Morgunblaðið - 19.07.1980, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 19.07.1980, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ 1980 Elías Kristjáns- son fyrrv. birgða- stjóri - Minning Fæddur 3. drscmbor 1905 Dáinn 11. júlí 1980 Andlát frænda míns ot; sam- starfsmanns um áraraðir, Elíasar Kristjánssonar, kom mér á óvart. Éj; hafði tal af honum fyrir skömmu, þá var hann hress að vanda með áætlanir um ferðir á æskuslóðir vestur í Reykhólasveit. Elías var fæddur að Skerðings- stöðum í Reykhólasveit 3. desem- ber 1905, hann var því tæpiega 75 ára er hann andaðist 11. þ.m. Elías var sonur hjónanna Agnesar Jónsdóttur ot; Kristjáns Jónssonar bónda ot; hreppstjóra, sem þar bjut;t;u. Hann var 6. í röðinni af 14 systkinum. Snemma kom fram hjá honum áhu(;i til að menntast. Systkinin voru mörg og veraldar- auður foreldranna takmarkaður. Elías stundaði nám í Hvítár- bakkaskóla 1924—1926 til undir- búnings frekara náms. Kreppan var í algleymingi og erfitt um fjárráð. Hann réðist eitt sumar á síld. Það sumar varð aflabrestur og tekjur rýrar. Hann hafði ákveðið að fara til Noregs til frekara náms. Elías hafði sam- band við skipstjóra á norsku síldveiðiskipi og samdist svo um að hann fengi að fljóta með til Noregs um haustið fyrir sann- gjarnt verð. Þannig hafði Elías öll spjót úti um að spara þær fáu krónur, sem hann hafði safnað til námsins. Elías stundaði nám við lýðhá- skólann í Voss 1928—29 og Skiens- fjord Mekaniske Fagskole 1929— 31. Þegar Elías kom heim gerðist hann eftirlitsmaður hjá Lands- símanum. Var starf hans einkum fólgið í eftirliti símabúnaðar á landssímastöðvunum og gera til- lögur um breytingar til bóta. Minningar vakna — ég ungur að árum ferðaðist með Eiíasi um landið í símaeftiriitsferðum 1943. Árið 1941 hafði Elíasi verið afhent ný bifreið til eftirlitsstarfa, sem hann réði allri yfirbyggingu og innréttingu á. Innréttingin vakti athygli hvar sem komið var. Það voru skápar fyrir nauðsynlegustu mælitæki, skrifborð, sem hægt var að leggja upp að vegg, fataskápur og öðrum megin var svefnbekkur. Þetta hannaði Elías einkum til að vera óháður gististöðum á sínum mörgu eftirlitsferðum. Þó veit ég að hann þurfti sjaldan að nota þessa aðstöðu, þar sem honum var alls staðar fagnað hvar sem hann kom, — ætíð glaður og reifur. í júlí 1943 var afráöiö að ég færi með Elíasi til að kynnast síma- lögnum á Norður- og Austurlandi. Þetta sumar var kalt á Norður- og Austurlandi. Frá Húsavík var ferðinni heitið til Austurlands um Reykjaheiði. Á heiðinni snjóaði og voru bílar fastir í snjó í byrjun ágúst. Sigurður heitinn Kristjáns- son símstöðvarstjóri og bóndi á Grímsstöðum á Fjöllum kvaðst vart muna slíka tíð. Þar var snjór yfir öllu og slydduhríð um háslátt- inn. Síminn yfir fjallgarðinn Haug, sem er á milli Grímsstaða og Vopnafjarðar og tengdi ísland við Evrópu um gamla sæsímann, var bilaður og var rík áhersia lögð á að viðgerð yrði hraðað. Elías samdi við Sigurð um að fá leigða hesta og fylgdarmann. Sig- urður brást vel við og fylgdarmað- urinn var ekki neinn amlóði, sonur Sigurðar, Benedikt, hreystimenni mikið. Ég hafði verið í sveit og vanist hestum, enda kom það sér vel. Við fengum svartahríð og er í sælu- húsið á Haug kom voru flestir ánægðir, enda hríðin svo svört að ekki sást á milli staura, — sem þar voru á aðeins 25 metra bili, næst jarðsímanum, sem liggur yfir efsta hluta Haugs og var jarðsíminn biiaður. Næsta dag, við erfiðar aðstæð- ur, var unnið að mælingum og viðgerð undir öruggri stjórn Elías- ar Kristjánssonar. Þeir sem þekktu Elías vissu að hann vildi láta hlutina ganga og gat verið hamhleypa til verka. Enda drógu þeir ekki af sér Elías og Benedikt í þetta skipti á Haug í hríðarveðri. Lýðveldisárið 1944 var Elías skipaður birgðastjóri Pósts og síma og gegndi því starfi með sóma þar til að hann lét af störfum vegna aldurs árið 1975. Elías var hestamaður góður og átti verðlaunagæðinga, sem hann hafði yndi af að hugsa um og hirða. Elías Kristjánsson taldi það sitt mesta gæfuspor á lífsleiðinni er hann, 21. ágúst 1937, kvæntist Randí Þórarinsdóttur. Þeim varð tveggja barna auðið. Sonurinn Þorgeir og dóttirin Betzý voru þeim einkar kær og færðu þeim