Morgunblaðið - 26.06.1980, Side 20
2 0 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 19§o’ ,
Haraldur Ólafsson lektor:
Nauðsyn á reglum
um skoðanakannanir
SKOÐANAKANNANIR hafa tals-
vert verið til umræðu síðustu daga
ok mönnum sýnzt sitthvað í þeim
efnum. MorKunblaðið ræddi i Kær
við Harald Ólafsson. lektor, og
spurði hann álits á réttmæti þess að
nota sama úrtakið í tveimur skoð-
anakönnunum. Sagði Ilaraldur að
persónulega findist sér ekkert at-
hugavert við það svo framarleKa
sem kanna ætti afstöðu og breyt-
ingar innan ákveðins hóps og
greint væri frá vinnuhrögðum við
slika skoðanakonnun.
Hins vegar sagði Haraldur, að ef
gefa ætti mynd af afstöðu heildar-
innar þyrfti að taka tillit til fleiri
atriða og slíkt úrtak gæti þá verið
varhugavert og ekki fullkomlega
nákvæmt. Hann sagðist þó vita til
þess, að slíkt hefði verið gert erlend-
is. Að lokum sagði Haraldur að
brýna nauðsyn bæri til að setja lög
og regiur um skoðanakannanir og
sagði það sitt álit, að slíkar kannanir
hefðu mikil áhrif og illa unnar eða
undirbúnar skoðanakannanir gætu
verið skaðlegar. Haraldur tók fram
að með þessum orðum væri hann
ekki að tala um skoðanakönnun
dagblaðsins Vísis.
1 Morgunblaðinu í gær var sagt, að
í skoðanakönnun Vísis um síðustu
helgi hefði verið hringt í 1100
manns, sem ekki er rétt. Upphaflegt
úrtak blaðsins var 1055 manns og í
fyrri könnun blaðsins náðist í 852 af
þeim hópi. I síðari könnun blaðsins
var síðan reynt að ná sambandi við
þessa 852 og tókst að ná í 91,12% af
þeim hópi eða 776 manns.
Eru
þeir að
fá 'ann
Hið nýja húsnæði fyrir aldraða við Suðurgötu i Keflavík.
Nýtt húsnæði fyrir aldraða
í KEFLAVÍK hefur nú verið
tekið í notkun, á vegum bæjarfé-
lagsins, húsnæði fyrir aldraða
sem eru 11 hjóna- og cinstakl-
ingsibúðir, auk félagsaðstöðu i
kjallara hússins.
Íbúðirnar eru af stærðunum
54—66 fermetrar, en húsið allt
er 338 fermctrar á tveimur
hæðum auk kjallara.
Húsið er staðsett við Suður-
götu, ofan við skrúðgarð bæjar-
ins, og hafa allar íbúðirnar svalir
sem snúa út í skrúðgarðinn.
Keflavíkurbær hefur að auki tek-
ið á leigu 6 íbúða hús við
Hringbraut með litlum íbúðum
sem leigðar verða öldruðum. Fé-
lagsaðstaða í báðum þessum hús-
um verður rekin af Styrktarfélagi
aldraðra.
Þá er einnig verið að gera
teikningar að húsi með smáíbúð-
um fyrir aldraða sem staðsett
verður við Suðurgötu.
Utankjörstaðakosning:
Kosningalög banna að greitt
sé atkvæði oftar en einu sinni
— en geti menn kosið á kjördag er þeim í raun skylt að gera það.
Veiðin að glæðast
í Elliðaánum
VEIÐIN í Elliðaánum er heldur að
glæðast, en hún var fremur treg
framan af veiðitímanum samkv.
upplýsingum sem Mbl. fékk á
skrifstofu SVFR. Upp úr tuttug-
asta þessa mánaðar fór laxinn að
ganga að ráði og hefur verið
þokkaleg veiði í ánum síðan. Þann
22. júní komu upp 6 laxar, 5 laxar
þann 23. og 15 laxar 24. júní.
Flestir laxanna hafa veiðst i
Fossinum og þrepunum og hafa
þeir allir veiðst á maðk. Stærsti
laxinn sem veiðst hefur var 15
pund að þyngd. Á þriðjudaginn
voru komnir 177 laxar upp fyrir
teljarann og er það mun meira en
á sama tíma í fyrra, en þá voru
aðeins komnir um 70 laxar upp
fyrir.
Á þriðjudagskvöld var kominn
41 lax upp úr ánni og væntanlega
eru þeir orðnir fleiri nú.
Góð veiði á
4. svæði í Laxá
í Hreppum
Laxá í Hreppum opnaði þann 21.
júní. Fyrsta hópnum sem veiddi
þar vegnaði vel, fékk 19 laxa. Þeir
voru augsýnilega nýgengnir, þar
sem flestir voru lúsugir. Þetta var
á efsta svæðinu í Laxá, svokölluðu
fjórða svæði. Þá er talið að
eitthvað hafi veiðst á hinum
svæðunum, þó ekki hafi fengist
nákvæmar fregnir af því.
Laxinn er farinn að ganga
nokkuð í Sogið og fengust þar 4
laxar þann 23. júní og voru þrír
þeirra lúsugir.
Þá er lax farinn að sýna sig í
Breiðadalsá, en laxinn gengur
yfirleitt frekar seint í þá á. Það, að
laxinn er farinn að ganga fyrr en
venjulega, má vafalaust rekja til
hlýindanna að undanförnu.
Flugan vinsæl
í Norðurá
í Norðurá byrjaði veiðin 1. júní.
Veiðin þar hefur gengið þokka-
lega, m.a. gekk síðasta hópi vel, en
þá veiddust 90 laxar. I Norðurá
eru 12 stengur. Nú eru um 300
laxar komnir upp úr ánni. Mikið
hefur veiðst á flugu í Norðurá og
segja menn að áin sé svipuð að
vöxtum nú og venjulega er í
júlímánuði. Þá er laxinn stærri nú
en verið hefur, um helmingur
laxanna er um og yfir 10 pund.
Stærstu laxarnir úr Norðurá voru
17 pund og veiddust þeir á flugu.
Veiðin í Grímsá hófst þann 20.
júní. Þrjá fyrstu dagana komu upp
úr ánni um 25 laxar. Ekki hefur
frést hvernig veiðst hefur síðan.
Hins vegar hefur verið mjög góð
veiði í Hvítá í Borgarfirði og hefur
veiðst þar vel í net. — oj.
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ sendi
frá sér tilkynningu í gær vegna
orðsendingar stuðningsmanna Pét-
urs Thorsteinssonar í dagblaðs-
auglýsingu til þeirra sem þegar
hafa kosið utan kjörfundar. I aug-
lýsingunni segir að þeir, sem þegar
hafa kosið utan kjörfundar geti
kosið með þeim hætti aftur. „Við
þessu er beint bann í 64. grein
kosningalaganna og sektarrefsing
liggur við eftir 141. grein laganna,"
segir í tilkynningu dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins. óskar Frið-
riksson, kosningastjóri Péturs
Thorsteinssonar, sagði þennan
hluta auglýsinKarinnar mistök,
sem leiðrétt yrðu með auglýsingum
i blöðum i dag.
Baldur Möller, ráðuneytisstjóri,
sagði í samtali við Mbl. í gær, að
honum væri ekki kunnugt um dæmi
þess að tvö utankjörstaðaatkvæði
hefðu komið fram frá sama aðila, en
„það væri alveg til í dæminu að
kjörstjórn dæmdi bæði atkvæðin
ógild," sagði Baldur, en tók fram að í
kosningalögunum segði ekki ná-
kvæmlega fyrir um það, hvernig
kjörstjórn ætti að taka á slíku máli.
Að vísu undirrituðu menn yfirlýs-
ingu við utankjörstaðakosningu um
að þeir hefðu ekki kosið annars
staðar, en hætta væri fyrir hendi, ef
menn teldu þetta mögulegt, að þeim
láðist að skýra frá því og kysu aftur
á öðrum stað athugasemdalaust og
bæði brytu þá lög og settu atkvæði
sitt í hættu. Hitt væri svo aftur, að
samkvæmt kosningalögum er þeim,
sem geta kosið á kjördegi, skylt að
gera það, enda þótt þeir hafi áður
kosið utankjörstaðar, en Baldur
sagði, að aldrei hefði verið talið fært
að framfylgja þessu ákvæði kosn-
ingalaganna.
