um á URBAN COWBOY
yrði hætt í Gilley’s Place,
og færðar í sviðsetningu í
eigin stúdiói í Hollywood,
þar sem þeir gætu fylgst
með tökunni, en þá var
myndin komin langt fram-
úr kostnaðaráætlun. (Því
má skjóta inní að umrædd
kvikmynd var frumsýnd í
vikunni við einkar góða
dóma). Og þegar framleið-
endur HARD COUNTRY
þörfnuðust áhorfenda á
„honky-tonk“ tónleika
Tanyu Tucker og Michael
Murphy, þá hresstu þeir
uppá sína eigin Hollywood
kúreka með Lone Star bjór-
dósum, (en hann er þjóðar-
drykkur Texasbúa), og
fengu þeim hlutverk hinna
raunverulegu kúasmala
Lubbock borgar í Texas.
Hollywood er ennþá
víðsfjarri Arkansas, Texas
eða Nashville.
(Þessi samantekt er að
miklu leyti byggð á grein í
N.Y. Times, sem birtist 9.
mars, síðastliðinn.)
Country stjarnan Willie Nolaon (dasilogum télagsskap söngkonunnar Emmylou Harris og droifbýlistónlistarunnand-
ans Cartors forseta.
Vinsœlasta countryaöngkona Bandarfkjanna,
Parton, ar aö varöa stjarna í henni Hollywood.
uony