barnabörnin, sem voru þeirra augasteinar. Hjónaband Randíar og Elíasar var einkar hugljúft — sólskins- dagar til hinsta dags. Við hjónin vottum frú Randí, börnum, barnabörnum og öðrum vandamönnum dýpstu samúð. Hafstcinn Þorsteinsson. Horfinn er vinur. Minningar streyma fram, minningar um vel- gerðar- og sómamanninn Elías Krístjánsson. Ég sem þessar línur rita, kynnt- ist Elíasi fyrir 30 árum. Allan þennan tíma reyndist hann mér sem besti faðir, alltaf reiðubúinn að leysa vanda sem að höndum bar. Alltaf hafði hann tíma til slíks þótt hlaðinn væri störfum. Já, það er ómetanlegt að hafa átt slíkan mann, sem Elías heitinn var, að fölskvalausum vini. Ekki er ætlun mín að gera farsælu ævistarfi Elíasar Krist- jánssonar tæmandi skil, aðeins bera fram þakkir við leiðarlok. Kæra Randí og börn. Mikill er ykkar harmur, megi góður guð styrkja ykkur á kveðjustund. Ég og fjölskylda mín vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Að endingu bið ég guð að blessa minningu þessa mæta manns. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Sveinbjörn Bcncdiktsson Dauðsföll koma á óvart, þegar ekki er vitað annað en að heilsan sé í góðu lagi, enda þótt aldur sé farinn að færast yfir. Mér brá því nokkuð, þegar mér var tilkynnt um lát Elíasar Krist- jánssonar fyrrv. birgðastjóra Pósts og síma. Ekki er langt um liðið síðan ég hitti Elías og þá glaðan og hressan að vanda og fullan áhugaá ýmsum verkefnum, sem fyrir lágu. Elías lét af störfum hjá Pósti og síma 31. des. 1975 þá sjötugur að aldri. Ellimörk voru þó ekki á honum að sjá, nóg verkefni biðu og nokkrum mánuðum eftir að hann hætti sagði hann við mig að fólk ætti ekki að þurfa að kvíða því að fylla 70 árin, margt væri hægt að gera sér til gagns og dægrast.vttingar. Elías réðist til Pósts og síma á miðju ári 1933, var þá nýkominn frá námi í Noregi. Vann hann við ýmis störf á tæknisviðinu en snemma árs 1945 var hann settur til þess að hafa umsjón með birgðum stofnunarinnar og var birgðastjóri þar til hann hætti starfi. Áuk þess hafði hann á hendi stjórn og umsjón með ýms- um framkvæmdum og fórust hon- um öll þessi störf vel úr hendi. Elías var ávalt með það í huga að vel og hagkvæmlega væri unnið en jafnframt lagði hann áherslu á hirðusemi og snyrtimennsku, enda var frágangur allur til fyrirmynd- ar. Ég kynntist Elíasi ekki fyrr en árið 1961 er ég réðist til starfa hjá Pósti og síma. En alla tíð síðan höfðum við mikil samskipti og margvísleg mál voru rædd. Og alltaf var Elías úrræðagóður og fundvís á þær leiðir, sem hag- kvæmastar voru í hverju máli. Elías var reglusamur og árvökull í starfi og krafðist þess sama af öðrum. Fór ávalt vel á með okkur og gat ég margt af honum lært. Elías var kátur og hress í vinahópi og kunni frá mörgu skemmtilegu að segja og gæddi hverja frásögn miklu lífi. Hann var traustur vinur vina sinna og gott var til hans að leita. Góður drengur er genginn. Við kveðjum hann með þökk í huga og biðjum honum góðs á nýjum leiðum. Eftirlifandi eiginkonu og öðrum aðstandendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Páll V. Danielsson. llryKKjast ok KloAjast hér um íáa daga. hcilsast »k kvortjast þaA or lifslns saRa. Enn hefur hinn slyngi sláttur- maður verið hér á ferð meðal okkar og höggvið stórt skarð í vinahópinn. Það var vorið 1945 að fundum okkar Elíasar Kristjánss- onar bar fyrst saman á heimili Jónu systur minnar og Ólafs mágs míns að Hamrafelli í Mosfellss- veit. Þeir Ólafur, Elías og Jóhann Jónasson frá Öxney voru þá búnir að reka þar félagsbú í eitt ár. Þá þegar voru þau Elías og kona hans Randý Þórarinsdóttir orðnir miklir og góðir heimilisvinir fjöl- skyldunnar á Hamrafelli. Hafa þau vináttubönd haldist síðan og aldrei rofnað. Má með sanni segja að þessar tvær fjölskyldur hafi sameinast í eina er árin liðu. Ég minnist þess, að móðir mín, sem heima átti á Hamrafelli sín síðari ár, sagði oft við mig að hann Elías ætti engan sinn líka og veit ég að margur hefur viljað taka undir orð hennar. Seinna áttum við Elías eftir að vera nágrannar í Mosfellssveitinni um ára bil. Betri nágranna get ég ekki hugsað mér. Það var eins og hann væri alltaf í viðbragðsstöðu til hjálpar, ef hann hélt eitthvað vera að. Hann