Morgunblaðið - 26.06.1980, Blaðsíða 23
AUGLÝSING
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980
23
BLAÐ STUÐNINGSMANNA
PÉTURS J. THORSTEINSSONAR
Vitað var, og löngu áður en
Ásgeir Asgeirsson ákvað að draga
sig í hlé eftir 16 ára forsetatíð, að
Gunnar Thoroddsen hygðist gefa
kost á sér, og margir í hópi
stuðningsmanna hans litu svo á,
að sigur hans væri svo öruggur, að
hann „ætti embættið".
Því var það af mörgum talinn
bjarnargreiði við dr. Kristján Eld-
járn að skora á hann til framboðs
— það væri svo gersamlega von-
laust fyrir hann að etja kappi við
hinn margreynda stjórnmála-
mann. Menn sögðu sem svo, að
Kristjáni væri ekki aðeins att „út í
óvissuna" — hann færi í blindni út
í algert vonleysi.
En eftir því sem leið á þá
kosningabaráttu, og fólki gáfust
fleiri tækifæri til að gera saman-
burð á frambjóðendum, jókst fylgi
Kristjáns jafnt og þétt, uns hann
hafði tvo þriðju atkvæða að baki
sér á kjördegi, eins og mörgum
mun í fersku minni.
Pétur flestum
óþekktur í fyrstu
Nú er svipuð þróun að gerast.
Þegar tilkynnt var um framboð
Péturs Thorsteinssonar, höfðu
fæstir trú á því, að svo lítt þekktur
maður gæti gert sér einhverja von
um sigur gegn frambjóðendum,
sem kunnir voru öllum almenningi
úr blöðum og sjónvarpi á liðnum
árum. Stuðningsmenn Péturs
gerðu sér þess grein, að áróðurinn
yrði þungur í byrjun og einkum af
tveim ástæðum: Pétur hafði starf-
að mjög lengi erlendis og í öðru
lagi höfðu störf hans eftir að heim
kom — eins og erlendis — verið
unnin í kyrrþey.
var svo komið, að utankjörstað-
arkosning var hafin fyrir hálfum
mánuði, og menn höfðu greitt
atkvæði hundruðum, ef ekki þús-
undum saman, án þess að hafa átt
þess verulegan kost að gera sam-
anburð á frambjóðendum, kostum
þeirra og brestum.
En þá kom líka strax á daginn,
eins og Pétur Thorsteinsson og
stuðningsmenn hans héldu fram
frá upphafi, að verulegrar aukn-
ingar færi ekki að gæta á fylgi
hans, fyrr en hljóðvarp eða sjón-
varp rækju af sér slyðruorðið.
Fylgið þyrpist
að Pétri
Þróun er ekki alltaf hæg — hún
getur einnig gerst í stökkum — og
það er einmitt þróun af því tagi,
sem er að gerast þessa dagana.
Almenningur í landinu hefur
átt þess kost að gera sér grein
fyrir því, að Pétur Thorsteinsson
ber höfuð og herðar yfir keppi-
nauta sína, hvað mannkosti og
alla hæfileika til forsetaembættis-
ins áhrærir. Hann er ekki aðeins
manna prúðmannlegastur og ró-
legastur, hvaða spjótum sem að
honum er beint, heldur hefur það
einnig komið fram á hinn ákjósan-
legasta hátt, að hann býr yfir
mestri og affarasælastri, alhliða
þekkingu á lands- og alþjóðamál-
um allra frambjóðenda.
Símarnir eru
rauðglóandi
Það eru engar ýkjur, að símarn-
ir í skrifstofum stuðningsmanna
Péturs víða um land hafi verið
„rauðglóandi“ síðustu daga — og
sér í lagi eftir sjónvarpsþáttinn á
föstudag — vegna hringinga frá
fólki, sem lætur í ljós eindreginn
stuðning við hann eftir að hafa
jafnvel ætlað að veita öðrum
frambjóðendum brautargengi, uns
það átti — seint og um síðir —
þess kost að gera raunhæfan
samanburð.
Og sá þungi straumur kjósenda,
sem liggur nú í raðir stuðnings-
manna Péturs, mun halda áfram
að vaxa allt fram á kjördag.
