Morgunblaðið - 08.06.1980, Síða 28
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ1980
vtK>
MORödKf
KArriNU
H/0Q (il
í| 'v-
Un>fi maðurinn kann að hafa
Kifst stúlkunni til þess eins að
í?era þig afbrýðisama, vina mín.
Ég sagði Lalla bara. að allir
væru þeir eins þessir karlmenn
og þá sagði hann við mig: Talar
þú af eigin reynslu?
Skrípaleikur
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Sögn í lit andstæðings er venju-
lega krafa um game og þvi um
leið beiðni til makkers að segja
ekki pass fyrr en næði hefur
gefist til að velja besta gameið. í
spilinu að neðan notaði norður
þessa aðferð og gat þá seinna
sagt frá tígullit sinum áður en
hann endaníega ákvað lokasamn-
inginn.
Austur gaf, allir áttu game.
Norður
S. DG
H. KD6
T. ÁDG872
L. 108
Vestur
S. 1032
H.9542
T. 1065
L.D94
Austur
S. Á4
H. GIO
T. 943
L. ÁKG765
(C PIB
(IPIBMCIN
COSPER
Vierir þú ofurlítið tillitssamur, myndir þú bjóða mér
bita af þessu heilsufæði þínu!
Suður
S. K98765
H. Á873
T. K
L. 32
Um nýliðin mánaðamót var
framkvæmd enn ein kauphækkun-
in hjá íslenska ríkinu, sem að
verju hverfur jafnóðum á verð-
bólgubálið. Fáir munu þeir, sem
gætu hugsað sér að slá af kröfum
sínum, þó að það gæti ef til vill
bjargað þjóðinni frá algeru hruni
ríkisins, sem full ástæða virðist til
að óttast. Ekki kæmi á óvart þó að
ísland yrði einn góðan veðurdag
innlimað í Bandaríki Norður-
Ameríku og tekið upp í skuld,
vonandi yrðu Rússarnir ekki fyrri
til. Hvernig skyldu málin standa
með öll erlendu lánin, sem hafa að
vísu mörg verið notuð til þarfra
framkvæmda, en einnig til að
flytja inn óþarfa eins og kex og
sælgæti með meiru, og brjóta þar
með niður íslenskan iðnað? Stend-
ur ekki til að borga þau með
vöxtum og vaxtavöxtum? Væntan-
lega láta rukkararnir ekki á sér
standa, en hverjir eiga að borga?
Ekki fóstrin, sem nú er eytt í
stórum stíl, þau munu vera lög-
lega afsökuð, heldur vitanlega
þessi fáu börn, sem njóta þeirrar
náðar að fá a að fæðast, en eru
mörg hver andlega og líkamlega
niðurbrotin vegna vanrækstlu í
uppeldi, en á hinn bóginn skemmd
af dekri. Ólíklegt er að þau rísi
undir skuldaböggunum.
Ekkert má spara, þó allt sé á
hausnum, allir heimta sem mest
kaup fyrir sem minnsta vinnu.
Enda er fjöldi fólks svo hámennt-
aður, eða er orðið sprenglærður ef
til vill betur viðeigandi? Þeim
mun fleiri skólaár að baki, því
hærra kaup, það er grundvallar-
regla, en að tekið sé tillit til álags
á líkamann eða slysahættu er
minna skeytt um.
• Launabiliö
eykst sifellt
Og enn er kaupið hækkað eftir
prósentureikningi, þannig að þeir
hæstlaunuðu fá mesta hækkun, þó
að allir séu fyrir löngu orðnir
gáttaðir á slíku. Gegnir furðu, að
Alþingi, því miður ekki lengur
hæstvirt, skuli sent heim án þess
að leiðrétta slíkt ranglæti. Enn
óskiljanlegra er að ríkisstjórnin
skuli ekki taka af skarið. Varla
eru þeir háu herrar, sem ráða
þessum útreikningum orðnir ryðg-
aðir í samlagningu og frádrætti,
þó að þeir séu svona klárir í
prósentureikningi. Vefst kannski
fyrir þeim að geyma og taka til
láns? Æ, nú gleymdi ég, að flestir
eru farnir að nota tölvur, þá er
ekki nema von að fólk ryðgi í
reikningi, á sama hátt og sumar
ungar mæður geta ekki undið úr
bleiu, ef sjálfvirka þvottavélin
bilar. En eg skora á ráðamenn
þjóðarinnar, að draga útgjöldin
frá tekjum láglaunafjölskyldu,
sem ekki á þak yfir höfuðið. Sífellt
eykst launabilið, hér er markvisst
unnið að því að skapa stéttaskipt-
ingu. Þeir, sem vinna hörðum
höndum, bera minnst úr býtum,
nema með því að ganga fram af
sér, framleiðslustörf til sjávar og
sveita eru lítilsvirt. Á þjóðin
kannski að lifa á bréfabunkum frá
skrifstofum og bönkum, hver veit
nema næsta uppgötvun vísind-
Austur Suður Vestur Norður
1 L 1 Sp pass 2 L
pass 2 Hj pass 3 Tí
pass 3 Sp pass 4 Spaöar
allir pa.sK
Ágætar sagnir og góður loka-
samningur. Vestur spilaði út
lauffjarka og austur tók slaginn
með kóng. Og ljóst varð, að vestur
átti drottninguna þegar hann lét
næst níuna í ásinn.
í þessari stöðu sá austur þrjá
slagi örugga og varð að finna þann
fjórða. Ekki virtust rauðu litirnir
líklegir. Suður hlaut að eiga
hjartaásinn og ekki gat tígullinn
gefið slag. Og hversu líklegt, sem
það var nú varð úrslitaslagurinn
að fást á tromp.
Austur var óhræddur þegar
hann spilaði laufi í þriðja slag.
Suður trompaði heima því taka
varð trompin með háspilum
blinds. Og næsta slag fékk hann
að eiga á trompdrottninguna en
gosann tók austur og spilaði sínu
fjórða laufi. Og þá gat sagnhafi
ekki komið í veg fyrir, að tromp-
tían yrði slagurinn, sem allt um
snerist. Suður reyndi að trompa
með lágu. Ekki kom til mála að
trompa með kóngnum en lága
trompið reyndist ekki betur,
tromptían varð fjórði slagur varn-
arinnar.
Fjölbrautaskóla Sauðárkróks slitið
ÞANN 31. maí var Fjölbrauta-
skólanum á Sauðárkróki slitið.
Alls stunduðu 120 nemendur
nám við skólann í vetur, þar af
um helmingur á iðnbrautum, en
hinir skiptust á heilsugæslu,
viðskipta, uppeldis og mála-
braut. Auk þessara brauta er
áformað að starfrækja næsta
vetur náttúrufræðibraut og
skipstjórnarbraut sem er að-
faranámsbraut að Tækniskóla
Islands, Fiskvinnsluskólanum og
öðrum sérskólum. Sömuleiðis
meistaraskóla húsasmiða ef næg
þátttaka fæst.
Auk þeirra sem stunduðu hinn
almenna skóla voru u.þ.b. 130
manns sem voru í kvöldskóla eða
einskonar ölduhgadeild.
Burtfararprófi á iðnbrautum
lauk 21 nemandi en almennu
verzlunarprófi luku 3.
Eftir að skólameistari hafði
lokið ræðu sinni, tók séra Sigfús
Árnason til máls.
Fimmtán kennarar störfuðu
við skólann í vetur, og yfirkenn-
ari er Baldur Hafstað en skóla-
meistari Jón Hjartarson.
Hluti nemenda og starfsliðs Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki.