Morgunblaðið - 26.06.1980, Side 7

Morgunblaðið - 26.06.1980, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980 7 Forsetakjör og kosninga- barátta Jón Sigurðsson, rit- stjóri Tímans, fjallar í forystugrein í blaði sínu í g»r um kosningabarátt- una fyrir forsetakosn- ingarnar, sem nú stendur sem hæst og segir: „Það er óhætt aö segja að það skiptast á skin og skúrir í stjórnmálum ekki síður en á öðrum sviðum. Og þaö er líka óhætt aö viðurkenna að stjórnmál- in eru ekki síður undir orpin tískustraumum en önnur svið þjóðlífs og menningar. Á sumum tímabilum þykir það best aö stjórn- málamenn „rísi upp úr“ almúganum eins og það er nefnt, standi álengdar og beri hærra en um- hverfið. Á öðrum skeið- um er það fyrir öllu að vera sem alþýðlegastur og umgangast fólkiö sem mest og heimsækja það á vinnustaöi. Ef kosningabaráttan fyrir forsetakjörið nú er borin saman við það sem var síöast er gengið var til slíkra kosninga, verður þaö Ijóst hver breyting hefur oröið á viöhorfi almennings til þessara mála á allra síöustu ár- um. Og enda þótt stjórn- málamenn í fámennum byggðarlögum þekki vel heimsóknir á vinnustaði, voru slíkar heimsóknir víðast nýlunda í þéttbýl- inu fram til síöustu tveggja eða þriggja ára. Það er athyglisvert aö þessi þróun skuli verða hér á sama tíma og sjón- varpið verður aösóps- meira í stjórnmálaum- ræðum og kynningu frambjóöenda. Og auðvit- að er það framför aö fólkið eigi þess sem mestan og bestan kost að kynnast frambjóöend- um, hvort sem er í þing- kosningum, sveitar- stjórnakosningum eða forsetakjöri." Umhugsunar aö kosningum loknum Síðan segir Jón Sig- urósson: „Hvernig svo sem kosningakerfi er háttað verður það jafnan svo að veldur sá er á heldur, og þess vegna á fólkið rétt á því að kynnast frambjóð- endum að nokkru per- sónulega. Ábyrgð kjör- inna fulltrúa er og veröur persónuleg, og hlutfalls- kosningakerfinu sem hér viðgengst í flestum kosn- ingum veitir því alls ekki af sem mestri kynningu þeirra einstaklinga sem gefa kost á starfskröftum sínum. En trúlega er unnt aö ganga helst til langt í þessari kynningu, rétt eins og öllu öðru. Það hlýtur að vera öldungis ótrúlega mikil áreynsla að bjóöa sig fram til opinberrar þjónustu við þær aðferðir sem nú eru farnar að tíðkast hérlend- is. Það hlýtur aö vera hreinasta kvalræði, ekki aðeins fyrir frambjóð- anda sjálfan — sem segja má að ekki sé vorkunn út af fyrir sig, — heldur og fyrir allt skyldulið hans. Og satt að segja veröur mönnum spurn hvort verið er að reyna á hæfni, réttsýni og dómgreind frambjóöenda meö öllum þessum ferðum, fundum, og kynningu, — eða hvort fyrst og fremst er verið að hamast að lang- lundargeðinu, úthaldinu og þrautseigjunni. Sjálf- sagt líður engum fram- bjóðanda fullvel — nema hann sé haldinn tals- verðri sýndartilhneigingu og á það jafnt við um kosningar til alþingis, sveitarstjórna og til æðsta embættis þjóðar- innar. Að kosningum loknum má vera að fólki þyki tímabært að hugleiða hvort ekki er ástæða til að staldra viö í þessu efni.“ THORITE ■■ steinprýöi v/Stórhöfða sími Steypugalla- viögerðarefni Framúrskarandi viðgerðar- efni fyrir steypugalla. Þannig sparar það bæði tíma og fyrirhöfn við móta- uppslátt ofl. Thorite ertilvaliðtil viðgerða á rennum ofl. Það þornar á 20 mínútum. 83340 Lokaútsala allt á að seljast Fatnaður og vefnaðarvara á stórlækkuðu verði Dömu og herrabuxur frá kr. 8.900,- Barnabuxur frá kr. 4.900,- Sumarjakkar á dömur, herra og börn frá kr. 6.900.- Efni: Flauel, denim, poplín, flannel, fóöur o.fl., o.fl. Komið snemma og náið því besta. Verksmiðjusala Skipholti 7. ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? M AUGLYSIR IM ALLT LAND ÞEGAR Þl Al'GLYSIR I MORGINBLAÐINL' ZACA-borö HVAÐ ER ZACA-BORÐ? Zaca-borö er 3ja laga húöaður krossviður úr barrviði, límdur saman meö vatnsþéttu lími. Zaca-borð eru framleidd í stórum stærðum og einkar hentug fyrir steypumót, þar sem endurnotkun er mikil. Þykkt 22 mm. Stæröir: 50x600 cm 50x300 cm 150x300 cm Mjög hagstætt verö. Timburverzlunin Volundur hf. KLAPPARSTIG 1. SIMI 18430 — SKEIFAN 19. SIMI 85244 Kjörstaðir í Reykjavík við forseta- kosningarnar 29. júní 1980 verða þessir: Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Austurbæjarskóli, Breiöageröisskóli, Breiöholtsskóli, Fellaskóli, Lang- holtsskóli, Laugarnesskóli, Melaskóli, Miöbæjarskóli, Sjómannaskóli, Ölduselsskóli, Elliheimiliö „Grund“, „Hrafnista" D.A.S. og „Sjálfsbjargarhúsiö" Hátúni 12. Heimilisfang 1. des. 1979 ræður kjörstað. Á öllum kjörstööum eru nákvæmar upplýsingar um kjörsvæða- og kjördeildaskiptingu. Reykjavík, 23. júní 1980. Skrifstofa borgarstjóra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.