Morgunblaðið - 26.06.1980, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1980
47
Frábær árangur Odds
í 400 m í Vesterás
Sló íslandsmet Bjarna Stefánssonar og sigraöi
„ÉG VONA að ég eigi eftir að
gera betur. Það vantaði keppni á
lokasprettinum. Var þá að vísu
orðinn þreyttur, virkaði þó vel
upplagður fyrir hlaupið. þrátt
fyrir 12 tíma ferðalag frá Finn-
landi i gær.“ Þannig mælti Oddur
Sigurðsson spretthlaupari úr KA
í spjalli við Mbl. i fyrrinótt,
skömmu eftir að hafa sett nýtt og
glæsilegt íslandsmet i 400 metra
hlaupi i frjálsiþróttamóti i bæn-
um Vesterás i Svíþjóð. Oddur
hljóp á 46,64 sekúndum og sló
þar með met Bjarna Stefánssonar
KR, en met Bjarna var 46,76
sekúndur, sett á ólympiuleikun-
um i Munchen 1972. Oddur átti
bezt áður 47,42 sekúndur, en
þeim árangri náði hann á móti i
Finnlandi i fyrri viku.
„Þetta var ekki sérlega erfitt
hlaup. Nú þarf ég endilega að
mæta sterkari mönnum til að sjá
hvernig ég kem út í meiri keppni á
endasprettinum," sagði Oddur.
Hann sagðist hafa lent í góðri
keppni við Finna á mótinu í
Finnlandi, en brautirnar þar
hefðu ekki boðið upp á árangur,
þær hefðu verið harðar sem mal-
bik. Oddur varð annar í 400 metra
hlaupinu í Finnlandi, en sigraði
daginn eftir í 200 metra hlaupi á
sama velli á 21,70 sekúndum. „Það
var gaman að keppa í Finnlandi,
það komu 6.000 manns á mótið, en
íbúar bæjarins eru þó ekki nema
10.000,“ sagði Oddur.
„Oddur vakti mikla athygli í
Vesterás," sagði Jón Sævar Þórð-
arson þjálfari KA í samtali við
Mbl. „Hann er nú aðeins 1/10 úr
sekúndu frá Olýmpíulágmarkinu,
en þess má geta að jafnframt var
tekinn tími á skeiðklukkur í
hlaupinu og sýndu þær 46,4 sek-
úndur, sem jafngildir ólympíulág-
markinu."
Jón Sævar sagði að Oddur hefði
í hlaupinu sigrað Hollending er
hefur hlaupið á 46,1 sekúndu í ár.
„Það ætla ég að vona,“ sagði Jón
er hann var spurður að því hvort
hann væri ekki bjartsýnn á að
Oddur ætti eftir að bæta þennan
glæsilega árangur í 400 metra
hlaupi. Fróðlegt verður að fylgjast
með Oddi í 400 metra hlaupi á
Bisletleikvanginum í Osló, en þar
keppir hann næstkomandi þriðju-
dag. Þar kemst Oddur í góða
keppni, því beztu menn sækjast
eftir að keppa á Bislet, þar sem
góður árangur næst að jafnaði
þar.
Það er ljóst að ferðalag Odds og
Jóns Sævars til Norðurlanda er
þegar orðin ferð til fjár, og ef að
líkum lætur á eftir að verða enn
meiri árangur af ferðinni, sem
félag þeirra á Akureyri, KA, ber
hita og kostnað af. — ágás.
íþróttaþing
Samhliða Íþróttahátíðinni verð-
ur haldið íþróttaþing í Reykjavík.
Verða þar tekin til umfjöllunar
hin ýmsu málefni íþróttastarfsins
í landinu, en dagskrá þingsins er
Oddur Sigurðsson KA setti glæsilegt Islandsmet í 400
metra hlaupi.
Frægir íþróttamenn
verða heiðursgestir
Iþróttahátíóin er
fyrir almenning
Heiðursgestir
Íþróttahátíðarnefnd hefur
ákveðið að bjóða nokkrum af
þekktustu íþróttamönnum lands-
ins frá fyrri tíð, sem sérstökum
heiðursgestum á hátíðina. Eru þar
eftirtaldir íþróttamenn: Gunnar
Huseby, Vilhjálmur Einarsson,
Torfi Bryngeirsson, Örn Clausen,
Haukur Clausen, Sigurður Jóns-
son (Þingeyingur), Jónas Hall-
dórsson, Ríkharður Jónsson,
Kristján Vattnes, Óskar Jónsson,
Jón Ingi Guðmundsson, Guð-
mundur Gíslason og Albert Guð-
mundsson.
