Morgunblaðið - 26.06.1980, Page 18

Morgunblaðið - 26.06.1980, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ1980 Óðal feðranna „Óðal íeðranna er jafnbesta íslenska myndin sem gerð hefur verið til þessa,“ segir í kvikmyndagagnrýni sem birtist í Morgunblaðinu fyrir skömmu. Framleiðendur myndarinnar eru þeir Hrafn Gunnlaugsson, sem jafnframt er leikstjóri og höfundur, Jón Þór Hannesson hljóðupptökumaður og Snorri Þórisson kvikmyndatökumaður. Hrafn hefur leikstýrt fjölda sjónvarpsmynda og má þar nefna myndaflokkinn „Undir sama þaki“ og kvikmyndina „Silfurtunglið“. Þá hefur Hrafn gert kvikmynd eftir sögu Halldórs Laxness og ber myndin nafnið „Lilja“. Þeir Jón Þór og Snorri reka og eiga fyrirtækið Sagafilm, en það hefur á hendi gerð ýmissa auglýsingakvikmynda, kynningarmynda og heimildarmynda. Þeir Snorri og Jón Þór hafa báðir unnið við sjónvarpið, hvor á sínu sviði. Til að forvitnast um starfið að baki óðals feðranna ræddi Morgunblaðið stuttlega við þá Hrafn, Jón Þór og Snorra. Jón Þór Hannesson „Hefðum átt að byrja fyrir 10 árum, þá værum við sæmilegir nú“ „Það má segja að hið eilifa rok þarna i Borj?arfirðinum hafi bakað mér mestu vandræðin,“ sagði Jón Þór Hannesson hljóð- upptökumaður, en hann tók upp hljóðið i óðali feðranna auk þess sem hann er einn þriggja fram- ieiðanda myndarinnar. „Það er oftast erfitt að koma hljóðupptökutækjunum fyrir svo vel sé og einnig er stundum vandasamt að eiga við brak í húsum og þess háttar, þetta eru eiginlega eilífðar vandamál," sagði Jón. „Ýmis eðliieg hljóð geta virkað sem hávaði, t.d. rok, rigning sem bylur á þaki og önnur slík hljóð. Það má segja að þessi hijóð séu versti óvinur hljóðupptökumannsins. Okkur Snorra gekk hins vegar vel að yfirstíga þessháttar vandamál, því við þekkjum hvorn annan það vel, enda höfuð við unnið saman í nokkur ár. Það er nauðsynlegt að vinna saman að svona hlutum. Starf hljóðupptökumannsins er í því fólgið að koma því til skila sem sagt er. Að vísu er það ekki svona einfalt, það kemur einnig ýmislegt þar inn í, t.d. allskonar náttúruhljoð. Það er oft sérstakt með útihljóðin, maður gerir sér ekki grein fyrir að þau vantar, fyrr en hlustað er á upptökuna, þetta eru eiginlega hljóð sem maður tekur ekki eftir úti í náttúrunni. I þessari mynd tókum við upp hljóðið um leið og atriðin voru fest á filmu og einnig klipptum við hljóðupptökuna um leið og myndina. Það sparaði mikinn tíma við hljóðsetningu. Það má segja að ég hafi tekið við mynd- inni klipptri og með hinu talaða orði en síðan varð ég að bæta inn í ýmsum atriðum eftirá, sem okkur fannst nauðsynlegt að hafa. Það má segja að í loka- vinnslunni hafi ég verið með tónlist á tveimur spólum, tal á tveimur og náttúruhljóð á tveim- ur og öllu þessu þurfti að blanda saman. Það var seinleg vinna. Það má segja það reglu að vel upptekið hljóð sé forsenda þess að hljóðið verði gott að lokum," sagði Jón. — Unnið að svona verkefni áður? „Nei, ekki að svona verkefni. Ég hafði ekki kynnst þessum miðli fyrr. Maður rann eiginlega blint í sjóinn með þetta, en ég er samt þokkalega ánægður. Mér finnst að þetta hafi tekist allvel. Ég, eins og við allir, hef lært mikið af þessu, þannig að maður veit hvernig ber að haga sér í næsta skipti," sagði Jón. — Er þetta erfitt starf? „Við hljóðupptökumenn erum það heppnir að útbúnaður okkar er fremur lítill og því auðveldara að flytja hann en t.d. tæki kvikmyndatökumannsins. Við er- um ekki með eins mikið í kring- um okkur. Hins vegar unnu menn mikið saman, það var nauðsyn- legt vegna þess hve við vorum fáliðuð. Við Snorri hjálpuðumst oft að við lýsinguna og önnur slík atriði. Það má segja að það hafi allir verið að vasast í öllu, störfin voru ekki mjög reglubundin. Þetta var vegna þess hve við vorum fáliðuð, eins og ég sagði. Yfirleitt er stór hópur tækni- manna við hverja kvikmynda- töku, en ég held að við höfum verið helmingi færri við þessa töku, heldur en tíðkast almennt." — Bjartsýnn? „Ég er ekki svartsýnn á gengi þessarar myndar, fremur en á íslenska kvikmyndagerð almennt. Að vísu held ég að þrjár myndir á ári sé fullmikið, ein til tvær leiknar myndir eðlilegra. En ég er þess fullviss að tækniþekking og raunar sú þekking sem þarf til að gera kvikmynd sé fyrir hendi hér á landi. En við erum á eftir á ýmsum sviðum, t.d. við