Morgunblaðið - 19.07.1980, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1980
Jóhann
er í 3.—
5. sæti
ÍSLANDSMEISTARINN í skák.
Jiíhann Iljartarson. hefur staOiO
sík með prýði á alþjoðleKU skák-
móti. sem nú stendur yfir í New
York.
Þegar 7 umferðum er lokið er
Jóhann í 3.-5. sæti með 5 vinninga
ásamt stórmeisturunum Benkö ok
Dzindzindhasvili. Éfstur er Banda-
ríkjamaðurinn Watson með 6Vi
vinninjr ok annar í röðinni er landi
hans Henley með 5'k vinning.
Marj<eir Pétursson byrjaði afar illa í
þessu móti en hefur mjög sótt í sig
veðrið upp á síðkastið. Hefur Mar-
geir unnið 3 skákir í röð og hefur
4'k vinning. Árni Árnason, sem er
með yngstu keppendum á mótinu
hefur hlotið 1 'k vinning.
Lögreglan
í eltinga-
leik við öku-
fant á140
km hraða
ÞAÐ mun eflaust vekja undrun
og óhug fólks að somu daga og
hrikaleg slysaalda riður yfir
þjóðina skuli lögreglan vera í
eltingaleik við ökumann á 140
km hraða. Atvikið gerðist í gær á
Vesturlandsvegi, einhverjum fjöl-
farnasta þjoðvegi landsins.
Síðdegis í gær voru vegalög-
reglumenn á ferð um Vesturlands-
veg. Þegar þeir komu að Móum á
Kjalarnesi mættu þeir fólksbifreið
á geysilegum hraða og stefndi hún
til borgarinnar. Lögreglumennirn-
ir snéru bifreið sinni strax við og
hófu eftirför. Svo mikill var hraði
fólksbifreiðarinnar að hann
mældist mest 140 km. Tókst lög-
reglumönnunum ekki að stöðva
bifreiðina fyrr en við Kaupfélagið
í Mosfellssveit. Hafði hún þá farið
framúr mörgum bifreiðum og ver-
ið langtímum saman á öfugum
vegarhelmingi.
Okumaðurinn, ungur maður,
var færður á lögreglustöðina í
Reykjavík og umsvifalaust sviptur
ökuleyfi. Verður mál hans síðan
sent sakadómi Reykjavíkur til
dómsmeðferðar.
Óheillaþróun í
fargjaldamálum
vegna gengissigs
- segir blaðafulltrúi Flugleiða
NOKKRAR hækkanir hafa orðið
að undanförnu á millilandafar-
gjöldum Flugleiða. Hinn 1. apríl
sl. varð 5% almenn fargjalda-
hækkun vegna eldsneytishækk-
ana. síðar kom hækkun vegna
gengissigs um 15%. Siðan hefur
fargjöldum verið breytt þrisvar
vegna gengissigs. um 5% hinn 1.
maí, 5% 1. júlí og tæp 4% 15. júlí
Má sem dæmi nefna að nætur-
fargjaldið til Kaupmannahafnar
var 101 þúsund krónur þegar
næturflugið hófst í maí, en er nú
kr. 121.300. Almennt sérfargjald
til Kaupmannahafnar var í apríl
225.500, en er nú 244.900 og til
Glasgow var almennt sérfargjald
158.100, en er nú 171.700. Sveinn
Sæmundsson sagði að mikil óheilla-
þróun væri nú í fargjaldamálum
vegna gengissigs og hefði sjaldan
þurft að leiðrétta fargjöld með svo
stuttu millibili sem nú.
Framboð Vigdísar:
Sjötugsafmæli Edvards
Kðvarð Sigurðsson formaður Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og einn
helsti forystumaður islenzkrar verkalýðshreyfingar um áratuga skeið
varð sjötugur í gær. Af þvi tilefni hafði Dagshrún opið hús í Lindarbæ i
gær og var þar geysifjölmennt. Bárust Eðvarði fjöldi gjafa. blóma og
heillaóska i tilefni dagsins. Myndin sýnir afmælisbarnið taka á móti frú
Guðrúnu Ilöskuldsdóttur, ekkju Ilannesar Stephensen, sem var
formaður Dagshrúnar næst á undan Eðvarði. Ljósm. Mbl. Kristinn.
Útlit fyrir 8-9
milli. kr. hagnað
EKKI eru öll kurl komin til
grafar ennþá, en ljóst er að við
erum réttu megin við strikið.
kostnaður við framboð Vigdísar
Finnbogadóttur er lægri en það
fé sem safnaðist og er hagnaður-
inn á bilinu 8 til 9 milljónir
króna, sagði Tómas Zoéga. sem
sá um fjármál vegna framboðs
Ólympíuleikarnir i Moskvu:
íslenzki sendiherrann
ekki viðstaddur opnunina
SENIDIIERRA Íslands í Moskvu.
Haraldur Kröyer. verður ekki
viðstaddur opnunarathöfn
ólympíuleikanna í dag og sagði
hann í samtali við Mhl. að fastir
sendiherrar vestrænna ríkja yrðu
við hana. Ilörður Ilelgason ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins kvað hafa verið ákvcðið í
ráðuneytinu að sendiherrann
skyldi ekki vera við opnunarat-
hofnina. en hins vegar myndi
17 ára falsaði
ávísanir fyrir
milljónir kr.
