Morgunblaðið - 26.06.1980, Síða 19

Morgunblaðið - 26.06.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1980 19 „Upphaflega hugmyndin var sú að gera mynd sem gerðist i nútímanum og fjallaði um mál sem væri ofarlega á baugi i þjóðfélaginu.“ sagði Hrafn Gunnlaugsson, höfundur og leik- stjóri Oðals feðranna, þegar Morgunblaðið spurði hann um kveikjuna að kvikmyndinni. „Ástæðuna fyrir áhuga okkar á gerð myndar um sögusvið í nútím- anum, má rekja til myndarinnar Lilju, sem við gerðum fyrir nokkr- um árum, en hún gerðist upp úr 1933. Þá hófst samstarf okkar þriggja. Við vorum á ýmsan hátt mjög sáttir við þá mynd, en það kostar mikla fyrirhöfn í búningum og leikmunum að setja í bakkgír í tímanum. Við ákváðum að seilast ekki upp í bókaskápinn í leit að efni, heldur reyna að láta verkið vaxa út úr þeim raunveruleika sem við búum öll við,“ sagði Hrafn. „Ákvörðunin var síðan tekin eftir langar samræður um þessi atriði, það tók okkur nokkurn tíma að ákveða hvert yrkisefnið ætti að vera. í þessari mynd er yrkisefnið fjölskylda sem býr úti á landi og Hrafn Gunnlaugsson Hrafn Gunnlaugsson leikstjóri og höfundur Óðals feðranna: Verkið óx út úr þeim raunveruleika sem við búum öll við stendur skyndilega á tímamótum þegar heimilisfaðirinn fellur frá. Þegar yrkisefnið lá ljóst fyrir þá kom að því að gera atburðarás. Upphaflega handritið var ekki nema 10—20 vélritaðar síður og þar var öðru fremur reynt að segja sjálfa söguna á ljósan hátt, án þess að fara út í samtöl. Eftir að hafa farið yfir atburðarásina og yrkisefnið lá næst fyrir að finna rétta fólkið í hlut- verkin. Það varð að falla að at- burðarásinni og yrkisefninu og einnig varð að vera hægt að vinna atburðarásina í gegnum hvern ein- stakling, orðavalið varð að falla að hverri persónu. Það var mikið verk að finna rétta fólkið, en ég hafði mér til aðstoðar ódrepandi manneskju, Ragnheiði Harvey, en hún var skrifta og sá auk þess um förðun. Við fórum af stað og fórum víða um landið. Á hverjum stað fundum við eina og eina persónu, en allstaðar fóru fram nákvæmar prófanir," sagði Hrafn. — Hvers vegna eru áhuga- leikarar í öllum hlutverkum? „Þessi leið sem valin var í upp- hafi, að vinna myndina út úr raunveruleikanum, gerir á vissan hátt kröfur til að leikararnir séu úr því umhverfi eða þekki það, og þá var leiðin mörkuð. Ég hef síður en svo ótrú á atvinnuleikurum. Fyrir nokkru tók ég upp Vandarhögg Jökuls Jakobssonar á Akureyri, en þar voru atvinnuleikarar í öllum stærstu hlutverkunum. Ég hef orðið var við það að menn halda að ég hafi einhverja ótrú á atvinnuleikurum, en það er alls ekki rétt. Hvert verkefni verður bara að hafa sinn stíl og aðferð. — Hvernig reyndust áhugaleikararnir? „Þeir reyndust vel. Það hlutverk sem erfiðast reyndist að finna réttan leikara í var hlutverk móður- innar. Hlutverkið gerir kröfu til mikilla andlegra átaka og djúps persónulegs skilnings á mannlegum geðhrifum. Það má segja að þetta hlutverk sé á vissan hátt burðarás myndarinnar, móðirin er miðpunkt- urinn sem allar línurnar skerast í. Það gekk seinlega að finna konu í þetta hlutverk. Við vorum búin að fara víða. Það voru nokkrar sem komu til greina, en engin þeirra hreif mig algerlega. Ég var ekki viss. Þá ræddi Ragnheiður við Leik- félag Kópavogs og þannig hittum við Hólmfríði Þórhallsdóttur. Ég prófaði hana og við vorum ekki búin að ræða saman nema í fáeinar mínútur þegar ég ákvað að velja hana. Ég efast ekki um að valið var rétt, hún er mikil leikkona, leikkona af guðsnáð. Grundvallaratriðið hvað móðurina varðar er ekki hvað hún segir, heldur það hugarástand sem hún er í. Þegar því hugarástandi er náð, þá kemur hitt af sjálfu sér. Þannig var það með Hólmfríði." — Hvernig kom vinnumaðurinn inn í myndina? „Theódór Þórðarson lögreglu- þjónn, sem er formaður Leikfélags Borgarness, setti upp á sínum tíma einþáttung eftir mig, Flugurnar í glugganum. í þessum einþáttungi fór Sveinn M. Eiðsson, sá sem leikur vinnumanninn, með eitt hlutverkið. Leikur Sveins kom mér mjög á óvart. Frá þeirri stundu var ég ákveðinn í að skrifa