Morgunblaðið - 10.07.1980, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ1980
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
Vökvamótorar
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA
$2744
ÁSVALLAGATA 125 FM
Sérlega falleg 4ra herb. íbúö á 1.
hæö í nýlegu húsi. Góöur bílskúr.
Verö: 55.0 millj.
SOGAVEGUR
Steypt einbýlishús í botnlanga
viö Sogaveg. Húsiö er 115 ferm.
á 2 hæöum. 4 svefnherb, 2
stofur, eldhús, bað og gesta WC.
Bflskúrsréttur. Verö 60—65 millj.
HVASSALEITI
3JA HERB.
Ca. 90 ferm. íbúö á 1. hæö. Lítið
áhvflandi.
SUÐURHÓLAR 120 FM
4ra herb. endaíbúö á 3. hæö.
Gott útsýni, suöursvalir. Verö:
37.0 millj. Útb.: 30.0 millj.
MOSFELLSSVEIT
Fokhelt 140 ferm. einbýlishús,
ásamt bflskúr viö Arnartanga. Til
afhendingar strax. Verð: 36.0
millj.
SELTJARNARNES
Fokhelt 220 ferm. raöhús viö
Bollagaröa. Endahús, teikningar
á skrifstofunni. Verö 47 millj.
SERVERSLUN
HAFNARFIRÐI
Hljómplötu- og fataverslun viö
Strandgötu. Lrtil en# aröbær
verslun. Gott tækifæri fyrir þann
sem vill skapa sér sjálfstæöi.
FAGRAKINN SÉRHÆÐ
Neöri hæö í tvíbýlishúsi, ca. 112
ferm. 4ra herbergja. Mögul.
skipti á 3ja herb. í Kópavogi eöa
Reykjavík. Verö: 40.0 millj. .
BÍLDUDALUR 100 FM
Rúmgóö efri hæö í tvíbýli. Sér
hiti, sér inng. Verð 17.0 millj.
LAUFÁS
GRENSÁSVEGI 22~24
k. (LITAVERSHÚStNU 3.HÆÐ)
Guömundur Reykfalín. viösk fr
Valdís Oskars-
dóttir í Djúpinu
Ég held, að Valdís Óskarsdóttir
sé þekktari sem rithöfundur en
myndlistarkona. Hún er ljós-
myndari að sinni, en ef til vill væri
betra að nefna hana skáld að baki
ljósmyndavélarinnar. Valdís er
nefnilega þannig hugsandi í list
sinni, að meira virðist lagt upp úr
skáldlegu innihaldi verka hennar
en tæknilegri fullkomnun. Ekki
má skilja þessi orð á þann veg, að
hér sé ábótavant tæknilegri með-
ferð myndavélarinnar. Ég er ekki
svo vel að mér í þeim fræðum, að
ég geti lagt þar neitt til mála. En
samt get ég ekki annað sagt en að
mér virðist Valdís hafa furðu
mikið vald á tækni og geta skilað
þeirri hugmynd, er hún glímir við
hverju sinni, án þess að annmark-
ar séu á.
Þessi sýning í Djúpinu er
skemmtileg að mínum dómi. Þar
eru um tuttugu ljósmyndir, sem
eru mikið í ætt við súrrealisma og
jafnvel byggðar á þeirri
hugmyndafræði, svo að ekki verð-
ur um villst. Þessi verk eru ekki
hávaðasöm og heldur ekki neinir
flekar, en þau segja sitt og koma
til skila því, er listakonan hefur að
segja hverju sinni. Þetta er sam-
stæð sýning og laus við allt prjál
og fikt. Hér er farið að innsta eðli
hlutanna, og hverjum og einum er
gefinn kostur á að draga sínar
ályktanir, gera hverju og einu
verki þau skil, er áhorfanda er
mögulegt með því móttökutæki, er
hann ræður yfir. Sumir sjá þetta,
aðrir hitt og svo framvegis. Það
mætti ef til vill orða þetta þannig,
að hér væri á ferð list, sem krefði
Myndllst
eftir VALTÝ
PÉTURSSON
bæði skapara og neytanda þess að
beita huga sínum og því yrðu þessi
verk samspil millum þess fólks, er
kæmi við sögu í hvert skipti.