Verði aðgöngumiða
stillt í hóf
Verði aðgöngumiða á hátíðina
verður mjög stillt í hóf. Unnt
verður að fá keypta aðgöngumiða
sérstaklega á hin einstöku íþrótta-
mót, en einnig verða seldir sér-
stakir aðgöngumiðar sem gilda á
alla hátíðina og kosta þeir 3000
krónur. Sérstaklega verður svo
selt inn á dansleikinn í Laugar-
dalshöllinni.
Íþróttahátíðarnefnd
Íþróttahátíðarnefnd sem unnið
hefur að skipulagi Íþróttahátíðar-
innar er þannig skipuð: Sveinn
Björnsson, varaforseti ÍSÍ, for-
maður, Þorsteinn Einarsson
íþróttafulltrúi, Þórður Þorkelsson
gjaldkeri ÍSI, Hermann Sig-
tryggsson, Akureyri; Hörður S.
Óskarsson, Selfossi; Yngvi Rafn
Baldvinsson, Hafnarfirði; Jón
Guðjónsson, Bolungarvík; Óskar
Ágústsson, Laugum, S-Þingeyjar-
sýslu; Sigurjón Bjarnason, Egils-
stöðum; Sigurgeir Guðmannsson,
Reykjavík og Þröstur Stefánsson,
Akranesi. 1 framkvæmdanefnd
áttu sæti þeir Sveinn, Þorsteinn
og Þórður. Framkvæmdastjóri há-
tíðarinnar er Sigurður Magnús-
son, skrifstofustjóri íþróttasam-
bands íslands.
að finna í dagskrá Íþróttahátíðar
sem fylgir hér með. Allmargir
erlendir gestir, forystumenn
íþróttasamtaka á Norðurlöndun-
um, munu sitja þingið.
Dagskráin í dag
Kl. 18.00 - Kyndilhlaup
íþróttahátiðar hefst við norðvest-
urenda Tjarnarinnar.
Kl. 19.30 — Hópganga
iþróttafólks hefst við Sunnuveg.
Gengið verður á Laugardalsvöll
þar sem setningarathöfnin hefst
kl. 20.
Kl. 21.00 — Körfuknattleikur í
Laugardalshöll, landslið og
landslið 21 árs og yngri.
Kl. 21.00 — Setning badminton-
móts hjá TBR.
Allir geta verið með
Stefnt er að því að allir geti
verið þátttakendur i Íþróttahátíð-
inni, og verða t.d. á föstudag,
laugardag og fyrir hádegi á
sunnudag allir sundstaðir borgar-
innar opnir fyrir almenning. Get-
ur fólk þar tekið þátt í 200 metra
sundi, án tímatöku, og teljast þeir,
er ijúka slíku sundi, þátttakendur
í hátíðinni og fá viðurkenn-
ingarskjöl í verðlaun. Þá verður
efnt til stuttra gönguferða á
meðan á hátíðinni stendur. Sér-
stök nefnd sér um skipulag þeirra
ferða og eiga sæti í henni Einar
Guðjohnsen, Tómas Einarsson,
Gunnar Hjartarson og Vilhelm
Andersen. Verður annars vegar
um að ræða gönguferðir um Geld-
inganes, og hefst sú ganga við
Eiði, á hæðinni fyrir ofan Aburð-
arverksmiðjuna í Gufunesi. Hins
vegar verða gönguferðir á Helga-
fell og í Búrfellsgjá og Búrfell.
Þær göngur hefjast við Kaldársel,
en þegar haldið er til Kaldársels
er beygt út af Keflavíkurveginum
við kirkjugarðinn í Hafnarfirði.
Rétt er að benda væntanlegum
þátttakendum í gönguferðunum á
að vera vel klæddir.
Álafosshlaupið
Einn síðasti liðurinn á íþrótta-
dagskrá hátíðarinnar verður Ála-
fosshlaupið. Hér á árum áður var
hlaup þetta einn merkasti við-
burðurinn á íþróttasviðinu ár
hvert, en það hefur nú legið niðri í
rösk fjörutíu ár. Hlaupið, sem er
um 14 kílómetrar, verður liður í
lokahátíðinni. Það verður opið til
þátttöku og verður keppt í mörg-
um flokkum karla og kvenna.
Búist er við miklum fjölda þátt-
takenda í hlaupinu, og er ástæða
til þess að hvetja alla þá sem
treysta sér til þess að hlaupa eða
skokka þessa vegalengd að vera
með. Hlaupinu mun ljúka á Laug-
ardalsvellinum, meðan á lokaat-
höfninni stendur, en stöðugar
fréttir munu berast þangað af
hlaupinu. Sigurvegarinn í Alafoss-
hlaupinu mun hljóta að launum
mjög veglegan verðlaunagrip sem
gefinn er af Álafossi hf.
>