Óskar Friðriksson sagði, að það
sem stuðningsmenn Péturs Thor-
steinssonar hefðu viljað benda
mönnum á, væri að þeir gætu kosið
aftur á kjördag, þótt þeir hefðu
greitt atkvæði utankjörstaðar. „Það
hefur verið mikið spurt um það eftir
síðustu framboðsþættina í sjónvarpi
og útvarpi, hvort fólk geti breytt
atkvæði sínu, þar sem það hafi skipt
um skoðun og vilji nú kjósa annan
frambjóðanda en það gerði í utan-
kjörstaðakosningunni og við höfum
bent fólki á þann möguleika að kjósa
á kjörstað á kosningadaginn," sagði
Óskar. „Það er sú lína, sem lögð
hefur verið og mér er ekki kunnugt
um að aðrar upplýsingar hafi verið
gefnar.
Þessi auglýsing er tilkomin vegna
þessa, en hins vegar sá ég hana ekki
fyrr en ég las hana í Morgunblaðinu.
Við munum að sjálfsögðu leiðrétta
þessi mistök á morgun.“
„Þetta þarf að leiðrétta strax,“
sagði Jónas Gústafsson borgarfóg-
eti. „Það gæti valdið okkur miklum
óþægindum við utankjörstaðakosn-
inguna, ef fólk færi að koma til að
kjósa aftur vegna þess að það hefði
skipt um skoðun. Við yrðum þá að
neita fólki um það og slíkt yrði
aðeins til óþæginda."
Mbl. spurði Jónas, hvort einhver
dæmi þess hefðu orðið í gær, að fólk
vildi kjósa aftur, en hann sagði svo
ekki vera, en hins vegar hefði mikið
verið hringt í skrifstofu borgarfóg-
eta og spurt um málið. „Enginn má
senda frá sér nema einn kjörseðil,"
sagði Jónas. „En hins vegar er fólki
alltaf heimilt að kjósa á kjördag,
Tvær sölur
HAFBERG GK seldi 47.4 tonn af
ísfiski í Fleetwood í gær og
fengust 23.8 milljónir fyrir aflann,
meðalverð 503 krónur. Sigurey SI
seldi 91.3 tonn í Hull fyrir 49.8
milljónir, meðalverð 546 krónur.
hvort sem mönnum hefur snúizt
hugur eða ekki.“
Mbl. spurði Jónas, hvernig utan-
kjörstaðakosningin gengi í Reykja-
vík. „Það hefur verið mikil aðsókn í
dag og í gær; miklu meiri en
sambærilega daga undanfarin kosn-
ingaár," sagði Jónas. „Þegar við
hættum í gærkvöldi höfðu rúmlega
100 færri kosið en í kosningunum
1978 og ég hugsa að sá munur
vinnist upp í dag, þannig að kosning-
in sé að komast í eðlilegt horf, ef svo
má segja, miðað við fyrri kosn-
ingar.“
Dauði kúnna á
Brennu rakinn
til eitrunar
„ÞAÐ eina. sem við getum saKt
á þessu stigi er, að þarna er
um einhvers konar eitrun að
ræða, því að við höfum fundið
eitrunareinkenni í líffærum úr
dauðum kúm frá Brennu, sem
við höfum skoðað. Hvers konar
eitrun þetta er. vitum við ekki
enn," saKði SÍKurður Sigurðar-
son, dýralæknir á Tilrauna-
stöðinni á Keldum í gær, er
hann var spurður um rann-
sókn á dauða kúnna tíu á
bænum Brennu í Lundar-
reykjadal.
Sigurður sagði, að því miður
hefðu þeir á Keldum ekki fengið
til rannsóknar nýdauða gripi
frá Brennu, því nokkurn tíma
tæki að flytja þá suður og eins
fyrir þá að fara upp að Brennu
til að kryfja þá. Einnig sagði
Sigurður, að flestar kýrnar
hefðu fengið einhver lyf áður en
þær drápust og því væri erfitt
að greina nákvæmlega eitrun-
areinkennin.
„Ég man ekki eftir að kýr
hafi drepist á einum bæ með
þessum hætti en vitanlega eru
alltaf til dæmi um að ein og ein
kýr drepist án þess að hægt sé
að finna dánarorsökina svo
óyggjandi sé. Þetta er því mjög
óvanalegt og tilfinnanlegt tjón
sem bóndinn á Brennu hefur
orðið fyrir,“ sagði Sigurður og
aðspurður um, hvort fóður
kynni að hafa valdið dauða
kúnna, sagði hann að ekkert
benti til að svo væri.