Verk Valdísar eru fáguð og vel
frá öllu gengið. Hún hefur stundað
nokkuð ljósmyndun, bæði hér
heima og erlendis. Ég er ekki frá
þeirri skoðun, að Valdísi sé ljós-
myndagerð mjög eðlileg og að hún
lifi í huga sínum það, er myndirn-
ar skýra frá. Þarna er að finna
vissa ljóðrænu, er gefur mörgum
þessara verka viðkvæman og við-
felldinn blæ, persónulegar tilfinn-
ingar, sem koma vel í ljós. Mitt
álit er, að Valdís hafi fundið þarna
útrás fyrir margt, er henni lá á
hjarta. Það virðist einnig gefa
auga leið, að þessi verk gætu farið
mjög vel við kvæði, og ef ég veit
rétt, hefur hún einmitt stundað þá
81066
Leitiö ekki lanyt yfir skammt
OPIO TIL KL 10 í KVÖLD
ÆSUFELL
2ja herb. góö 65 ferm. íbúö á 1.
hæð.
KLAPPARSTÍGUR
2ja herb. 65 ferm. fokheld íbúö
á 2. hæö.
VESTURBERG
2ja herb. falleg 65 ferm. íbúö á
3. hæö.
BREIÐAGERÐI
3ja herb. góö 65 ferm. íbúö í
kjallara. Sér inngangur.
NJÁLSGATA
3ja herb. góö 85 ferm. íbúö i
kjallara.
EYJABAKKI
3ja herb. falleg 85 ferm. íbúö á
2. hæö. Sér þvottahús. Flísalagt
baö.
ÁLFTAHÓLAR
M/BÍLSKÚR
3ja herb. mjög falleg og rúm-
góö 92 ferm. íbúö á 3. hæö,
ásamt bílskúr.
KÓNGSBAKKI
4ra herb. falleg 110 ferm íbúö á
2. hæö. Sér þvottahús. Flísalagt
baö.
FLUÐASEL
4ra herb. góö 110 ferm. íbúö á
1. hæö. Bflskýli.
ÁLAGRANDI
3ja herb. ný 75 ferm. íbúð á
jaröhæö.
MÁVAHLÍÐ
5 herb. góö 110 ferm. rishæö í
fjórbýlíshúsi. Suöur svalir.
HÆDARGARÐUR
125 ferm. raöhús tilbúiö undir
tréverk.
SÍÐUSEL
Fokhelt parhús á tveim hæöum
samtals 216 ferm. Bílskúrsrétt-
ur.
HúsafeH
FASTEKSNASALA Langholtsvegi 115
( BæjarleAahusmu ) simi■■ 81066 .
Aðalsteinn Pétursson
Bergur Guönason hdl
2ja herbergja
íbúöir við Hverfisgötu, Hrísateig,
Hjallabraut í Hafnarf., Gnoðar-
vog, Gaukshóla, Kleppsveg,
Asparfell og Æsufell.
3ja herbergja
íbúöir viö Asparfell, Álftamýri,
Hjallabraut í Hafnarf., Reynimel,
Rauöalæk, Hraunteig, Hamra-
borg, Efstahjalla, Engihjalla í
Kópav., Álfhólsveg, Sprtalastíg
og Álfaskeiö í Hafnarf.
4ra herbergja
íbúöir viö Kársnesbraut, Miö-
vang í Hafnarf., Sörlaskjól, Háa-
leitisbraut, Álfaskeið í Hafnarf.,
Miöbraut á Seltjarnarnesi og
víöar.
4ra herbergja
mjög góö íbúö á 2. hæö viö
Álfheima um 108 ferm. Suöur
svalir. Flísal. baðveggir. Teppa-
lagt. Verö 41—42 millj.
5 herbergja
íbúö í fjórbýllshúsi við Hringbraut
í Keflavík, um 140 ferm. Austur
og vestur svalir. 4 svefnherbergi.
Einbýlishús — raöhús •
viö Kópavogsbraut, Arnartanga í
Mosfellss. Borgarholtsbraut,
Keilufell í Breiöh. og víðar.
Lóö — land
um 2 hektarar í eignarlandi í
Flóanum í nánd viö Selfoss, má
nota undir sumarbústaöi.
Hraöhreinsun
Höfum veriö beönir aö selja
efnalaug í Árbæjarhverfi, Rvík.
Er í leiguhúsnæöi. Góö tæki og
nýjar innréttingar.
mmm
* nSTEICHB
AUSTURSTRÆTI 10 A 5 HÆO
Sfmi 24850 og 21970.
