Morgunblaðið - 26.06.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980
3
Lagmeti flutt út fyrir
2.3 milliarða í fyrra
HEILDARSALA Sölu-
stofnunar lagmetis nam á
síðasta ári 2.283 milljón-
um króna og var verð-
mætaaukning á milli ára
40%. Hins vegar varð sam-
dráttur í magni, sem nam
um 140 tonnum eða 9% og
er skýringin fyrst og
fremst sú. að sala á gaffal-
bitum til Sovétríkjanna
dróst saman um 367 tonn
eða V3 af magni ársins
1978. Nokkur breyting
varð á magni hinna ýmsu
vörutegunda á milli ára og
þrefaldaðist t.d. magn
rækju og reyktra síldar-
flaka á milli ára. Nokkur
aukning varð einnig í sölu
kavíar og lifrarpöstu. en
sala á þorsklifur dróst
hins vegar saman vegna
skorts á vörunni.
Mikil breyting varð á hlutdeild
hinna ýmsu markaðssvæða eins og
sést á eftirfarandi yfirliti.
Landsvæði 1978 %
EFTA
EBE
A-EVRÓPA
BANDARÍKIN
ANNAÐ
1.1
15.6
72.3
8.3
2.7
100.0
1979 %
5.5
28.8
45.6
18.6
2.0
100.0
I skýrslu um starfsemi SL, sem
Skyndisala:
Nær helm-
ings verð-
lækkun á
tómötum
og gúrkum
SÖLUFÉLAG garðyrkju-
manna efnir þessa dagana til
skyndisölu á tómötum og
gúrkum og hefur verð á þess-
um vörum verið lækkað um
nær helming meðan á skyndi-
sölunni stendur. „Við viljum
með þessu gefa fólki kost á að
kaupa ódýrt grænmeti yfir
háuppskerutímann.“ sagði
borvaldur borsteinsson,
framkvæmdastjóri Sölufélags-
ins í samtali við blaðið.
Heildsöluverð á hverju kílói
af tómötum hefur verið lækkað
úr 1800 kr. í 1000 kr. og má því
gera ráð fyrir að í smásölu
kosti tómatkílóið frá 1300 til
1400 krónur. Kílóið af gúrkum
hefur verið lækkað úr 1300 kr. í
700 kr. í heildsölu og kostar í
smásölu milli 900 og 1000 kr.
Þorvaldur sagðist ekki geta
sagt til um hvað þessi skyndi-
sala stæði lengi.
Þorvaldur sagði, að mjög
gott útlit væri með útiræktað
grænmeti í sumar og mætti
gera ráð fyrir að um miðjan
júlí færi kál og rófur að koma á
markaðinn.
lögð var fyrir aðalfund á þriðju-
dag, kemur fram að síðastliðið ár
verður að teljast mesta áfallaár í
sögu stofnunarinnar. Er í því
sambandi átt við kvartanir, sem
fram komu um gæði gaffalbita í
lok árs 1978 og rækju í lok árs
1979. Ellefu lagmetisverksmiðjur
voru virkar í útflutningi á síðasta
ári og voru fjórar þeirra með yfir
90% útflutningsins. Þær eru:
K. Jónsson og Co h.f. 44.2%
Norðurstjarnan h.f. 20.0%
Lagmetisiðja Siglósíld 19.2%
Fiskiðjan ARCTIC 8.5%
Bíll út af
FÓLKSBtLL úr Reykjavík fór út af
aflegKjaranum að Almannagjá á
Þingvöllum. skammt fyrir austan
Kárastaði. i fyrrinótt. ökumaður og
þrir farþegar voru i bilnum. en
enginn þeirra hlaut teljandi meiðsli.
ökumaðurinn er Krunaður um olvun
við akstur.
Eldur í skúr
ELDUR kom upp i geymsluskúr
við Ásvallagötu 46 í Reykjavík
laust eftir hádegi í gær. Slökkvi-
liðið var kallað á vettvang og
gekk greiðlega að slökkva eldinn.
Skúrinn og það, sem i honum var,
brann að mestu og i gær voru
rústirnar rifnar. Um klukkan
fjögur í gær var Slökkviliðið
kalíað aftur á staðinn og var þá
eldur i rústunum. Talið er að um
ikveikju kunni að hafa verið að
ræða.
OSLO
Guðjón Ólaf sson
og fjölskylda
á ferðalagíi
Ef fjölskyldan fer saman í frí
til Osló er um margt aö velja til
skemmtunar og fróöleiks.
Þegar sólin skín og gott er
veöur er upplagt aö fara aö
Ðogstadvatni aö
synda og sóla sig,
jafnvel slá upp
tjaldi á góöu tjald-
stæöi viö vatniö. Aö
Bogstadvatni er
10 mínútna akst-
ur frá miöborginni.
Einnig eru góöir baöstaöir
út meö vesturströnd Oslófjaröar
svo sem Hvalstrand.
Af söfnum og skemmtileg-
um stööum, sem okkur fannst
gaman aö heimsækja, má nefna
Bygdoy. Þar eru mörg söfn, t.d.
Norska Þjóöminjasafnið (Norsk
folkemuseum), Kon-Tiki safnið
(Kon-tiki museet) meö hinum
frægu farkostum Thor Heyerdal
og Víkingaskipahúsið þar sem
skip og annar búnaöur
víkinganna er til sýnis, allt hlutir
frá fornri tíö, sem fundist hafa.
Einnig er gaman aö fara
meö „trikknum" (sporvagn) upp
á Holmenkollen og skoöa stökk-
pallinn og skíöasafniö, og Ijúka
þeirri ferö á góöum
veitingastaö ofar
í hlíöinni, sem heitir
Frognerseteren.
í Vigeland Parken
er gaman aö ganga
um og skoöa allan
hinn ótrúlega fjölda
mannamynda eftir norska
myndhöggvarann Gustav Vige-
land. í garöinum og í tengslum
viö hann eru leikvellir, veitinga-
staöir og útisundlaug.
Viö aöalgötu miöborgarinnar
Karl Johann er fjöldi útiveit-
ingastaða meö iðandi mannlífi í
afar fallegu umhverfi og út frá
Karl Johann liggja hliöargötur
meö fjölbreyttu og fjörugu versl-
unarlífi t.d. Akersgate, Övre
Slottsgate, Grensen, Stor-
gate og fl.
m í
■■.. >
w
Ef þú hyggur á ferö til
OSLÓ
geturöu klippt þessa
auglýsingu útog haft hana
með.það gæti komið sér vel.
FLUGLEIÐIR