einhverntímann hlutverk fyrir hann. Hlutverk vinnumannsins er þetta hlutverk. Það má segja að Sveinn hafi verið inni í myndinni allt frá upphafi." — En hvað með aðalhlutverkið, Stefán? „Jakob Þór Einarsson, en hann leikur Stefán, hittum við uppi á Akranesi. Það komu margir til greina í hlutverk Stefáns, þessi aldursflokkur er það fjölmennur, en Jakob sýndi strax mikla næmni og hæfileika til að túlka þær hugsanir og geðbrigði sem bæra3t með Stef- áni. Jakob hefur feikna mikla list- ræna hæfileika og er einstakur að eiga samvinnu við. Annars held ég að erfiðast hafi verið að leika systurina, en Guðrún Þórðardóttir fer með hlutverk henn- ar. í leik er ekkert erfiðara en að leika líkamslýti einhverskonar, eins og hún gerir. Jafnframt þarf hún að leika stúlku sem verður fyrir gífur- legu tilfinningaáfalli, þegar hún lendir í greipum aðkomumannsins. Ég get nefnt það til gamans að þegar Bo Jonson, fyrrverandi for- stjóri sænsku kvikmyndastofnunar- innar sá myndina, viðhafði hann þau orð um Guðrúnu að þarna væri á ferðinni leikaraefni á heimsmæli- kvarða. Hins vegar er bæði út í hött og ómögulegt að gera upp á milli leikaranna. Þeir túlka ólíka persónuleika og ég er þeim öllum þakklátur, þó þú hafir látið þetta samtal snúast um þessa leikara fremur en aðra. Það er einnig vafasamt að fella dóm um einstaka leikara, það er aðeins mín persónu- lega skoðun sem þar kemur fram og hún skiptir raunverulega ekki máli, heldur hvað áhorfandanum sem sér myndina finnst," sagði Hrafn. „Ég get ekki látið hjá líða að minnast á fólkið sem stóð á bak við myndavélina, það mæddi kannski hvað mest á því. Það hafði á hendi störf eins og leikmunavörslu, förð- un, umsjón með búningum o.fl., en þetta fólk varð alltaf að vera til staðar. Og fékk aldrei frí á milli eins og leikararnir. Vinnutíminn var geysilega lang- ur, fólk fór á fætur klukkan 6 á morgnana og hætti oft ekki að vinna fyrr en 11—12 á kvöldin. Það má nefna að kvikmyndatökumaðurinn var yfirleitt ekki kominn í rúmið fyrr en löngu eftir miðnætti." — Hver er kostnaðurinn? „Við lögðum af stað með 5 millj- ónir í vasanum og veðsettar íbúðir. Hins vegar hafa lánastofnanir reynst okkur mjög vel. Samt hafa leikararnir reynst okkur best. Við sömdum við þá um að þeir fengju ekki greitt fyrr en farið væri að sýna myndina. Án þeirra aðstoðar hefði ekki veirð hægt að gera þetta. Þá reyndist Hekla h.f. og forstjóri fyrirtækisins, Ingimundur Sigfús- son okkur vel. Heildarkostnaður við myndina er um 65 milljónir þegar allt er talið, og þurfum við um 45 þúsund áhorfendur til að koma ekki út með halla.“ — Er þetta ekki óheppilegur árstími til frumsýningar? „Við vorum tilneyddir til að frumsýna nú. Við skuldum það mikið fé. Við verðum að vona að áhugi fólks bjargi okkur og almenn- ingur komi og sjái myndina, enda er ekkert sjónvarp í júlímánuði. Að lokum vil ég þakka þeim Snorra Þórissyni kvikmyndatöku- manni og Jóni Þór Hannessyni fyrir samstarfið. Að starfa með þeim var lífsreynsla sem ég hefði ekki viljað missa af,“ sagði Hrafn Gunnlaugs- son. Eiður Guðnason, alþm.: Tveggja kosta völ Margt hefur að undanförnu verið ritað og rætt um skoðana- kannanir, gildi þeirra og áreiðan- leik. Örugglega má sitthvað finna að þeim könnunum, sem síðdegis- blöðin hafa að undanförnu gert með tilliti til forsetakosninganna nú á sunnudaginn. í ljósi fyrri reynslu er þó næsta víst að þessar kannanir gefa mikilvæga vísbend- ingu um skoðanir kjósenda og stöðu einstakra frambjóðenda. Úrslitin í skoðanakönnun Vísis, sem birt voru á þriðjudag, komu ekki á óvart. Línurnar hafa verið að skýrast undanfarna daga og Vísiskönnunin staðfesti það sem margir hafa talið sig vita nú um nokkurt skeið, — nefnilega það, að baráttan stendur nú milli tveggja frambjóðenda, þeirra Guðlaugs Þorvaldssonar og Vigdísar Finn- bogadóttur. Auðvitað munu stuðn- ingsmenn Alberts og Péturs mót- mæla þessu, en því er þó erfitt að hagga. Miðað við fyrri kannanir og úrslit kosninga, þá er þetta hin raunverulega staða nú. Hinn fræðilegi möguleiki er auðvitað fyrir hendi, en hann er órafjarri hinum