Stöðnun hjá Guð-
laugi og Vigdísi
Það er nú orðið deginum ljós-
ara, að það eru ekki aðeins hinir
óráðnu kjósendur, sem fylla flokk
Péturs í vaxandi mæli. Fylgið
hverfur einnig frá Guðlaugi Þor-
valdss.vni og Vigdisi Finnboga-
dóttur vegna vonbrigða með
frammistöðu þeirra í hljóðvarpi
og sjónvarpi, svo að nú hjaðnar
óðum sú hylli, sem þau nutu i
upphafi og mun engan veginn
endast þeim fram að kosningum.
Allir kjósendur, sem vilja ráð-
stafa atkvæði sínu að hugsuðu
máli og höfðu ekki gert upp hug
sinn vegna ónógrar kynningar og
upplýsinga, hafa nú fengið fasta
jörð undir fætur. Og valið er ekki
erfitt — það sýnir sú stökkþróun,
sem getið er hér að framan og
mun þó eiga eftir að koma enn
betur í ljós.
STRAUMHVÖRF í KOSNINGABARÁTTUNNI
í í
DAGANA STOKKBREYTMGU LIKUST
Stöönun hjá Guðlaugi og Vigdísi eftir kynninguna í hljóö- og sjónvarpi
Þegar líður að lokum þessarar kosningabar-
áttu, er fróðlegt að bera saman þróunina nú og
framvindu þeirrar kosningahríðar, sem háð
var 1968, því að þar er margt líkt í
höfuðatriðum, þótt svo virðist e.t.v. ekki í
fljótu bragði.
En það var líka sannfæring
stuðningsmanna Péturs, að jafn-
skjótt og þjóðinni gæfist kostur á
að kynnast honum — manninum,
störfum hans og viðhorfum til
helstu mála, mundi afstaðan til
hans gerbreytast.
Breytingar varð
fljótlega vart
Sú varð líka raunin á. Þegar
kynning var hafin á Pétri og
einkum eftir að hann tók að efna
til funda á æ fleiri stöðum um
land allt, tók honum að vaxa fylgi,
hægt og bítandi, eins og gert hafði
verið ráð fyrir. Það kom og fram í
þeim tveim skoðanakönnunum
síðdegisblaðanna, sem nálguðust
að vera marktækar, því að Pétur
jók fylgi sitt stórlega á örskömm-
um tíma, og undir merki hans
söfnuðust að kalla allir úr hópi
hinna óákveðnu, sem gerðu upp
við sig, hvern þeir hygðust kjósa.
En þótt slíkir fundir séu sjálf-
sagðir og nauðsynlegir, er það
ljóst, að það er aðeins lítið brot
kjósenda, sem hefur tækifæri til
að kynnast frambjóðendum á
þennan hátt. Annað og fleira þarf
til svo að fullnægt sé eðlilegum
kröfum frambjóðenda — og ekki
síður kjósenda — um fræðslu og
kynningu.
Ríkisfjölmiðlarnir
sváfu á verðinum
Það eru einungis ríkisfjölmiðl-
arnir — hljóðvarp og sjónvarp —
sem geta náð inn á svo að segja
hvert heimili og vinnustað í land-
inu og gefið kjósendum mesta
möguleika á að gera upp hug sinn
að vel hugsuðu máli. En það er
sannast sagna, að stjórnendur
þessarar ríkisstofnunar virtust
enga grein gera sér fyrir skyldum
sínum eða gildi þess fræðslutækis,
sem þeim hefur verið falin forsjá
fyrir, eða eðlilegum kröfum kjós-
enda í landinu. Það var ekki fyrr
en hálfur mánuður var til kosn-
inga, að hljóðvarp og sjónvarp
virtust uppgötva, að afdrifaríkar
kosningar yæru á næsta leiti. Þá
Hersteinn Pálsson
Gerum sigur
Péturs sem
glæsilegastan
Það er greinilegt, að sá áróður
er með öllu dauður og ómerkur
sem haldið var uppi til skamms
tíma og var á þá leið, að vonlaust
væri að kjósa Pétur Thorsteinsson
— atkvæðum, sem á hann féllu,
væri kastað á glæ og mundu þau
aðeins stuðla að kosningu þess
frambjóðanda, sem flestir vildu
síst.
Síðustu atburðir sanna, að hvert
atkvæði, sem Pétri verður greitt,
kemur að fullum notum, því að
fylgisaukning hans er slík, að
sigur hans er tryggður. Eina
vafaatriðið er fólgið í því, hve
mikill sigur hans verður.
23. júní 1980.
Hersteinn Pálsson.
Velium Pétur forseta — Hann er vandanum vaxinn