Rannsóknarlögregla ríkis-
ins gerði í gaer kröfu um að
17 ára piltur yrði hnepptur í
allt að 60 daga gæzluvarð-
hald fyrir siendurtekið ávís-
anafals. Dómarinn tók sér
frest til dagsins í dag til þess
að kveða upp úrskurð í
málinu.
Pilturinn var handtekinn á
fimmtudagskvöldið, tæpri
viku eftir að honum var
sleppt úr gæzluvarðhaldi
fyrir ávísanafals. í ljós kom
að hann hafði haldið áfram
fyrri iðju strax og hann slapp
úr fangelsinu og liggur fyrir
að hann hefur á þessari einu
viku falsað ávísanir svo skipt-
ir milljónum króna.
hann vera í opinbcrri móttöku i
tilefni ólympíuleikanna, en hún
var haldin í gærkvóldi.
Haraldur Kröyer sendiherra
sagði í samtali við Mbl. að viðeig-
andi hefði þótt að hann væri
Varðarferð
TIL hagræðis fyrir íbúa í Hafnar-
firði og Kópavogi hefur verið
ákveðið að bíll leggi af stað í
Varðarferðina frá Sjálfstæðishús-
inu við Strandgötu í Hafnarfirði
kl. 7:30 á sunnudagsmorgun og
verði við Hamraborg 1, Kópavogi
kl. 7:45.
viðstaddur boð sovézku ríkisstjórn-
arinnar í gær vegna opnunar
Ólympíuleikanna. Stóð Kosygin
forsætisráðherra fyrir móttökunni
sem fram fór í Kreml að loknum
tónleikum þar á vegum mennta-
málaráðuneytisins. Sendiherrann
sagði að enginn fulltrúi Nato ríkis
yrði viðstaddur opnunarathöfnina í
dag, en af vestrænúm ríkjum vissi
hann að fulltrúar Grikklands og
Austurríkis yrðu viðstaddir og lík-
lega fulltrúi Svíþjóðar. Þá kvaðst
sendiherrann að líkindum þekkjast
boð alþjóðaólympíunefndarinnar,
sem yrði á þriðjudag. Haraldur
Kröyer afhenti við athöfn kl. 11 í
gærmorgun skilríki sín sem sendi-
herra íslands.
Vigdísar til forsetaembættis.
Tómas Zoéga kvað enn beðið
nokkurra reikninga og kæmi end-
anlegt uppgjör vart fyrr en nokk-
uð væri liðið á næsta mánuð. Yrði
niðurstaðan þá kynnt og hvað gert
yrði við umframféð, það myndi
framkvæmdanefndin ákveða, en
líklegast rynni það til líknarmála.
Þórður Sverrisson kosninga-
stjóri Guðlaugs Þorvaldssonar
kvað kostnað við framboðið hafa
verið áætlaðan 37,5 milljónir og
gerði hann ráð fyrir að sú áætlun
stæðist nokkurn veginn. Kvað
hann fyrirsjáanlegt að dæmið
myndi ganga upp, ekki yrðu millj-
ónir í afgang, en útkoman myndi
standa á jöfnu. Þorvaldur Mawby,
sem hefur með fjármál vegna
framboðs Alberts Guðmundssonar
að gera, kvað uppgjöri ekki lokið,
en bjóst við að það yrði fljótlega
og kvað hann ekki hafa verið
tekna ákvörðun um hvort niður-
stöður yrðu birtar. Ekki náðist í
fulltrúa Péturs Thorsteinssonar
til að fá fréttir af kostnaði við
framboð hans.
Tvær umsóknir
TVÆR umsóknir hafa borizt til
biskupsembættisins um starf
sóknarprests í Seljasókn í Reykja-
vík, en umsóknarfrestur rann út í
vikunni. Eru þær frá sr. Úlfari
Guðmundssyni sóknarpresti á
Ólafsfirði og sr. Valgeiri Ást-
ráðssyni, sóknarpresti á Eyrar-
bakka.
__^_
Vegaþjónustubílar FIB
FÉLAG ísl. bifreiðaeigenda held-
ur úti fimm vegaþjónustubilum
um helgina. Geta ökumenn. sem
leið eiga um landið náð samhandi
við þá gegnum Gufunesradíó.
Hrúarradíó eða Akureyrarradló.
Einnig bendir F.I.B. fólki á að
koma aðstoðarheiðnum á fram-
færi gegnum þá fjölmörgu. sem
hafa talstöðvar i hílum sfnum.
í dag og á morgun verða vega-
þjónustubílarnir staðséttir sem
hér segir: Bíll nr. 5 í Borgarfirði,
nr. 9 á Akureyri, nr. 2 á Bílaverk-
stæðinu Víði í Víðidal, nr. 7 á
Hornafirði og nr. 6 á Bílaverk-
stæði Dalvíkur. í frétt frá F.Í.B.
segir að félagar gangi fyrir um
þjónustu og er mönnum bent á að
hafa meðferðis viftureimar, vara-
hjólbarða og helztu varahluti í
kveikju.
Ljc>Km. ÓI.K.Mag.
Myndin er af husandarungunum sem getið var um i baksíðufrétt Morgunbl. í gær. Þeir eru barna á
sundi með fósturmoður sinni, sem er toppönd, á Tjörninni i Reykjavik. H