harða raunveruleika. Þeirri staðreynd er því erfitt að neita, hversu fegnir, sem sumir vildu, að nú er tveggja kosta völ. Sé litið á einstök kjördæmi í úrslitum Vísis hefur staða fram- bjóðendanna vissulega nokkuð breyst innbyrðis. I forsetakosn- ingum er landið allt hinsvegar eitt kjördæmi. Sé litið á niðurstöðurn- ar fyrir landið í heild, þá eru breytingarnar frá síðustu könnun nánast smávægilegar og það er vissulega athyglisverð staðreynd. Nú má segja að þau Guðlaugur Þorvaldsson og Vigdís Finnboga- dóttir standi jöfn miðað við Vís- iskönnunina. Munurinn á fylgi þeirra er svo lítill, að hann er engan veginn marktækur, eins og Vísir réttilega leggur áherslu á. Hér er því alveg ljóst að um tvísýna baráttu verður að ræða. Aldrei verður hinsvegar um of undirstrikað, að það er ekki sú saga sem skoðanakannanirnar segja, sem öllu máli skiptir, og það er ekki sú saga, sem skráð verður á spjöld sögunnar. Sagan. sem í þessu samhandi skiptir öllu máli er sagan, sem sögð verður að kveldi kjördags. þegar talið verð- ur upp úr kjörkössunum. Sú saga verður skráð á spjöld sögunnar. Allt bendir nú til að mjótt geti orðið á munum milli þeirra Guð- laugs og Vigdísar. Niðurstöður Vísis hljóta að verða okkur stuðn- ingsmönnum Guðlaugs í senn hvatning og áskorun til að vinna nú vel og drengilega að því að tryggja Guðlaugi Þorvaldssyni yfirburðasigur í kosningunum á sunnudaginn. Þorbjörn Guðm. varaform. Trésmíftaíélags Rvk. „Nú reynir á, félagar góðir“ Senn líður að því, að við íslend- ingar kjósum okkur nýjan forseta. Að þessu sinni eru 3 karlmenn og ein kona í kjöri. Aldrei í sögu lýðveldisins hefur kona gefið kost á sér sem forseti. Framboð Vigdís- ar Finnbogadóttur hefur fyrir margar sakir verið í brennidepli kosningabaráttunnar. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, að reynt hefur verið að gera framboð Vigdísar tortryggi- legt. Mikið.hefur verið hamrað á því, að hjón verði að vera á Bessa- stöðum. Við alla þá sem setja slíka fordóma fyrir sig, vil ég segja þetta: Við státum okkur, íslendingar, oft af því, að við séum í hópi þeirra þjóða sem búum við hvað hagstæðasta lýðræði sem þekkist í heiminum. Lýðræði sem grund- vallast á því, að allir þjóðfélags- þegnar búi við jöfnuð, sem byggir á að manngildi allra sé óháð uppruna, þjóðfélagsstöðu, efna- hag, kynferði eða heilsufari. Með því að halda fast við „hjónakenninguna", er verið að útiloka stóran hóp, þegna íslenska lýðveldisins, án tillits til mann- gildis, frá því að skipa æðstu stöðu lýðveldisins. Slík kenning gengur á skjön við grundvallarsjónarmið lýðræðis. í stefnuskrá Alþýðusambands Islands er lýst yfir að verkalýðs- hreyfingin muni halda áfram að efla baráttuna fyrir alhliða jafn- rétti kvenna og karla jafnt í atvinnulífinu, sem á öðrum svið- um þjóðlífsins. Af þessum orðum má ljóst vera, að verkalýðshreyf- ingin er tilbúin að styðja og styrkja alla þá sem efla vilja jafnrétti kvenna og karla. Allir sem rætt geta um framboð Vigdísar Finnbogadóttur með réttsýni, viðurkenna að það mun hafa veruleg áhrif til að örva konur til aukinnar þátttöku, og að taka að sér ábyrgðarstöður í þjóðfélaginu. Nú reynir þvi á, hvort einhver meining er í orðum stefnuskrár Alþýðusambands íslands, hvort verkalýðshreyfingin vill í raun og veru jafnrétti milli karla og kvenna, því Vigdís Finnbogadóttir stendur mótframbjóðendum sín- um síst að baki, hvað varðar alla mannkosti, sem við teljum að verði að prýða forseta vorn. Að mínum dómi er framboð Vigdísar Finnbogadóttur eitt stærsta tækifæri, íslenskt verka- fólk, til að sýna hvað býr í mætti fjöldans. Sýnum nú samstöðu og tryggj- um kjör Vigdísar, látum það ekki hafa áhrif á afstöðu okkar, að allstór hópur úr forustusveit verkalýðshreyfingarinnar, hefur annarra hagsmuna að gæta en að framfylgja mótaðri stefnu verka- lýðssamtakanna. Ágæti félagi, láttu ekki fordóma og gamlar kreddur hafa áhrif á þig. Grundaðu vel val þitt 29. júní, því val á forseta íslands getur haft afgerandi áhrif á þróun íslensks þjóðfélags.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.