gerð handrits, þar held ég að við stöndum öðrum að baki. Við hefðum átt að byrja að gera íslenskar kvikmyndir fyrir 10 árum, þá værum við sæmilegir nú. Það versta er það, að við höfum enga hefð í kvikmynd- agerð. Hins vegar eru íslenskir áhorfendur mjög jákvæðir gagn- vart þessu og ég er þakklátur fyrir það. Það er undirstaða þess að íslensk kvikmyndagerð eigi framtíð fyrir sér,“ sagði Jón Þór Hannesson. Átti erfitt með að finna mig í f yrstu „Mitt starf var í því fólgið að festa handritið á filmu,“ sagði Snorri Þórisson kvikmyndatöku- maður, en hann annaðist töku myndarinnar óðal feðranna. „Vinnan hófst á því að farið var yfir atriðið ásamt leikstjóranum, við ræddum um hvernig leikurun- um skyldi stillt upp innan mynd- flatarins. Þegar við vorum búnir að koma okkur niður á ákveðið sjónarhorn, þá æfði Hrafn leikar- ana, en ég lýsti upp senuna. Síðan komu leikararnir inn og atriðið var tekið," sagði Snorri. „Við vorum afskaplega blankir þegar við fórum út í þetta og reyndum við að spara eins og mögulegt var. Við ákváðum því yfirleitt á staðnum hvernig atriðið skyldi tekið, með tilliti til klipp- ingar. Þetta var mikið þolinmæð- isverk, leikararnir þurftu að sýna mikla þolinmæði. Flest atriðin voru aðeins tekin einu sinni en sum tvisvar. Leikar- arnir æfðu eftir að gengið hafði verið frá lýsingunni og síðan var atriðið tekið. Þegar svona er farið að má ekki mikið út af bera, og aðeins ein filma til af flestum atriðanna. Ef þessi eina filma eyðileggst þá er ekkert til að fylla í skarðið. Við tókum áhættuna og vorum heppnir. Með þessu móti spöruðum við töluvert fé. Vana- þegar skipta þurfti um sjónar- horn. Einnig kom það fyrir að við urðum að hætta við töku á atriði sem tekið var innanhúss, vegna þess að við fengum smá sólar- glætu til myndatöku úti. Þegar byrjað var á atriði sem hætt var við, var það oft mikið nákvæmnis- verk að fá hlutina til að passa fullkomlega. Fjarlægðin, ljósið og leikurinn þurfti allt að falla sam- an. Það var oft erfitt að fá þetta til að ganga upp,“ sagði Snorri. „Það má auðvitað nefna viss tæknileg atriði sem virðast flókin, eins og t.d. áreksturinn. Það atriði er sett saman úr mörgum sjónar- hornum, þar sem bíllinn keyrir alltaf sömu leið. Rétt fyrir árekst- urinn kastar ökumaður sér fram, eins og hann sé að lenda í árekstri og um leið hristi ég myndavélina. Þannig koma fram áhrifin af högginu. Loks var fundinn alveg eins bíll og sá sem lenda átti í árekstrinum og honum stillt upp við staur, það er nefnilega ekki sami bíllinn sem sést fyrir og eftir árekstur,“ sagði Snorri. — Einhverjir erfiðleikar? „Það var helst húsið sem mynd- in var tekin í. í húsinu var timburgólf á báðum hæðum og það mátti varla hreyfa sig án þess að myndavélin vaggaði. Við reynd- um að leysa þetta mál með því að byggja undir gólfið, setja stífur Snorri Þórisson uósm. mw. Kristján undir það. Þetta leystist þó allt að lokum og ég held að þetta hafi tekist vel í stórum dráttum." — Hefur þú unnið áður að verkefni sem þessu? „Nei, þetta er fyrsta breiðtjalds- myndin sem ég vinn við. Það er skemmtilegra að vinna að breið- tjaldsmynd heldur en mynd fyrir sjónvarp, þetta gefur meiri mögu- leika. Að vísu átti ég erfitt með að finna mig í þessu í fyrstu, en þetta kemur allt með reynslunni." — Hvað með framhaldið? „Ég fer ekki aftur út í að gera mynd í fullri lengd sem eitthvert tómstundagaman. Þetta er allt of tímafrekt til þess. Ég fer ekki aftur í svona aukastarf. En ef ekki þyrfti að vinna að svona mynd í tómstundum þá kæmi slíkt vel til greina,“ sagði Snorri Þórisson. legt tökuhlutfall er um einn á móti tólf, en hjá okkur var það aðeins einn á móti fjórum, þ.e.a.s. einn metri af hverjum fjórum sem tekinn var nýttist. Við spöruðum einnig með því að taka vinnueintak af myndinni á 16 mm filmu, en ekki á 35 mm eins og hún raunverulega er.“ — Hvaða atriði var tæknilega erfiðast? „Það er lítið af tæknibrellum í myndinni. Mér fannst erfiðast að lýsa upp inniatriðin og koma þessari stóru myndavél fyrir á réttum stöðum. Myndavélarnar voru mjög þungar, önnur var tekin á leigu hjá aðilum í London, en hin hjá Vilhjálmi Knudsen. Það var afskaplega erfitt að flytja þá stærri og þurftu yfirleitt tveir menn að bera hana á milli sín, -

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.