Heimasími 38157
Valdis Óskarsdóttir: „Ég ber höfðinu við steininn uns steinninn eða
höfuðið hverfur.“
margslungnu listgrein að mynd-
skreyta ljóð með verkum sínum.
Með örfáum verkum á þessari
sýningu er smávegis af texta, það
má vel vera, að þar séu kvæði á
ferð, en hvernig sem það er, fór
það vel við myndefnið og gaf
viðkomandi verkum aukna merk-
ingu í mínum augum.
Eins og sjá má af þessum línum,
var ég ánægður með innlitið í
Djúpið að þessu sinni. Valdís
Óskarsdóttir getur auðsjáanlega
meira og annað en komið saman
bók handa ungum lesendum. Hér
sýnir hún aðrar hliðar á hæfileik-
um sínum og getur vel við unað.
Valtýr Pétursson
Unglingsstúlkur
stunjla vændi á göt-
um Oslóar á sumrin
Tilraunir yfirvalda til að stemma stigu við
þeirri starfsemi hafa engan árangur borið
Frá Jan Erik Lauré
fréttaritara Mbl. i Ósló 8. júlí
Unglingsstúlkur á aldrinum
13—16 ára stunda vændi á göt-
um Óslóar á sumrin. Félags-
málayfirvöld í Ósló hafa í fleiri
ár barist á móti því að stúlkur
undir 16 ára aldri selji blíðu sína
á götum borgarinnar. Nú er
sumar í Ósló og viðskiptin
blómstra.
Um 20 stúlkur á þessum aldri
eru á skrá sem vændiskonur.
Þetta eru stúlkur sem koma utan
af landi til Óslóar í sumarfríinu
sínu til að vinna sér inn peninga
með því að selja líkama sinn í
stað þess að stunda þá sumar-
vinnu sem unglingum stendur til
boða.
Nokkrar þessara stúlkna eru
eiturlyfjaneytendur og þarfnast
mikilla peninga til þess að kaupa
lyf. Sumar fá borganir í formi
þynnis eða annarra efna sem
fjarlægja málningu. Með því að
hella þessum efnum í klút og
þefa af þeim svífur á þær víma
og langvarandi notkun þeirra er
stórskaðleg fyrir starfsemi heil-
ans.
Lögreglan og félagsmálayfir-
völd hafa reynt að fá stúlkurnar
til að hætta þessari vændis-
starfsemi. Fyrr í ár leit út fyrir
að það hefði tekist en er sumarið
hélt innreið sína í Ósló fóru
viðskiptin að blómstra á ný.
Sumar þessara stúlkna hafa
verið teknar á götunni og sendar
til heimila sinna en þær koma
aftur eftir skamman tíma.
Nokkrar stúlkur um tvítugt
stunda vændi í Ósló og gerir
lögreglan lítið til að koma í veg
fyrir það en hún vill ekki leyfa
stúlkum undir 16 ára aldri að
selja blíðu sína fyrir peninga.
Ársrit Sögufélags
Isfirðinga
ÁRSRIT Sögufélags ísfirðinga
1980 er komið út og er það 23.
árgangur ritsins. Meðal efnis er
grein um Sæbólskirkju eftir Guð-
mund Bernharðsson og ritgerð
Ólafs Þ. Kristjánssonar um Sæból
og kirkjuna að fornu. en það er
meginmál ársritsins að þessu
sinni.
Þá er í heftinu minningargrein
um Jóhann Gunnar Olafsson,
fyrrv. bæjarfógeta, sem var í rit-
stjórn ársritsins, formaður Sögufé-
lagsins í 26 ár og forystumaður
Byggðasafns Vestfjarða.4>á skrifar
Jóhannes Davíðsson um Björn
Guðmundsson á Núpi og sr. Sig-
tryggur Guðlaugsson segir frá
sönglífi í Dýrafirði í byrjun aldar-
innar. Eyjóifur Jónsson skrifar um
Kristján Guðríðarson og Torfi Sig-
urðsson skrifar um örnefni á Bæj-
um á Snæfjallaströnd. Einnig er í
ritinu ýmislegt annað efni, vísur og
fróðleiksmolar.
komið út
Forsíðu Ársrits Sögufélags ís-
firðinga prýðir litmynd af Sæbóli
á Ingjaidssandi.