Morgunblaðið - 19.07.1980, Síða 5

Morgunblaðið - 19.07.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JÚLÍ1980 5 Vinnuveitendasamband Islands: Messa í eyðikirkju að Stað í Aðalvík EKKI alls íyrir loniru efndi Átthagafélag Sléttuhrepps til ferðar til Aðalvikur og gafst þá féiögum ok gestum þeirra kost- ur á að heimsækja Kömlu átt- hagana. Félagið efnir til slikrar ferðar þriðja hvert ár og er þessi hin fjórða í röðinni. Prest- ur er jafnan með i þessum ferðum <>k messar að Stað i Aðalvik, gamla prestssetrinu. Tilhögun þessara ferða er þannig að Átthagafélagið skipu- leggur og boðar ferðina en fólkið safnast saman á ísafirði á til- settum tíma. Þaðan er svo farið á Strandir með Fagranesinu. Að þessu sinni var haldið af stað frá ísafirði föstudaginn 11. júlí og sá núverandi formaður félagsins, Friðrik Hermannsson lögregluþjónn frá Látrum, um ferðina. Fyrst var komið við á Sléttu en aðalhópurinn fór í land á Sæbóli. Fagranesið hélt síðan áfram að Látrum og þaðan norður að Höfn í Hornvík með ferðafólk. Messað var í Sæbólskirkju kl. 2 sunnudaginn 13. júlí og var kirkjan troðfull og stór hópur utandyra, — nálega 200 manns voru við þessa messu. Prestur var séra Olafur Skúlason. Frið- rik Hermannsson sá um að láta sérprenta sálma, sem sungnir voru við messuna, og gat prestur þess sérstaklega að hvaða söfn- uður sem væri gæti verið ánægð- ur með þann söng sem í kirkj- unni var. Þegar sálmarnir höfðu verið sungnir var sungið síðasta erindi kvæðisins Aðalvík sem Jón M. Pétursson orti til sveitar- innar 1924. Erindið er svona: Hrilla vættfr hlúi hér aA hvrrjum reit. Blessun æ hér búi. breiAist friAur yfir sveit. Börn þin ætiA lukkan ieiAi lifs i striAi og hverri þraut. Æ þau tiitni huaans heiAi. hræsni allri visi i braut. Að lokinni messu sáu konur um veitingar á prestssetrinu, sem nú er komið í eyði, fyrir alla sem hafa vildu. Síðan byggðin í Aðalvík fór í eyði hafa verið reist þrjú ný hús Sæbólsmegin og eitt er í bygg- ingu í sumar. I þessum húsum er búið yfir sumartímann og eru það fyrrverandi Aðalvíkingar sem þau hafa reist. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, einn þátttakenda í ferðinni, seg- ir að hún hafi verið mjög ánægjuleg í alla staði, „en það skyggði nokkuð á, að þrátt fyrir góðan vilja biskups um að við fengjum afnot af kirkjumunum okkar, sem geymdir eru á ísa- firði, þá gekk okkur illa að fá þá. Sérstaklega söknuðum við þess að fá ekki báðar kirkjuklukkurn- ar, því kærar minningar tengj- ast því þegar þeim var hringt saman og klukknahljóðið ómaði milli fjallanna í víkinni." ASÍ hefur slit- ið viðræðun- um við VSÍ Hér fer á eftir fréttatilkynn- ing, sem Morgunblaðinu barst í gær frá Vinnuveitendasambandi íslands um viðræðuslit milli ASf og VSÍ á sáttafundi. sem haldinn var i gær og stóð fjórar klukku- stundir, frá klukkan 08 til 12 á hádegi: Á fundi sem sáttanefnd hélt kl. 8.00 í morgun með fulltrúum vinnuveitenda kom fram af hálfu Vinnumálasambands samvinnufé- laganna, að það hefði að undan- förnu átt fundi með Alþýðusam- bandi íslands um sérsamninga þessara aðila á nánar tilteknum grundvelli. Þegar þessi staða var komin upp, lýsti VSÍ yfir því að það sæi ekki ástæðu til frekari viðræðna við ASÍ þar sem óeðli- legt væri að slíkar baktjaldavið- ræður færu fram samhliða opin- berum viðræðum ASI og VSI undir stjórn sáttanefndar. Á fundi sem sáttanefnd hélt í framhaldi af þessu með fulltrúum ASÍ og VSÍ afneituðu fulltrúar Alþýðusambandsins alfarið að viðræður hefðu farið fram við Vinnumálasamband samvinnufé- laganna að undanförnu, jafnvel ekki í einkasamtölum. En jafn- framt lýsti ASÍ yfir því þegar í byrjun fundarins að viðræðunefnd þessi hefði fyrr um morguninn ákveðið að óska eftir því við sáttanefndina að hún boðaði til sérviðræðufundar milli ASI og Vinnumálasambands samvinnufé- laganna kl. 14.00 á þriðjudag í næstu viku. Fulltrúar ASÍ sögðu að þessi ákvörðun hefði verið tekin eftir að viðræðunefndin hefði lagt mat á niðurstöðu fundar milli ASÍ og VSÍ sl. miðvikudag. Af hálfu VSÍ voru ekki bornar brigður á afneitum ASÍ á sérvið- ræðum við Vinnumálasamband samvinnufélaganna að undan- förnu. En fyrirvaralausa ósk ASÍ um sérviðræður við Vinnumála- samband samvinnufélaganna get- ur VSÍ á hinn bóginn ekki túlkað á annan veg en ASI hafi ákveðið að rjúfa viðræðurnar við Vinnuveit- endasambandið. Fulltrúar Vinnu- veitendasambandsins lýstu þar af leiðandi á ný yfir því, að VSI tæki ekki við svo búið þátt í frekari viðræðum við ASI. Samningaráð Vinnuveitenda- sambands íslands lítur því svo á að viðræðunefnd ASÍ hafi með fyrirvaralausri ósk um sérviðræð- ur við Vinnumálasamband sam- vinnufélaganna rofið samninga- viðræðurnar og þar þeð hindrað frekara sáttastarf milli ASÍ og VSÍ. Stórfellt atvinnuleysi á Ljósmyndasýning hald- in í tilefni afmælis S.I. Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins: Laugardaginn 19. júli hefst i Alþýðuhúsinu á Siglufirði ljós- myndasýning. Alls eru á sýning- unni 350 myndir, og eru flestar þeirra eftir Steingrim Kristins- Leiðrétting Prófessor Gísli Jónsson hafði samband við Mbl. vegna fréttar í blaðinu í gær frá fundi Neytenda- samtakanna undir fyrirsögninni „Vann málið og fékk bætur". Sagði hann fréttina rétta, en einhver misskilningur hefði orðið um til- efni þess að maðurinn fór í mál við Rafveitu Hafnarfjarðar. Ástæðan var sú, að Rafveitan hækkaði gjaldskrá sína um 10%, skv. heim- ild, en hóf innheimtu án þess að gjaldskráin hefði verið auglýst, sem henni ber að gera. „Aftur á móti“, sagði Gísli, „gerðist það einnig, að sama rafveita hækkaði eitt sinn einn lið gjaldskrár um 19%, en hafði aðeins heimild til 17% hækkunar. Það mál fékkst leiðrétt með milli- göngu iðnaðarráðuneytisins og fengu þolendur mismuninn endur- greiddan." Kirkjugestir koma að landi við Sæból. Myndin er tekin í fyrstu kirkjuferðinni. Átthagafélag Sléttuhrepps: son. Hluti er úr safni Kristfinns Guðjónssonar, og örfáar eru eft- irtökur. Ljósmyndasýningin er haldin i tilefni 50 ára afmælis Sildarverksmiðja ríkisins. Allar myndirnar hefur Steingrimur Kristinsson unnið til sýningar- innar og eru þær til sölu, með þeirri undantekningu að pcr- sónuljósmyndir eru aðeins seldar með samþykki viðkomandi eða ættingja hans. Sýningin á að sýna mannlifið, starfsmenn S.R. og hluta af umhverfinu sem þeir hafa lifað i. Hagi hf. hefur um langt skeið haft verzlun og sýningar- sal að Suðurlands- braut 6 í Reykjavík, auk verzlunar sinn- ar á Akureyri, en hefur nú flutt verzl- unina í Reykjavik í Austurver við Iláa- leitishraut. komandi haustmánuðum haustmánuðum. Ljóst er, að nú- verandi ríkisstjórn eða hluti henn- ar getur hlaupist frá þeim vanda sem við er að glíma hvenær sem er. Framkvæmdastjórn verkalýðs- ráðs Sjálfstæðisflokksins telur að Sjálfstæðisflokkurinn verði að vera tilbúinn að axla þá ábyrgð sem því fylgir að fara með stjórn landsins í minnihlutastjórn eða í samvinnu við aðra stjórnmála- flokka í þeim tilgangi að leysa þau vandamál, sem við er að etja og treysta atvinnuöryggi lands- manna. Fundurinn beinir því til mið- stjórnar og þingflokks að vinna ötullega að því, að á næsta Alþingi verði lagðar fram tillögur um breytingu á kjördæmaskipun sem miði að auknum jöfnuði þegnanna í vægi atkvæða. Um tillögur sjálf- stæðismanna í því máli, varan- legar aðgerðir gegn verðbólgunni, lausn á offramleiðslu landbúnað- arvara, virkjun vatnsfalla og aukna stóriðju, auk alhliða upp- byggingar hefðbundinna atvinnu- greina, verði svo kosið í næstu kosningum. MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Verka- lýðsráði Sjálfstæðisflokksins: Fundur í framkvæmdastjórn Verkalýðsráðs Sjálfstæðisfiokks- ins þann 16. júlí undirstrikar enn einu sinni að aðalorsök þess efna- hagsvanda, sem þjóðin nú býr við, er óðaverðbólgan, sem ekkert lát virðist vera á og engar raunhæfar ráðstafanir gerðar gegn. Hinn mikli vandi útflutnings- atvinnuveganna er að lang mestu leyti verðbólgunni að kenna, sem í haust mun taka enn stökk upp á við. Vandinn, sem við er að glíma, hefur þegar orsakað uppsagnir starfsmanna fiskiðnaðarins í hundraðatali og er allt óráðið hvort frystihúsin, sem eru megin- uppistaða atvinnulífsins kringum allt land, taki til starfa að loknum sumarleyfum. Ef ríkisstjórnin tekur ekki í taumana á næstu vikum og treyst- ir grundvöll atvinnuveganna, er viðbúið að yfir þjóðina dynji stórfellt atvinnuleysi á komandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.