var sjálfur yfir- hlaðinn störfum alla tíð, þó var eins og hann hefði tíma til alls. Varð það til þess, að margir notfærðu sér þessa eiginleika hans, því þeir vissu að Elías vildi hvers manns vanda leysa. Það var gaman að sjá Elías vinna. Frá honum stafaði kraftur og sú hreina vinnugleði þess, sem á margt getur lagt gjörva hönd. Elías var mikill ferðamaður og komst oft í hann krappan á sínum ferðum að vetri til í stórviðrum og eins í viðureign við óbrúaðar ár og önnur torleiði. Skemmtilegur ferðafélagi var hann og manna fróðastur um menn og málefni þessa lands. Hafði og mikla frásagnarhæfileika og kunni manna best að segja frá spaugi- legum atburðum og bianda frá- sögn sina græskulausu gamni. Ekki var ég lengi búinn að þekkja Elías, er hann trúði mér fyrir því, að allt frá bernskudög- um sínum hafi hann átt sér þann draum að eignast góðan reiðhest. Svo gerðist það einn síðsumardag, eftir að hann fékk umráðarétt yfir landsspildu í Mosfellssveit, og kallaði Vík, að hann bregður sér austur að Kirkjubæ á Rangárvöll- um og kaupir þar tvær brúnar hryssur. Ég man það enn, hvað hann var innilega glaður er hann sýndi mér þær í fyrsta sinn. Síðan þetta var hefur mikið vatn til sjávar runnið, en Elías hélt vöku sinni og nú, er leiðir skilja var hann búinn með sinni smekkvísi og framsýni að koma sér upp álitlegum reiðhestastofni, sem hver hrossaræktunarmaður gæti verið stoltur af að eiga. Enda eru þær orðnar margar ánægjustund- irnar, sem þau hjón Elías og Randý hafa átt í sambandi við að koma þessum stofni á legg. Elías Kristjánsson var maður hlýr í viðmóti og barngóður svo að börn undu sér best þar sem hann var. Ekki voru börnin á Hamra- felli eða Bjargarstöðum þar af- skift og reyndist hann þeim í blíðu og stríðu sem besti faðir. Og nú þegar hann er horfinn frá okkur, eru honum færðar ástar- þakkir frá þeim og foreldrum þeirra fyrir samfylgdina. Konu hans, börnum og barnabörnum vottum við okkar dýpstu samúð, og biðjum góðan guð að styrkja þau á raunastund. Benedikt Sveinbjarnarson, Austvaðsholti. ATHYGLI skal vakin á þvi, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðvikudagsblaði. að berast i siðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frum- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. + Bróöir okkar, STEINGRÍMUR S. WELDING, bílvélavirki, lést í Landspítalanum 17. þessa mánaöar. Systkini hins látna. t Hjartkær bróöir okkar, ÚLFAR GUÐJÓNSSON, bifreiöarstjóri frá Vatnsdal, Reynimel 46, Reykjavík, lést aö heimili sínu 13. júlí sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. júlí kl. 15 síödegis. Systkinin. + Móöir okkar, ANNA Þ. MAGNUSDOTTIR, Bústaöavegi 73, veröur jarösungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 21. júlí ki. 13.30. Hulda Sproat, Elfar Skarphéöinsson, Anna S. Skarphéðinsdóttir, Magnús Skarphéóinsson, Elín Skarphéöinsdóttir, Hilmar Skarphéöinsson. + Ástkær eiginmaöur minn, faöir, sonur okkar og bróöir, INGI GARÐAR EINARSSON, Flúöaseli 61, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 23. júlí kl. 10.30. Þelm sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélag íslands eöa Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra. Dagný Leifsdóttir, Steinunn Sigurgeirsdóttir, Ragnar G. Einarsson, Davíö örn, Einar Helgason, Helgi R. Einarsson. + Ástkær dóttlr mín, kona. móöir okkar, tengdamóöir og amma, ANNA SIGUROARDÓTTIR, Meistaravöllum 23, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 21. þ.m. kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna. Hansína Jóhannesdóttir, Jón Kristjánsson, Anna Bjarnadóttir, Hansina Bjarnadóttir, Hrafnhildur Bjarnadóttir, Þóranna Bjarnadóttir, Bára Bjarnadóttir, Hrönn Jónsdóttir, Guórún Bjarnadóttir, Kristinn Oddsson, örn Ingólfsson, Róbert Brink, Kristján Jónsson ______________ •1 .. v • ■'rt. :• .A<dr-3HMiHEiVnfaW og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát eiginmanns míns, fööur okkar, afa og langafa, ÞORLÁKSÁSMUNDSSONAR, Langholtsvegi 148. Sérstakar þakkir færum viö Umbúöamiöstööinni h.f. Héöinsgötu 1. Eva Asmundsson, Asmundur Þorláksson, Elíane Þorláksdóttir, Svana Guöbrandsdóttir, Yngvi Jóhannsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.