Morgunblaðið - 26.06.1980, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1980
33
Hrefna Sigvaldadóttir skólastjóri:
Hugleiðing um for-
setaframbjóðendurna
Jæja, þá hefur íslensku þjóðinni
loksins gefist kostur á að sjá og
heyra frambjóðendurna fjóra í
ríkisfjölmiðlunum, svo að nokkru
nemi.
Ég, sem þetta rita, lýsi sök á
hendur þessum stofnunum fyrir
að láta þetta dragast svona. Fjöldi
manna er búinn að kjósa utan
kjörstaða án þess að hafa hug-
mynd um hvað þeir voru að gera.
Reyndar mun stór hópur líka
lenda í því sama á kjördegi, því að
einn frambjóðendanna virðist
vera í svo stöðugri umbreytingu,
að enginn mun vita með vissu,
hvernig hann verður orðinn eftir
þrjá mánuði, hvað þá sex. Mér
fannst hreint og beint ömurlegt að
hlusta á manneskju, sem býður sig
fram til æðsta embættis þjóðar-
innar, þurfa að eyða dýrmætum
tíma sínum í áhrifamiklum fjöl-
miðli til þess að taka til baka
ýmsar fullyrðingar sínar í yfir-
standandi kosningabaráttu. Að-
dáendur tungutaks þessa fram-
bjóðanda hljóta líka að hafa
hrokkið við, þegar viðkomandi tók
sér í munn jákvætt lýsingarorð til
þess að lýsa neikvæðri athöfn.
Þann leiða sið, er nú er í tísku,
ætti ekki að efla.
Annað, sem vakti athygli mína,
var, hve sumum þeirra vafðist oft
tunga um tönn og áberandi var
óskýr hugsun og hreint og beint
erfiðleikar við að skilja spurn-
ingarnar. Mega þeir þó þakka
spyrlum sjónvarpsins fyrir, hve
oft þeir beindu spurningum sínum
fyrst til þess, sem virtist skýrast-
ur, og gafst hinum þá betra
tækifæri til að átta sig.
Einn frambjóðendanna minnti
mig óneitanlega á frægan fyrir-
rennara sinn, sáttasemjarann
mikla Neville nokkurn Chamber-
lain. Hann virtist ekki hafa mikl-
ar áhyggjur af heimsmálunum.
Nei, svo friðsamir mega menn
ekki vera, að þeir stingi höfðinu í
sandinn eins og strúturinn, þegar
þeirra friðsama hugarfar gæti
orðið fyrir óþægindum.
Fótboltakappanum hefði sjálf-
sagt verið sýnt gula spjaldið eða
hvernig sem það nú er á litinn
þetta áminningarspjald dómar-
ans, þegar leikmenn eru með
uppsteyt. Hann virtist reiður út í
spyrla og meðframbjóðendur og
minnti óþægilega á óþekkan
krakka á stundum.
Ég er orðin hundleið á halle-
lújagreinum um, að allt sé þetta
hæft fólk. Mér finnst aðeins einn
þessara frambjóðenda hæfur til
forsetaembættisins. Hann virðist
gera sér fulla grein fyrir eðli þess
starfs, er hann sækir um, og
treysta sér til að gegna því án
skara ráðgjafa.
Ég veit, að ég geri honum
sjálfsagt engan greiða með þess-
um skrifum, en mér dettur ekki í
hug að vera með tæpitunguhjal af
því að engan má meiða. Þetta fólk
er allt haldið því sjálfstrausti, að
það býður sig fram til æðsta
embættis þjóðarinnar, og það
verður að taka því, að við óþreytt-
ir borgarar leggjum á það okkar
mat.
Við kvenréttindakonurnar vil ég
segja þetta. Ég tel mig ekki
bregðast í jafnréttisbaráttunni
með því að taka karlmann, sem
hefur áberandi yfirburði, fram
yfir konu. Þvert á móti. Við konur
stöndum ekki jafnfætis karl-
mönnum fyrr en við erum lausar
við alla minnimáttarkennd og
metum karla og konur að verðleik-
um án snefils af hlutdrægni.
Að lokum þetta: Nú reynir á
þjóðina. Hvert atkvæðl er nú jafnt
að vægi, burtséð frá búsetu. Þess-
ar kosningar gætu gefið til kynna,
hvort breytingar á kosningalög-
gjöfinni í átt til jöfnunar mundu
stuðla að kosningu hæfari manna
til þings eða öfugt.
í dag kl. 16.20 hefst
Brynhildur og Albert
ávarpa fundinn.
fylgismanna Alberts Guömundssonar og
Brynhildar Jóhannsdóttur viö forsetakjör.
Fundurinn verður á Lækjartorgi.
RÆÐUMENN:
Dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir
alþingismaöur, Birgir ísl. Gunnarsson alþingismaöur og Guðmundur J.
Guömundsson formaöur Verkamannasambands íslands og Jón
Aðalsteinn Jónasson formaöur fulltrúaráös Framsóknarfélaganna í
Reykjavík.
Fundarstjóri: Ingólfur Jónsson fyrrverandi ráöherra.
Fundarsetning: Aöalheiður Bjarnfreösdóttir formaöur Sóknar.
BRIMKLÓ OG PÁLMI GUNNARSSON,
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR,
HORNAFLOKKUR KÓPAVOGS,
einnig koma fram söngvararnir
SIGURVEIG HJALTESTED OG KRISTINN HALLSSON