Morgunblaðið - 26.06.1980, Page 12

Morgunblaðið - 26.06.1980, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980 Á ferð um bæinn á sumardegi: Þær voru bara hressar konurnar á myndinni og ánægðar með kaup sin á útimarkaðnum, og sögðust gjarnan vilja fá meira þessu líkt i bæinn. Berthoud Aiain tæknifræði- nemi frá Genf er hér á vegum alþjóðlegs skiptinemasam- bands tækninema og ætlar að vinna i skipasmiðastöð hér- lendis i sumar. Hann sagðist alltaf hafa langað hingað, en var hálffeiminn við ljósmynd- arann, enda rétt stiginn á islenska grund. Ljósm. Emiiia Þeir sem leggja leið sina um Lækjartorg á föstudögum sjá eflaust manninn á myndinni sem heitir Eirikur, „pranga" allskonar hlutum inn á þá sem staldra við. Smith hjónin ætla að eyða einni viku hérna. Dr. Smith hefur verið hér áður, og hreifst þá af landinu, en kom nú sérstaklega frá Indiana með konu sina. til að sýna henni „fegurð landsins." Mundaði rakvélina og hótaði lögsókn Þótt veðrið eigi það til að gera landsmönnum skráveifur, stund- um svo við liggur að menn ruglist á árstiðum, þá vefst varla fyrir neinum að sumarið er komið á Jónsmessu. Nú eru mættir til leiks þeir farfuglar sem á annað borð leggja á sig langflugið, að meðtöldum erlendu ferðamönn- unum. Blm. og ljósmyndari fóru á stúfana i veðurbliðunni, tóku nokkra „farfugla" og „innfædda" tali, og festu mannlif á filmu. I gæsluskýlinu við tjaldstæðin í Laugardalnum voru staddir þeir Kristján Sigfússon tjaldstæðavörð- ur og David Oswin breskur leiðsögumaður á vegum Pennw- orld ferðaskrifstofunnar. Kristján kvað vera 20 tjöld á stæðinu þessa stundina og væri það heldur minna en í fyrra. En tjaldstæðið tekur um 220—230 tjöld. Aðspurð- ur kvað hann gestina vera af hinum ýmsu þjóðernum, þó væru Þjóð- verjar hvað fjölmennastir. Ef einhverjum færi árvisst fjölgandi, væri það Frökkum. Sagði Kristján að það væru helst Þjóðverjar og Bretar sem kæmu hingað með skipulagða hópa, sem byggju á tjaldstæðunum á milli þess sem þeir færu um landið. En Öswin, leið- sögumaðurinn breski, er einmitt að bíða eftir einum slíkum 20 manna hópi. Við litum við á Loftleiðahótel- inu og í Nauthólsvík, þar sem lítið var um að vera þegar okkur bar að garði; Siglingaklúbburinn allur a sjó, eins og vera ber á góðum degi, og í læknum enginn, utan maður við rakstur. Mundaði hann rakvélina hinn vígalegasti og hót- aði ljósmyndara lögsókn ef hann reyndi að festa athöfnina á filmu. Þaðan lá leiðin í miðbæinn. Þar ríkti næstum suðræn markaðsst- emmning, a.m.k. á Lækjartorgi þar sem hinir ýmsu einstaklingar og samtök, allt frá kattavinum til listræningja, buðu fram fjölbrey- tilegan varning og margir stöldruðu við í föstudagsösinni, til að skoða, kaupa, eða bara spjalla. Þeir Helmut og Rainer (í svefnpokanum) frá Wangen í Suður-Þýskalandi hafa að undanförnu ferðast um landið á mótorhjólum ásamt tveimur vinum sínum. og telja það prýði- legan ferðamáta. Þeir sögðust vera stórhrifnir af landinu og ef eitthvað ætti að nefna sérstaklega væri það fólkið og fossarnir. F.v. Dawid Oswin leiðsögumaður, og Kristján Sigfússon tjald- svæðavörður. Oswin sagði að burtséð frá svefnleysi sem hrjáði fólk í byrjun, sökum birtunnar, væru hóparnir yfirleitt mjög ánægðir með dvölina hér, en ferðaskrifstofa hans hefur haldið uppi hópferðum hingað undanfarin tiu ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.